Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Blaðsíða 44
É
g sat nýlega samkomuna
Empower Week á vegum Stop
Acid Attacks, grasrótarsam-
taka í Delí á Indlandi. Sam-
tökin vinna gegn sýruárásum,
styðja við fórnarlömb og vinna að
réttlæti fyrir þeirra hönd. Gerendur
sýruárása sleppa oftast við dóm og
fórnarlömbin fá litla sem enga að-
stoð hvorki frá heilbrigðiskerfinu,
dómskerfinu né félagslegan stuðn-
ing,“ segir Gegga en hún hefur gef-
ið ágóða af sölu á Smiler-hálsmen-
inu, sem hún hannaði, til styrktar
samtökum gegn sýruárásum á Ind-
landi.
Íslensk heimildamynd um
sýruárásirnar
Gegga segir frá því að stjórn UN
Women á Íslandi hafi veitt stuðn-
ing með því að kaupa armbönd
af konunum sem verða seld
sem aðgöngumiðar að hátíðar-
kvöldverði UN Women á Íslandi
þann 14 nóvember. „Þessi hug-
mynd kviknaði eftir að fréttist að
Bjarney S. Lúðvíksdóttir og Guðrún
Lína Thoroddsen voru að vinna
að heimildamynd um sýruofbeldi
gegn konum og voru á leið til Delí.
Myndin er framlag þeirra í barátt-
unni gegn kynjabundnu ofbeldi og
verður frumsýnd á næsta ári.“
Mikið hlegið og grátið
Gegga segist hafa ásamt öðrum
haldið vinnustofu með konunum
og einum karlmanni sem hafa orðið
fyrir sýruárásum. „Þar var stemn-
ingin stórkostleg – mikið hlegið
en líka grátið, og lái þeim enginn.“
Á lokakvöldinu var haldin athöfn
og afhenti Gegga hverri stúlku dá-
góða upphæð; 10% af innkomu
Smiler síðasta hálfa árið. „Stúlk-
urnar voru heiðraðar sem „smiler“
með heiðursskjali og fengu Smiler-
hálsmen að gjöf, en hægt er að stinga
gripnum á milli munnvikanna og
framkalla þannig bros,“ segir Gegga.
Að vera sinn eigin skapari
Gegga hefur haldið námskeið í
sjálfstyrkingu og segir ákveðna
hugmyndafræði liggja á bak við
hönnunina sem hún kallar Smiler.
„Það er viðhorf okkar sem skiptir
meira máli en atburðir og aðstæður.
Hvert og eitt okkar eru miklir skap-
arar og töfratækin okkar eru gleði,
kærleikur og þakklæti. Þessar stúlk-
ur eru kröftugir skaparar – konur
sem kunna að sýna gleði og þakklæti
yfir svo litlu að ég sem venjulegur Ís-
lendingur roðna við viðmiðið.“
Lét lífið eftir hrottalega nauðgun
Heiðursgestir samkomunnar voru
foreldrar Badri Singh Pandey, stúlk-
unnar sem var nauðgað af hópi
manna á hryllilegan hátt í strætó
2012 og lét lífið. Þau nýta nú erfiða
reynslu sína í baráttu gegn kynja-
bundu ofbeldi í ýmsum myndum.
„Það var mikill heiður fyrir mig að
fá tækifæri til að kynnast þeim, kær-
leika og þakklæti þeirra er þau þáðu
Smiler að gjöf. Þau eru í raun að lifa
þann boðskap sem Smiler boðar,
enda magnaðar fyrirmyndir í að
breyta áfalli í gjöf.“
Upplifði auðmýkt
„Hér lærir maður auðmýkt og
hégóma girnin hrapar hratt þegar
maður stendur sig að því að finn-
ast maður of sveittur og þreyttur
fyrir myndatöku með ungri stúlku
sem vantar hálft andlitið á. Ég hef
fellt mörg tárin hér – bæði gleði og
sorgar og fyrir það er ég þakklát.
Þegar maður vill læra og þroskast þá
er besta kennslan lífið sjálft með öll-
um sínum fjölbreytileika.“
Tíminn stendur í stað
Gegga segir Delí vera merkilega
borg. „Hér er algjör suðupottur og
mikið að gerast á hverju andartaki.
