Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2013, Blaðsíða 17
Ingvar Gíslason Mun ég sem
almennur meðlimur í VR finna
einhverja breytingu ef þú nærð
kjöri en ekki núverandi formaður?
Ólafía B. Rafnsdóttir VR er
stéttarfélag með félagsmenn um
allt land í mismunandi störfum, á
mismunandi launum og ég mun
beita mér fyrir því að vera for
maður allra félagsmanna VR.
Einar Sigurgeirsson Er
eitthvað sem þú myndir vilja
breyta hjá VR og hvert verður
þitt fyrsta verkefni ef þú nærð kjöri?
Ólafía B. Rafnsdóttir Í fyrsta lagi
vil ég leggja áherslu á að bæta kjör
félagsmanna. Auk baráttunnar
fyrir hærri launum eru húsnæðis
málin mér ofarlega í huga.
Nína Helgadóttir Hver eru þín
stefnumál og hver verður
munurinn á starfi félagsins ef
þín mál ná fram að ganga?
Ólafía B. Rafnsdóttir Mín
stefnumál eru kjaramál og
þjóðarsátt. Auk þess hef ég verið
að tala fyrir starfsþróunarmálum
og sveigjanlegum starfslokum. Ég
hef hug á því að vera á vettvangi og
í góðum tengslum við hinn almenna
félagsmann.
Vésteinn Gauti Hauksson
Sæl Ólafía. Finnst þér koma til
greina að VR beiti sér fyrir því
að kosning til formanns ASÍ verði opnuð
þannig að fólkið í landinu ráði hver það
er sem talar fyrir það í verkalýðs
baráttumálum?
Ólafía B. Rafnsdóttir Það er
erfitt að koma því áleiðis þar sem
fólkið í landinu hefur ekki beina
aðild að ASÍ heldur verkalýðsfélögin
sjálf.
Kjartan Vídó Í viðtali á Rás 2 í
gærmorgun sagðir þú að þitt
helsta stefnumál væri að opna
Facebooksíðu fyrir VR. Sú síða hefur
verið til staðar frá árinu 2010 og eru 608
sem hafa „likeað“ hana í dag. Var eða
er þetta þitt aðalstefnumál fyrir okkur
félagsmenn VR?
Ólafía B. Rafnsdóttir Fannst þér
virkilega þetta vera eina stefnu
málið mitt? :o) Vonandi fáum við
fleiri en 608 „like“ á hana þar sem
félagsmenn eru u.þ.b. 30 þúsund.
Kristinn Örn Jóhannesson
Lítur þú á hlutverk
stéttar félaga sem takmarkað
við verkefni innanlands eða fjölþjóðleg,
t.d. í samvinnu við önnur lönd m.a. til að
bregðast við þeirri staðreynd að
fyrirtæki eru fjölþjóðleg en stéttarfélög
ekki?
Ólafía B. Rafnsdóttir Alþjóðleg
samvinna stéttarfélaga er mikil
að því mér skilst og brýnt að miðla
upplýsingum, læra hvert af öðru
eins og hægt er. Það er óþarfi
að finna upp hjólið upp á nýtt.
Fjölþjóðleg fyrirtæki verða að fara
eftir þeim reglum sem gilda í hverju
landi.
Vilhjálmur Sveinsson Hefðir
þú getað boðið þig fram sem
formann VR ef Árni Páll
Árnason hefði ekki greitt félagsgjöld
fyrir þig aftur í tímann?
Ólafía B. Rafnsdóttir Ég hef verið
félagsmaður í VR í 29 ár, frá 1984.
Kjörstjórn VR hefur úrskurðað að
framboðið sé löglegt og það er
endanlegur úrskurður, auk þess
var ég á launum hjá 365 miðlum út
september 2012.
Einar Sigurgeirsson Hvað er
það sem þú telur best að gera
til að bæta okkar kjör?
Ólafía B. Rafnsdóttir Í fjölda
mörgum heimsóknum mínum í
fyrirtæki undanfarið hafa komið
upp áhugaverðar fyrirspurnir um
hvernig hægt sé að bæta kjörin. Ég
hef talað fyrir því að húsnæðismál
in séu eitt af brýnustu kjaramálun
um, öruggt heimili er jú eitt af brýn
ustu þáttum velferðarsamfélagsins
og VR á að hafa forystu í að fjölga
valkostum og beita sér fyrir vali milli
búsetuforma. Verkalýðshreyfingin
þarf að taka höndum saman með
stjórnvöldum og atvinnurekendum
til að koma böndum á verðbólguna.
