Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Page 15
M
eðlimir íslensku vélhjóla
samtakanna Devils Choice
eru ekki ánægðir með að
norskum félögum þeirra
hafi verið meinað að koma
inn í landið og segja mennina ætla að
leita réttar síns. Líkt og greint hefur
verið frá var ellefu Norðmönnum vís
að úr landi í síðustu viku en um var að
ræða meðlimi Devils Choice í Noregi
sem boðið hafði verið til afmælisveislu
samtakanna hérlendis.
Voru með lögfræðing tilbúinn
Samkvæmt heimildum DV komu um
25 danskir og norskir meðlimir Devils
Choice til Íslands um helgina vegna
umræddra hátíðarhalda og hættu
einungis þrír Norðmenn við að koma
til landsins eftir að að lögregla skarst
í leikinn. Engum Dana var vísað úr
landi.
Meðlimir Devils Choice er afar
ósáttir við þá meðferð sem norskir fé
lagar þeirra fengu hjá lögreglunni og
segja að þeir hafi til dæmis engar skýr
ingar fengið á því hvers vegna þeim
væri meinað að koma inn í landið.
„Bara að það væri vegna almanna
hagsmuna. Þeir handtóku í rauninni
engan og þegar þú ert ekki handtekinn
þá áttu ekki rétt á lögfræðingi. Við vor
um með lögfræðing kláran uppi á velli
og það kom aldrei beiðni frá þeim, ekki
fyrr en einn gat sent sms um að hann
vildi lögfræðing, þá gátu þeir ekki
hamlað því að hann fengi lögfræði
aðstoð,“ segir heimildarmaður DV um
málið.
Lögreglan mætti
Heimildarmaðurinn segir brottvísan
irnar vissulega hafa varpað skugga á
hátíðarhöldin, til dæmis hafi þar verið
sex norskar eiginkonur án eiginmanna
sinna, en konunum var hleypt inn í
landið eftir upplýsingatöku á meðan
eiginmönnunum var vísað á brott.
Auk þess hafi veislan verið haldin
„undir góðri vernd“ því lögreglan
mætti á svæðið og fylgdist með því
sem fram fór.
„Það voru fjórir bílar þarna á plan
inu hjá okkur,“ segir heimildarmað
ur blaðsins. Hann segir lögregluna
hafa verið á svæðinu til miðnættis en
þá hafi hún ekki lengur séð ástæðu til
að hafa afskipti af samkomunni. Þrátt
fyrir þetta hafi veisluhöldin heppnast
vel og farið fram með prýði líkt og
undanfarin ár en þetta er í níunda sinn
sem boðið er til afmælisveislu af þessu
tagi.
Ætla að leita réttar síns
Samkvæmt heimildum DV komu af
skipti lögreglunnar meðlimum sam
takanna á óvart.
„Þetta er alveg nýtt fyrir okkur.
Menn hafa alltaf verið stoppaðir í toll
inum í gegnum árin þar sem hefur
verið spjallað við þá en svo hefur ekki
verið neitt mál.“ Einn heimildarmaður
segir engar skýringar hafa verið gefn
ar á því að Norðmönnunum hafi verið
vísað úr landi.
„Okkar tilfinning er sú að þetta
hafi komið frá Noregi, ég held að
það sé alveg á hreinu. Þú sérð að það
komust allir Danirnir inn í landið.“
Meðlimum samtakanna finnst sú
meðferð sem þeir norsku hlutu ekki
sanngjörn og herma heimildir DV
að einhverjir Norðmannanna ætli að
leita réttar síns.
„Settu þig bara í þeirra spor:
Manneskja með hreint sakavottorð
og þú færð ekki einu sinni að ferðast
innan Norðurlandanna. Ef þú værir
að fara til Noregs og fengir ekki að
fara inn í landið og þér væri bara sagt
að vegna almannaheillar mætti ekki
hleypa þér inn, þá myndir þú nú vilja
vita af hverju það væri.“
Snýst um bræðralag
Devils Choice hér á landi hétu áður
Hog Riders en breyttu nafninu árið
2011 og urðu þar með stuðnings
samtök hinna alræmdu Vítisengla.
