Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2013, Blaðsíða 20
Ísland er komið Í
evrópukeppnina
20 Sport 8. apríl 2013 Mánudagur
Gunnarsson og Helguson á uppleið
n Fyrir Cardiff er úrvalsdeildin næsta stopp
F
átt bendir nú til annars en tveir
íslenskir knattspyrnumenn
bætist í hóp úrvalsdeildar-
leikmanna í Englandi á næstu
leiktíð ef Cardiff City tekst að halda
dampi. Liðið er langefst í ensku B-
deildinni þegar skammt er eftir og þó
ekkert sé gefið í knattspyrnunni má
mikið ganga á til að Cardiff verði ekki
meðal nýliðanna í úrvalsdeildinni á
næstu leiktíð.
Hjá Cardiff eru tveir Íslendingar.
Aron Einar Gunnarsson landsliðs-
fyrirliði hefur staðið sig afar vel og
er þungavigtarmaður hjá liðinu.
Heiðar Helguson hefur einnig stað-
ið sig vel og það segir sitt um virði
Íslendinganna tveggja að þeir eru
báðir markahæstir í liðinu hvor með
sín átta mörkin á leiktíðinni. Þá hef-
ur Heiðar sérstaklega verið grimmur
að mata félaga sína með sendingum
sem gefið hafa mörk.
Ljóst er að Aron Einar verður
áfram hjá Cardiff nema til komi sér-
deilis gott tilboð enda skammt síð-
an hann framlengdi til ársins 2016
en Heiðar Helguson er meira spurn-
ingarmerki. Hann gerði eins árs
samning síðasta sumar og ekki er
ljóst hvort hann verður áfram en
Heiðar hefur reynslu úr úrvals-
deildinni fari liðið upp og það hlýtur
þjálfari Cardiff að hafa til hliðsjónar
þegar og ef nýr samningur býðst. n
Staðan í B-deildinni
1. Cardiff 79 stig
2. Hull 74 stig
3. Watford 71 stig
4. Crystal Palace 66 stig
5. Nottingham Forest 63 stig
Heiðar í ham Óvíst er á þessari stundu hvort Heiðar Helguson verður áfram hjá Cardiff en
liðið er komið með annan fótinn í úrvalsdeildina á næstu leiktíð.
Brjálaðar
stórstjörnur
Knattspyrnumenn í Frakklandi
eru súrir þessa dagana. Staðfest
var á þriðjudaginn að íþróttafólk
verður alls ekki undanskilið nýjum
skattalögum í landinu sem þýðir
að tekjuhæstu knattspyrnumenn
landsins þurfa að greiða allt að 75
prósenta skatt af öllum tekjum eft-
irleiðis. Það er sama skattprósenta
og aðrir milljónamæringar þurfa
að greiða af tekjum yfir ákveðnu
marki og er tilraun stjórnvalda til
að jafna þann mikla tekjumun sem
er þar í landi eins og annars staðar
í veröldinni. En varla til þess fallið
að frönsku liðin geti keppt um allra
bestu knattspyrnumenn heims á
næstunni.
PSG með pálm-
ann í höndum
Engum á að koma á óvart að frönsk
lið geti keypt sig til sigurs fremur
en önnur. Spútniklið PSG, sem er
meðal allra dýrustu knattspyrnu-
liða heims, er efst í frönsku
deildinni og með gott forskot á
næsta lið þegar líður að lokum.
Sjö stig skilja að PSG og Marseille í
öðru sætinu og höfuðborgarmenn
hafa skorað 32 mörkum fleiri en
keppinautarnir við Miðjarðarhafið.
Enginn kvartar í París en þetta sýn-
ir enn einu sinni hversu fótboltinn
er orðinn öfugsnúinn þegar næsti
gaur með vasa fulla af gulli getur
snúið öllu á haus á örskömmum
tíma.
Kyrrseta
Reina
Stjóri Liverpool, Brendan Rodgers,
hefur frá áramótum verið á hött-
unum eftir markverði og fáir mót-
mælt þörfinni á því enda þykir Pepe
Reina ekki af því kalíberi sem þörf
er á fyrir stórlið. Rodgers virðist hafa
skipt um skoðun því nú segir hann
Spánverjann verða áfram hjá liðinu
og hafnar því alfarið að Reina fari til
annaðhvort Barcelona eða Arsenal
eins og stöku breskir miðlar hafa
haldið fram.
Casillas til
Arsenal?
Daily Mail í Bretlandi hefur oftar
en ekki boðið upp á fréttir sem lít-
ill fótur er fyrir og því taka menn
fregnum þeirra með stórum fyrir-
vara. Í blaðinu er nú fullyrt að
Arsene Wenger hafi gert óformlegt
tilboð í Iker Casilla hjá Real Madrid
en landsliðsmarkvörðurinn hefur
verið í ónáð hjá Mourinho mestan
hluta vetrar og meira að segja gagn-
rýnt stjórann opinberlega. Allir sem
þekkja til þjálfarans vita að sá tekur
gagnrýni eigin leikmanna ekki vel
enda hefur Casillas fengið fá tæki-
færi að undanförnu.