Kristín Sævarsdóttir Hvernig
hyggstu stuðla að auknu
lýðræði í VR?
Ólafía B. Rafnsdóttir Með því að
efla trúnaðarráð félagsins, þeir eru
grasrótin. Það þarf að gera átak í
menntun og virkni trúnaðarmanna
á vinnustöðum og verja til þess
tíma.
Hans Gruber Fyndist þér rétt
að þeir sem sjá um að semja
um kaup og kjör fólks í landinu
séu á sömu launum og þeir sem þeir eru
að semja fyrir og myndir þú halda að
það mundi auka trúverðugleika
samningsaðila út á við?
Ólafía B. Rafnsdóttir Nei.
Gísli Guðmundsson Ertu
flokksbundin og ef svo er;
hvaða flokk ertu bundin við?
Ólafía B. Rafnsdóttir Ég er ekki í
stjórnmálaflokki.
Ástasigrún Magnúsdóttir
Hvað hefur þú fram að færa
sem gerir þig hæfari en
núverandi formann til að gegna þessari
stöðu?
Ólafía B. Rafnsdóttir Ég er hokin
af reynslu :o) hef verið á vinnu
markaðinum í ríflega þrjátíu og sjö
ár. Ég hef brennandi áhuga á kjara
málum og réttlátu samfélagi. Ég
ætla mér að verða formaður allra
félagsmanna því í þeim fjölbreyttu
störfum sem ég hef sinnt í gegnum
tíðina hef ég innsýn í fjölda þeirra
starfa sem tengjast félagsmönnum
VR.
Sævar Guðmundsson Getur
þú upplýst um launakjör þín
sem kosningastjóri Árna Páls í
nýafstöðnu prófkjöri?
Ólafía B. Rafnsdóttir Launakjör
mín eru trúnaðarupplýsingar og ég
sé ekki ástæðu til að svara því hér á
Beinni línu DV.
Vilhjálmur Sveinsson
Spurningin var já eða nei
spurning, þú svaraðir henni
ekki. Ég spyr því aftur, ef formaður
Samfylkingarinnar hefði ekki greitt
félagsgjöld aftur í tímann fyrir þig, hefð
ir þú þá getað boðið þig fram til
formanns VR þetta árið?
Ólafía B. Rafnsdóttir Ætli ég
hefði ekki bara verið í öðru góðu
starfi.
Guðrún Gunnarsdóttir Sæl,
hvað ertu með í huga með þá
sem eru á lægstu launum
samkvæmt taxta VR sem er rétt yfir
upphæð atvinnuleysisbóta? Sem
trúnaðarmaður VR fékk ég þau svör á
skrifstofu að það væru þessir taxtar en
engin borgaði eftir þeim hvort eð er.
Þess vegna væri samið svona lágt.
Ólafía B. Rafnsdóttir Því miður
fara einhverjir eftir lægstu töxtum
VR. Mér er óskiljanlegt hvernig
fólk fer að því að lifa á þeim. Ég tel
að það þurfi þjóðarsátt í að auka
kaupmátt en sem betur fer hefur
tekist að verja kaupmátt þeirra sem
eru með lægstu launin.
Kjartan Vídó Ég sagði ekki að
Facebooksíða fyrir VR væri
þitt eina stefnumál, heldur það
eina sem þú nefndir í viðtalinu á Rás 2. Á
heimasíðu VR má lesa þín helstu
stefnumál og er hvergi þar minnst á
áherslumál þín hvað varðar launamun
kynjanna en VR hefur verið í forystu í
þeirri baráttu undanfarin ár og nýverið
tekið upp jafnlaunavottun VR. Hvaða
leiðir viltu fara auk þeirra sem að VR er
að beita nú þegar með góðum árangri?
