Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2013, Blaðsíða 6
6 Fréttir 13. mars 2013 Miðvikudagur
„Óafsakanlegt ábyrgðarleysi“
n Kárahnjúkavirkjun stórskaðaði Lagarfljót n „Hunsuðu athugasemdir Skipulagsstofnunar“
K
árahnjúkavirkjun hefur
stórskaðað lífríkið í Lagarfljóti
og valdið stórfelldu landbroti í
ánni. Þetta kemur fram í skýrsl-
um Landsvirkjunar sem kynntar hafa
verið að undanförnu, en þar er fjallað
um niðurstöður rannsókna á áhrifum
Kárahnjúkavirkjunar á landbrot og líf-
ríki fljótsins. Álfheiður Ingadóttir, þing-
kona Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs hefur óskað sérstaklega eftir
því að umhverfis- og samgöngunefnd
Alþingis fjalli um málið. Vill hún að
til fundarins komi fulltrúar Lands-
virkjunar, Gunnar Jónsson formaður
bæjar ráðs, bóndi á Egilsstaðabýlinu og
sérfræðingar Náttúrufræðistofnunar
og Umhverfisstofnunar. „Ég tel mjög
mikilvægt að við lærum af reynslunni
af Kárahnjúkavirkjun og látum nátt-
úruna njóta vafans,“ segir í tilkynn-
ingu frá Álfheiði. „Ef varúðarreglan er
í heiðri höfð áður en framkvæmdir eru
heimilaðar munu afleiðingar þeirra
ekki koma mönnum á óvart eins og nú
virðist vera.“
Skýrslurnar sanna að ýmsu leyti
þær viðvörunarraddir sem heyrðust
áður en framkvæmdir við Kárahnjúka
hófust. Hafa bakkar Lagarfljóts brotn-
að niður og fiskalífi hrakað. „Þar með
er ljóst að eitt af fegurstu vötnum
landsins hefur orðið fyrir stórskaða,“
segir í tilkynningu frá Árna Finnssyni,
formanni Náttúruverndarsamtaka
Íslands sem kallar niðurstöðurnar
vitnis burð um fyrirhyggjuleysi þeirra
sem mæltu fyrir Kárahnjúkavirkjun á
sínum tíma. „Kárahnjúkavirkjun ber
vitni um óafsakanlegt ábyrgðarleysi
þeirra stjórnmálaafla sem hvað harð-
ast gengu fram í því að virkjunin yrði
byggð. Þeir hunsuðu athugasemdir
og niðurstöður Skipulagsstofnunar
og höfðu að engu þær viðvaranir vís-
indamanna og fagstofnana sem komu
fram sem og víðtæk andmæli náttúru-
verndarsamtaka.“ Varar Árni við fyrir-
hugaðri virkjun í Bjarnarflagi sem
hann telur að haft geti hörmuleg áhrif
á lífríki Mývatns og næringarflæði í
vatninu.
Andri Snær Magnason, rithöfundur
og umhverfisverndarsinni, segir á
bloggsíðu sinni að nú sé komið í ljós
það sem margir óttuðust; Lagarfljótið
sé dautt. „Það er ekki hægt að segja að
það hafi komið á óvart.“ johannp@dv.is
Stál frá Kína í nýrri brú
n Ekki góð reynsla af stálvirki frá Kína n Stálsmiðir anna ekki eftirspurn
J
á, þetta er smíðað í Kína,“ segir
Jón Halldór Jónasson, upplýs-
ingafulltrúi hjá Reykjavíkur-
borg, um stálvirkið sem notað
er í göngu- og hjólabrýr yfir
Elliðaárósa sem nú eru í byggingu.
Það er verktakafyrirtækið Ístak sem
sér um framkvæmdina, en áætlað-
ur heildarkostnaður við hana er 230
milljónir króna sem skiptist á milli
Reykjavíkurborgar og Vegagerðar-
innar. Var það 36 milljónum króna
lægra en næsta tilboð, sem einnig
var frá Ístaki.
