Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Síða 36
36 Fólk 1.–3. nóvember 2013 Helgarblað V ilborg stendur í undir­ búningi fyrir næsta verk­ efni sitt sem er að klífa Carstensz Pyramid í Indó­ nesíu, sem er hæsta fjall í Eyjaálfu. Þetta er þriðji tindurinn af sjö sem Vilborg hyggst sigrast á á einu ári. Markmið hennar er að klífa hæsta fjall hverrar heimsálfu. Í lok maí komst hún á topp Denali, sem er hæsti tindur Norður­ Ameríku, og í síðasta mánuði sigr­ aði hún Elbrus, sem er hæsta fjall Evrópu. Ekki skuldbundin neinum Þegar blaðamaður hringir í Vil­ borgu til að mæla sér mót við hana segir hún í hreinskilni frá því að hún eigi sér enga fasta búsetu. „Ég á hvergi heima,“ segir hún og út­ skýrir að viðtalið verði að fara fram á kaffihúsi. Hún flakki á milli vina og vandamanna um þessar mund­ ir. Hún kemur til fundar við blaða­ mann á kaffihús í miðborginni. Íklædd léttum útivistarfatnaði og brosmild að vanda og yfir heitum kaffidrykk útskýrir hún betur hvers vegna hún kýs heimilisleysið. „Jú, ég er heimilislaus í raun og veru því ég bý hvergi. Ég geymi mikilvægustu eigur mínar í ferða­ töskum sem ég ferja á milli staða. Líf mitt kemst fyrir í fimm ferða­ töskum,“ segir Vilborg og hlær og útskýrir að í ferðatöskunum sé búnaður til ferðalaga. „Í einni tösku er skíðabúnaður, í annarri er klifurbúnaður og svo framvegis, ég fíla þetta að mörgu leyti. Þá helst að vera ekki skuldbundin einum eða neinum.“ Þótt hún kjósi heimilisleysið þá viðurkennir hún að hún hafi eins og aðrir þörf fyrir að eiga einhvers staðar heima. En ferðalögin eru dýr, taka langan tíma og eru krefj­ andi og hún hefur þurft að velja. „Ef ég ætti að velja, þá myndi ég velja að ferðast. Það er tilgangs­ laust að borga af einhverju sem ég nota lítið sem ekkert,“ segir hún. Lyklabarn og fiskibollur í dós Talið berst að uppvextinum. Vil­ borg er alin upp í Vogahverfi í Reykjavík, sleit þar barnsskón­ um. Hún vildi strax njóta frelsis. Sem barn var hún full sjálfstrausts og harðneitaði að dvelja í barna­ gæslu. Hún varð lyklabarn og eld­ aði sér fiskibollur og Royal­búðing á milli þess sem hún lagði óhikað í langar ferðir hingað og þangað um borgina. „Ég var alltaf mjög mikið úti, vildi hafa nóg að gera. Ég neit­ aði að vera í pössun, það hentaði mér ekki. Þegar ég var sex ára var ég komin með lykil um hálsinn. Ég kunni að elda, það var reyndar bara tvennt á matseðlinum, fiskibollur í dós eða Royal­búðingur. Mamma og pabbi keyptu handa mér ör­ bylgjuofn svo ég gæti eldað handa mér sjálf. Ég þráði frelsi og var barnung að fara langar vegalengd­ ir, innan borgarinnar þó. Ég hjólaði til dæmis í heimsókn til frænda míns sem átti heima rétt hjá flug­ vellinum. Mjög snemma hafði ég þessa þörf fyrir að ferðast og skoða mig um.