Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2013, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2013, Blaðsíða 22
22 Menning 8. apríl 2013 Mánudagur Djass á Kex Hljómsveitin Reykjavík Swing Syndicate kemur fram á djass- kvöldi á Kex Hostel á þriðjudag. Hljómsveitina skipta þeir Haukur Gröndal á saxófón, Gunnar Hilm- arsson á gítar, Jóhann Guðmunds- son sem einnig er á gítar og Gunnar Hrafnsson á kontrabassa. Tónlistin sem þeir spila tengist sveiflu fjórða áratugarins, Django- djassi og bannáragleði. Tónleik- arnir hefjast klukkan 20.30 og standa í um tvær klukkustundir með hléi. Aðgangur er ókeypis og því tilvalið fyrir tónþyrsta djass- geggjara að skella sér á Kexið. Fyrsta platan komin út Fyrsta plata hljómsveitarinnar Robert the Roommate kom út á föstudaginn. Öll lögin á plötunni eru frumsamin og lýsa meðlimir sveitarinnar lögunum sem þjóð- lagaskotinni popp- og rokktónlist, með áhrifum frá sveitum á borð við Led Zeppelin og Fleet Foxes. Hljómsveitin var stofnuð vorið 2010 og um haustið vann hún Lennon-ábreiðulagasamkeppni Rásar 2. Hljómsveitina skipa Rósa Guðrún Sveinsdóttir sem syngur, Daníel Helgason á gítar, Þórdís Gerður Jónsdóttir á selló og Jón Óskar Jónsson á slagverk. Sögusýning um femínista Femínistafélag Íslands fagnar 10 ára afmæli sínu um þessar mundir og af því tilefni er nú í gangi sögu- sýning um starf félagsins í Þjóðar- bókhlöðunni. Sýningin er byggð á vinnu Karenar Ástu Kristjánsdóttur og Rósu Bjarkar Bergþórsdóttur sem skrásettu sögu Femínistafé- lagsins í fyrra. Á sýningunni verð- ur stiklað á stóru í aðgerðum og áhrifum Femínistafélags Íslands síðustu 10 ár. Margt hefur áunnist í jafnréttisbaráttunni þó að enn hafi lokamarkmiðinu ekki verið náð, þ.e.a.s. að félagið verði lagt niður því jafnrétti hafi verið náð segir í til- kynningu frá félaginu. 1fundir, fyrirmyndakvöld, listakvöld, málþing, femínistavikur, hitt, afhending bleiku steinanna, bolir, merki, jólakort, fræðsla, málþingveggspjöld, jólakort, merki, listakvöld, hitt, fræðsla, samfélagsáhrif, kröfuspjöld, ályktanir, vinna gegn staðalímyndum, fundir, fræðsla,vinna gegn kynbundnu ofbeldi, merki, listakvöld, málþing, jólakort vinna gegn kynbundnu ofbeldi, merki, listakvöld, málþing, jólakortfundir, fyrirmyndakvöld, listakvöld, málþing, femínistavikur, hitt, afhending bleiku steinanna, bolir, merki, jólakort, fræðsla, málþingkröfuspjöld, ályktanir, vinna gegn staðalímyndum, fundir, fræðslaveggspjöld, jólakort, merki, listakvöld, hitt, fræðsla, samfélagsáhrif,femÍnistafÉlag ÍslandsfemÍnistafÉlag ÍslandsfemÍnistafÉlag ÍslandsfemÍnistafÉlag Íslandskarlmenn segja nei við nauðgunum málum bæinn bleikankonur gegnum glervegginnkannast einhver við þessa konu? ecce femina átak gegn óábyrgum auglýsingum Þ að voru sannkallaðar ham- farir sem gengu yfir stóra sviðið í Borgarleikhúsinu nú í síðustu viku þegar Krist- ján Ingimarsson og félagar geystust þar um í gestaleik sínum Blam! sem þeir kalla svo. Ég skal játa það fúslega: ég hef ekki hugmynd um hvaðan orðið kemur