Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2013, Side 13
Erlent 13Mánudagur 8. apríl 2013
Kvikmyndagerðarmaður varð úti
n Vildi gera heimildarmynd um heimilislausa og lifa eins og þeir
U
ngur og upprennandi kvik-
myndagerðarmaður, sem
reyndi að ganga í augun á
forsvarsmönnum Channel
4 á Englandi, er talinn hafa látið
lífið við gerð heimildarmyndar um
heimilislausa í Newcastle. Hinn 27
ára gamli Lee Halpin ætlaði sér að
verja heilli viku á götunni við gerð
myndarinnar sem var liður í um-
sókn hans um rannsóknarblaða-
mennskunámskeið hjá sjónvarps-
stöðinni.
Vildi hann setja sig algjörlega
í spor heimilislausra með því að
sofa úti eða við erfiðar aðstæður og
sníkja mat. Annað sem Halpin vildi
rannsaka voru afleiðingar hins
svokallaða svefnherbergisskatts
bresku ríkisstjórnarinnar og hvort
hann leiddi í reynd til þess að fleiri
yrðu heimilislausir líkt og gagn-
rýnendur skattsins hafa viljað
meina. Svefnherbergisskatturinn
virkar þannig að bætur til fólks í
félagslegu húsnæði, með ónotað
svefnherbergi lækka um 14 pró-
sent. Þeir sem eru með tvö eða
fleiri ónotuð herbergi geta bú-
ist við að bótagreiðslur til þeirra
rýrni um 25 prósent. Þar með virki
skatturinn sem hvati fyrir fólk, sem
þiggur húsnæðisbætur, að minnka
við sig.
En eftir þrjá daga á götunni
fannst Halpin látinn í yfirgefnu
farfuglaheimili við Westgate Road
í Newcastle á miðvikudag í síð-
ustu viku. Grunur leikur á að hann
hafi látist af völdum ofkælingar
þó endanleg dánarorsök liggi
ekki fyrir. Lægsti hiti sem mældist
í Newcastle í byrjun apríl var í
kringum 4,2 gráða frost.
Í myndskeiði á netinu þar sem
Halpin kynnir og útskýrir mark-
mið sín með verkefninu segir hann
meðal annars að fjölskylda hans og
vinir hafi verið uggandi vegna þess.
„Hann galt fyrir það með lífi
sínu að vekja athygli á bágri stöðu
annarra,“ hefur Daily Mail eftir
Daniel Lake, vini Halpins til ára-
tuga. Lake segir að hann hafi hitt
vin sin helgina fyrir andlát hans
og segir hann Halpin hafa hlakkað
mjög til að takast á við verkefnið. n
n Milljónir milljarða í skúffufyrirtækjum skattaskjóla n Stærsti gagnaleki sögunnar afhjúpar leynilega eigendur auðæfanna
Leyndarmálin á Jómfrúaeyjum
stofnað 2005 en hún minnist ekki einu
orði á það í yfirlýsingu sinni um fjár-
hagslega hagsmuni sem embætt-
ismaður í heimalandinu.
Viðskiptafélagi
ólígarka
Skoski lögmaðurinn Scot
Young er einn þeirra sem
nefndir eru. Hann er
fyrrverandi viðskipta-
félagi hins ný-
látna ólígarka
Boris Berezov-
sky sem fannst
látinn á heimili
sínu í Berkshire í síðasta
mánuði. Young situr sem
stendur í fangelsi fyrir að
sýna dómstólum óvirðingu og fyrir
að fela eignir sínar fyrir fyrrverandi
eiginkonu sinni. Young afsalaði sér
umboði til lögmanns síns sem nú
fer með meirihluta í fyrirtæki hans
á Jómfrúaeyjum sem á hlut í hugs-
anlega arðbærum fasteignaverkefn-
um í Moskvu sem metin eru á allt
að 100 milljónir dala.
Hélt um fjármál
Frakklandsforseta
Jean-Jacques Augier,
einn fjárreiðumanna
kosningaframboðs
Francois Hollande
forseta Frakklands í
fyrra, átti dreifingar-
fyrirtæki á Cayman-
eyjum í gegnum Kína
í félagi við kínverska kaupsýslu-
manninn Xi Shu.
Rússnesk
ráðherrafrú
Eiginkona Igors
Shuvalov, aðstoðarfor-
sætisráðherra Rúss-
lands, Olga Shuvalova á
nokkur félög í skattapara-
dísum Jómfrúaeyja, Bahamas.
Shuvalov hefur neitað staðfast-
lega að nokkuð athugavert eða
glæpsamlegt sé við
aflandsbraskið.
Forseti og
fjölskylda
Ilham Aliyev, forseti
Aserbaídsjan, og fjöl-
skylda hans eiga minnst
fjögur aflandsfélög. Þrjú á Jómfrúa-
eyjum sem stofnuð voru árið 2008
í nafni dætra forsetans , Arzu og
Leylu. Auðkýfingurinn og bygginga-
verktakinn Hassan Gozal er skráður
stjórnandi félaganna en hann hef-
ur fengið mörg stór byggingaverk-
efni í landinu. Tengsl hans við
aflandsfélög forsetans og fjöl-
skyldunnar benda til spill-
ingar í hverjum kima.
