Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Síða 40
40 Fólk 1.–3. nóvember 2013 Helgarblað H æ,“ segir stelpan í dyra- gættinni og spyr síðan ein- lægt: „Viltu taka viðtal við mig?“ „Já,“ segi ég, „en ég ætl- aði að hitta hana Áslaugu, er hún heima?“ Áslaug þessi er Friðriks- dóttir og býr í gula húsinu á holtinu, á milli kirkju og fangelsis, í takt við vill- inginn sem dansar uppi á borðum en vill bara gera sitt besta til að gera heiminn að betri stað, eða allavega borgina. Og stelpan, þetta er hún Þór- katla, elsta dóttirin sem samkvæmt tímatalinu er orðin 21 árs en gæti allt eins verið mikið yngri – eða miklu eldri, eftir því hvernig liggur á henni og hvernig litið er á það. Andartaki síðar birtist Áslaug í dyragættinni, býður mér inn og til stofu, bannar mér að fara úr skónum því hér er ekkert verið að velta sér upp úr því hvort gólfið er hreint eða ekki, og spyr hvort ég vilji frekar te eða kaffi því hún er búin að gera bæði og bera bakkelsi á borð. Við setjumst við borðstofuborðið sem fylgdi Áslaugu úr föðurhúsum, á milli verka eftir Gabríelu og Stórval, en listin er Áslaugu hugleikin og er alls- ráðandi hér á þessu heimili sem hýsir líka verk eftir tengdamóður hennar, Hafdísi Helgadóttur, og synina sem eru báðir miklir listamenn. Dótturina dreymir um frægð Við borðið ítrekar Þórkatla beiðni sína um viðtal og klappar saman höndum af gleði þegar ég gef henni orðið: „Ég verð að segja allt,“ segir hún áköf og telur upp helstu afrek og drauma. Á meðal þess sem hana dreymir um er að kynna niðurstöður íslensku þjóðarinnar í Eurovision fyrir heim- inum, og helst á frönsku, og að spila á básúnu með Sinfóníuhljómsveitinni, en hún spilar á fjöldamörg hljóðfæri, trommur, gítar, bassa, píanó og fleira. „Ég kann að spila á allt,“ segir hún stolt, „og ég spilaði einu sinni í Hörpu- nni á bæði harmonikku og bassa. Það var ofsalega gaman.“ Afrekin eru mörg og merk, árið 2006 afhenti hún kærleikskúluna, seinna sýndi hún föt á tískusýningu og síðan vakti hún mikla lukku með tón- listargjörningi sem framinn var fyrir utan gula húsið á holtinu á Menn- ingarnótt. „Þá hitti ég marga fræga en ég var eiginlega frægust af öllum,“ en frægðin er eftirsóknarverð. „Allt í einu áttaði ég mig á því að ég gæti orðið besti rithöfundur í heimi og frétta- maður en núna langar mig meira að verða leikkona, því ég vil verða fræg.“ Enda þekkir hún marga fræga sem hafa veitt henni mikinn innblástur. Þeirra á meðal er ungur leikari, Sig- urður Þór Óskarson sem leikur þjón- inn í Mary Poppins, Margrét Eir og Vala Guðnadóttir, sem hefur kennt henni að vera stundvís. „Það eru svo rosalega margir frægir sem ég þekki.“ Mamma hennar grípur inn í, segir að þetta sé frábært viðtal en hvort þetta sé ekki orðið gott, hvort við megum spjalla saman núna. Þórkatla er ekki á því: „Nei. Ég vil vera áfram. Mig langar að segja alla söguna. Má ég klára?“ spyr hún og fær strax já. Þórkatla vill nefnilega ekki bara segja frá fræga fólkinu sem hún þekkir. Hana langar líka til að segja frá kærastanum sem hún kynntist á Laugaveginum. Hann heitir Björn og þótt mamma hennar hafi aldrei hitt hann þá eru þau nú samt búin að vera saman frá því að hún var táningur. „Mig langaði svo að eiga kærasta svo ég byrjaði bara með honum. Og þá er ég búin,“ segir hún, þakk- ar fyrir sig og kveður með handabandi áður en hún fer upp á næstu hæð og inn í herbergið sitt. Elskar lífið meira Þórkatla er elsta dóttir Áslaugar, eða eins og hún segir: „dóttir mín, vinkona og amma á stundum.“ Áslaug var ekki nema 23 ára þegar Þórkatla fæddist. „Næstu mánuði kom smátt og smátt í ljós að hún var ekki alveg eðlileg,“ segir Áslaug. Fyrstu tvö árin var Þórkatla í stöðugum rann- sóknum og sjúkraþjálfun, hún fékk flog og var alltaf mjög veik. Það kom síðan í ljós að hún var með hjartagalla og þurfti að fara út í aðgerð. „Eftir það hætti hún að vera svona mikið veik en hún hefur engu að síður átt við sína erfiðleika að stríða, er á einhverfu- rófi, með lágan vöðvatón og svona, en er alltaf þvílíkt hress,“ segir Áslaug og glottir út í annað við tilhugsunina um uppátæki dóttur sinnar. Fyrstu vikurnar, mánuðirnir