Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Side 2
Klúður hjá KSÍ 3 Margir urðu reiðir þegar opnað var fyrir miðasölu á landsleik Íslands og Króatíu í um­ spili fyrir HM í knattspyrnu klukkan fjög­ ur aðfara­ nótt þriðju­ dags. Þetta varð til þess að þeir sem vissu af miðasölunni gátu hamstrað miða. Fljótlega eftir að miðar seld­ ust upp fóru fjölmargir miðar í sölu á netinu þar sem þeir voru boðnir á uppsprengdu verði og í sumum til­ fellum var álagningin 400 prósent. Í miðviku dagsblaði DV var fjallað ítar­ lega um miðasöluklúður KSÍ og með­ al annars rætt við aðila sem auglýsti fjóra miða á 30 þúsund krónur. Máttu ekki vinna á RÚV 2 Nokkrir af fyrrverandi starfsmönnum Ríkis­ útvarpsins lentu í því að þeim var sagt upp störfum hjá RÚV, þeir lækkaðir í tign eða gert erfitt um vik í starfi eða þeir fengu ekki áframhaldandi starf á miðlinum vegna pólitískra skoðana sinna. Um er að ræða einstaklinga eins og Frið­ rik Pál Jónsson, Helgu Völu Helga­ dóttur, Björgu Evu Erlendsdóttur og Láru Hönnu Einarsdóttur. Þetta skýt­ ur skökku við í ljósi ráðningar Gísla Marteins Baldurssonar, fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sem stjórnanda umræðuþáttar um stjórnmál í Ríkissjónvarpinu. „Fengum hann aldrei til baka“ 1 „Við fengum hann aldrei til baka,“ sagði Helga Jónsdóttir, móðir Arons Arnórssonar, í mánudagsblaði DV. Aron varð á dögun­ um bráðkvaddur á heimili sínu í Vest­ mannaeyjum, aðeins 32 ára. Aron var einn fjögurra drengja sem Ómar Traustason var dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir að misnota kynferðis­ lega árið 1993. Aron var aðeins tíu ára þegar Ómar braut gegn honum og hann beið þess aldrei bætur að sögn aðstandenda. Hann þróaði með sér geðsjúkdóm á árunum sem fylgdu í kjölfar misnotkunarinnar og festist í viðjum vímuefnafíknar. 2 Fréttir 1.–3. nóvember 2013 Helgarblað 1 matsk. safieða 1 hylki. F æ s t í a p ó t e k u m , h e i l s u b ú ð u m , F j a r ð a r k a u p o g K r ó n u n n i . Jafnvægi og vellíðan lifestream™ nature’s richest superfoods Fangelsaður fyrir hand- rukkun Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi í vikunni 33 ára karlmann, Guðmund Frey Magnússon, í þriggja ára fangelsi fyrir hand­ rukkun. Guðmundur var ákærður fyrir að hafa þann 8. janúar 2012 veist að tveimur ungum mönnum og slegið þá báða með flötum lófa. Hótaði hann þeim frekara líkam­ legu ofbeldi ef þeir greiddu ekki tiltekna skuld, 100 þúsund krónur, sem hann kvaðst vera að inn­ heimta. Í kjölfarið tók hann tölvu af gerðinni Packard Bell og síma af gerðinni HTC og fór á brott með þýfið. Fórnarlömbin eru fædd 1990 og 1994. Í dómi héraðsdóms kemur fram að Guðmundur eigi langan sakaferil sem nær allt aftur til ársins 1996. Með broti sínu rauf hann skilorð dóms frá árinu 2011. Auk þess að sæta þriggja ára fang­ elsi var hann dæmdur til að greiða sakarkostnað í málinu, samtals rúmar 300 þúsund krónur. WOW kærir icelandair n Samkeppniseftirlitið skoðar málið n Skúli Mogensen neitar að tjá sig N o comment,“ segir Skúli Mog­ ensen, eigandi flugfélagsins WOW air, aðspurður hvort fyrirtækið hefði sent kvörtun til Samkeppniseftirlitsins á hendur Icelandair vegna meintrar misnotkunar þess á markaðsráðandi stöðu. DV hefur heimildir fyrir því að slík kæra hafi verið send inn til Samkeppniseftirlitsins. Skúli neitar að ræða málið við blaðamann DV. Kvartað vegna verðlagningar Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, staðfestir að­ spurður að kvörtun hafi borist til stofnunarinnar frá WOW air. „Það er til meðferðar hjá stofnuninni kvörtun vegna hugsanlegrar misnotkunar á markaðsráðandi stöðu. […] Ég held að það séu ekki forsendur fyrir mig til að fara náið út í það en umkvörtunar­ efnið varðar verðlagningu,“ segir Páll Gunnar aðspurður um inntak kvört­ unarinnar. DV hefur ekki heimild­ ir fyrir því um hvað kæran snýst ná­ kvæmlega en hugsanlegt er að um sé að ræða meinta sölu Icelandair á flugmiðum á undirverði til ákveðinna áfangastaða til að hafa betur í samkeppninni við WOW air. Forstjórinn segir að kvörtunin sé til meðferðar og búið sé að afla gagna í málinu. „Það er búið að afla gagna og það er verið að fara yfir þau.