Ólafía B. Rafnsdóttir Ég er mjög
ánægð með jafnlaunavottun VR
sem byggir á starfi fjölmargra aðila
sem hófst árið 2008 og varð að
staðli frá Staðlaráði. Og vonandi
tekst mér að brjóta glerþakið með
því að verða fyrsta konan í 122 ára
sögu VR til að setjast í formanns
stólinn. Mölbrjóta glerþakið :o)
Guðrún Gunnarsdóttir
Hvernig hefur tekist að auka
kaupmátt þeirra lægst
launuðu? Nú veit ég fyrir víst að það eru
margir stórmarkaðir með ungt fólk, t.d.
um tvítugt, á lægsta taxta. Þau fá
útborgað ca. 160–170 þúsund. Og þar
sem taxtar VR eru með tvo yfirvinnu
taxta passa atvinnurekendur sig á því að
láta þau ekki vinna fulla dagvinnu svo
yfirvinna verði lægri. Þetta þarf að laga?
Ólafía B. Rafnsdóttir Mjög góð
athugasemd með unga fólkið. Á
meðan þeir hærra launuðu fengu
prósentuhækkun þá fengu þeir
lægst launuðu 11.000 króna
hækkun, þannig að hækkunin var
hlutfallslega meiri fyrir þá.
Hans Gruber Þú talar um
þjóðarsátt til að verja
kaupmátt, hvaða stefnu eða
sáttaleiða mundir þú sem formaður tala
fyrir?
Ólafía B. Rafnsdóttir Það eru
dökkar horfur ef verðbólgan
verður ekki sett í bönd. Við þurfum
þjóðarsátt um það sem og að ná
aftur þeim kjaraskerðingum sem við
höfum þurft að taka á okkur vegna
hrunsins. Á 5 árum hefur vísitala
neysluverðs hækkað um ríflega
43%. Enginn sem ég hef talaði við
hefur hækkað svo mikið í launum á
þessu tímabili.
Ástasigrún Magnúsdóttir
Hvað er mikilvægasta verkefni
sem VR stendur frammi fyrir?
Ólafía B. Rafnsdóttir Það er að
leggja áherslu á bætt kjör. Efla þarf
á ný kjarasvið VR sem er grunnur
inn að starfsemi félagsins. Þar eru
dýrmætir starfsmenn sem sinna
viðkvæmum og persónulegum
málum félagsmanna jafnt sem gerð
kjarasamninga við atvinnurekend
ur. Þetta svið er hjartað í félaginu
og ég tel nauðsynlegt að innan þess
starfi fleiri sérfræðingar svo meiri
tími gefist til að kanna og kortleggja
framtíðina í kjarabaráttu félagsins.
Kristinn Örn Jóhannesson
Hvort telur þú vænlegra til að
dýpka skilning á stöðu
launamanna, að hafa ung eignast börn
og stofnað heimili og menntað þig síðar
eða ganga beina menntaveginn og taka
virkan þátt í ungliðahreyfingu
frjálshyggju og íhaldsflokks (eins
mótsagnarkennt og það er)?
Ólafía B. Rafnsdóttir Þetta er
það sem skilur að núverandi for
mann og mig. Það er félagsmanna
að velja.
María Hauksdóttir Sæl
Ólafía. Hvaða leið telur þú
raunhæfa til að viðhalda
kaupmætti launa félagsmanna? Í
gegnum árin hafa launahækkanir litlu
sem engu skilað, þjónustuaðilar og
kaupmenn sjá um það. Ef enginn greiðir
eftir töxtum félagsins eins og Guðrúnu
var tjáð, væri þá ekki ráð að breyta
fyrirkomulaginu um kjarasamningsgerð
og að Verkalýðsfélagið VR taki á honum
stóra sínum og semji um mannsæmandi
og raunhæf laun fyrir félagsmenn sína?
Finnst þér annars þjóðarsátt
undanfarinna ára hafa komið
launþegum vel?
Ólafía B. Rafnsdóttir Að bæta
kjörin er brýnasta verkefni verka
lýðshreyfingarinnar og þar með VR.
Allir þurfa að koma að málum og
standa við það sem þeir lofa.
Birgir Olgeirsson Hvort var
skemmtilegra að vinna að
kosningabaráttu Ólafs
Ragnars eða Árna Páls?
Ólafía B. Rafnsdóttir Það yrði
auðvitað skemmtilegast að vinna
mína eigin kosningabaráttu :o)
Ingi Vilhjálmsson Telur þú að
þú munir leggja Stefán Einar í
þessum kosningum? Ef svo er
af hverju?
Ólafía B. Rafnsdóttir Ég hef
fundið gríðarlega góð viðbrögð
við framboði mínu, í fjölmörgum
heimsóknum mínum í fyrirtæki.