og árin voru auðvitað erfið að vissu leyti. Álagið var mikið en Áslaug velti sér ekki mikið upp úr því, hún varð bara að takast á við verkefnið og gera sitt besta í aðstæðunum. „Fyrsta skrefið var að komast að því hvað væri að, hvort þetta væri ólæknandi eða hvort eitthvað væri hægt að gera. Síðan reyndum við að átta okkur á því hvað væri best að gera fyrir þetta barn. Við vissum ekkert hvernig hún yrði. Þegar ég hugsa til baka og þess að ég var bara 23 ára þegar ég stóð í þess- um sporum þá átta ég mig á því að þetta hafði auðvitað mikil áhrif á mig. Ég fór að elska lífið meira og þykja varið í alls konar hluti sem ég var kannski ekkert að velta fyrir mér áður. Það er auðvitað alltaf erfitt ef börn eru veik og þá er líka hætt við því að mað- ur einangrist heima. Í tvö ár var ég heima með henni en ákvað síðan að láta drauminn ræt- ast og fara út í framhaldsnám. Margir efuðust um að það væri ráðlegt, og spurðu hvort ég gæti þetta með hana, og hvort ég gæti fengið nógu mikinn stuðning. En ég fann skóla í London, komst inn í vinnusálfræði og fékk mér au-pair. Þetta var vel hægt og eftir á að hyggja er ég ótrúlega ánægð með að hafa tekið þessa ákvörðun, verið ákveðin og farið út. Það skipti mig miklu máli.“ Átti að lagast í maí Í Bretlandi var þjónustan fyrir sérstök börn bæði fjölbreyttari og meiri en hér heima. Og Áslaug leitaði allra leiða til að hjálpa dóttur sinni. „Ég gaf öllu séns í von um að eitthvað myndi virka, sama hversu fáránlega það hljómaði.“ Hlæjandi rifjar hún upp fund með konu sem sérhæfði sig í því að vinna með orkurásir. „Eftir stundina sem hún átti með barninu sagði hún að það væri að lagast og yrði í lagi í lok maí. Við vinkonurnar merktum það samviskusamlega inn á dagatalið og grínumst oft með það þegar eitthvað kemur upp á að það verði í lagi í lok maí. Ég fór alveg yfir mörkin í voninni en vissi á sama tíma að þetta yrði aldrei allt í lagi. Þú áttar þig á því smám saman þegar þú ert með svona barn í höndunum að það er ekki með fulla greind og þú ferð að skilja að það mun ekki birtast neinn engill af himn- um sem mun heila hana. Samt reynir þú allt þegar svona mikið er í húfi og ég prófaði alls konar aðferðir, vítamín og mataræði.“ Fyrstu árin var Áslaug uppteknari af þessu. Síðan fór hún að leita svara varðandi hvernig hún gæti best hjálp- að Þórkötlu að fá sem mest út úr líf- inu, en þar var engin svör að finna. „Sérfræðingar voru uppteknari af því að greina barnið en að aðstoða okkur með þetta daglega líf. Með tímanum hætti ég líka að leita svara, hún fór í skóla og lífið hafði sinn vanagang.“ Frelsið mikilvægast Sýn Áslaugar á lífið breyttist líka mik- ið. „Ég sé hvað það er erfitt að vera þroskaheft stúlka sem skilur ekki það sama og aðrir. Það veldur mikilli streitu að vita ekki hvernig fólk muni bregðast við sér. Henni finnst það oft erfitt en ég reyni að hvetja hana áfram. Fólki hefur fundist ég of frjáls- lynd og ég hef oft fengið að heyra að hún ætti kannski ekki að fara ein út að ganga því það gæti eitthvað komið fyrir. Það getur alltaf eitthvað kom- ið fyrir og það er ekki hægt að láta það stoppa sig. Mér finnst ekki hægt að skerða frelsi hennar vegna ótta. Frelsið og það að fá að reyna sig er mun meira virði en það. Mér finnst allavega mikilvægara að reyna frekar að byggja upp einstakling sem hefur burði til þess að takast á við það ef eitt- hvað kemur fyrir.“ Fyrir vikið lendir fjölskyldan oft í skrautlegum aðstæðum. Þórkatla er í „Við höfum oft verið fátæk“ Áslaug Friðriksdóttir er barn tveggja heima, ráðherradóttir sem vann í slorinu fyrir vestan, frambjóðandinn sem lét fátækt ekki hindra sig og sendi manninn á sjóinn til að ná endum saman. Hann er sex árum yngri og hún var stundum kölluð barnaræningi til að byrja með, en þetta var ást við fyrstu sýn og mikil gleði. Hún segir frá óvenjulegu heimilishaldi þar sem fjölskyldan er þátttakandi í þroskaheftu lífi dóttur hennar, sem er stundum ansi litríkt. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ingibjorg@dv.is Viðtal „Það var ekkert glimmer heldur bara harkan sex

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.