Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2013, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2013, Blaðsíða 21
Sport 21Mánudagur 8. apríl 2013 Einn sem veit ekki hvenær nóg er komið n Lance taldi sig eiga frama vísan í sundi S umir kunna sér einfaldlega ekki hóf. Það gerði hjólreiða­ kappinn Lance Armstrong ekki áður en upp komst að hann var búinn að svindla sér leið að öllum helstu titlum í hjólreiðum og jafnvel eftir að tjaldið féll hinsta skipti á það baktjaldamakk hans steig Armstrong fram og hugðist ná frama í sundi. Hann ætlaði með öðrum orðum að skipta um íþróttagrein og vona að almenningur um heim allan gleymdi því sem snöggvast að hann hefur fyr­ ir marga að eilífu eyðilagt nokkra ánægju sem hægt er að hafa af keppnishjólreiðum. Fyrir utan auð­ vitað að hann er í eilífðarbanni frá einni íþróttagrein sem á tæknilega séð að útiloka hann frá öllum keppn­ um í öllum íþróttagreinum. En Armstrong hafði vart tilkynnt fyrirætlan sína um að taka þátt í sundkeppni í Texas sem gefur opin­ ber stig fyrir verðlaunasæti fyrr í vik­ unni en Alþjóðasundsambandið, FINA, sagði þvert nei. Hann hafði þó áður fengið grænt ljós á þátttöku frá bandaríska sundsambandinu. Rök FINA sem Bandaríkja­ mennirnir urðu að beygja sig undir og banna Armstrong frá keppni eru að hann sé í lífstíðarbanni sam­ kvæmt World Anti­Doping Code­ eftirlitsstofnuninni en það er við þá lista sem íþróttahreyfingar um heim allan miða þegar opinberar keppnir eru háðar. Fari fram íþróttakeppni þar sem opinber stig eru í boði þá ber að fara eftir listum þeirrar stofn­ unar hafi íþróttahreyfing viðkom­ andi lands skrifað undir samkomu­ lag þess efnis. Og það hafa öll stærstu heimssamtök í íþróttum gert. Það segir hins vegar töluvert um líkamlegt ástand hjólreiðakappans að þó hann hafi aldrei formlega tek­ ið þátt í sundkeppni er tími hans í lauginni í sínum aldurshópi með þeim allra bestu. n Sundkappinn Lance Armstrong? Karlinn er kappsamur með afbrigðum eins og ljóst má vera af lyfjaneyslu hans um áralangt skeið og því fær hann ekki að keppa í öðrum íþróttagreinum. Laumaðist til að reykja Lífið hefur verið örlítið jákvæðara fyrir Mario Balotello síðan hann gekk til liðs við AC Milan frá Manchester City eftir áramótin. Honum hefur gengið vel á vellin­ um og skorað sjö mörk í sjö leikj­ um sem vart er hægt að kvarta yfir. Hann hins vegar læddist inn á klósett til að reykja á heimleið í lest frá Flórens með liði sínu og lestarvörðurinn kærði atvikið. Um borð var einnig varaforseti Milan, Adriano Galliani, sem um­ svifalaust sektaði sinn mann fyrir laumureykingarnar. Ferguson hrif- inn af di Canio Nýr stjóri Sunderland, Paulo di Canio, er mikið milli tanna á fólki vegna fasistaláta hans sem hann sjálfur hafnar að hafa nokkra trú á. Einn er þó sá aðili sem er hrifinn af stjórnunarstíl Ítalans og það er enginn annar en Alex Ferguson, stjóri Manchester United. Ástæð­ an er sú sama og tengist hrifningu Skotans af Jose Mourinho; di Canio beri ástríðuna fyrir boltanum utan á sér og smiti út frá sér til leik­ manna í kringum sig. En Ferguson sagði líka að Canio ætti stórt verk­ efni fyrir höndum að koma Sund­ erland á beinu brautina. Þungu fargi aflétt Cesc Fabregas hlýtur að anda mun léttar eftir leiki helgarinnar á Spáni en karlinn skoraði þrennu í leik Börsunga gegn Mallorca og fór létt með að leysa aðalstjörnu liðsins, Leo Messi, af hólmi en sá er meiddur og lék ekki með í 5–0 sigri síns liðs. Fabregas hefur þótt spila langt undir getu í vetur og hefur smám saman verið að missa byrjunarliðssæti sem hann átti í upphafi leiktíðar. Þá hafa fjölmiðl­ ar í landinu ekki verið hrifnir af leik Cesc og kallað hefur verið eftir því að hann verði seldur. Þrenn­ an mun væntanlega binda enda á slíkar fregnir. Engin krafta- verk hjá Harry Oftar en ekki hefur Harry Red­ knapp tekist hið