Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2013, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2013, Blaðsíða 23
Fólk 23Mánudagur 8. apríl 2013 S kúli Mogensen, forstjóri WOW air, hefur aftur fest kaup á Fjölnisvegi 11. Skúli hefur áður búið í húsinu en hann keypti það árið 1998 ásamt fyrrverandi eiginkonu sinni. Bogi Pálsson keypti það af þeim árið 2002 en síðan hafa bæði Hannes Smárason og Guð- mundur Kristjánsson, kenndur við Brim, búið í húsinu en Skúli keypti það núna af þeim síðar- nefnda. Ekki er vitað hvort Skúli ætli sjálfur að búa í húsinu eða leigja það út en hann skildi ný- lega við eiginkonu sína. Aftur á Fjölnisveg „Þverpólitíska sam- starfið þegar hafið“ Þ að er ekki alltaf sem mótherjar í pólitík elda grátt silfur saman. Sem dæmi um það má nefna Viktor Orra Valgarðsson, sem skipar fjórða sæti fyrir Lýð- ræðisvaktina í Reykjavík norður, og Helga Hrafn Gunnarsson, sem skipar fyrsta sæti hjá flokki Pírata í Reykjavík norður. „Keypti prent- kvóta og prentaði út undirskrifta- blað fyrir Píratapartýið svo Helgi Hrafn Gunnarsson gæti safn- að meðmælum á Háskólatorg … Þverpólitíska samstarfið er þegar hafið :D,“ skrifaði Viktor á Face- book-síðu sína undir mynd af þeim félögunum saman. Fær ekki leið á Gogga Þ etta byrjaði árið 2000 í Þjóð- leikhúsinu hjá mér, en þá var ég fenginn til að leika Gogga á sviðinu í sýningunni Glanni glæpur í Latabæ. Það var mjög gam- an enda mikið af góðu fólki þarna með mér. Við Stefán Karl vorum að stíga okkar fyrstu skref í leikhúsinu og svo voru þarna Steinn Ármann, Örn Árna, Gunnar Hansson, Baldur Trausti, Linda Ásgeirs og fleiri og fleiri,“ segir Rúnar Freyr Gíslason leikari sem vinnur nú að því að talsetja nýjustu Latabæjarseríuna. Rúnar ljær persón- unni Gogga mega rödd sína. Rúnar lék Gogga þegar leikritið var sett upp í fyrsta sinn fyrir 13 árum. En hvernig finnst Rúnari að vera enn að leika þennan tölvustrák svona mörgum árum síðar? „Þetta er alltaf jafn gaman, jafnvel þótt maður sé að nálgast fertugsaldurinn. Og það er bara alltaf gaman að talsetja enda hef ég gert mjög mikið af því. Af einhverj- um ástæðum tala ég mikið fyrir hör- undsdökka karaktera. Ég talset yfir- leitt þegar Cuba Gooding, Will Smith, Eddie Murphy eða menn með þeirra litarhátt tala fyrir karakterana. Og svo er Goggi orðinn dökkur líka, þannig að þetta er allt eins og það á að vera,“ seg- ir Rúnar kátur. „Svo er bara alltaf gam- an að gera eitthvað fyrir börn, því þau kunna svo sannarlega að meta það.“ n n Rúnar Freyr hefur leikið í Latabæ í þrettán ár Þ etta verður mjög hinsegin brúðkaup, við getum sagt það,“ segir Árdís Fjóla Jón- mundsdóttir sem er nú í óða önn að undirbúa brúðkaup ásamt unnustu sinni, Ingu Birnu Kristjánsdóttur. DV sagði frá trúlofun turtildúfnanna í desember en þær settu upp hringana á Café Mílanó í Faxafeni þann 12.12.12 klukk- an 12.12. Þær ætla síðan að ganga í það heilaga þann 8. júní næstkom- andi en þá hafa þær verið saman í ár en hafa þekkst nokkrum mánuð- um lengur. Þær fluttu inn saman á fyrsta degi sambandsins og eru yfir sig ástfangnar að sögn Árdísar. Inga Birna var karlmaður fram til ársins 2011 en þá fór hún í kynleiðréttingar- aðgerð. Mikill spenningur í bænum Árdís segir þær síður en svo hafa fundið fyrir fordómum þó að sam- band þeirra sé kannski ólíkt því sem margir þekkja. Þær séu opnar um sín mál og samfélagið á Dalvík, þar sem þær búa, hafi tekið þeim opnum örmum. „Við höfum alltaf verið opn- ar með þetta og það hafa allir stutt okkur. Það veit allur bærinn af brúð- kaupinu og það er mikill spenning- ur,“ segir hún. Litríkir kjólar Árdís var stödd í höfuðborginni þegar DV náði tali af henni en þær Inga Birna voru í bænum meðal annars til þess að velja brúðarkjóla. Árdís segir kjólana vera litríka í takt við þær og þær hafi reynt að gera sem mest sjálfar fyrir veisluna. „Ég hand- skrifaði öll boðskortin og er að föndra hringapúðann til dæmis. Þetta er allt mjög persónulegt hjá okkur.“ Þær stöllur hefðu helst viljað bjóða öllum bænum í brúðkaupið. „Við ákváðum þó að velja en þetta verða svona 100– 120 manns. Ættingjar, vinir og kunn- ingjar. Allt þetta fólk sem hefur tekið okkur svona vel.“ Maturinn frá fyrrverandi Þær hafa nú þegar fengið fyrstu brúðargjöfina. „Og það ekkert smá- ræði – maturinn í veisluna.“ Og gjöfin kemur frá fyrrverandi eigin- konu Ingu. „Þetta er frá konunni sem Inga var gift og hennar fólki,“ segir Árdís og tekur fram að þau séu öll mjög náin en Inga Birna á börn frá fyrra sambandi. „Þegar talað er um fjölskylduna þá eru það við Inga og krakkarnir og fyrrverandi konan hennar Ingu. Mér finnst bara ekkert rétt að vera með ein- hvern ríg og slíta þetta allt í sundur og svona. En það eru margir rosa- lega hissa á því að ég taki þennan pól í hæðina en svona á þetta bara að vera,“ segir hún. Ástfangnar upp í rjáfur Árdís segir þær Ingu Birnu vera afar spenntar fyrir stóra deginum og þær séu búnar að plana ýmislegt skemmtilegt. „Hringberinn kemur til dæmis dansandi inn og svo ætl- um við að hrekkja hvor aðra í kirkj- unni,“ segir hún og vill ekkert gefa nánar upp um hrekkina. Hún seg- ir þær verða ástfangnari með hverj- um deginum. „Já, við erum mjög ástfangnar, bara alveg upp í rjáfur.“ n viktoria@dv.is n Árdís og Inga undirbúa litríkt hinsegin brúðkaup Sú fyrrverandi borgar matinn 14. desember 2012 Ástfangnar upp í rjáfur Þær Árdís og Inga Birna ætla að gifta sig í júní. Þá hafa þær verið saman í ár. Goggi í þrettán ár Rúnar Freyr hefur um árabil léð Gogga mega rödd sína.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.