L
andsleikur Íslands og Slóveníu
í undankeppni Evrópumóts-
ins í handbolta í Laugardals-
höllinni í gær reyndist nánast
hundrað prósent eftirlíking
af leik þessara sömu liða í Slóveníu
á miðvikudaginn var. Þar voru
Slóvenar með undirtökin lengst af
leiks en koðnuðu niður á lokamínút-
unum með þeim afleiðingum að ís-
lensku strákarnir nýttu síðustu krafta
sína til að síga fram úr og höfðu sigur
upp úr krafsinu.
Leikurinn í gær var af sama meiði
frá a til ö. Slóvenía hafði undir tökin
frá byrjun og langt fram á síðari hálf-
leik. Fram að því náðu strákarnir
aldrei að spila af nægri skynsemi til
að taka leikinn í sínar hendur og út-
litið var reyndar um tíma nokkuð
svart þegar gestirnir náðu fjögurra
marka forskoti þegar mest var.
En strákarnir okkar eru ekki ís-
lenskir fyrir ekki neitt. Þeir héldu í
við sterkt lið Slóvena og misstu þá
aldrei of langt fram úr. Eftir mið-
bik síðari hálfleiks náðu strákanir af
hörku að kveikja nægan neista til að
jafna metin og síga fram úr nákvæm-
lega þegar til þurfti. Lokatölur urðu
35–34 Íslandi í vil og sigurinn tryggir
að íslenska landsliðið mun taka þátt í
Evrópukeppninni á næsta ári.
Ósannfærandi
Þó sigur hafi unnist var hann fjarri
því sannfærandi og leikmenn sjálf-
ir sögðu eftir leikinn að um hrein-
an baráttusigur hefði verið að ræða.
Það var ekki fyrr en 10 mínútur voru
eftir af leiknum sem íslenska liðið
náði fyrst að komast yfir í leiknum.
Það hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir
Aron Kristjánsson landsliðsþjálfara
að liðið geti ekki náð undirtökum svo
vel sé gegn betri andstæðingum eins
og landslið Slóveníu sannarlega er.
Úrslit þessa leiks gátu farið á
hvorn veginn sem er allt fram á
lokamínútu leiksins nákvæmlega
eins og í fyrri leiknum en það var
Alexander Peters son sem skoraði
markið sem öllu skipti þegar átta
sekúndur lifðu af leiknum. Fram að
þeim tíma höfðu liðin skipst á for-
ystunni en þær átta sekúndur sem
Slóvenar höfðu til að jafna dugðu
ekki til og þeir misstu boltann þegar
mest lá við.
Heilt yfir voru leikmenn Íslands
ekki að spila frábærlega en Guð-
jón Valur fyrirliði hvatti sína menn
til dáða og átti stórleik. Hann skor-
aði heil þrettán mörk og fór fyr-
ir liðinu. Aron Pálmarsson var líka
firnasterkur og skoraði níu mörk en
aðrir fundu sig ekki nægilega vel.
Aron Rafn Eðvarðsson tók tólf bolta
í marki Íslands og Björgvin Páll
eitt skot en vörn Íslands var á köfl-
um gatasigti og næsta auðvelt fyr-
ir sóknarmenn Slóveníu að koma
knettinum í markið.
EM 2014
Ísland á enn eftir tvo leiki í sínum
riðli en úrslit þeirra breyta engu um
að Ísland er komið á Evrópumótið
á næsta ári. Sá tími er nægur fyrir
landsliðsþjálfarann til að laga það
sem miður hefur farið í síðustu leikj-
um liðsins og ekki vanþörf á því þó
landslið Slóveníu sé sterkt eru þeir
ekki í flokki með þeim allra bestu í
Evrópu. Ísland þarf að gera betur ef
næsta Evrópumót á að fara í sögu-
bækurnar. n
n Aftur skilar grimm barátta í blálokin sigri handboltalandsliðsins
Mörk Íslands
Guðjón Valur Sigurðsson 13
Aron Pálmarsson 9
Snorri Steinn Guðjónsson 5
Alexander Petersson 3
Þórir Ólafsson 2
Ásgeir Örn Hallgrímsson 1
Róbert Gunnarsson 1
Ólafur Gústafsson 1
Mörk Slóveníu
Nenad Bilbija 10
Gasper Marguc 8
Jure Dolenec 6
Luka Zvisej 3
Miha Zvisej 3
Sebastian Skube 2
Marko Bezjak 1
Jure Dobelsek 1
RIÐILL 6 STAÐAN
Ísland 8 stig
Hvíta-Rússland 5 stig
Slóvenía 3 stig
Rúmenía 0 stig
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar ritsjorn@dv.is
Fagnað í fullri Laugardalshöll Hornamaðurinn Þórir Ólafsson skoraði tvö mörk fyrir Ísland, sem hefur núna unnið Slóvena í tvígang
með minnsta mun, og þannig tryggt sér sæti á EM í Danmörku á næsta ári. Mynd prEsspHotos