Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Síða 10
10 Fréttir 1.–3. nóvember 2013 Helgarblað
Segir SMÁÍS hlaupa á sig
n Jón Þór Ólafsson segir boðaða kæru á hendur Tali byggða á misskilningi
J
ón Þór Ólafsson, þingmaður
Pírata, lagði lóð sitt á vogarskál-
arnar í umræðunni um hvort
Netflix, erlend efnisveita fyrir
meðal annars kvikmyndir og sjón-
varpsþætti, væri lögleg hér á landi
eður ei í ræðu á Alþingi á mið-
vikudag. Snæbjörn Steingrímsson,
framkvæmdastjóri SMÁÍS, tilkynnti
í vikunni að hann ætlaði að leggja
fram kæru á hendur Tali fyrir brot á
lögum um höfundarrétt. Snæbjörn
sagði það koma skýrt fram í þeim
lögum að ekki megi fara fram hjá
tæknilegum ráðstöfunum er varða
höfundarvarið efni. Kemur það í
kjölfar þess að bæði ritstjóri Frétta-
blaðsins og Ari Edwald forstjóri 365
miðla skrifuðu harðorðar greinar
gegn fjarskiptafélaginu Tali í helg-
arblaði Fréttablaðsins. Tal hóf ný-
verið að bjóða upp á erlendar IP-
tölur en helsta ástæðan fyrir því að
fá sér slíka tölu er geta orðið áskrif-
andi að efnisveitum svo sem Netflix
eða Hulu.
„Þeir hafa greinilega ekki lesið
[lögin] nógu vel. Þeir eru alltaf að
hlaupa á sig og kæra. Reyndu að fá
lögbann á Deildu.net og Piratebay,
sem var hafnað. Þeir eru bara ekkert
nógu klárir þessir karlar,“ segir Jón
Þór í samtali við DV. Jón Þór bendir
á að í framsöguræðu sinni hafi Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir, þá-
verandi menntamálaráðherra og
flutningsmaður umrædds ákvæðis í
íslenskum lögum, sagt: „Ákvæðum
frumvarpsins um vernd tæknilegra
ráðstafana er með öðrum orðum
ekki ætlað að vernda ýmsar ráðstaf-
anir útgefenda hljóð- og myndrita
til að skipta heiminum upp í tiltekin
markaðssvæði …“ Jón Þór segir það
skýrt að ef efnið hafi verið gefið út
á Evrópska efnahagssvæðinu megi
nálgast það með hliðstæðum hætti
og Tal býður upp á.
Snæbjörn Steingrímsson segir
samtali við DV ekki hafa kynnt sér
þessi rök Jóns Þórs en sagði að mál-
ið snerti ekki Evrópska efnahags-
svæðið þar sem flestir fengju sér
IP-tölu frá Bandaríkjunum til að
nálgast Netflix. n
hjalmar@dv.is
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Rektor Háskólans á Akureyri:
Rétt staðið
að ráðningu
Stefán B. Sigurðsson, rektor Há-
skólans á Akureyri, segir að ekk-
ert athugavert sé við ráðningu
Sigrúnar Stefánsdóttur í stöðu
forseta félags- og hugvísinda-
sviðs skólans á dögunum. Hann
hafnar því að góðri stjórnsýslu
hafi verið ábótavant og fullyrðir
að reglum hafi verið fylgt. Þetta
segir Stefán í samtali við Akur-
eyri Vikublað.
Deilur spruttu upp í kjöl-
far ráðningar Sigrúnar þar sem
Ólína Þorvarðardóttir, fyrr-
verandi þingmaður Samfylk-
ingarinnar, hlaut flest atkvæði
í kosningu sem haldin var milli
umsækjanda meðal starfsmanna
skólans. Það var í höndum Stef-
áns að taka endanlega ákvörðun
um ráðninguna en ekki eru for-
dæmi fyrir því að vilji starfs-
manna sé hunsaður. Ólína var
ósátt við niðurstöðu málsins og
hefur látið hafa eftir sér að hún
útiloki ekki að fá lögmann til að
kanna réttarstöðu sína með til-
liti til hugsanlegra skaðabóta. Þá
hefur hún sent umboðsmanni
Alþingis erindi vegna ráðningar-
innar. Í viðtali við Akureyri Viku-
blað segir Stefán að í reglum
skólans og lögum um manna-
ráðningar sé skýrt kveðið á um
að velja eigi hæfasta einstak-
linginn. „Bæði niðurstaða dóm-
nefndar og skýrsla ráðningar-
stofunnar voru mjög skýrar að
Sigrún væri sá aðili og báðar
þessar niðurstöður voru vel
rökstuddar. Sviðið hefur valið
þá leið að láta ráðgefandi álit
deildarfundar byggja á kosningu
meðal fundarmanna. Ef þetta
stangast á þá ber að fylgja lög-
um og reglum og ráða hæfasta
einstaklinginn og ég tel að það
hafi verið gert í þessu tilfelli,“
segir Stefán.
Þjóðarsátt á
vinnumarkaði
Ný könnun Capacent Gallup fyrir
Samtök atvinnulífsins leiðir í ljós
að 66,3 prósent landsmanna,
eða tveir af hverjum þremur, eru
hlynnt því að gerð verði þjóðar-
sátt á vinnumarkaði, þar sem
lögð yrði meiri áhersla á stöðugt
verðlag og stöðugt gengi krón-
unnar en í stað þess lögð minni
áhersla á launahækkanir. Þetta
kemur fram á heimasíðu Sam-
taka atvinnulífsins. Þar kemur
fram að 17 prósent landsmanna
séu andvíg þessari leið og jafn
stór hópur sé hvorki hlynntur né
andvígur slíkri þjóðarsátt.
