Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Qupperneq 13
Fréttir 13Helgarblað 1.–3. nóvember 2013
Stærsti gjörningur
Íslandssögunnar„Veitti sjónarhorn
á pólitíkina sem
við höfðum ekki áður séð
„Þessi
gjörningur
heppnaðist
Kjaftshögg Besta Stjórnmálafræðingur-
inn Eiríkur Bergmann talar um Besta flokk-
inn sem stórkostlegasta gjörning í íslenskri
stjórnmálasögu, og mikið kjaftshögg fyrir
klassísk stjórnmálaöfl.
Tól listamannsins Goddur segir Jón
Gnarr hafa nýtt sér tól listamannsins til
þess að takast á við sérfræðinga og Excel-
skjöl. Mynd STefán KarlSSon
Mikil reynsla Andri Snær Magnason segir
að það hefði í rauninni ekki átt að koma
neinum á óvart að vel til tækist hjá Besta
flokknum. Fólkið þar hafi viðamikla reynslu
úr listheiminum. Mynd SigTryggur ari
„Hann gerir þetta vel“
Sóley Tómasdóttir ánægð með Besta flokkinn þrátt fyrir að vera ekki sammála öllu.
Þ
að er alveg ljóst að Besti
flokkurinn er mjög merki-
legt fyrirbæri. Hann kom inn
sem merkilegt fyrirbæri og
hann hættir sem merkilegt fyrir-
bæri. Hann gerir þetta vel og hann
hefur haft áhrif á bæði okkur og
borgarbúa. Ég hef stundum sagt að
það er bæði skemmtilegra að vera
í borgarstjórn og sennilega að búa
í Reykjavík þó svo að ég sé alls ekki
sammála öllu sem Besti flokkurinn
hefur gert og staðið fyrir,“ segir Sóley
Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri
grænna, í samtali við DV.
Hún viðurkennir að hún hafi
vissulega verið ósammála ákveðn-
um áherslum flokksins, eins og
gengur í stjórnmálunum, en heilt
yfir er hún á því að stjórnmálin í
borginni hafi þróast á jákvæðan
hátt á þessu kjörtímabili. „Við höf-
um unnið betur saman og það hefur
skipt minna máli hvaðan gott kem-
ur. Þá höfum við öll lagt okkur fram
um að standa saman um góð mál og
gagnrýna síðan það sem við erum
sannfærð um að sé ekki gott, alveg
óháð flokkslínum eða meiri- og
minnahlutalínum.“
Sóley bendir þó á að þessi vinnu-
brögð hafi ekki komið úr einhverju
tómarúmi. Í kjölfar bankahrunsins
hafi allir flokkar tekið sig saman og
ákveðið að stilla strengi sína: „Það
hafði verið alveg ótrúlegur túrbúl-
ans í borginni, en síðasta árið fyrir
kosningar hafði nú verið ólíkt ró-
legra því sem á undan hafði geng-
ið enda voru allir komnir með nóg
af óróleikanum sem hafði verið.
Besti flokkurinn kemur svolítið inn
í þá stemningu og tekur henni bara
vel og bætir í.“ Sóley segist hafa átt
samleið með borgarfulltrúum Besta
flokksins í mörgum málum, hug-
sjónir þeirra hafi verið svipaðar á
ákveðnum sviðum. „Besti flokkurinn
og Jón hafa staðið sig ótrúlega vel í
friðarmálum og mannréttindamál-
um og okkur hefur lánast að vinna
vel saman á þessum vettvangi.“ n
Bættu stjórnmálamenninguna
gísli Marteinn Baldursson ánægður þó hann gagnrýni ákveðnar áherslur.
M
ér fannst þeir sem litu
á framboð Jóns sem
brandara strax frá byrj-
un vera gjörsamlega að
misskilja punktinn og ég reyndar
talaði um það opinberlega í kosn-
ingunum fyrir fjórum árum. Þetta
var auðvitað ádeila á stjórnmála-
menninguna eins og hún hefur
verið. Hann var að gera stólpagrín
að stjórnmálamönnum sem haga
sér eftir einhverri formúlu sem
þeir halda að virki. Og þegar hann
var í of stórum jakkafötum niðri
við Tjörn að gefa öndunum brauð,
brosandi fölsku brosi, þá var það
auðvitað ekki bara brandari, það
var líka sneið sem stjórnmálamenn
áttu að að taka til sín,“ segir Gísli
Marteinn Baldursson, fyrrverandi
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Hann segist almennt vera ánægð-
ur með störf flokksins, þó að hann
hafi gagnrýnt ákveðnar áherslur
hans, eins og til að mynda hækkun
útsvarsins.
Gísli segist kunna mjög vel við
borgarfulltrúa Besta flokksins sem
hafi verið að reyna að vanda sig í
sínum störfum. „Þau hins vegar
voru óvenju reynslulítil þegar þau
komu þarna inn. En þau hins vegar
horfðust mjög heiðarlega í augu
við það, þóttust ekki kunna meira
en þau kunnu, þannig að þau þurfa
að fá prik fyrir það.“ Gísli er þeirrar
skoðunar að tilkoma Besta flokks-
ins hafi haft góð áhrif á stjórnmála-
menninguna í borginni. Vinnu-
brögð borgarfulltrúa hefðu verið að
breytast áður en Besti flokkurinn
kom til sögunnar, flokkarnir farnir
að starfa meira saman. „Þannig að
þessi kúltúr var aðeins byrjaður í
borginni en Besti flokkurinn tók
það svona upp á næsta stig ef svo
má segja og mér fannst það vera til
fyrirmyndar.“
Gísli segir ljóst að Besti flokk-
urinn sé afar merkilegt fyrirbæri.