“ Rótleysi og tíðir flutningar Eftir nokkur ár í Vogahverfi tók við rótleysi hjá fjölskyldunni. Foreldrar Vilborgar áttu í hjónabands­ örðugleikum og slitu nokkrum sinnum samvistir. „Foreldrar mínir voru svo­ lítið í því að skilja og taka saman aftur á þessum árum, gátu ekki alveg ákveðið sig,“ segir Vilborg og brosir. „Nú eru þau endanlega skilin, en þessi ár fjölskyldunnar einkenndust af miklu rótleysi. Við fluttum nærri því á hverju ári. Það var mér til gæfu að halda áfram skólagöngunni í Vogaskóla. Þar átti ég mína traustu vini og vin­ konur sem ég hef ræktað vinskap við síðan. Ég lagði á mig að vakna eldsnemma á morgnana hvar í borginni sem ég bjó og tók strætó hálf sjö í skólann. Mér fundust ferðalög á milli staða ekkert mál hvort sem er, og varð ung öllu vön,“ segir hún og hlær. Sparifötin jogginggalli Eiginleikar Vilborgar voru strax mótaðir í æsku. Hún var ekkert fyrir pjatt og prjál og íþróttir og úti­ vist voru henni að skapi. „Ég var aldrei pjöttuð, mín spariföt voru jogginggalli. Ég átti kannski apagalla eða eitthvað slíkt sem ég notaði fyrir sparigalla. Ég vildi helst vera úti að leika mér með vinum mínum og var ekki mikið fyrir fínlegt dútl. Ég var líka léleg í því. Ég var oft seinni til í ýmsu en margir vinir mínir, ég var til dæmis sein að læra að lesa, með lélegar fínhreyfingar og gat lítið lit­ að eða leirað án þess að það væri ólögulegt. Á þessum árum gerði ég mér alls enga grein fyrir þessu. Ég sé þetta núna eftir á,“ segir hún og segir frá gamalli minningabók sem hún fann á dögunum. „Vinkonur mínar höfðu vandaði sig ægilega mikið en þegar kom að minni síðu var þar klunnalegt krot.“ Fékk ekki stuðning Frelsisþráin hentaði Vilborgu alveg hreint ágætlega í æsku. Þá var hún sterk og naut sín. Þegar hún komst á unglingsár rataði hún í ógöngur. Styrkleikarnir voru ekki metnir að verðleikum og sjálfsmyndin moln­ aði. „Ég var oft rekin úr mennta­ skóla, þrisvar sinnum. Ég byrjaði í Menntaskólanum við Sund og þar fór námið í óefni og ég hætti áður en ég var rekin, ég var svo látin fara úr Fjölbrautaskólanum við Ármúla og svo var ég vinsamlega beðin um að yfirgefa Tækniskólann,“ segir hún og skellir upp úr. „Mér gekk ekki illa að læra og var ekki mikið að falla á prófum. Mér gekk hrein­ lega illa að mæta í skólann, ég var bara að gera aðra hluti. Mér leið illa í þessu umhverfi, með lítið sjálfs­ traust og brotna sjálfsmynd. Fyrir mér var ég lokuð inni og frelsisþrá­ in leiddi mig í hálfgerðar ógöngur á þessum tíma. Ég hefði þurft að finna jákvæða útrás fyrir hana. Ég hitti einhverja námsráðgjafa og skildi ekkert hvað þeir voru að segja. Ég sá mig aldrei fara í há­ skóla. Sá ekki slíka framtíð og að hún væri í boði fyrir mig. Mér datt það ekki einu sinni í hug. Það eru margir samverkandi þættir sem höfðu áhrif á mig á þessum tíma og gerðu að verk­ um að ég sá engan tilgang í því að byggja mig upp í skóla. Það var mjög mikið rót á fjölskyldunni og það hafði mikil áhrif á mig. Ég vann mikið með skóla og þá náði ég ekki að rækta mína bestu eiginleika, til dæmis færni mína í íþróttum. Ég fékk lítinn stuðning í skóla til þess að rækta þá og hafði sjálf ekki bein í nefinu til að standa fyrir mínu.“ Ólukkan er verðmætt veganesti Hún djammaði og reykti og hló að hallærislega pólfaranum Haraldi sem hún fylgdist með úr fjarska. Lífið sem hún lifir í dag var óra­ fjarri. „Ég djammaði mikið og var svolítið mikil pæja á þessum árum. Ég reykti og drakk. Þegar Haraldur var að fara á pólinn þá fannst mér hann bara hallærislegur. Ef einhver hefði sagt mér að ég væri að fara á pólinn, þá hefði ég bara hlegið og sagt glætan.