Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2013, Page 12
Sér eftir að hafa fellt
Styttuna af huSSein
Átta ára brúðgumi í Suður-Afríku
n Kvæntist 61 árs fimm barna móður
Á
tta ára drengur í Suður-Afríku
kvæntist á dögunum 61 árs
gamalli konu. Hann fullyrðir
að forfaðir sinn hafi lagt það
að honum. Sanele Masilela gekk á
dögunum í það heilaga með Helen
Shabangu, fimm barna móður á
sjötugsaldri. Börnin hennar eru á
aldrinum 27 til 37 ára. Drengur-
inn segist hafa fengið skilaboð frá
afa sínum sem hafi ekki gengið
í hjónaband á sinni ævi, um að
hann ætti að kvænast. „Þetta er í
fyrsta sinn sem svona gerist í fjöl-
skyldunni,“ hefur Daily Mail eftir
móður drengsins. Fjölskyldan, sem
hefur takmörkuð fjárráð, borgaði
500 pund fyrir brúðina en svo um
1.000 pund fyrir athöfnina sjálfa.
Samtals ígildi 283 þúsund íslenskra
króna.
Þrátt fyrir að drengurinn og
konan, sem gæti hæglega verið
amma hans, hafi nú gengið í hjóna-
band eiga þau ekki í ástarsambandi.
Sanele segir að þetta hafi aðeins ver-
ið táknræn athöfn, þau muni ekki
búa saman og hafi ekki undirritað
hjúskaparheit. „Ég er ánægður með
að hafa gifst Helen, en ég mun áfram
einbeita mér að því að læra. Þegar ég
verð eldri mun ég kvænast konu á
mínum aldri.“ Brúðurin er alsæl með
fyrirkomulagið. „Ég veit að þetta er
það sem forfeðurnir vildu og nú eru
þeir ánægðir.“ Það sem meira er,
Helen er gift fyrir, Alfreð, og þau eiga
saman fimm uppkomin börn. Og
meira að segja Alfreð gamli er sáttur
við brúðkaupið. „Ég og börnin mín
erum alsæl,“ hefur Daily Mail eftir
karlinum.
Óhætt er að segja að giftingin
hafi valdið hneykslan í Suður-Afríku
og vakið upp ýmsar siðferðisspurn-
ingar. En Alfreð lætur ekki að sér
hæða. „Frá okkar sjónarhóli er þetta
í góðu lagi en sumir hafa tekið þetta
óstinnt upp.“
Móðir drengsins er ánægð með
hann. „Hann gerði þetta til að friða
forfeður sína. Ef hann hefði ekki gert
það sem hann gerði hefði eitthvað
slæmt komið fyrir fjölskylduna,“
segir hún. „Hann valdi Helen af því
að hann elskar hana.“ n baldur@dv.is
Í hnapphelduna Drengurinn
segist elska konuna sína, sem
hann kvænist að sögn að beiðni
látins afa síns.
Auðvelt að
kaupa hríð-
skotabyssu
„Ertu með ökuskírteini gefið út í
Texas?“ - „Aha“ „Eru allar upplýs-
ingarnar þar réttar?“ - „Aha“ „Ertu
bandarískur ríkisborgari?“ - „Já.“
Svona fór samtalið fram á
byssu markaði í Texas, þegar sölu-
maðurinn kannaði hvort væntan-
legur kaupandi árásarriffils, upp-
fyllti skilyrði til þess að kaupa
hríðskotavopn. Kaupandinn var
blaðamaður á BBC og var með
falda myndavél á sér. Í fylkinu selj-
ast nú hríðskotabyssur og önnur
árásarvopn sem heitar lummur og
eins og sjá má á „yfirheyrslunni“
er nánast ekkert gert til að kanna
bakgrunn þeirra sem vilja kaupa
sér vopn sem nota mætti til að
fremja hræðileg fjöldamorð.
Blaðamaðurinn, Hilary And-
ersson, keypti AR-15-hríðskota-
byssu, sams konar og Adam
Lanza notaði til að myrða 20 börn
í Sandy Hook-barnaskólanum í
Connecticut í desember. Rann-
sókn blaðamannsins hefur meðal
annars leitt í ljós að fólk með
illvíga geðsjúkdóma getur keypt
fjölskota riffla eins og hver annar.
„Frú“ Baggins
farin í þrot
Sambýliskona og barnsmóðir leik-
arans Martins Freeman, sem er
helst þekktur fyrir hlutverk sín í
sjónvarpsþáttunum The Office og
sem Bilbo Baggins í Hobbitanum,
er gjaldþrota. Daily Mail greinir
frá þessu. Konan heitir Amanda
Abbington og fæst líka við leik-
list. Eignir hennar voru teknar
til skipta í desember en ferlinu
er ekki lokið. Tíu dögum áður
en tilkynnt var um gjaldþrotið
sagði hún í viðtali að þau skötu-
hjú kalli hvort annað eiginkonu
og eiginmann en að þau „vilji ekki
skemma það“ með því að gifta sig.
Miðillinn greinir frá því að
gjaldþrotið hlaupi á tugum millj-
óna króna en hún var keyrð í þrot
eftir að henni tókst ekki að gera
upp 23 milljóna króna skattaskuld.
Saman býr fjölskyldan í 170 millj-
óna króna glæsivillu í Hertford-
skíri en eignir Martins eru metnar
á um tvo milljarða króna. Þau tóku
saman fyrir rúmum tíu árum.