“ Páll Gunnar segir að slík rannsókn geti endað með sektum eða íhlutun, breytingum á starfsemi og öðru slíku. Forstjórinn segir hins vegar að ekki liggi fyrir hvort um brot á samkeppnis lögum hafi verið að ræða. Skúli hugsar stórt Icelandair er risinn á íslenska flug­ markaðnum en WOW air er eina ís­ lenska flugfélagið sem veitir því samkeppni í millilandaflugi eftir fall Iceland Express. Skúli Mogesen hef­ ur lagt mikið undir í rekstri WOW og fékk fyrirtækið flugrekstrarleyfi fyrir nokkrum dögum en fram að því hafði WOW átt í viðskiptum við erlend flug­ félög um leigu á farþegavélum. Nú er WOW hins vegar með réttu orðið flug­ félag og stefnir í aukna samkeppni á milli þessara tveggja fyrirtækja. WOW hefur til að mynda boðað að félagið ætli að hefja áætlunarflug til Stokk­ hólms næsta sumar en hingað til hef­ ur Icelandair setið eitt að þeirri flug­ leið. Skúli hefur hnýtt í Icelandair opin­ berlega og sagði meðal annars eitt sinn, aðspurður hvort hann hefði áhuga á fjárfestingu í Icelandair, að hann hefði ekki áhuga á slíku gömlu ríkisflugfélagi. Þá greindi Viðskipta­ blaðið frá því fyrir ári, eftir yfirtöku WOW air á Iceland Express, að Skúli hefði sagt á starfsmannafundi að markmiðið væri að „drepa“ Icelanda­ ir fyrir árið 2015. Mikill stærðarmunur Fyrirtækin hafa hins vegar ekki deilt opinberlega áður eða átt í málaferlum fyrr en nú þegar kæra WOW á hend­ ur Icelandair liggur fyrir. Hið eina sem nefna mætti úr fjölmiðlaumfjöllun um fyrirtækin var þegar WOW air réð markaðsstjóra Icelandair, Guðmund Arnar Guðmundsson, til starfa í árs­ byrjun 2012 og stal honum þar með frá Icelandair. Starfslok hans ýfðu þó ekki fjaðrir stjórnenda Icelandair þannig að brugðist væri við opinber­ lega. Mikill stærðarmunur er á félögun­ um enda Icelandair rótgróið fyrir­ tæki á meðan Skúli stofnaði WOW árið 2011. Til marks um muninn á rekstri WOW air og Icelandair þá skil­ aði WOW tapi í fyrra upp á tæpar 800 milljónir á meðan Icelandair hagnað­ ist um rúma 7 milljarða króna. Hins vegar má benda á að WOW skilaði 184 milljóna króna hagnaði á fyrstu 7 mánuðum þessa árs þannig að Skúli er að snúa rekstrinum til betri vegar og auðvitað tekur alltaf tíma að koma flugfélagi á laggirnar. n Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Kæra til Samkeppniseftirlitsins WOW air hefur kært Icelandair til Samkeppnis- eftirlitsins fyrir meinta misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Skúli Mogensen er eigandi WOW.„Það er til með- ferðar hjá stofnun- inni kvörtun vegna hugs- anlegrar misnotkunar á markaðsráðandi stöðu. Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni Sjö ára dómur Hæstiréttur staðfesti á fimmtu­ dag sjö ára fangelsisdóm sem Karl Vignir Þorsteinsson fékk í Héraðs­ dómi Reykjavíkur síðastliðinn júní. Karl Vignir var ákærður fyrir að brjóta gegn fjórum andlega fötluðum einstaklingum. Miðað við það sem kemur fram í dómin­ um er ljóst að aðeins stuttu áður en Kastljós fjallaði um Karl Vigni hafði hann nauðgað í það minnsta tveimur einstaklingum, en fjallað var um hann í janúar 2013. Í hér­ aði kom fram að hann ætti sér engar málsbætur. Mönnunum var hann dæmdur til að greiða sam­ tals þrjár milljónir króna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.