Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2013, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2013, Qupperneq 11
Fréttir 11Miðvikudagur 13. mars 2013 Eindagi afborgana af lánum Íbúðalánasjóðs verður framvegis þremur dögum eftir gjalddaga. Dæmi: Eindagi lána með gjalddaga 1. apríl er 4. apríl. Eindagi lána með gjalddaga 15. apríl er 18. apríl. Eindagi er síðasti dagur sem hægt er að greiða gjalddaga án dráttarvaxta. Ef greiðsla dregst fram yfir eindaga falla á hana dráttarvextir sem reiknast frá og með gjalddaga. Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969 | www.ils.is Breyttur eindagi á lánum Íbúðalánasjóðs Fimmtán ára með bilað hjarta n Mæðgurnar Mekkín Silfá og Guðrún Guðný báðar með sjald gæfan, arfgengan hjartagalla n Fjölmargir í fjölskyldunni með sama galla Um sjúk- dóminn Long QT syndrome 1 heitir hjartasjúk- dómurinn sem mæðgurnar eru með. Sjúkdómurinn orsakast af genagalla sem er arfgengur. Hann lýsir sér þannig að rafboð í hjartanu fara úrskeiðis. Hjartslátturinn truflast og verður óreglulegur sem getur leitt til hjartastopps. Fjölmargir í fjölskyldu Guðrúnar eru með sjúkdóminn. Bjargráður Bjargráður var fyrst græddur í sjúkling árið 1980 í Bandaríkjunum en í fyrsta skipti á Íslandi árið 1992 en nú fá um 20–25 manns slíkt tæki á hverju ári hér á landi. Inni í bjargráðn- um er tölva sem vaktar hjartsláttinn stöðugt. Tækinu er komið fyrir við viðbeinið, oftast vinstra megin. Bjargráðurinn er um það bil 8 senti- metrar að lengd og 7 sentimetrar að breidd og vegur um 90 grömm. Leiðsla úr bjargráðnum er lögð inn í æð sem liggur í hægra hjartahólfið, leiðslurnar geta verið ein, tvær eða þrjár eftir þörfum einstaklingsins. Skipta þarf um bjargráðinn á 5–7 ára fresti. (Upplýsingar fengnar úr BæklingnUM BjargráðUr seM landspítalinn gefUr út) skilja þetta betur núna. Fyrst var það þannig í íþróttum og í fótbolta í frímínútum í skólanum að ég átti bara að hætta ef ég gat ekki meir og átti bara að fara og vera annars stað­ ar. Og af því að ég gat ekki hlaupið þá átti ég ekki að fá að vera með. Ég er byrjuð í íþróttum aftur en get ekki tekið þátt í píptesti eða í neinu þar sem hætta er á að ég geti fengið högg á tækið,“ segir Mekkín. Vegna sjúkdómsins þarf hún oft að fara til Reykjavíkur að leita sér læknishjálpar. Það er kostnaðar­ samt fyrir fjölskylduna en þau fara á um mánaðarfresti í bæinn og keyra yfirleitt. Þau búa hjá ættingjum og vinum á meðan þau eru í bænum. Bannað að hafa farsíma Mekkín segist hafa orðið vör við það að sumum finnist óþarfi að hún fari svo oft til læknis og skilji ekki af hverju hún þurfi að fara jafn oft og raun ber vitni. „Fólki finnst að ég þurfi kannski ekki að fara suð­ ur til þess að fara til læknis held­ ur sé nóg að fara á Ísafjörð en þeir eru ekki með réttu tækin þar,“ segir Mekkín. „Ég hef ekki verið að fara í neinar skemmti ferðir suður, þetta eru allt læknisferðir. Krakkarnir halda kannski að ég sé að sleppa við að læra og eitthvað svona út af því en það er ekki þannig.“ Hún segir einnig að henni hafi á tímabili verið bannað að hafa farsíma sinn á sér í skólanum. Það hafi snert hana illa þar sem sím­ inn sé öryggistæki fyrir hana. „Ég verð að hafa símann á mér ef eitt­ hvað kemur fyrir. Ég mátti ekki hafa hann í skólanum en núna má ég hafa hann í úlpunni. Það skiptir miklu máli fyrir mig að hafa hann á mér,“ segir hún. dóu líklega úr sjúkdómnum Lítið er vitað um sjúkdóminn en þær mægður hafa verið duglegar að afla sér upplýsinga um hann á veraldarvefnum. Þær segjast hafa heyrt um fleiri utan fjölskyldunnar sem eru með genagallann. Amma Guðrúnar varð bráðkvödd um fimmtugt og nú telja þau líklegt að hún hafi verið sjúkdóminn líka. „Amma mín, mamma mömmu, var að koma út úr rútunni á leið heim úr frystihúsinu þegar hún bara datt niður og dó. Að öllum lík­ indum var hún með þetta af því að mamma hlýtur að fá þetta frá ein­ hverjum. Systir hennar mömmu var 24 ára þegar hún datt niður líka og dó. Hún átti tvö börn og annað barnið hennar er með genagallann þannig að líklega var hún líka með þetta. Það var bara talið að þær hefðu verið bráðkvaddar en það sést ekkert þótt þú sért krufin því þetta eru rafboð, það sést ekkert á hjartanu,“ segir Guðrún. Með lífið í lúkunum Mæðgurnar segja það skipta mestu máli að læra lifa með sjúkdómnum. „Við þurfum bara að læra að lifa með þessu. Við þurfum að taka hlutunum rólega en við fjölskyldan erum kannski ekki þekkt fyrir það,“ segir Guðrún hlæjandi. „Hún fylgir því nú ekki alveg og er alltaf með lífið í lúkun­ um,“ segir hún hlæjandi og horfir á dóttur sína. „Ég er ekki mikið fyrir að fara eftir reglunum,“ segir Mekkín brosandi. n „Hún var flutt suður með sjúkrabíl og sett í rannsóknir í kjölfarið. Þá var hún greind með flogaveiki. Mæðgurnar Þær Mekkín og Guðrún er báðar með bjargráð. Guðrún hefur að mestu verið einkennalaus en Mekkín hefur fundið meira fyrir sjúkdómnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.