ótrúlega; að bjarga hinum og þessum lið­ um úr vonlítilli stöðu þegar hann tekur við stjórn en svo virðist sem kraftaverkin láti á sér standa með QPR. Hann segist hafa vitað að verkefnið yrði ekki auðvelt en viðurkenn­ ir að vera í verri stöðu nú en hann var að vonast til en Red­ knapp tók við liðinu í nóvem­ ber síðastliðnum. QPR er í bull­ andi fallbaráttu og hefur tapað illa fyrir öðrum botnliðum að undanförnu. Þýskir meistarar með yfirburðum U m helgina varð Bayern München þýskur meist­ ari í 23. skiptið á sögunni og það með óvenju mikl­ um bravúr því sex umferðir eru enn eftir í þýsku deildinni. Yfir­ burðir liðsins undir stjórn hins mikil­ hæfa Jupp Heynckes hafa verið mikl­ ir og það eru stórir skór hans sem Pep Guardiola, sem tekur við þjálf­ un liðsins í sumar, þarf að fylla og helst gott betur. Þá er liðið í frábær­ um málum í Meistaradeild Evrópu og margir spá því að liðið komist alla leið í þeirri keppni fyrir utan auðvit­ að að eiga enn möguleika á þýska bikarmeistaratitlinum. Árangur Bæjara er sá besti hjá þýsku liði í Bundesligunni frá upp­ hafi. Engu öðru liði hefur tek­ ist að setja punktinn á þá deild svo snemma og það er ekki lítið afrek því þýska deildin er sterk og aðeins eitt einasta ár síðan allt annað var uppi á teningnum og Borussia Dortmund var með örugga forystu og skildi Bayern eftir í rykinu. Dæmalaus tölfræði Bayern hefur aðeins tapað einum einasta leik í allan vetur í Bundeslig­ unni og aðeins þrettán sinnum hef­ ur andstæðingum tekist að skora í mark Bæjara. Þeir eru taplausir á úti­ velli og vantar aðeins sex stig til að bæta stigametið í þýsku deildinni. Besta dæmið um makalaust frábæra frammistöðu liðsins er þó kannski sú staðreynd að Bayern hefur skorað 36 mörkum meira en Dortmund sem er í öðru sæti Allt þetta er til marks um fyrsta flokks lið, fyrsta flokks þjálfara og síð­ ast en ekki síst samvinnu eins og hún gerist best. Það hefur sem sagt tekist að fá allar stjörnurnar í liðinu, og þær eru margar, til að vinna saman sem ein einasta heild og það er fjarri því auðvelt með eiginhagsmunaseggi á borð við Franck Ribery og Arjen Robben innan liðsins. Pressa á Pep Þessi árangur er ekki mikið síðri, og jafnvel mun betri, en árangur Pep Guardiola með Barcelona en Pep tek­ ur við stjórn Bayern í sumar eins og kunnugt er. Þó Pep sé hátt skrifaður hjá fjölda boltaspekinga hafa kom­ ið fram efasemdir um Spánverjann í þýskum miðlum síðustu vikurnar. Bent er á að hans stíll sé afar langt frá þeim leik sem Bayern spilar þó ekki fari fram hjá mörg­ um að Bæjara hafa undanfarin ár spilað töluvert grimmari sóknar­ leik en flest önnur félagslið í Þýska­ landi. En vandséð er hvernig Pep hyggst frekar bæta Bæjara og árang­ ur Heynckes nú setur mikla pressu á nýja þjálfarann. Sennilega svipaða pressu og eftirmaður Alex Fergu­ son hjá Manchester United þarf að vinna undir þegar að því kemur. Ekkert auðvelt við það. n Þýski boltinn Staðan 1 Bayern M. 28 24 3 1 79:13 75 2 Dortmund 28 16 7 5 66:34 55 3 Leverkusen 28 14 7 7 51:36 49 4 Schalke 28 13 6 9 48:43 45 5 Freiburg 28 11 9 8 36:33 42 6 E.Frankfurt 28 12 6 10 42:40 42 7 M‘gladbach 28 10 11 7 36:37 41 8 Mainz 28 10 9 9 35:32 39 9 Hannover 28 11 5 12 49:46 38 10 Nürnberg 28 9 11 8 33:35 38 11 Hamburger 28 11 5 12 32:44 38 12 Wolfsburg 28 8 9 11 33:43 33 13 Stuttgart 28 9 6 13 29:46 33 14 W.Bremen 28 8 7 13 43:54 31 15 F.Düsseldorf 28 7 8 13 33:43 29 n Bayern München gæti slegið stigametið n Þjálfarinn hverfur á braut Albert Örn Eyþórsson blaðamaður skrifar ritsjorn@dv.is Séffinn sigurreifur Jupp Heynckes hefur gert frábæra hluti með Bayern og ekki hlaupið að því að endurtaka það. Frábær leiktíð Bayern deildarmeistari og á enn möguleika að verða þýskur bikarmeistari og ekki er fráleitt að ætla að Meistaradeildina gæti liðið klárað líka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.