Upphaflega stóð til að brýrnar
yrðu opnaðar fyrir umferð í maí en
ákveðið var að taka svokölluðu frá-
vikstilboði Ístaks sem þýddi lengri
framkvæmdatíma. Áætluð verklok
eru því ekki fyrr en 31. ágúst næst-
komandi. Frávikstilboðið felur
einnig í sér að stálvirkið er smíðað í
Kína sem lækkar framkvæmdakostn-
aðinn verulega. Sú hugmynd að láta
smíða stálið í Kína er því frá verktak-
anum komin en Jón Halldór segir
segir borgina þó vissulega hafa haft
lokaákvörðunarvald.
Uggur í iðnaðarmönnum
Samkvæmt heimildum DV er uggur
í iðnaðarmönnum sem þekkja til
vegna þess að stálið í brýrnar sé kín-
verskt. Enda hefur stálvirki frá kín-
verskum verktökum ekki reynst vel
hingað til.
Skemmst er að minnast þess að
stálvirkið í glerveggnum á suðurhlið
Hörpu var smíðað í Kína af verktaka-
fyrirtækinu Lingyun. Þegar búið var
að setja upp allan veginn haustið
2010 komu í ljós sprungur í málm-
steypunni. Varð það til þess að rífa
þurfti allan vegginn niður og smíða
hann upp á nýtt. Í ljós kom að gæða-
eftirliti hafði verið ábótavant í Kína
og ekki voru gerðar viðeigandi próf-
anir á stálvirkinu áður en það var
flutt til Íslands og sett upp. Kínverska
verktakafyrirtækið bar þó allan
kostnaðinn af niður-
rifinu og uppsetningu á
nýjum vegg.
Fleiri dæmi eru um
að stálvirki frá Kína hafi
reynst illa á Íslandi.
Um þessar mundir er
til að mynda verið að
sandblása og mála
stálvirki við álverið í
Straumsvík sem smíð-
að var í Kína. En máln-
ingin mun hafa verið
farin að flagna af því.
Stálsmiðir
fámenn stétt
Samkvæmt Jóni Halldóri var það
talið réttlætanlegt að láta smíða
stálvirkið í Kína þar sem nóg er
að gera hjá stálsmiðum á Íslandi.
Hann tekur þó fram að smíði stál-
virkisins sé aðeins lítill hluti af verk-
efninu. „Meirihlutinn af þessu er
vinna á vettvangi við erfiðar að-
stæður. Þetta er töluvert mikil
handavinna og vissulega vélavinna
líka. Þannig þetta skapar töluvert af
verkefnum og vinnu.“
Samkvæmt heimildum DV er
það rétt að nóg sé að gera hjá ís-
lenskum stálsmiðum. Heimildirnar
herma að í raun sé svo mikið að
gera í greininni að stálsmiðir anni
varla eftirspurn og verktakafyrir-
tæki hafi þurft að leita út
fyrir landsteinana eftir
vinnuafli. Orsakast þetta
að miklu leyti af því að
stálsmiðir eru orðin
mjög fámenn stétt á Ís-
landi, enda hafa margir
freistað gæfunnar á
erlendri grundu.
Með nýju brúnum yfir
Elliðaárósa styttist leiðin
á milli Grafarvogs og
miðborgar um 700 metra
fyrir gangandi og hjólandi
vegfarendur. Gert er ráð fyrir skilið
sé á milli gangandi og hjólandi um-
ferðar til að stuðla að bættu umferð-
aröryggi og greiðari samgöngum.
Lengd brúnna er um 36 metrar og
nýir göngu- og hjólastígar eru um
280 metrar. Burðarrammar brúnna
eru um 18 metra háir. n
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Elliðaárósar
Göngu- og hjólabrýr
Um er að ræða gerð göngu- og hjólastíga ásamt tveimur göngu- og hjólabrúm yfir Elliðaárósa við norðurenda Geirsnefs. Nýja leiðin mun stytta vegalengd hjólandi og gangandi milli Grafarvogs og miðborgar um 0.7km. Umrædd framkvæmd er vinningstillaga úr samkeppni sem Reykjavíkurborg og Vegagerðin efndu til í desember 2011 í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og Verkfræðingafélag Íslands.
