Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2013, Qupperneq 12
12 Erlent 8. apríl 2013 Mánudagur
Vilja banna ölvunarrölt
n Bæjaryfirvöld í Bethel vilja herða viðurlög gegn velsæmisbrotum
Þ
að er þegar bannað með lög-
um að hafa hægðir og míga
á almannafæri í Alaska,
sem gjarna hefur fylgt ölvun
einstaklinga. Bæjaryfirvöld í smá-
bænum Bethel í bandaríska ríkinu
vilja hins vegar ganga lengra í sín-
um velsæmislögum en flestir aðrir.
Yfirvöld í hinu rúmlega sex þúsund
manna bæjarfélagi vilja nefnilega
gera ríkislögin að sínum eigin og
með viðbótum. Gera það að lög-
broti að ganga um götur bæjarins
undir áhrifum áfengis.
Tillaga þess efnis að heimila lag-
anna vörðum að sekta slompaða
gangandi vegfarendur um 24 þús-
und krónur – sem eru viðurlögin
við að svara kalli náttúrunnar á al-
mannafæri. Bæjaryfirvöld segja að
með þessum nýju endurbættu lög-
um bæjarins myndu sektargreiðsl-
ur vegna brota gegn almennu
velsæmi og ölvunarrölts renna
beint til bæjarsjóðs í stað ríkiskass-
ans.
Bannið er þó ekki óumdeilt inn-
an bæjarstjórnarinnar þar sem
menn hafa uppi efasemdir um að
lögin muni reynast mikil fjárþúfa
fyrir Bethel. Einn bæjarfulltrúi segir
að þrátt fyrir ölvun þá sé innbyggð
þörf hjá flestum að hylja skömm
sína við þessar athafnir og að hann
persónulega hefði aldrei orðið vitni
að því að fólk gengi örna sinna á al-
mannafæri.
Hvað ölvun á almannafæri varð-
ar þá voru einhverjir á því að bann
við því að ganga ölvaður um götur
bæjarins myndi auka öryggi bæjar-
búa. Aðrir eru ekki jafn sannfærðir.
„Ég skil það sjónarmið að fólk
geti verið til vandræða. En það
eru aðrar leiðir til að taka á því en
með því að banna göngutúra und-
ir áhrifum. Fundað verður um til-
lögurnar í vikunni. n
n Milljónir milljarða í skúffufyrirtækjum skattaskjóla n Stærsti gagnaleki sögunnar afhjúpar leynilega eigendur auðæfanna
T
veimur milljónum tölvu-
pósta og leynilegra gagna um
faldar bankainnstæður þús-
unda auðmanna og annarra
fyrirmenna hefur verið lek-
ið til breska dagblaðsins Guardian.
Flest gögnin snúa að földum eign-
um á Bresku Jómfrúaeyjunum en í
gögnunum eru upplýsingar um leyni-
legar innstæður skúffufyrir tækja for-
seta, stjórnmálamanna, auðmanna,
þjóðarleiðtoga og fjölskyldna ein-
ræðisherra í hinum ýmsu skattaskjól-
um. Guardian mun á næstu dögum
og vikum birta fréttir úr gögnunum
en lekinn er einn sá stærsti sinnar
tegundar frá upphafi.
Guardian vinnur úr gögnunum í
samvinnu við Alþjóðabandalag rann-
sóknarblaðamanna (ICIJ) og sök-
um umfangs þeirra gæti tekið langan
tíma að klára það verkefni.
Guardian hefur þegar afhjúpað
eignir og umsvif nokkurra einstak-
linga á Jómfrúaeyjum en í umfjöll-
unum blaðsins er tekið sérstaklega
fram að ekki sé með nokkrum hætti
verið að saka þá sem afhjúpaðir eru
um nokkuð saknæmt. Aflandsreikn-
ingar geti verið fyllilega löglegir. Það
eina sem flestir nefndra einstaklinga
eigi þó sameiginlegt sé að hafa kom-
ið auðæfum sínum til Jómfrúaeyja til
að njóta þeirrar leyndar sem lögsagan
býður upp á. Þar til nú.
Leyndarmálin á Jómfrúaeyjum
verða afhjúpuð og þegar er farið að
gæta nokkurs skjálfta vegna lekans.
Það er enginn skortur á stjórnmála-
mönnum, aðstandendum auðmanna
og fleirum víðs vegar að úr ver-
öldinni í gögnunum. Allt frá Kanada,
Bandaríkjunum, Frakklandi, Ind-
landi, Pakistan, Aserbaídsjan, Kína og
Taílandi til fyrrverandi kommúnista-
ríkja. n
Leyndarmálin á Jómfrúaeyjum
Íhugar afsögn
Bayartsogt Sanga-
jav, fyrrverandi
fjármálaráð-
herra Mongólíu
og forseti
þingdeildar
landsins, hef-
ur lýst því yfir
að hann sé að
íhuga afsögn eft-
ir að leynilegar eign-
ir hans voru afhjúpaðar. „Ég hefði
ekki átt að opna þennan reikning.
Ég hefði átt að telja fyrirtæk-
ið mitt með í yfirlýsingu um
hagsmunaskráningu mína,“
hefur ICIJ eftir Sangajav. „Ég
hef engar áhyggjur af orð-
spori mínu. Ég hef áhyggjur af
fjölskyldu minni. Ég ætti senni-
lega að íhuga afsögn.“ Hann er einn
fárra sem hafa tjáð sig um afhjúp-
unina en aflandsreikningur hans
innihélt á einum tíma-
punkti rúmlega eina
milljón Bandaríkja-
dala. Sangajav var
fjármálaráðherra
frá 2008–2012 þar til
uppstokkun var gerð
í ríkisstjórninni og
hann tók við þingfor-
setastarfinu.
