Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2013, Page 18
Ódýrast með WOW air
18 Neytendur 13. mars 2013 Miðvikudagur
Skreytum greinar úr garðinum
n Páskarnir minna á að vorið er að koma
P
áskarnir nálgast og margir
skreyta heimili sín að einhverju
leyti fyrir þessa hátíð. Það er til
dæmis skemmtilegur siður að
nota greinar af runnum sem skraut.
Nú er einmitt sá árstími að fólk fer að
huga að því að klippa tré fyrir sumar-
ið og þá er tilvalið að nota þær grein-
ar, taka þær inn og setja í vatn. Fjallað
er um þetta á natturan.is en þar seg-
ir að um páskana ætti brum á grein-
um sem nú eru settar í vatn að vera
farið að opna sig og fyrstu laufblöðin
að verða sýnileg. Þeir sem hafa ekki
aðgang að garði og trjám geta komið
við hjá Sorpu og fengið þar greinar.
Einnig er hægt að ganga um hverfið
og líta eftir greinum sem hafa brotn-
að af trjám eða liggja á víðavangi.
Til að gera þetta enn páskalegra er
hægt að skreyta greinarnar með léttu
og páskalegu skrauti, svo sem eggjum
eða ungum. Á vef Náttúrunnar segir
að egg, litlir ungar, greinar með nýjum
laufblöðum og blómum, til dæmis
páskaliljum og túlípönum, séu tákn
um frjósemi jarðar og minni um leið á
upprisuna fyrir kristna menn.
Þar eru einnig ráðleggingar um
hvernig hægt sé að blása úr eggi. Til
þess þarf að gera tvö göt á eggið, hvort
á sinn endann, með títuprjóni. Götin
þurfa ekki að vera stærri en 2 til 3 milli-
metrar en gatið sem er á breiðari enda
eggsins þarf að vera aðeins stærra.
Síðan er blásið úr grennri enda eggs-
ins og eggin svo skoluð vel og lögð
til þerris á klút þannig að allt fái að
leka úr egginu. Þegar eggið er þurrt
er hægt að mála það. Eggjarauðuna
og -hvítuna má svo nota í bakstur eða
aðra matargerð.
Algengt verð 256,8 kr. 255,6 kr.
Algengt verð 256,6 kr. 255,4 kr.
Höfuðborgarsvæðið 256,5 kr. 255,3 kr.
Algengt verð 256,8 kr. 255,6 kr.
Algengt verð 258,9 kr. 255,6 kr.
Melabraut 256,6 kr. 255,4 kr.
Eldsneytisverð 12. mars
Bensín Dísilolía
Gott fyrir
fátækan
námsmann
n Lofið fær kaffihúsið Mezzo en
viðskiptavinur einn fer þangað
gjarna til að vinna enda segir
hann þar ágætt internet, góða
stóla og bjart. „Það er líka al-
mennilegt starfsfólk og gott við-
mót. Þar að auki er mjög fínt úrval
af teblöndum og hægt að kaupa
smákökur í stykkjatali
fyrir innan við 100 kall.
Fínt ef mann langar í
eitthvað sætt en veit
að maður ætti ekki að
háma í sig heila
köku. Mezzo
er frábær stað-
ur fyrir fátækan
námsmann.“
Dýrt í keilu
n Lastið fær Keiluhöllin en við-
skiptavinur sendi DV eftirfarandi:
„Ég fór í Keiluhöllina um helgina
með börnin mín og var búinn að sjá
að helgarverð þar á braut eru 5.400
krónur fyrir 55 mínútur. Þegar við
komum var verðið hins vegar 6.600
krónur. Þegar ég spurði af hverju
var mér sagt að á milli 12.00 og
15.00 væri diskókeila. Dempuð ljós
og diskókúla hækkuðu því verðið
um 1.200 krónur. Verst var þó að
þau settu tímann af stað um leið og
við fengum skóna. Þar sem ég þurfti
að aðstoða börnin við að reima
töpuðum við 5 mínútum og ég get
mér til um að við höfum borgað
700 krónur fyrir að klæða okkur
í skóna. Ég kvartaði og að lokum
endurstilltu þau tímann. Mér finnst
það samt ansi hart að rukka svona
fyrir diskókeiluna og að setja svo tí-
mann af stað löngu áður en maður
getur byrjað að spila.“
DV bar lastið undir Agnar Fjeld-
sted, rekstrarstjóra Keiluhallar-
innar, sem sendi eftirfarandi svar:
„Á heimasíðu okkar og einnig á
Facebook-síðu er að finna verðlista
ásamt upplýsingum um hvaða verð
gilda hverju sinni. Þegar braut er
sett í gang eru alltaf 5 mínútur sem
viðkomandi hefur
til að klæða sig í skó
og finna kúlur sem
kemur sjálfkrafa í
tölvukerfinu áður
en sjálfur tíminn
sem viðkomandi
keypti byrjar. Auk
þess eru allir skór í Keilu-
höllinni Egilshöll með
frönskum rennilás.“
Lof og last
Sendið lof eða last á neytendur@dv.is
Páskaskraut Það er gaman að hafa heimagert skraut.
n Reynum að vera sveigjanleg þegar flug er bókað n Það er hægt að spara með því þúsundir króna
Þ
að er ódýrast í langflestum
tilfellum að kaupa flug
með WOW air í sumar
samkvæmt könnun sem
DV gerði á flugfargjöldum
til vinsælla áfangastaða. Ferða-
langar eru hvattir til að vera sveigj-
anlegir í ferðaáformum sínum og
er bent á að það getur verið hag-
kvæmt að skipta við fleiri en eitt
flugfélag. Þó svo að það lengi
ferðalagið getur það sparað ferða-
löngum talsvert.