Þrátt fyrir þau tengsl segir heimildar
maður DV að Devils Choice séu ekki
glæpasamtök. Þau snúist eingöngu
um bræðralag og að veita erlendum
bræðrasamtökum stuðning.
„Við förum út til þeirra og þeir
koma til okkar og svo ef við förum út
að hjóla þá höfum við aðgang að öll
um klúbbunum; getum sofið þar og
gert við hjólin og svona.“
Norskum og dönskum félögum
Devils Choice hefur verið boðið hing
að til lands undanfarin ár og þekkja
þeir íslensku samtökin vel.
„Hluti af þeim sem voru að verða
að Devils Choice í Noregi eru gaml
ir Hog Ridershópar þannig að svona
einn þriðja af þeim klúbbum þekkjum
við mjög vel. Þeir eru búnir að vera
bræður okkar í lengri tíma. Þetta eru
allt bara strákar sem eru að vinna í
olíuiðnaðinum.“
Taldir tengjast glæpastarfsemi
Gunnar Schram, yfirlögregluþjónn
hjá embætti lögreglustjórans á Suður
nesjum, segir að litið sé á Devils
Choice sem skipulögð glæpasamtök
enda um stuðningssamtök Vítisengla
að ræða. Það mat sé byggt á hættu
mati sem unnið er af greiningardeild
ríkislögreglustjóra en að ákvarðanir
um frávísun úr landi séu teknar af
Útlendingastofnun.
En hvað þarf að liggja því til grund
vallar að mönnum sé vísað úr landi?
„Tengsl við það sem talið er vera,
eins og í þessu tilviki, skipulögð glæpa
samtök. En svo er vísað úr landi á
grundvelli útlendingalaga og með til
vísanir í ákveðnar lagagreinar þar. Það
er það sem Útlendingastofnun styðst
við.“
Gunnar segir að ólíkt því sem fram
hefur komið víða í fjölmiðlum hafi
mennirnir ekki verið handteknir.
„Í þessum aðgerðum og þegar
svona frávísun á landamærum er beitt
þá eru menn í rauninni ekki hand
teknir heldur eru þeir færðir til upplýs
ingatöku þar sem þeir eru spurðir út í,
eins og í þessu tilviki, tengsl við mót
orhjólasamtök. Síðan fara þær upplýs
ingar áfram til Útlendingastofnunar
sem tekur ákvörðun byggða á hættu
mati frá greiningardeild ríkislögreglu
stjóra um hvort þeim verði frávísað
eða ekki.“
Vita ekki alltaf um komu
vélhjólagengja
Mennirnir sem vísað var úr landi
hafa margir hverjir komið áður til Ís
lands án vandræða og segir Gunnar að
ástæðan fyrir því sé einfaldlega sú að
ekki sé alltaf vitað um komu þeirra.
„Það er ekkert sem segir að við
finnum þá í hvert skipti sem þeir koma
til landsins. Það er ekkert eftirlit sem er
hundrað prósent, ég held að það fyrir
finnist varla.“
Aðspurður hvort beiðni um frávís
un mannanna hafi komið frá Noregi
segir Gunnar að lögreglan fái upp
lýsingar frá ýmsum aðilum, meðal
annars hinum Norðurlöndunum.
„Við fáum upplýsingar eftir ýmsum
leiðum, bæði formlegum og óformleg
um, og við erum náttúrulega í nánu
samstarfi við Norðurlöndin á þessu
sviði þannig að þetta getur komið með
allavega móti til okkar.“
Spurður hvers vegna aðeins hluti
mannanna sem komu til landsins
vegna veislunnar hafi verið sendur á
brott segir Gunnar að slíkt sé ákveðið
eftir upplýsingatöku hvers og eins.