Stígarnir sem liggja að brúnum eru tvískiptir, annars vegar 3,0 metra göngustígur og hins vegar 2,5 metra hjólastígur með 1,2m graseyju á milli. Farið verður yfir ósa Elliðaánna með uppfyllingu að brú yfir vesturkvísl og brú án þrengingar yfir austurkvísl. Brúargólfið verður í einum fleti, breidd 4,5m.
Geirsnef
Vesturkvísl
Austurkvísl
Landfylling Áningastaður Útsýnispallur
Girðing
„Meirihlutinn af
þessu er vinna á
vettvangi við erfiðar að-
stæður.
Teikning Brýrnar munu ytt leiðina á milli Grafarvogs og miðborgar um 700 metra.
Tölvumynd Borgin
tók frávikstilboði frá
Ístaki upp á 230 millj-
ónir króna. Það var 36
milljónum króna lægra
en næsta tilboð sem
var einnig frá Ístaki.
Elliðaárósar Uggur er í
iðnarmönnum, sem þekkja
til, vegna þess að stálið í
brúna kemur frá Kína.
Lögmaður
Geirs hefur
ekkert heyrt
„Ég hef ekkert heyrt,“ segir Andri
Árnason, lögmaður Geirs H.
Haarde, fyrrverandi forsætisráð-
herra, um kæruna sem send var
til Mannréttindadómstóls Evrópu
í október. Kæran var send út af
sektardómi landsdóms yfir Geir
H. Haarde í fyrra. Mál Geirs hefur
nú komist aftur í umræðuna út af
símtali sem hann átti við Davíð
Oddsson í október 2008 út af láni
Seðlabanka Íslands til Kaupþings
en það símtal kom meðal annars
til umræðu fyrir landsdómi.
Kæran vegna landsdóms-
málsins var send til Strassborgar
í október síðastliðinn. Andri segir
að fjöldamörg mál bíði fyrir dóm-
stólnum á hverjum tíma og bæt-
ir því við að málsnúmerið sem
þeirra erindi hafi fengið hafi verið
númer sextíuþúsund og eitthvað.
Hann segir að frá því að kæran var
send og þar til nú hafi hann ekkert
heyrt frá Mannréttindadóm-
stólnum.
Kærur sem sendar eru Mann-
réttindadómstólnum frá Íslandi
berast dómstólnum á íslensku
og fara til íslenska dómarans við
réttinn, Davíðs Björgvinssonar.
Dómstólinn skoðar svo hverja
kæru fyrir sig og ákveður hvort
hún sé dómtæk eða ekki. Svo virð-
ist sem Mannréttindadómstóllinn
hafi enn ekki tekið kæru Geirs
til skoðunar og því hafi enn ekki
verið ákveðið hvort mál hans fær
að fara fyrir dómstólinn eða ekki.
Hjól losnaði
undan strætó
Hjól brotnaði undan strætis-
vagni á Miklubraut um níu leytið
á þriðjudagsmorgun. Vagninn
var við gatnamót Miklubraut-
ar og Kringlumýrarbrautar þegar
hjólið brotnaði af vagninum og
skoppaði af stað. Það mun hafa
rekist í að minnsta kosti tvo bíla
og valdið skemmdum á þeim. DV
reyndi að ná sambandi við fram-
kvæmdastjóra Strætó bs, en hafði
ekki erindi sem erfiði.
Grunaðir um
kókaínsmygl
Tveir karlar frá Litháen,
annar um þrítugt en hinn á
fimmtugs aldri, sitja nú í gæslu-
varðhaldi í tengslum við fíkni-
efnamál, sem er til rannsóknar
hjá lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu. Mennirnir, sem komu
hingað frá Bretlandi í síðustu
viku, voru handteknir síðast-
liðinn föstudag og úrskurðað-
ir daginn eftir í gæsluvarðhald
til 15. mars, en annar þeirra
reyndist hafa innvortis um 500
grömm af ætluðu kókaíni.
Þriðji maðurinn, Íslending-
ur á þrítugsaldri, var svo hand-
tekinn á mánudag, en sá er
grunaður um aðild að málinu
og hefur hann einnig verið úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til
15. mars.
Umdeildar aðgerðir Ráðist var í virkjanaframkvæmdir við Kárahnjúka í stjórnartíð Sjálf-
stæðisflokksins og Framsóknarflokksins við upphaf aldarinnar.