eða hvað það þýðir. En vísast hefur það eitt- hvað að gera með leik þann sem er stundaður í sýningunni. Því að þetta er í rauninni leikhús í leikhúsinu. Og hvílíkt leikhús! Ég held það sé ár og dagur síðan sýning hefur uppskorið jafn einlæg og eindregin fagnaðar- læti og Blam! gerði á frumsýningar- kvöldið. Og NÚ var ástæða til að rísa úr sætum að leikslokum og hylla leikendur vel og lengi. Á sviðinu eru fjórir fullorðnir karl- menn að leika sér. Fyrst er þó allt við kyrrð og spekt. Úr salnum sér inn í ósköp venjulegt skrifstofuumhverfi, snyrtilegt, en kaldranalegt, grátt og ópersónulegt. Af hverju þurfa allar skrifstofur að vera eins, hugsar mað- ur með sjálfum sér. Skyrtuklæddir starfsmenn við tölvuskjáina, hver á sínum bás, misáhugasamir um vinnuna greinilega, en ósköp stilltir annars. Ekki annað að sjá en í upp- siglingu sé hefðbundið realistískt sjónvarpsdrama. Þeir sem þekkja til Kristjáns vita þó betur. Inn í heim hasarmyndanna Áður en varði eru karlarnir flognir inn í ímyndaðan heim hasarmynd- anna þar sem ofurhetjur heyja blóðuga baráttu við harðsnúna andstæðinga, grimma bófa og annarlegar skuggaverur. Fyrr en var- ir er allt á tjá og tundri á kontórnum, sviðsmyndin bókstaflega komin á hvolf. Skrifstofubúnaðurinn orðinn að leikmunum í trylltum leiknum. Hvað er það eiginlega sem hér dynur yfir? Er það bæld undirvit- und sem gýs í gegnum freðna skyn- semi yfirsjálfsins? Fantasían sem rís upp gegn reglustikunni, draumurinn gegn deyðandi hversdagsleikanum? Frelsisþráin gegn þrældómnum? Leikurinn opnar fyrir ýmsar túlkan- ir; það er ekki síst það sem gerir hann forvitnilegan. Og auðvitað varir þetta eldgos, þessi uppreisn, aðeins um stund. Þegar ég líki þessu við hamfarir, þá nota ég orðið fyrst og fremst í upp- runalegri merkingu: að fara hamför- um, skipta um ham, taka á sig ann- að útlit. Því það er það sem þeir gera, strákarnir. Með slíkri líkams- fimi, hugmyndaauðgi, hnitmiðun, tæknilegu öryggi og nákvæmni að maður bókstaflega tekur andköf. Hvað eftir annað. Þetta er allt í senn ballett og sirkus og látbragðsleikur og slapp-stikk og fimleikasýning: ekkert þessara hugtaka nær fyllilega að lýsa því sem þarna fer fram. Það er einfaldlega einstæður sviðsgaldur sem hrífur okkur frá upphafi, heldur okkur föngnum þær áttatíu mínútur sem sýningin varir. Í leikskránni stendur, fyrir þá sem á annað borð glugga í leikskrár, að verkið sé bræðingur úr Die Hard og The Office. Ég er ekki nógu hand- genginn þessum meistaraverkum kvikmyndasögunnar til að geta dæmt um það, en ekki sá ég betur en þarna væru á ferli skuggar af ýmsum fleirum heljarmennum hasarmynd- anna, góðum og illum, jafnvel sjálf- um James Bond. Geimaldarmyndir, vísindatryllar, vestrar, hrollvekjur; mátti ekki sjá glytta í slíkt góss þarna innan um og saman við? Á stundum mátti heyra suma áhorfendur hlæja þar sem aðrir hlógu ekki og það er auðvitað hluti af leiknum: að grípa vísanirnar. En þið skulið samt ekki halda að þið þurfið að vera sérstaklega með á þeim nótum til að njóta leiksins, öðru