„Kosningasigur þeirra 2010 er nátt-
úrulega sennilega einhver stærsti
pólitíski kosningasigur sem unn-
in hefur verið hér á Íslandi. Það að
nýtt framboð komi inn og fái 35
prósent er algjörlega makalaust.“ Þá
segir hann einnig mjög merkilegt
að Jón Gnarr hafi ákveðið að stíga
til hliðar, svo að segja á toppi stjórn-
málaferilsins. „Það er mjög merki-
legt, sérstaklega vegna þess að all-
ir gömlu pólitísku greinendurnir,
álitsgjafarnir og leiðarahöfundarnir
hafa sagt í mörg ár: „Auðvitað held-
ur hann áfram. Hvar ætlar hann að
fá svona laun annars staðar? Hvar
ætlar hann að fá svona völd annars
staðar? Menn verða nú svo vanir
dekrinu að vera borgarstjóri eða
ráðherra að þeir vilja ekki sleppa
takinu.“ En hann sýnir einmitt með
þessu hvað sú hugsun er gamal-
dags.“ n
að í gegnum gjörning þeirra hafi þeim
tekist að sýna stjórnmálin í allt öðru
og nýju ljósi. „Þetta veitti sjónarhorn
á pólitíkina sem við höfðum ekki
áður séð. Þannig tókst þeim kannski
að brjóta niður ákveðna varnarmúra
sem hefðbundin stjórnmál hafa reist
um sig og opna á möguleika á nýrri
og annarri nálgun á pólitíkina.“ Eitt
það merkilegasta við þetta allt saman
hafi síðan verið hversu vel þeim gekk
að reka borgina. „Það komst svona
ákveðin ró og stjórnfesta á eftir mikið
óróleika tímabil og það sýnir okkur
líka að stjórnmálin eru ekki bara vett-
vangur atvinnumanna.“
Eiríkur sem hefur áratuga reynslu
af því að fylgjast með stjórnmálum og
fjalla um þau segist vera mjög hugsi
yfir þessu: „Mér sýnist á öllu að Jón
Gnarr og fólkið í Besta flokknum hafi
svona þroskaðri sýn á hlutverk stjórn-
málamanna en við höfum séð í þessu
landi.“ Jón Gnarr hafi verið gagn-
rýndur fyrir það að hafa sett stjórn-
málin í hendur embættismannakerf-
isins, þegar honum ætti í rauninni
að vera hrósað fyrir það. „Það hefur
verið landlægt vandamál að stjórn-
málamenn hafa talið sig hafa meiri
þekkingu á málum heldur en til þess
bærir sérfræðingar.“ Þetta hafi leitt til
ákveðins fúsks og viðvaningsháttar
í íslensku stjórnkerfi þar sem sér-
fræðingar hafi verið settir til hliðar.
„Þetta er ekki svona í löndunum í
kringum okkur, og mér fannst Jón
Gnarr hafa næmari skilning á hlut-
verki stjórnmálamanna en þeir sem
höfðu verið miklu lengur á sviðinu.“
Mikilvægur gjörningur
Rithöfundurinn Andri Snær Magna-
son hefur að undanförnu svar-
að spurningum forvitinna blaða-
manna utan úr heimi varðandi Besta
flokkinn. „Þá hef ég bara bent þeim
á það að þau koma auðvitað fram
sem trúðar, og ímynd íslenskra lista-
manna hefur kannski oft verið svona
fíflagangur og ábyrgðarleysi, en ef þú
skoðar þennan hóp: Hvaða hæfileika
þarftu til að túra með hljómsveit milli
þrjátíu borga á fjörutíu dögum? Sam-
tímis því sem þú ert að koma fram sem
listamaður, selja öllum miðana fyrir-
fram, klára plötuna. Hvaða hæfileika
þarftu til þess að setja upp leiksýningu
með fimmtíu manns? Þetta fólk kem-
ur þarna inn með gríðarlega reynslu
af því að láta ólíkt fólk vinna saman.
Menn eru vanir því að vinna með
prímadonnur og menn eru vanir því
að vinna með alls konar einstaklinga.“
Þetta sé mun meira en þeir sem
hafi gengið í gegnum einhverja
„flokksvélina“ hafi þurft að gera. „Mér
finnst þessi gjörningur mjög mikil-
vægur vegna þess að fyrst fannst okk-
ur alveg ólíklegt að hann gæti komist
til valda, og síðan efuðumst við um að
hann gæti valdið þessu og nú finnst
okkur alveg ómögulegt að borgin geti
verið án hans.“ Hann segir að það
eigi þó ekki að koma neinum á óvart
að Besta flokknum hafi gengið vel að
stjórna borginni: „Listamenn bera
mikla virðingu fyrir peningum. Lista-
menn eru snillingar í því að teygja
krónuna. Þeir kunna að gera tíkall