Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2013, Qupperneq 16
Asíugáttin – Ísland
nær forskoti
16 Umræða 13. mars 2013 Miðvikudagur
N
ýja-Sjáland og Chile eru
dæmi um lönd, sem sköp-
uðu sér einstaka stöðu
gagnvart Kína með því að
ná því að gera fríverslunar-
samning við það efnahagsveldi
sem hraðast rís í heiminum. Þannig
náðu Nýja-Sjáland og Kína eins-
töku forskoti á nágranna sína. Það
hefur sannarlega komið þeim til
góða. Viðskiptin milli Nýja Sjálands
og Kína hafa síðan aukist um 50 af
hundraði á tæplega fimm árum. Og
viðskipti Kína og Chile hafa fimm-
faldast frá árinu 2006. Sama mun
gerast fyrir íslenskan útflutning fjöl-
breyttrar flóru íslenskra fyrirtækja,
þegar fríverslunarsamningur við
Kína er kominn til framkvæmda.
Hann mun skipta sköpum til fram-
tíðar. Þá mun forskotið skipta okkur
öllu gagnvart hinum risastóra kín-
verska heimamarkaði, og sú vild,
sem við munum af honum njóta.
Mikilvægi Asíugáttarinnar
Ég hef skilgreint Asíugáttina sem
eina af þremur helstu viðskiptagátt-
um Íslands til umheimsins – og þar
er Kína mikilvægast. Samhliða höf-
um við líka lagt gríðarlega áherslu á
fríverslun við SA-Asíu alla, Víetnam,
Malasíu, og náttúrlega við risann
Indland. Við höfum líka stofnað til
pólitískra tengsla við Singapore, sem
hefur áhuga á norðurslóðum vegna
væntanlegra skipaleiða norður um
pól, og hefur áhuga á að fjárfesta
með Kínverjum, Þjóðverjum, jafnvel
Dúbaí, í umskipunarhöfn á Norð-
urlandi fyrir risafragtskip, sem eru
ísstyrkt. Singapore er raunar eina
ríkið í heiminum sem er að smíða
slík ofurskip. Eftir liggur Burma, 60
milljóna land sem er að opnast, og
við megum ekki gleyma, og Kambó-
día, þar sem erfiðast er að athafna
sig vegna útbreiddrar spillingar.
Þessi ríki munu þróast saman í einn
innri markað, sem verður þriðji
stærsti heimamarkaðurinn á svæð-
inu, á eftir Kína og Indlandi. Það eru
gríðarlegir hagsmunir fyrir okkur
að ná pólitísku og viðskiptalegu for-
skoti með því að gera fríverslunar-
samninga við þau öll. Ég hef sem
utanríkis ráðherra unnið sleitu-
laust að því, einsog þau fjölmörgu
fyrirtæki vita, sem ég hef átt sam-
skipti við sökum þessa. Afrakstur-
inn munu íslensk fyrirtæki skera
upp á næstu árum og áratugum. Í
utanríkis ráðuneytinu er framsýni
leiðarljós okkar.
Fríverslun við Kína
Auk þess sem ég hef ýtt fast á eftir
gerð fríverslunarsamninga við Ind-
land, Malasíu, og Víetnam, vegna
starfa minna sem formaður ráð-
herraráðs EFTA um sinn, þá hef ég
líka lagt mikla áherslu á að nota góð
og vaxandi tengsl Íslendinga við
efnahagsrisann sem hraðast flýgur
með himinskautum og hef nú lokið
fríverslunarsamningi við Kína. Hann
verður undirritaður í næsta mánuði
af forsætisráðherra Íslands.
Kínverjar féllu frá kröfum um
óheftan tímabundinn innflutn-
ing á vinnuafli, bættu boð sín um
afnám tolla á fiski og iðnvarningi,
og skeyttu inn vernd hugverka. Það
tókst ekki síst fyrir vinsemd Wen Ji
Bao, sem hingað kom í fyrra, jarð-
fræðingur, sem svo hreifst af landi
og þjóð, að á fundum með okkur
íslenskum ráðherrum gaf hann í
heyranda hljóði skýr fyrirmæli til
þeir 11 ráðherra sem með honum
voru, að ljúka samningum og finna
þær sérlausnir sem Ísland krafðist.
Samningurinn mun skapa Íslandi
einstakt forskot, alveg einsog Nýja-
Sjálandi og Chile. Markaðurinn í
Kína verður mikilvæg nýrækt fyrir ís-
lenskan útflutning í framtíðinni.
Tilraunastofa í lýðræði
Í Helgarblaði DV var um margt fróð-
leg grein um fríverslunarsamning
Íslands og Kína undir yfirskriftinni
„Fyrsta skrefið til Evrópu“. Hún var
eftir Inga Frey Vilhjálmsson, sem
kvartaði undan að hafa ekki náð sam-
tali við vesling minn. Í henni eru því
gerðir skór að áhugi Kínverja á gerð
fríverslunarsamnings við Ísland væri
helst til að prófa sig áfram í samning-
um við lítið ríki til að vera betur und-
ir það búnir síðar að gera samninga
við stærri og öflugri ríki Evrópu – þó
hagsmunir væru litlir. Inga svara ég
því til, að sú kínverska forvitni sem
jafnan leikur um Ísland hefur mér
oft fundist stafa af því, að þeim finnst
merkilegt að stúdera, og fylgjast með,
hvernig lýðræði þróast í litlu, ein-
angruðu ríki. Oftar en ekki hafa kín-
verskir valdhafar talað við mig um
Ísland sem einskonar lýðræðislega
tilraunastofu. Það hefur mér þótt
upplífgandi, því ég held að langtíma-
markmið Kínverja sé að koma á fót
lýðræði að okkar hætti – en þeir segja
jafnan að þar verði að stíga hægt til
jarðar og gott að fylgja fordæmum.