Dóttir
einræðisherra
Maria Imelda Marcos, elsta
dóttir hins spillta Ferdinands
Marcos einræðisherra Filipps-
eyja, og núverandi héraðsstjóri í
landinu er fjárfestingaráðgjafi og
nýtur góðs af aflandsfélaginu Sintra
Trust á Jómfrúaeyjunum. Félagið var
Milljónir hlutafélaga
skráðar á eyjarnar
Áætlað er að rúmlega 20 trilljónir Bandaríkjadollara kunni að
liggja í leynd skattaparadísa á hinum ýmsu aflandsreikningum.
Bresku Jómfrúaeyjarnar í Karabíska hafinu hafa verið hvað
duglegastar að sanka að sér viðskiptum undir leyndarhjúp sinn.
Þekktust eyjanna er lúta breskri stjórn er líklega Tortóla. Meira
en milljón hlutafélög hafa verið skráð á eyjunum síðan eyjarnar
fóru að markaðssetja sig sem skattaparadís á níunda áratug
síðustu aldar.
Ásóknin skýrist ekki síst af því að nöfn raunverulegra
eigenda þessara aflandsfélaga hafa verið leyndarmál og aldrei
afhjúpuð. Meira að segja fjármálaeftirlitsstofnanir eyjanna hafa
ekki hugmynd um hverjir standi að baki félögunum.
Um tímamótaleka er því að ræða hjá Guardian og Alþjóða-
bandalagi rannsóknarblaðamanna þar sem blaðamenn hefur
um árabil dreymt um að komast í hinn heilaga kaleik skatta-
skjólanna á Jómfrúaeyjum.
Frægur varð sendiráðsskjalaleki Wikileaks árið 2010 sem
var gríðarlegur að umfangi. Þar var um að ræða tvö gígabæt
af leynigögnum frá bandarískum sendiráðum víða um lönd.
Jómfrúaeyjagögnin eru til samanburðar rúmlega 200 gígabæt.
Þetta er því að líkindum stærsti gagnaleki sögunnar.
Ölvun Hér á landi kallast það brot
gegn lögreglusamþykkt að míga á
almannafæri eða eitthvað þaðan af
verra. Í Bethel vilja menn herða á þessu.
Í bílastæði
fyrir fatlaða
George Osborne, fjármálaráð-
herra Bretlands, hefur sennilega
verið glorsoltinn þegar hann snar-
aði sér inn á veitingastað McDon-
ald‘s í Cardiff um helgina. Bílstjóri
hans lagði þá silfurlituðum Range
Rover-jeppa ráðherrans í bíla-
stæði ætlað fötluðum á meðan
Osborne nældi sér í hamborgara.
Ljósmynd náðist af atvikinu og
hefur málið vakið þó nokkra
athygli. Baráttufólk fyrir réttind-
um fatlaðra hefur húðskammað
ráðherrann í breskum fjölmiðlum
enda enn heitt í hamsi vegna viða-
mikils niðurskurðar stjórnvalda í
velferðarmálum.
Þá er rétt að geta þess að fé-
lagi Osborne úr Íhaldsflokknum,
David Cameron forsætisráðherra,
kom sér í sams konar klandur um
helgina. Þá lagði hann Jagúar-
bifreið sinni í bílastæði þar sem
bannað er að leggja lengur en í 30
mínútur en geymdi glæsikerruna
í stæðinu í heilar þrjár klukku-
stundir og vakti með því mikla
hneykslan.
Börn létust í
árás NATO
Talið er að tólf óbreyttir borgarar,
tíu börn og tvær konur, hafi fallið
í loftárásum NATO í austurhluta
Afganistan um helgina. Þetta kem-
ur fram á fréttavef BBC en tala
látinna hefur þó ekki verið stað-
fest þegar þessi orð eru rituð. Þá
hafa stjórnvöld í héraðinu greint
frá því að átta skæruliðar úr röð-
um talíbana hafi látist í árásunum.
Forsvarsmenn NATO hafa staðfest
að árásirnar hafi átt sér stað en
segjast ekki hafa neinar upplýs-
ingar um mannfall. Samkvæmt
upplýsingum frá NATO voru árás-
irnar liður í umfangsmiklum að-
gerðum gegn helstu forystumönn-
um talíbana.
Í febrúar í fyrra féllu tíu
óbreyttir borgarar, mestmegnis
konur og börn, í loftárásum NATO
á sama svæði.
„Sjáum í gegn
um þetta“
Stjórnvöld Suður-Kóreu óttast
að Norður-Kóreumenn ætli að
skjóta upp langdrægri eldflaug
á miðvikudag. Þeir hafa hvatt
erindreka sína í landinu til að
forða sér. Átök geti hæglega brot-
ist út. Kim Jang-soo yfirmaður
þjóðaröryggismála hjá suður-
kóreskum stjórnvöldum frestaði
meðal annars embættisferð
sinni til Washington í Bandaríkj-
unum vegna vaxandi spennu
á svæðinu. Stjórnvöld telja að
Norður-Kórea sé að reyna að
hræða Bandaríkjamenn og Suð-
ur-Kóreumenn út í samninga-
viðræður, en viðskiptabann er
meðal annars á Norður-Kóreu.
„Við sjáum í gegnum þetta,“
segir Kim Haing, talsmaður for-
setaembættisins í Suður-Kóreu,
við New York Times. „Þrátt fyrir
að Norður-Kórea sýni engin um-
merki um að undirbúa allsherjar
stríð þá er alveg víst að þeir
munu hljóta mun meiri skaða
af einhverjum svæðisbundnum
ögrunum en við.“
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is