Finnur ódýrasta flugfarið
Kannað var verð á flugi til níu
áfangastaða sem íslensku flug-
félögin tvö fljúga til í sumar. Stuðst
var við leitarvélina DoHop sem
getur aðstoðað fólk við að finna
ódýrasta fargjaldið. Þegar sleginn
er inn áfangastaður leitar hún
að ódýrasta fargjaldinu og gefur
einnig upp þá kosti sem eru í stöð-
unni. DoHop leitar einnig að hag-
stæðustu gistingunni og bílaleigu-
bílum fyrir þig svo eitthvað sé
nefnt.
Vakandi fyrir tilboðum
Skoðaðar voru dagsetningar í
kringum miðjan júní. Reynt var
að hafa sömu dagsetningar en
það var ekki alltaf hægt þar sem
flugfélögin fljúga ekki alltaf sömu
dagana. Eins skal tekið fram að
flugfargjöldin eru sífellt að breyt-
ast og félögin bjóða tilboðsferðir
sem ekki er tekið tillit til í þessari
könnun. Hér er einungis um að
ræða það verð sem fékkst við leit
þann 12. mars og sjálfsagt hægt
að fá hagstæðara verð aðra daga
og eins þegar nær dregur sumri.
Þeir sem íhuga ferðalög í sumar
ættu því að vera vakandi fyrir til-
boðum og vanda sig við bókanir
og ígrunda þær vel áður en eitt-
hvað er ákveðið. Einnig má benda
á þau aukagjöld sem sum flug-
félögin rukka eins og sjá má í töflu
hér með greininni.
Ódýrara flug en
lengri ferðatími
WOW air er oftast með ódýrasta
flugfargjaldið í beinu flugi til
áfangastaðanna níu. Það getur þó
borgað sig að vera sveigjanlegur
í ferðaáformum sínum því það
getur munað þúsundum króna
ef maður kaupir flug sem er ekki
beint flug. Sem dæmi má nefna
fargjaldið til Barcelona í júní en
farið fæst á rúmar 68.000 krónur
hjá WOW en 92.000 krónur hjá
Icelandair. Sé ferðamaðurinn hins
vegar tilbúinn til að kaupa far-
ið hjá þremur mismunandi flug-
félögum og stoppa einu sinni í
hvorum fluglegg getur hann feng-
ið flugfarið báðar leiðir á 50.347
krónur. Það skal þó taka fram að
þegar um slík tengiflug er að ræða
þá lengist ferðatíminn og því þarf
fólk að gera upp við sig hve lengi
það er tilbúið að bíða á flugvöllum
til að lækka fargjaldið.
Hagstætt að vera opinn
fyrir ferðadögum
Það getur líka verið hagstætt að
vera sveigjanlegur hvað ferða-
daga ræðir en dæmi um það er
fargjaldið til Parísar með WOW
air. Flugfarið frá París til Íslands
kostar 22.590 krónur ef flogið er
á miðvikudegi en 32.590 ef flogið
er tveimur dögum síðar, á föstu-
degi. Annað dæmi er flug til Kaup-
mannahafnar með Icelandair
þann 13. júní sem kostar 19.530
krónur aðra leiðina. Viku síðar,
eða þann 20. júní, er sama flug á
56.530 krónur. Flugfélögin gefa
upp hvaða daga boðið er upp á
besta verðið og vert að skoða það
vandlega og jafnvel að skipuleggja
ferðina í kringum þá daga. n
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Íslensku
flugfélögin
WOW air
Vefsíða: wowair.is
Áfangastaðir:
Alicante,
Amsterdam,
Barcelona, Brussel,
París, Kaupmanna-
höfn, Düsseldorf,
London, Lyon, Mílanó,
Suttgart, Berlín, Salzburg, Varsjá,
Vilníus og Zürich.
Icelandair
Vefsíða: icelandair.is
Áfangastaðir:
Amsterdam,
Barcelona, Björg-
vin, Billund, Brussel,
Kaupmannahöfn,
Frankfurt, Glasgow,
Gautaborg, Hamborg,
Helsinki, London, Madrid, Manchest-
er, Mílanó, München, Ósló, París, St.
Pétursborg, Stokkhólmur, Stafangur,
Þrándheimur, Zürich, Anchorage,
Boston, Denver, Minneapolis, New York,
Orlando, Seattle, Washington, Halifax
og Toronto, Las Vegas, Los Angeles,
Portland, Sacramento, San Diego,
San Francisco, San Jose, Spokane,
Vancouver.
new York Er vinsæll
áfangastaður Íslendinga.
Það þarf þó að fara nokkrar
krókaleiðir til að finna
ódýrasta fargjaldið eins og
sést hér á síðunni.