Í öllu falli gladdi það mig að Xi
Jinping, sem ég átti langan merkis-
fund með í Kína 2011, og er ná-
kvæmlega þessa dagana að verða
forsætisráðherra í Kína og arftaki
Íslandsvinarins Wen Ji Bao, lét það
verða eitt sitt fyrsta verk að gefa fyr-
irskipun um að loka vinnubúðum
víðs vegar um Kína. Það gladdi mig
ekki síst, vegna þess að þar sér í
verki það sem kínverskir forystu-
menn hafa verið að segja okkur ís-
lenskum málvinum þeirra, um vilja
þeirra til að feta örugga lýðræðis-
slóð, þó okkur kunni hún hægfara.
Það er þeirra mál, og á meðan þeir
feta jákvæða braut er ástæða til að
gleðjast. En þeir sem þekkja til föður
Xi Jinping, sem varð varaforseti Kína
1949, og afdrifa hans, eða hafa kynnt
sér feril Xi sjálfs, kemur það ekki á
óvart. Þetta fór lágt á Vesturlöndum,
en okkar góða RÚV gerði þessu frá-
bær skil í Speglinum með viðtali við
fréttaritara okkar í Kína.
Forskot Íslands í fríverslun
Forskot, einsog það sem ég hef sem
utanríkisráðherra unnið sleitulaust
að því að byggja fyrir Ísland, mun
koma íslenskum fyrirtækjum og
einstaklingum sem hyggja á við-
skipti við Kína til góða. Aðeins
nokkurra ára forskot getur tryggt
sérstöðu ríkja um langt skeið. Frí-
verslunarsamningar skapa fram-
tíðarmöguleika og þess vegna er
ekki endilega einblínt á þau við-
skipti sem þegar eiga sér stað við val
á samningsríkjum heldur til þeirra
möguleika sem kunna að skapast
í framtíðinni. Sá uppgangur sem
orðið hefur í Kína á allra síðustu ára-
tugum er dæmalaus og hefur ekki
aðeins lyft hundruðum milljónum
íbúa landsins upp úr sárri fátækt,
heldur skapað fjölmenna vel stæða
millistétt með mikla kaupgetu.
Hér er lag. Það skilja íslenskir
útflytjendur best allra. Þeir hafa fjöl-
margir verið í sambandi við mig og
ráðuneytið og spurst frétta. Ég hef
svarað með því að fara margefldur
í samninga. Sú niðurfelling tolla
sem samningurinn felur í sér bætir
samkeppnisstöðu þeirra til muna,
ekki með því að fá fellda niður tolla
á þeim vörum sem þeir flytja út nú
heldur ekki síður á þeim vörum sem
þeir hyggjast selja til Kína í framtíð-
inni.
Rétt er að í samanburði við mörg
önnur ríki eru viðskipti Íslands og
Kína ekki umfangsmikil en útflutn-
ingur frá Íslandi til Kína hefur vaxið
jafnt og þétt og um rösk fjörtíu pró-
sent milli áranna 2011 og 2012.
Haldi áfram sem horfir mun vægi
Kínamarkaðar aukast mjög í út-
flutningi frá Íslandi. Tækifærin eru
ekki aðeins í útflutningi á fiski og
fiskafurðum, heldur einnig í land-
búnaðarvörum, hátæknivörum og
heilsuvörum svo fátt eitt sé nefnt.
Einangrun ríkja leiðir ekki góðs,
það sanna dæmin. Kína skiptir æ
meira máli á alþjóðavettvangi, ekki
aðeins í efnahagslegu tilliti. Farsælla
er því að ræða við Kínverja um þau
mál sem á okkur brenna. Í því ljósi
styður Ísland ósk Kína um áheyrnar-
aðild að Norðurskautsráðinu. Við
eigum vaxandi og góð samskipti við
Kína en hikum ekki við að taka upp
við þá viðkvæm mál á borð við brot
á mannréttindum og réttindi og að-
búnað verkafólks.
Rammi um Íslandsverslun
Fríverslunarsamningurinn er ramm-
inn um viðskipti ríkjanna. Hann
ryður úr vegi hindrunum, veitir
aukin réttindi og bætir öryggi í við-
skiptum og auðveldar þannig sókn
fyrirtækja á nýja markaði. Þá er svo
sannarlega að finna í Asíu. Samn-
ingurinn er liður í þeirri viðleitni
að opna það sem ég hef skilgreint
sem Asíugáttina, þar liggja nýræktir
framtíðarinnar, og mikilvægt að
tryggja hlut Íslands. Að því hefur
ráðuneytið unnið kappsamlega.
Þetta hefði ég getað sagt Inga hefðu
örlögin leitt okkur saman.
Aðsent
Össur
Skarphéðinsson
„Oftar en ekki hafa kín-
verskir valdhafar talað
við mig um Ísland sem einskonar
lýðræðislega tilraunastofu.
Kátt á hjalla Utanríkisráðherra ásamt Wen Ji
Bao, í heimsókn í Hellisheiðarvirkjun 2012.
Í heimsókn Össur heimsótti Kínverja sumarið 2010. Á myndinni er hann með Xi Jinping.