nær. Þær eru aðeins bragð- auki í þeirri veislu sem þessir snill- ingar bjóða upp á. Hetjudýrkunin er ekki heldur nein uppgötvun tutt- ugustu aldarinnar: í gráma forneskj- unnar sjáum við glytta í Heraklesa og miðaldariddara, demóna og dreka, galdrakarla og illar vættir af öllu tagi. Eitthvað af því var líka þarna á sveimi, sýndist mér. Leikhúsið lifi! Þetta er hreint leikhús, leiklist sem minnir okkur enn og aftur á það hvers vegna leikurinn sem er fram- inn í núinu án allrar tæknilegrar milligöngu, hin lifandi sviðslist sem þarf ekkert á öryggisneti filmunnar að halda, hefur staðist ofurvald hennar í meira en hundrað ár. Eitt af því sem gerir sýninguna áhuga- verða er hin tvíbenta afstaða hennar til kvikmyndanna. Hún viðurkennir óbeint áhrifamátt þeirra, hyllir þær á sinn hátt, en snýr um leið við blað- inu: gefur klisjunum langt nef og skopast að þeim. Samt á góðlátlegan hátt, mitt í öllum látunum. Á dansk- an hátt, gæti maður freistast til að segja. Minnir á að innra með okkur öllum er lítill krakki sem langar mest til að fara út að leika sér. Og er það ekki einmitt svona sem litlir strákar vilja leika sér – og hver getur fengið af sér að skamma og vera vondur við litla stráka? Eins þótt við vitum vel að leikirnir GETA endað með skelf- ingum. Allt hefur sinn tíma, eins og þar stendur, og mannkynið er bara eins og það er. Karlar eru frá Mars og konur frá Venus – eða er ef til vill ekki svo? Það er að minnsta kosti meira af hernaðargoðinu Mars þarna en gyðju ástanna. Segir sig sjálft að þetta er óskapleg karlasýning. Ekki ein einasta kona hefur fengið að koma nálægt strákunum á meðan þeir voru að setja þetta saman, eins og þið sjáið af upptalningunni hér að ofan. Það hlýtur að hafa verið al- veg ofboðslega gaman hjá þeim á meðan, algert frelsi og fjör. En ef ein- hver færi að saka þá um „karlrembu“ myndi ég halda að sá hefði sofið alla sýninguna. Nokkuð gott hjá gagn- rýnanda Information, að þetta sé „einhver allra klikkaðasta og seið- magnaðasta karlasýning í sögu kven- kynsins.“ (Tilvitnun eftir leikskrá) Meistari Kristján & Co Kristján Ingimarsson hefur starfað í Danmörku í meira en tvo ára- tugi og rekið þar sitt eigið leikhús, Neander, síðan 1998. Hann er leikari með óvenju alhliða menntun; meðal annars stundaði hann nám við The Commedia School í Kaupmanna- höfn, skóla sem sérhæfir sig í trúðs- list og hefur útskrifað ýmsa ágæta íslenska trúða. Kristján er skapandi listamaður sem vinnur sýningar sín- ar frá grunni, skrifar handrit, leikur og leikstýrir; að því leyti er list hans angi af stórum meiði kómedíunnar, leikhúsi Trúðsins sem teygir anga sína aftur til commedia dell´arte og Moliéres – ég sleppi því að telja upp fræg nöfn sem við þekkjum hvort eð er öll. Nú getur trúðurinn vitaskuld orðið óskaplega prímadonna sem notar aðra á sviðinu sem ramma utan um sjálfan sig, dimmt baktjald svo að hann einn skíni sem skærast. Jafnvel sjálfur Chaplin var ekki laus við það, með fullri virðingu fyrir honum. En Kristján fellur ekki í þá gryfju. Þetta