„Það er lagt mat á tengsl við þessi
samtök og ef engin finnast og engin
eru þá er náttúrulega engin ástæða til
að stöðva viðkomandi. Þarna voru til
dæmis einhverjar unnustur með í för
en það er náttúrulega vitað að þetta
eru mjög karllæg samtök og kven
menn eru ekki meðlimir þar. Þannig
að það getur verið alla vega.“ n
Steinskot Guesthouse
Steinskot er gamall sveitabær á Eyrarbakka. Allt
til alls. Krakkar geta fengið að fara á hestbak.
Hægt er að sjá húsið á youtube “steinskot”. Sjón-
varp, internet o.s.frv. Rúm fyrir 6 manns. Hægt
að setja upp tvö aukarúm.
Hafið samband í síma 867-5015
eða á netfangið skurdur6@hotmail.com
Brottvísanir vörpuðu
skugga á hátíðarhöldin
n Norskir meðlimir Devils Choice íhuga að leita réttar síns n Lögreglan mætti á staðinn
Mörgum verið vísað úr landi
Í byrjun árs 2002 voru 19
meðlimir Vítisengla
stöðvaðir við komuna
til landsins og þeim
meinuð landganga
en segja má að
sú aðgerð hafi
markað upphafið
af því mikla eftirliti og
afskiptum sem íslenska
lögreglan hefur haft af
komu erlendra glæpa-
samtaka til landsins.
Lögð hefur verið mikil
áhersla á að bregðast við
fjölgun skipulagðra glæpasamtaka
hér á landi og hefur ófáum meðlimum
erlendra vélhjólagengja, sem talin eru
stunda skipulagða glæpastarfsemi,
verið meinað að koma inn í landið.
Í júlí 2002 var til dæmis sex félögum
í norsku vélhjólasamtökunum Savage
MC meinað að koma inn í landið er þeir
komu til Seyðisfjarðar með Norrænu, en
samtökin tengjast hinum alræmdu Vít-
isenglum. Í desember 2003 var svo fimm
Vítisenglum vísað úr landi og um ári síðar
var dönskum meðlimum vélhjólasam-
takanna Hog Riders meinað að koma inn
í landið er þeir lentu á Keflavíkurflugvelli.
Í nóvember 2007 var þremur norskum
félögum Vítisengla vísað úr landi er þeir
komu hingað til lands ásamt eiginkon-
um sínum og í mars síðastliðnum voru
tveir meðlimir Vítisengla stöðvaðir á
Keflavíkurflugvelli, annar frá Rúmeníu
en hinn frá Noregi, en mennirnir komu
hingað til að vera viðstaddir
afmælishátíð Vítisengla á
Íslandi. Var þeim vísað
af landi brott sam-
kvæmt ákvörðun
Útlendingastofn-
unar.
Brottvísanir
dæmdar
lögmætar
Mikil óánægja með
aðgerðir lögreglunnar
hefur ríkt á meðal félags-
manna hinna ýmsu vélhjóla-
samtaka sem sagt hafa brottvísanirnar
ólögmætar en þann 17. október síðast-
liðinn féll hins vegar dómur í Hæstarétti
sem segja má að veiti ákveðið fordæmi
fyrir framkvæmd lögreglu í málum
sem þessum. Þá staðfesti Hæstiréttur
úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur, að
fenginni umsögn EFTA-dómstólsins,
um að sýkna íslenska ríkið af kröfum
Norðmannsins Jan Anfinn Wahl en
Whal er meðlimur vélhjólasamtakanna
Vítisengla og var vísað úr landi er hann
hugðist dvelja hér um þriggja daga skeið
í febrúar 2010. Koma hans var talin
ógna allsherjarreglu og þjóðaröryggi
Íslendinga. Wahl var ekki ánægður með
brottvísunina og stefndi íslenska ríkinu
þar sem hann fór fram á að fá greiddar
skaðabætur en líkt og fyrr sagði var
íslenska ríkið sýknað af öllum kröfum
stefnanda.
Hörn Heiðarsdóttir
blaðamaður skrifar horn@dv.is
Fréttir 15Helgarblað 1.–3. nóvember 2013
Vítisenglar Mörgum erlendum
Vítisenglum hefur verið vísað úr landi.
Mynd GeTTy IMaGeS