Könnunin fór fram 10.–27.
október en um var að ræða net-
könnun. Könnunin var send
til 2.950 manns á öllu landinu,
18 ára og eldri, sem voru vald-
ir af handahófi úr viðhorfahópi
Capacent Gallup. Fjöldi svarenda
var 1.771 og svarhlutfall því 60%.
Af þeim tóku 86,5% afstöðu til
spurningarinnar.
Seldi Skeljung
og græðir nú
300 milljónir
n Trúnaðarbrestur orsök starfsloka n Fór til Skeljungs og græðir nú milljónir
Þ
eir tveir starfsmenn Íslands-
banka sem seldu meirihluta
í olíufélaginu Skeljungi
út úr Glitni síðla árs 2008
munu hagnast um hund-
ruð milljóna króna við sölu fyrirtæk-
isins til sjóðsstýringarfyrirtækisins
Stefnis. Starfsmennirnir tveir, Einar
Örn Ólafsson og Kári Þór Guðjóns-
son, eru báðir hluthafar í Skeljungi
og er Einar Örn forstjóri fyrirtækis-
ins. Söluverðið á Skeljungi til Stefn-
is nemur um tíu milljörðum króna.
Einari Erni var sagt upp störf-
um í Íslandsbanka, arftaka Glitnis,
í apríl 2009 eftir að fram hafði farið
skoðun á málefnunum hans innan
bankans vegna sölunnar á Skeljungi.
Einar Örn var framkvæmdastjóri
fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka
og seldi Skeljung fyrir hönd bank-
ans. Kaupverðið á 51 prósents hlut í
Skeljungi nam 1,5 milljörðum króna
um mitt ár 2008 og greiddu kaup-
endurnir, Svanhildur Nanna Vig-
fúsdóttir, Guðmundur Örn Þórðar-
son og Birgir Bieltvedt, að hluta til
fyrir félagið með verðlitlum fasteign-
um í Danmörku. Í maí greindi 2009
greindi DV frá því að Einar Örn hefði
hætt í bankanum vegna „trúnaðar-
brests“ en í svari frá bankanum við
fyrirspurn DV um málið kom fram að
hagsmunir Einars Arnar og bankans
hafi ekki lengur farið saman. Kári Þór
hætti í bankanum á sama tíma.
Einar Örn græðir
rúmar 300 milljónir
Einar Örn á í dag 3,5 prósenta hlut
í Skeljungi sem hann greiddi fyrir
25 milljónir króna þegar Svanhildur
Nanna og Guðmundur Örn keyptu
49 prósenta hlut í Skeljungi fyrir
500 milljónir króna árið 2010. Þetta
sagði Einar í viðtali við Morgunblað-
ið í vikunni. Miðað við söluverðið á
Skeljungi, tíu milljarða króna, þá er
hlutur Einars í olíufélaginu nú 350
milljóna króna virði. Hann mun því
hagnast persónulega um meira en
300 milljónir króna á sölu Skeljungs.
Svanhildur Nanna og Guðmund-
ur Örn, sem eru hjón, eiga 94 pró-
sent í félaginu. Eftir standa því 2,5
prósent sem Kári er sagður eiga að
hluta, beint eða óbeint. Í samtali við
DV neitar Kári því hins vegar að eiga
hlutabréf í Skeljungi. „Nei, ég á ekki
hlutabréf í Skeljungi.“
Fimmfalda pund sitt
Miðað við að kaupverðið á 51 pró-
senti í Skeljungi var um 1,5 milljarðar
árið 2008, með milligöngu Einars
Arnar sem þá var starfsmaður
Glitnis, og þegar litið er til þeirrar
staðreyndar að hluti söluverðsins var
greiddur með verðlitlum fasteignum,
og þegar litið er til þess að 49 pró-
senta hlutur Íslandsbanka var seldur
fyrir 500 milljónir árið 2010, sést að
eigendur Skeljungs eru að fimmfalda
þá upphæð sem þeir greiddu fyrir
Skeljung. Svanhildur Nanna og Guð-
mundur Þór eru að fara að innleysa á
milli 7 og 8 milljarða króna í hagnað
af eignarhaldi sínu á Skeljungi.
Lykillinn að þessum hagnaði er
Einar Örn Ólafsson sem seldi þeim
meirihlutann í Skeljungi út úr Glitni
í ágúst 2008 en í þeim viðskiptum
fengu hjónin líka forkaupsrétt að
49 prósentum í Skeljungi sem þau
keyptu svo nokkru síðar. Einar Örn
er sömuleiðis að fara að innleysa
mikinn hagnað af viðskiptunum,
rúmlega 300 milljónir króna. Hann
mun svo halda áfram að vera for-
stjóri Skeljungs eftir söluna.
Eignarhald þeirra Svanhildar
Nönnu og Guðmundar Arnar á
Skeljungi er því með nokkrum ólík-
indum og eru þau við það að verða
milljarðamæringar fyrir vikið.
Samkeppniseftirlitið á einungis eftir
að staðfesta viðskiptin. Einar Örn
er sömuleiðis að fara að innleysa
þannig hagnað að hann gæti lifað
á honum það sem eftir er ævinnar.
Viðskipti þeirra hafa því verið afar
fengsæl síðastliðin fimm ár. n
Pírati Jón Þór bendir á að
SMÁÍS hlaupi sífellt á sig og að
málum sem þeir setji í hendur
dómstóla sé iðulega vísað frá.
300 milljóna hagnaður
Einar Örn mun innleysa hagnað
upp á meira en 300 milljónir
króna við söluna á Skeljungi.