Auðug ekkja
Auðugasti listsafnari Spán-
ar, barónessan Carmen
Thyssen- Bornemisza,
sýslar með listaverk í gegnum
aflandseyjafélög sín. Hún er fyrrver-
andi fegurðardrottning og er ekkja
milljarðaerfingja Thyssen-stálveld-
isins. Meðal listaverka sem hún
hefur keypt í gegnum aflandsfélög
sín eru Watermill at Gennep eftir
van Gogh. Lögmaður hennar hefur
tjáð sig um afhjúpunina og segir að
vissulega njóti hún skattafríðind-
anna með því að hafa eignarhaldið
á listaverkum sínum í aflandsfélög-
um en lögmaðurinn lagði áherslu
á að Carmen væri aðeins að leitast
eftir því að „hámarka sveigjanleik-
ann“ á að flytja listaverk milli landa.
Safnar í sjóði
stjórnmálamanna
Denise Rich er
meðal nærri
4.000 Banda-
ríkjamanna sem
afhjúpaðir eru í
gagnalekanum. Hún
er lagahöfundur og
fyrrverandi eiginkona
hins alræmda olíugreifa Marc Rich.
Umdeilt var þegar hann var náðaður
af Bill Clinton, fyrrverandi Banda-
ríkjaforseta, á sínum tíma eftir að
hann var ákærður fyrir skattsvik.
Denise á 144 milljónir Bandaríkja-
dala í sjóðnum Dry Trust árið 2006
á Cook-eyjum. Þá á hún snekkjuna
Lady Joy sem hún hefur notað mikið
til að gera vel við frægt fólk og auð-
menn til að safna peningum fyrir hin
ýmsu málefni, meðal annars í kosn-
ingasjóð bandarískra demókrata.
Svikahrappur og
litríkur eiginmaður
Achilleas Kallakis er þekktur
svikahrappur sem notaði fölsk
skúffufyrirtæki í Jómfrúaeyjum til
að kría út fordæmalaus 750 millj-
óna punda fasteignalán hjá því sem
Guardian kallar „kærulausum“
breskum og írskum bönkum.
Tony Merchant, litríkur lög-
maður, er fyrrverandi stjórnmála-
maður og eiginmaður kanadísku
öldungadeildarþingkonunnar Pana
Merchant. Hann er yfirlýstur and-
stæðingur kanadíska skattkerfis-
ins og hefur fært sem nemur rúm-
lega 800 þúsund Bandaríkjadölum í
skattaskjól sitt á Jómfrúaeyjum. Það
sem meira er þá sendi hann reiðufé
sitt út í umslögum með fyrir mælum
um að öll samskipti tengd sjóðum
hans ættu að vera í „algjöru lág-
marki.“ Vildi hann augljóslega enga
pappírsslóð því hann sagði að hann
myndi fá hjartaáfall ef einhver sendi
honum faxskilaboð tengd þeim. n
„Ég ætti
sennilega
að íhuga afsögn
Harmleikur Lee Halpin vildi
setja sig í spor fólksins sem hann
ætlaði að fjalla um en það kost-
aði hann að líkindum lífið.
Obama baðst
afsökunar
Barack Obama Bandaríkjafor-
seti bað Kamölu Harris, dóms-
málaráðherra Kaliforníuríkis,
afsökunar á laugardaginn vegna
ummæla sinna á fjáröflunar-
samkomu kvöldið áður. Sagði
Obama í ávarpi sínu að Harris,
sem er gömul vinkona hans, væri
afar snjöll og hæf í embætti sínu
en hún væri líka fallegasti dóms-
málaráðherra landsins. Forsetinn
sætti mikilli gagnrýni fyrir þessi
ummæli enda þykja þau til marks
um að konur séu enn metnar að
nokkru leyti eftir því hvernig þær
líta út. Þó eru afar skiptar skoð-
anir á málinu. Aðrir hafa gagn-
rýnt afsökunarbeiðni forsetans og
telja rangt að biðjast afsökunar á
slíku smáatriði.
Stærsta útgáfu-
félag í heimi
Útgáfufyrirtækin Penguin og
Random House hafa ákveðið að
sameina starfsemi sína. Þar með
verður til stærsta fyrirtæki á sviði
bókaútgáfu í heimi. Í fyrrahaust
var greint frá því að þessi sam-
runi væri á döfinni og var hann
samþykktur af samkeppniseftirliti
Bandaríkjanna í febrúarmánuði.
Nú hefur framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins einnig gefið
grænt ljós og búast má við því að
samruninn gangi í gegn á þessu
ári. Random House var stofnað í
New York árið 1925 og Penguin í
London tíu árum síðar. Nýja félag-
ið mun einfaldlega heita Penguin
Random House. Einhverjir óttast
að samruninn muni hamla
samkeppni á útgáfumarkaði en
helstu samkeppnisaðilar nýja fé-
lagsins eru Hachette, HarperColl-
ins, Macmillan og Simon &
Schuster.