Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2013, Síða 23
Fólk 23Miðvikudagur 13. mars 2013
F
jölmiðlamaðurinn Auðunn
Blöndal var í vikunni
heiðraður fyrir tíu ára
starf hjá fjölmiðlafyrir
tækinu 365. Auddi, sem
stjórnar útvarpsþættinum
FM95BLÖ á FM957, var
í sakleysi sínu í beinni
útsendingu þegar for
stjóri fyrirtækisins, Ari
Edwald, rauf útsendingu til að færa
honum úrið.
Úrið er glæsilegt Reymond Weil
úr sem, samkvæmt heimildum DV,
kostar fúlgur fjár en hefð er fyrir því
að starfsmenn sem hafa starfað í
áratug fái slíkt úr.
„Forstjórinn truflaði út
sendingu og gaf Blö úr fyrir tíu
árin sem fastráðinn. Stoltur,“ skrif
aði Auddi sæll og glaður eftir út
sendinguna. n
n Forstjórinn truflaði
beina útsendingu
Auddi fékk
gullúr
É
g stefni ótrauð í úrslit. Kosn
ingunni lýkur eftir 20 daga og
ég er bjartsýn. Boltinn er far
inn að rúlla og ég vona að Ís
lendingar gefi sér hálfa mínútu til
að greiða mér atkvæði, segir Marta
Magnúsdóttir, tvítug Grundar
fjarðarmær, sem biðlar til þjóðar
innar um hjálp við að sigra í al
þjóðlegri keppni á netinu þar sem
verðlaunin eru hálfs árs heimsreisa
með öllu inniföldu auk 50 þúsund
dollara sem Marta ætlar að gefa
til Regnbogabarna og Minningar
sjóðs Sigrúnar Mjallar. Það eina
sem þarf til að styrkja Mörtu er að
gera „like“ á mynd hennar síðunni
mydestination.com. n
n Marta tekur þátt í keppni á netinu
Gefur vinningsféð
Gefur út bók
Ö
rugg framkoma er spurning
um þjálfun og æfingu. Ég
byrjaði að æfa mig átta ára
gömul, segir fjölmiðlakonan
Sigríður Arnardóttir, betur þekkt
sem Sirrý, sem hefur sent frá sér
sína aðra bók, Örugg tjáning – Betri
samskipti.
Bók Sirrýjar er byggð upp á því
sem hún hefur kennt við Háskól
ann á Bifröst, þeim námskeiðum
sem hún hefur haldið síðustu árin
og alls þess sem hún hefur sjálf
lært, hvort sem það var í Bandaríkj
unum eða í fjölmiðlum.
Aðspurð segir hún bókina fyrir
alla, konur og karla. „Þessi bók er
fyrir alla sem vilja tjá sig af öryggi.
Margir gera það vel en vilja samt
gera það enn betur.“ n
n Sirrý skrifar um tjáningu og samskipti
AnikA Hitti
goðin sín
n Anika Maí lagði allt undir á kóngapar og féll úr keppni
F
yrir mér var þetta eins og að
hitta forseta Bandaríkjanna,
segir Anika Maí Jóhannsdóttir,
Íslandsmeistari í póker,
en Anika Maí er stödd úti í
London þar sem hún hitti meðal
annars pókerstjörnuna Tom Dwan,
upp áhaldsspilarann sinn. „Tom var
mjög almennilegur, alveg eins og hin
ir sem ég talaði við. Þeir voru ekki
með neina stjörnustæla þótt þeir
viti alveg að það líta margir upp til
þeirra,“ segir Anika sem einnig hitti
heimsfrægu spilarana Gus Hansen,
Daniel Negreano, Van essu Selbst,
Annette Obrestad, Jason Mercier og
fyrrverandi heimsmeistara, Joathan
Duhamel.
Anika, sem er 21 árs ballett
dansari, var að taka þátt í sínu fyrsta
stóra pókermóti, UKIPTLondon
sem fram fór í Grosvenor Victoria
Casino en hún hafði aðeins spilað
póker í tvö ár áður en hún tók þátt í
Íslandsmeistaramótinu.
„Við fórum út, tíu manna hópur af
Íslendingum, en engum okkar gekk
vel á mótinu. Við duttum öll út á fyrsta
degi. Ég var mjög stressuð þar sem ég
var ekkert rosalega ánægð með borðið
sem ég lenti á en svo var ég líka mjög
óheppin. Ég fór „allin“ á kóngapari
en þá var annar með ásapar og það er
lítið við því að gera. Ég er samt búin
að læra heilmikið og þótt það hafi ekki
gengið vel á stóra mótinu hefur mér
gengið vel í „gash gameunum“. Þar er
ég í plús.“ n indiana@dv.is
Umkringd stjörnum
Anika Maí ásamt þeim
Elky, Daniel Negreanu
og Ike Haxton.
Reynir við heimsmetið
n Einar Mikael vonast til að komast í heimsmetabók Guinness
É
g er nokkuð öruggur að ég nái
þessu. Það er þó ekkert gulltryggt
en ég hef þessa sex mánuði til
að æfa mig, segir sjónhverfinga
meistarinn Einar Mikael sem er að
undirbúa sig fyrir heimsmet sem
hann ætlar að setja í september með
því að gera sem flestar sjónhverfingar
á þremur mínútum.
Einar Mikael hefur hannað átta
risa sjónhverfingar en áhugasamir
geta séð töfrabrögðin á sýningu hans
í Austurbæ 24. mars. „Ég er ekki bara
með sveinspróf í sjónhverfingum
heldur líka húsasmíði og því get ég
smíðað þetta allt sjálfur sem er kostur.
Þá þarf ég ekki að kaupa það sem til
þarf utan frá.“
Á meðal þess sem Einar Mikael
ætlar að gera þegar hann reynir við
heimsmetið er að saga aðstoðar
konu sína, Freyju Maríu, í átta hluta.
„Einnig ætla ég að saga sjálfan mig
í tvennt en slíkt hefur aldrei verið
framkvæmt á Íslandi áður. Viðbrögð
in sem ég hef fengið við því atriði eru
eins mögnuð og þau geta verið. Það
er rosalega sláandi að sjá þetta. Ég er
ofsalega stoltur af þessu atriði,“ segir
Einar Mikael sem segir hugmyndina
komna frá aðstoðarkonu sinni.
„Hún spurði hvort ég gæti ekki
hætt að saga hana í sundur og sagað
sjálfan mig í staðinn. Ég sagði bara
jú jú og fór að vinna að því að útfæra
sjónhverfinguna,“ segir hann og játar
því þegar hann er spurður að svona
töfrabrögð geti verið hættuleg. „Það
getur allt gerst og það fer alls ekk
ert vel með mænuna í manni þegar
maður sagar sjálfan sig. Þess vegna
er ég alltaf með flösku af mænuvökva
á mér. Þetta eru alvöru töfrabrögð –
engir spilagaldrar.“
Heimsmetadómarar munu koma
í haust til að fylgjast með þegar
Einar reynir við heimsmetið. „Þetta
verður líka vottað af þremur stærstu
heimsmetabókum í heiminum, þar á
meðal Heimsmetabók Guinness. Nú
snýst þetta bara um að ég nái þessu. n
Töframaður Einar ætlar að saga sig í tvennt.
„Þeir voru ekki með
neina stjörnustæla
þótt þeir viti alveg að það
líta margir upp til þeirra.
Með goðinu sínu Tom Dwan er í
miklu uppáhaldi hjá Aniku Maí sem segir
pókerspilarann afar almennilegan.