Óttast um líf
hlauparans
Ættingjar og vinir fatlaða
hlauparans Oscars Pistorius hafa
þungar áhyggjur af andlegri heilsu
hans. Pistorius kann að verða
dæmdur til langrar fangelsisvistar
eftir að hafa skotið kærustu sína á
heimili þeirra á dögunum. Hann
þarf að mæta fyrir dómara í júní.
Mike Azzie, náinn fjölskyldu-
vinur, segir í samtali við BBC að
Pistorius sé niðurbrotinn maður.
Hann segist ekki hafa myrt unn-
ustu sína af ásetningi. Pistorius
hefur þurft að selja eignir sínar
til að eiga fyrir tryggingunni sem
hann þurfti að reiða af hendi til að
geta gengið laus þar til í júní.
F
yrir tíu árum var Kadom al-
Jabouri andlit almennings
í Írak þegar einræðisherra
landsins, Saddam Hussein,
var hrakinn frá völdum.
Myndir af Kadom með sleggju í
höndunum að berja á styttu af
Hussein í tilraun til að fella hana
vöktu heimsathygli. Myndin var eins
og sending frá Guði fyrir þá Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands,
og George W. Bush, forseta Banda-
ríkjanna, í miðjum átökunum og
þótti tákn um hvernig kúgaður al-
menningur hefði risið upp gegn ein-
ræðisherranum. Nú, tíu árum síðar,
segist Kadom hins vegar sjá eftir öllu
saman.
Varð fyrir vonbrigðum
„Ég hataði Saddam,“ segir Kadom,
52 ára, sem rekur mótorhjólaverk-
stæði í Írak í samtali við breska blað-
ið Guardian. „Mig hafði dreymt um
það í fimm ár að fella þessa styttu,
en það sem gerst hefur síðan eru sár
vonbrigði. Á þessum tíma vorum
við með einn harðstjóra, núna erum
við með hundruð.“ Hann segir að
pólitísk átök, spilling og morð séu
enn daglegt brauð í landinu þrátt
fyrir fall stjórnar Husseins. „Ekkert
hefur breyst til hins betra.“
Atvikið þegar styttan af Saddam
Hussein var felld þótti táknrænt
augnablik. Fljótlega var þó farið að
velta upp þeirri spurningu hvort at-
vikið væri sviðsett en á endanum
var styttan brotinn niður af her-
mönnum. Kadom hefur í viðtölum á
undanförnum árum alltaf haldið því
fram að atvikið hafi ekki verið svið-
sett. Árið 2004 sagðist hann þó hafa
fengið sleggjuna hjá hermönnunum
og að honum og öðrum óbreyttum
borgurum hefði verið boðið að taka
þátt í að brjóta styttuna niður.
„Snérist allt um hefnd“
Í viðtalinu nú segist Kadom hafa
mætt sjálfur við styttuna, byrjað að
berja á henni og um það bil 45 mín-
útum síðar hafi bandarískir her-
menn boðist til að hjálpa honum að
ná styttunni niður. „Fyrst var þetta
bara ég. Svo vorum við 30. Síðan
þrjú hundruð. Undir lok voru þús-
undir á torginu. Þetta snérist allt um
hefnd fyrir mér, fyrir það sem stjórn-
völd höfðu gert mér, fyrir árin sem ég
eyddi í fangelsi,“ segir hann.
Kadom sat í fangelsinu í Abu
Ghraib í ellefu ár á meðan landið
var enn undir stjórn Husseins. Að-
spurður af hverju hann sat inni segir
Kadom það hafa átt rætur að rekja til
þess að hann kvartaði yfir syni ein-
ræðisherrans sem skuldaði honum
pening fyrir viðgerð á vélhjóli. Það
er þó óljóst fyrir hvað nákvæmlega
Kadom var stungið í steininn.
Ekkert hefur breyst
Kadom byrjaði að efast um þátttöku
sína í niðurrifi styttunnar tveimur
árum eftir að Bandaríkjamenn tóku
við stjórn landsins. Ekkert sem gerst
hefur síðan þá hefur breytt afstöðu
hans, ekki einu sinni sú staðreynd
að Írakar stjórna sér nú sjálfir. „Und-
ir stjórn Saddams var öryggi. Það var
spilling en ekkert í líkingu við það sem
er nú. Líf okkar voru örugg og mikið af
því sem við þurfum, eins og rafmagn
og gas, var á viðráðanlegra verði.“
Hann kennir írönskum stjórn-
málamönnum og Bandaríkjunum
um hvernig fór í Írak. „Banda-
ríkjamennirnir hófu þetta. Og
með aðstoð stjórnmálamannanna
eyðilögðu þeir landið. Ekkert hefur
breyst og hlutirnir virðast bara
versna. Það er engin framtíð. Ekki
á meðan stjórnmálaflokkarnir sem
stjórna landinu er enn við völd,“
segir hann. n
n Ekkert hefur breyst, segir Kadom
Táknrænt Það þótti táknræn stund
þegar styttan var felld. Mynd REuTERS
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Reiður Hér sést Kadom berja á styttunni. Hann segist fyrst og fremst hafa verið reiður þegar
hann réðst á styttuna með sleggju að vopni. Mynd REuTERS
12 Erlent 13. mars 2013 Miðvikudagur