“ Reynsla Vilborgar frá þessum tíma er vissulega ögn þungbær en hún er henni engu að síður verð­ mæt. „Ég myndi aldrei vilja skipta á þessari reynslu. Hún hefur kom­ ið mér á þann stað sem ég er á og ólukkan er veganesti. Ég heimfæri reynslu mína á ný verkefni. Ég veit til dæmis að þótt mér mistakist einu sinni, þá veit ég alveg að mér mun ekki endilega mistakast aftur. Það er ekki málið hversu oft maður fellur niður, heldur hversu oft mað­ ur stendur upp aftur.“ Með tíð og tíma hefur henni tek­ ist að nýta styrkleika sinn og láta það vera að einblína á það sem miður fer. Auðvitað verður maður að vera meðvitaður um veikleika sína, það er mikilvægt. En þekk­ inguna á maður að nota í það að forðast aðstæður eða fá hjálp við að komast yfir þær. Ekki í að brjóta sig niður.“ Fjallgangan sem breytti lífinu Vilborgu tókst að breyta lífi sínu í einni tuttugu klukkustunda langri göngu upp á Hvannadalshnjúk. Hún sá ekki út úr augum, kvalin í of litlum skóm og gerði allt rangt sem hugsast gat. Samt varð gangan hennar fyrsti persónulegi sigur. „Ég breytti lífi mínu í gegn­ um útivistina. Fyrsta gangan mín var á Hvannadalshnjúk. Ég var að vinna á Klaustri á hóteli hjá frænku minni. Það opnaði nýtt útibú, með risaglugga í austur með útsýni á jökulinn. Ég stóð oft við gluggann og horfði á hnjúkinn og upplifði einhverja þrá. Ég sagði einn daginn við vin­ konu mína, eigum við ekki bara að fara? Og það gerðum við. Það var vont veður, ég var í alltof litlum skóm og hún í alltof stórum skóm. Við gerðum allt vitlaust, í kolvit­ lausum fötum. Bómullarfötum og skíðabuxum. Gangan tók 20 tíma, þó að ég sæi ekki neitt fyrir vitlausu veðri þá fannst mér þetta mögn­ uð lífsreynsla. Gangan varð minn fyrsti persónulegi sigur.“ Björgunin Sigurinn vatt upp á sig og aukið sjálfstraust ýtti við Vilborgu að halda áfram ótrauð í útivistinni. Hún gekk til liðs við björgunarsveit og þar stundaði hún stíft nám og stóð sig í fyrsta sinn á ævinni með glans. „Ég gekk til liðs við Björgunar­ sveitina Ársæl og þar stundaði ég nám. Ég fór á námskeið aðra hverja helgi, verkleg og skrifleg próf sem ég gekkst undir. Allt í einu var mér farið að ganga vel, ég lauk nám­ inu og fékk leyfi til björgunarstarfa. Þetta var í fyrsta skipti sem ég kláraði eitthvað. Og í fyrsta skipti sem ég var ekki rekin. Ég var ekki beðin um að yfirgefa svæðið,“ segir hún og skellihlær. Ekki lengur stelpan sem ekkert kann Nú þegar Vilborg sá og fann að hún Vilborg Arna Gissurardóttir hefur fórnað öllu fyrir fjallamennskuna. Hún er heimilislaus að eigin vali og fær að gista hjá vinum og vandamönnum. „Líf mitt kemst fyrir í fimm ferðatöskum,“ segir af- rekskonan sem Kristjana Guðbrandsdóttir ræddi við um frelsisþrána sem hefur alltaf stýrt henni, stundum í ógöngur og vandræði en á endanum á toppinn, þar sem allt er skýrt. Það felur sig enginn á fjöllum Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is Viðtal „Ég djamm- aði mikið og var svolítið mikil pæja Sneri lífi sínu við Vilborg lenti í ógöngum sem unglingur og frelsisþráin varð henni til trafala. Sjálfsmyndin var brot- in og sjálfstraustið lítið. Ein fjallganga sneri ferlinu við.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.