Hér ríkir tímaleysi og nokkuð víst
að maður fær góða æfingu í þolin-
mæði, þar sem fólk lifir ekki of stíft
samkvæmt klukkunni. Fólkið er dá-
samlegt – gleði, hjálpsemi og þakk-
læti skín í gegnum traffík og kraðak
á götum úti þar sem menn, kýr, apar
og fílar troðast áfram á milli bíla af
öllum gerðum. Til að enginn slasist
nú þá er mikið flautað og hávaðinn
verður nánast ærandi, sérstaklega í
gömlu Delí. Sinn er víst siður í landi
hverju.“
Hönnunin berst víða
Að sögn Geggu hafa margir verið
spenntir fyrir Smiler-hálsmeninu.
„Smiler er alls staðar vel tekið. Með-
al annarra hafa tvær flottar merkis-
konur þegið hann að gjöf. Önnur
þeirra er Anjali Gopalan stofnandi
NAZ Foundation India Trust. Hún er
ein af 100 áhrifamestu manneskjum
heimsins í dag, samkvæmt Times of
India og rekur meðal annars mun-
aðarleysingjaheimili fyrir börn með
alnæmi. Hún skellti gripnum upp
í sig og ætlaði ekki að geta hætt að
hlæja.“
Ósérhlífnar konur
„Hin konan er hjartahlý yfirnunna
á munaðarleysingjahæli fyrir fötluð
börn sem rekið er undir nafni móður
Theresu. Ósérhlífnar konur sem vilja
breyta heiminum eru þær konur sem
ég lít mest upp til og því var ég asskoti
snortin yfir að fá að heimsækja þær
og kynnast starfi þeirra.
Ég mun vonandi aldrei gleyma
hve heppin ég er að hafa fæðst á Ís-
landi. Þras um pólitík, verðlag, traffík,
stöðumælagjöld, ryk, rok og rigningu
er hreint fáránlegt í samanburði við
vandamálin hér!“ segir Gegga þakk-
lát að lokum. n
44 Fólk 1.–3. nóvember 2013 Helgarblað
Helga Birgisdóttir myndlistarkona, betur þekkt
sem Gegga, er stödd á Indlandi um þessar mundir.
Tilgangur ferðarinnar er að styðja við starf grasrót-
arsamtaka sem berjast gegn sýruárásum. Nýverið
hitti Gegga foreldra Badri Singh Pandey, stúlkunnar
sem var nauðgað af hópi manna á hryllilegan hátt í
strætisvagni. Heimsbyggðin fylgdist með hrollvekjandi
fréttum af grimmilegu kynferðisofbeldi sem stúlkan
var beitt. Gegga segir frá ferðalagi sínu og kynnunum
af foreldrunum hugrökku sem deila nú reynslu sinni
og beita sér í baráttunni gegn ofbeldisglæpum gegn
konum á Indlandi. „Ég hef fellt mörg tárin hér – bæði
gleði og sorgar og fyrir það er ég þakklát,“ segir Gegga.
„Ég sem
venjulegur
Íslendingur roðna
við viðmiðið
Gegga með Anjali
Gegga afhenti fórnar
lömbum sýruárása
10% ágóða af inn
komu Smiler síðasta
hálfa árið.
Gegga ásamt
Sapna og Ruba
„Gerendur sýruárása
sleppa oftast við dóm
og fórnarlömbin fá litla
sem enga aðstoð hvorki
frá heilbrigðis né
dómskerfinu.“
Svala Magnea Georgsdóttir
svala@dv.is
Viðtal
Gegga ásamt foreldrum
Badri Singh Pandey „Það
var mikill heiður fyrir mig að
fá tækifæri til að kynnast
þeim, kærleika og þakklæti
þeirra,“ segir Gegga.
Gleði og sorg í senn Að sögn
Geggu nýta foreldrarnir erfiða
reynslu sína í baráttu gegn kyn
bundu ofbeldi í ýmsum myndum.
Að breyta áfalli í gjöf