Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Page 24
24 Fréttir 1.–3. nóvember 2013 Helgarblað
11 Einar Friðrik Kristinsson 72 ára
Eignir: 701 milljón kr.
n Einar og eiginkona hans Ólöf Októsdóttir eiga,
ásamt öðrum, fjölskyldufyrirtækið Daníel Ólafsson
ehf., oft kallað Danól. Synir Tómasar Tómassonar
seldu Ölgerð Egils Skallagrímssonar til Danól árið 2002
og voru fyrirtækin tvö sameinuð árið 2008. Stjórnarformaður Ölgerðarinnar
er sonur Einars og Ólafar, Októ Einarsson, en hann keypti sjötíu prósenta
hlut í fyrirtækinu af föður sínum árið 2007.
12 Matthías Kjeld 77 ára
Eignir: 699 milljónir kr.
n Matthías Kjeld læknir er sérfræðingur í meinefna-
fræði. Árið 1991 var fjallað um hann í fjölmiðlum og
sagt að hann hefði fengið tugi milljóna króna greiddar
frá Tryggingastofnun vegna vinnu sem unnin var á rannsóknastofu hans.
Hann fékk til að mynda árið 1988 um 70 milljónir króna fyrir vinnu frá rann-
sóknastofunni. Auk þess að reka rannsóknastofu í Domus Medica var hann í
fullu starfi á Landspítalanum. Svo virðist sem hann hafi náð að ávaxta það
fé vel. Hann er kvæntur Marcellu Iniguez.
13 Sigurður Helgason 70 ára og Kirstín Flygenring 58 ára
Eignir: 620 milljónir kr.
n Sigurður er framkvæmdastjóri og eigandi
Stjórnhátta sem er ráðgjafarfyrirtæki sem sérhæfir
sig í opinberri stjórnun og stjórnsýslu. Hann er
menntaður stjórnsýslufræðingur og hefur starfað
við ýmis verkefni tengd því. Hann er fyrrverandi
framkvæmdastjóri Björgunar ehf. Kirstín, eiginkona
Sigurðar, er með meistaragráðu í hagfræði og
hefur meðal annars starfað hjá OECD og Þjóðhags-
stofu. Hún sat í rannsóknarnefnd sem skilaði skýrslu
um Íbúðalánasjóð fyrr á árinu. Kirstín er dóttir Ingólfs
Flygenring þingmanns sem var framkvæmdastjóri við útgerð og verslun í
Hafnarfirði um árabil.
14 Jakob Valgeir Flosason 41 árs
Eignir: 527 milljónir kr.
n Jakob Valgeir Flosason er útgerðarmaður og
athafnamaður frá Bolungarvík. Hann var eigandi
huldufélagsins Stíms ehf. sem hefur verið til
rannsóknar hjá sérstökum saksóknara. Síðastliðin
maímánuð var honum stefnt ásamt öðrum fyrir
að hafa tekið ákvörðun um að veita lán til félagsins
þegar það lá fyrir að það væri ógjaldfært. Jakob Valgeir
er kvæntur Björgu Hildi Daðadóttur.
15 Páll Breiðdal Samúelsson 84 ára
Eignir: 500 milljónir kr.
n Páll stofnaði fyrirtækið P. Samúelsson hf. árið
1970 til að sjá um innflutning og sölu Toyota-
biðreiða á Íslandi. Upp úr árinu 1990 varð Toyota
vinsælasta bílategund á Íslandi. Páll seldi allt hlutafé
í félaginu árið 2005 til Smáeyjar ehf., fjárfestingafyrir-
tækis Magnúsar Kristinssonar. Kaupverðið var trúnaðarmál en ætla má að
Páll hafi hagnast verulega. Páll er kvæntur Elínu Sigrúnu Jóhannesdóttur.
16 Hilmar Gunnarsson 42 ára
Eignir: 487 milljónir kr.
n Hilmar starfaði um árabil hjá OZ á Íslandi og í
Kanada og stýrði m.a. sölu- og markaðsstarfi félags-
ins. Hann stýrði söluferlinu er OZ var selt til Nokia árið
2008. Frá því hefur hann fjárfest í ýmsum sprotafyrir-
tækjum og situr í stjórn fyrirtækja t.d. DataMarket og CAOZ. Maki Hilmars er
Guðný Kristín Hauksdóttir. „Lykillinn að velgengni er að gera það sem manni
finnst skemmtilegt, að vinna með góðu fólki og aldrei gefast upp,“ segir
Hilmar. „Það í sjálfu sér gerir mér kleift að gera áhugaverða og skemmtilega
hluti og hjálpa til í sprotaumhverfinu á Íslandi sem ég er búinn að vera að
einbeita mér að,“ segir hann spurður um hverju peningarnir hafi breytt.
17 Arnold B. Bjarnason 82 ára
Eignir: 480 milljónir kr.
n Arnold er viðskiptafræðingur að mennt og
stofnaði Timbur og stál, fyrirtæki sem þjónaði hús-
byggjendum. „Það er bara vinnusemi. Ég hef ekkert
stefnt að því að verða auðugur og tel mig ekki vera
það. Það kemur ekki fram í neinu í daglegu lífi mínu að
ég sé orðinn auðugur,“ segir Arnold í samtali við DV aðspurður hverju hann
þakki velgengnina.
18 Magnús R. Jónsson 77 ára
Eignir: 477 milljónir kr.
n Magnús er eigandi Garra hf. sem hann stofnaði
árið 1973. Sonur hans, Magnús, er framkvæmdastjóri
fyrirtækisins í dag. Fyrirtækið sérhæfir sig í inn-
flutningi og sölu á matvöru og matvælaumbúðum
fyrir veitingastaði, hótel, bakarí, skóla og leikskóla auk
mötuneyta og ferðaþjónustufyrirtækja.
19 Kristján Kristjánsson 74 ára
Eignir: 412 milljónir kr.
n Kristján er fyrrverandi húsasmiður og er hann kvæntur Þuríði Guðmunds-
dóttur kennara og ljóðskáldi.
20 Magnús Gunnarsson 67 ára
Eignir: 398 milljónir kr.
n Magnús hefur verið umsvifamikill í íslensku við-
skiptalífi til margra ára. Hann hefur komið að hinum
ýmsu fyrirtækjum og setið stjórn fjölmargra. Hann
hefur verið stjórnarformaður Eimskipafélags Íslands,
Brims, Búnaðarbankans og Haraldar Böðvarssonar.
Hann er menntaður hagfræðingur og kvæntur Gunnhildi
Gunnarsdóttur. Árið 2011 var hann búsettur í Garðabæ en er
í dag skráður með lögheimili í Bretlandi.
21 Margrét Gunnlaugsdóttir 75 ára
Eignir: 384 milljónir kr.
n Margrét er ekkja Ketils Axelssonar sem rak fyrst Tóbaksverslunina
London, síðan London dömudeild og frá 1992 Café Paris.
22 Oddur Gunnarsson 53 ára og Áslaug Jónsdóttir 53 ára
Eignir: 373 milljónir kr.
n Hjónin Oddur og Áslaug ráku Húsgagnahöllina í rúm tuttugu ár. Í dag eiga
þau verslanirnar Líf og List í Smáralind og Líf og List – húsgögn í Ármúla.
„Ég er bara búin að vera farsæl í viðskiptum og er búin að vera í fjölskyldu-
bisness í þrjátíu ár, síðan ég var tvítug, við hjónin,“ segir Áslaug í samtali við
DV.