Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2013, Qupperneq 13
L
isa Smirl, 37 ára háskólapró
fessor, dó úr lungnakrabba
meini þrátt fyrir að hafa leitað
ítrekað til læknis vegna gruns
um að ekki væri allt með felldu. Lækn
ar töldu að veikindi hennar væru
af sálfræðilegum toga og kenndu
stressi og of mikilli vinnu um. Þegar
hún fékk loksins rétta greiningu hafði
krabbameinið dreift sér um líkama
Lisu og var orðið of seint að grípa inn
í. Breska blaðið Daily Mail fjallaði
um mál hennar á dögunum og hefur
það vakið enn frekar spurningar um
ástandið í breska heilbrigðiskerfinu
sem hefur fengið sinn skerf af gagn
rýni undanfarin misseri.
Lisa hélt úti bloggsíðum um
veikindi sín og í einni af hennar síð
ustu færslum spurði hún hvernig
á því gæti staðið að læknum yfir
sást krabbameinið. „Það var komið
í heilann, beinin og lifrina. Á sama
tíma og þetta var hræðileg reynsla
var það samt ákveðinn léttir að fá
greiningu,“ sagði hún.
Það var vorið 2011 sem hún leit
aði fyrst til læknis vegna verkja í öxl
um og handlegg. Þá fékk hún sjón
truflanir og ákvað að leita til læknis
vegna þessa. Læknar töldu að streitu
og of miklu álagi væri um að kenna
en nokkrum mánuðum síðar, eða í
september 2011, fór hún í veikinda
leyfi vegna einkennanna sem höfðu
versnað mikið. Hún léttist mikið,
leitaði til þriggja mismunandi lækna
en þrátt fyrir það töldu læknar að
engin ástæða væri til að óttast. Það
var svo ekki fyrr en í nóvember 2011
að læknar sendu hana í lungna
myndatöku vegna mikils hósta að
krabbameinið kom í ljós. Þá þegar
hafði það dreift sér um líkama Lisu
og við tók ekkert nema biðin eftir
dauðanum. Það var svo 21. febrúar
síðastliðinn að Lisa lést af völdum
krabbameinsins. „Það virðist vera
svo auðvelt fyrir lækna að kenna
stressi um ef óvenjuleg líkamleg
einkenni gera vart við sig,“ sagði
Lisa í færslu skömmu áður en hún
lést. Sagðist hún vonast til þess að
fleiri myndu ekki lenda í sömu spor
um og hún. n
Átta ára brúðgumi í Suður-Afríku
Erlent 13Miðvikudagur 13. mars 2013
Krabbamein, ekki stress
n Lisa Smirl lést úr krabbameini sem læknum hennar yfirsást
Látin Lisa lést þann 21. febrúar síðast-
liðinn eftir langa og stranga baráttu við
krabbamein.
Diplómötum
vísað frá
Bandaríkjunum
Bandarísk stjórnvöld hafa vísað
tveimur diplómötum frá Vene
súela úr landi. Þetta er gert í
kjölfarið þess að stjórnvöld í
Venesúela vísuðu tveimur banda
rískum hermönnum úr landi.
Diplómatarnir höfðu aðsetur í
Washington D.C. og New York.
„Um allan heim, þegar okkar fólki
er vísað úr landi án ástæðu, mun
um við grípa til viðeigandi ráðstaf
ana,“ sagði upplýsingafulltrúi ut
anríkisráðuneytis Bandaríkjanna
í samtali við erlenda fjölmiðla
um málið. „Þetta gerum við til
að vernda fólkið okkar.“ Fulltrú
inn sagðist vonast til að sam
band Bandaríkjanna og Venesúela
styrktist á næstunni. „Það mun þó
krefjast breytts viðmóts í Karakas.“
Rodman fer í
frí með Kim
Körfuboltagoðsögnin Dennis Rod
man ætlar að eyða sumarfríinu
með Kim Jongun, einræðisherra
í NorðurKóreu. Þetta sagði hann
í útvarpsviðtali í Bandaríkjunum
í vikunni. „Ég fyrirgef honum ekki
það sem hann hefur gert, en hann
er vinur minn,“ sagði Rodman
meðal annars í viðtalinu. Ekki er
langt síðan Rodman snéri til baka
úr ferð til NorðurKóreu þar sem
hann eyddi tíma með einræðis
herranum. Í ferðinni horfði hann
meðal annars á körfuboltaleik
með Kim. Mikill vinskapur virðist
hafa tekist með Rodman og Kim
en í ferðinni sagði Rodman að þeir
yrðu vinir til æviloka.
Mannætu-
lögga sek
Bandarískur lögreglumaður,
Gilberto Valle, var á þriðjudag
dæmdur sekur um að hafa lagt á
ráðin um að ræna, pynda og borða
nokkrar konur. Valle ætlaði meðal
annars að borða eiginkonu sína.
Lögmaður Valle hélt því fram fyrir
dómi að fyrirætlanir skjólstæðings
síns hafi ekki verið raunverulegar
heldur aðeins draumórar. Meðal
gagna sem lögð voru fyrir dóminn
voru ummæli sem Valle lét falla
í netspjalli um fyrirætlanir sínar.
Kviðdómur í málinu tók sér aðeins
sextán klukkustundir til að kom
ast að niðurstöðu um að Valle hafi
ekki bara verið með draumóra um
verknaðinn heldur hafi honum
verið full alvara. Ekki er búið að
ákveða refsingu honum til handa.