Auk tölvupósta, símtala og
opinberra stuðningsyfirlýsinga á
Facebooksíðunni minni. Ég minni
félagsmenn VR á hvað það er brýnt
að kjósa. Í formannskosningum fyrir
2 árum kusu einungis 4.600 manns
og núverandi formaður, meðfram
bjóðandi minn, hlaut þá aðeins 972
atkvæði. Því er afar brýnt að allir
nýti réttinn sinn og að þetta verði
afgerandi kosning.
Umræða 17Miðvikudagur 13. mars 2013
„Allir velji sér eitt-
hvað annað land
til að heimsækja í
framtíðinni!“
Gunnar Hafsteinsson var einn
þeirra sem tjáðu sig um mál
Íslendingsins sem hnepptur var í
varðhald í Tyrklandi .
„Þá er bara að hætta
í áskrift hjá 365 og
sleppa að lesa Frétta-
blaðið. Um leið og blaðið
endar ólesið í ruslinu þá hætta
flestir að auglýsa þar. Enn einu
sinni greiðir fólk atkvæði með
atferli sínu.“
Sigmundur Grétarsson um for
síðufrétt DV sem bar yfirskriftina
„Hefnd Jóns Ásgeirs“
„Það er meiriháttar
þegar fólk kemst
til baka úr þessum
óþverra.“
Sigurvin Kristjónsson er
einn þeirra sem glöddust
með Óskari Hallgrímssyni,
sem sagði frá því í DV hvernig hann
náði sér upp úr viðjum eiturlyfjafíknar.
„Í alvöru? Þetta var
megahallærislegt.
Maðurinn var þarna
að skemmta sér ásamt
vinum og eiginkonu og á ekki
skilið svona framkomu. Mér
er skítsama hversu umdeildur
viðkomandi slagsmálahundi
fannst hann vera, það er
engin lausn eða hetjuskapur
að haga sér eins og bestía.“
Ingunn Bylgja Einarsdóttir
gagnrýndi harðlega mann sem
sagði í athugasemdakerfinu
að maðurinn sem kýldi Sigmund Davíð
Gunnlaugsson, formann Framsóknar
flokksins, fyrirvaralaust á skemmtun fyrir
austan, ætti skilda fálkaorðuna. Fleiri
gagnrýndu það sjónarmið harðlega.
„Mér finnst leiðin-
legt hvað barna-
verndarnefndir og
barnaverndarstofa fá iðulega
slæma umfjöllun, en lítið heyrist
af því sem gott er gert. Ég hef
bara góða reynslu af barna-
verndarnefnd og þakka þeim
bara kærlega fyrir aðstoðina.
Í mínu tilfelli kom allavegana
að frábært fólk sem bar hag
barnsins fyrir brjósti og lagði
mikinn metnað og vinnu í
að vinna í því að aðstoða og
hjálpa.“
Lilja Sigurðardóttir um grein
um vinnubrögð Barnaverndar
og barnaverndarstofa.
„Það, að ein fjölskylda
sem kallar sig söfnuð
og talar öfgakennt
og vitlaust, segir ekkert um
kristna trú. EKKERT. Hægt er að
afskrifa alla stjórnmálaflokka
heims með sömu rökum og Jón
Ferdinand Estherarson setur
fram. Afskrifa má líka allar
þjóðir heims með vísun í eina
brjálaða. Og afskrifa má alla
karla heims með tilvísun í eitt
öfgakennt fífl. Sama gildir um
konur og reyndar um alla aðra.
Gætum okkar á fordómum.“
Séra Örn Bárður Jónsson í
athugasemd við frétt DV.is um
Westboro Baptistkirkjuna í
Bandaríkjunum.
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV.is í vikunni
14
17
15
19
17
50
Vill þjóðarsátt um
aukinn kaupmátt
Ólafía B. Rafnsdóttir, formannsframbjóðandi VR, brýnir fyrir fólki að nýta kosningaréttinn
Nafn: Ólafía Björk Rafnsdóttir
Aldur: 52 ára
Menntun: MBAgráða frá HÍ,
nám í mannauðsstjórnun og
verkefna og leiðtogaþjálfun
við endurmenntun HÍ 2004
og 2005.
Nýleg störf: Starfaði hjá 365
miðlum frá 2005 til 2012 og
hefur frá árinu 1996 tekið að
sér kosningastjórn ýmissa
framboða.