er hrein „ensemble“- sýning: hópsýning sem byggir á öfl- ugri liðsheild, rétt eins og í íþróttun- um. Allir fá að njóta sín, allt er komið undir samstillingu og samhæfingu leikendanna fjögurra sem heita sam- kvæmt leikskrá Lars Gregersen, Di- dier Oberlé og Joen Höjerslev. Hver öðrum flinkari og skemmtilega ólíkar týpur. Ég sé á vandaðri heimasíðu Neander að Kristján lýsir sér sem Ís- lendingi, búsettum í Danmörku. Það þykir okkur þjóðhyggjumönnum að sjálfsögðu vænt um (og hver vill ekki vera þjóðhyggjumaður nú á þessum síðustu og bestu tím- um?) Við viljum vera stoltir af okkar fólki og Kristján er listamaður sem hver þjóð getur verið stolt af. Fyrir nokkrum árum mun hafa staðið til að hann flytti hingað heim og starf- aði jöfnum höndum í Danmörku og Íslandi, en af því varð ekki. Væntan- lega buðu aðstæðurnar ekki upp á það. Auðvitað hefði það getað verið gaman, en miklu meira máli skiptir þó að slíkur afburðamaður finni sér starfsskilyrði sem leyfa hæfileik- um hans að blómstra. Og þá er þakkar vert að við fáum að njóta af- rakstursins þó ekki sé nema svona stöku sinnum. Því miður verður sýningum lokið hér í höfuðstaðnum þegar þessi orð ná á prent, en um helgina eru tvær sýningar fyrir norðan, í Hofi. Þeir sem misstu af leiknum hér syðra, gætu gert margt vitlausara við tíma og peninga en að skjótast norður og kíkja á herleg- heitin. Ef ekki er þegar orðið upp- selt. Listir trúðsleiks og látbragðs hafa verið í greinilegri sókn hér á landi á síðustu árum. Hvort sú sókn er sprottin upp úr einhverri fjölþjóð- legri þróun treysti ég mér ekki til að segja, en mér kæmi ekki á óvart ef svo væri. Hin lifandi leiklist á enn í vök að verjast gegn bíóinu í öllum þess myndum og trúðurinn er eitt af sterkustu vopnum okkar í bar- áttunni fyrir lífi hennar. Haldið þið að það sé tilviljun að það eru trúð- ar í nánast öllum leikritum Shake- speares? Auðvitað skildi hann gildi trúðsins, eins og allt annað. Við verðum að vona að þeir sem hér halda um stjórnvölinn og ákveða í hvað peningarnir eiga að fara, skilji það líka. Geri þeir það, efa ég ekki að þeir geti átt hauk í horni þar sem Kristján Ingimarsson er. n Blam! Neander í Borgarleikhúsinu: Höfundar: Kristján Ingimarsson og Jesper Pedersen Leikstjórar: Kristján Ingimarsson og Simon Boberg Leikmynd: Kristian Knudsen Hljóð: Svend E. Kristensen og Peter Kyed Lýsing: Edward Loyd Pierce Leikrit Jón Viðar Jónsson leikminjar@akademia.is HAMFARIR Í BORGARLEIKHÚSINU „Kristján er lista- maður sem hver þjóð getur verið stolt af Fullt hús stiga Því miður verður sýning- um lokið hér í höfuð- staðnum þegar þessi orð ná á prent, en um helgina eru tvær sýningar fyrir norðan, í Hofi. Útgáfutónleikar Ólafar Arnalds Söngkonan Ólöf Arnalds fagnar nýrri plötu sinni með útgáfutón- leikum í Þjóðmenningarhúsinu fimmtudagskvöldið 11. apríl. Plat- an ber nafnið Sudden Elevation og er þriðja stúdíóplata Ólafar. Tón- leikarnir hefjast klukkan 21.30 en húsið verður opnað klukkan 21.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.