Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Page 50

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Page 50
50 Menning 1.–3. nóvember 2013 Helgarblað Andri Snær með nýja bók Rithöfundurinn Andri Snær Magnason hefur gefið út nýja bók sem ber heitið Tímakistan en hann fagnaði útgáfunni í Borgarleikhús­ inu á dögunum. Bókin er að sögn Andra Snæs ævintýri fyrir „nú­ verandi og fyrrverandi börn“ og fjallar um stúlku sem vaknar upp í draugaborg. Þar búi óður konung­ ur sem reyni að sigra tímann og Exel aðstoðarmaður kóngsins sem breyti lofti í gull. Í borginni sem er lýst með skrautlegum hætti má einnig finna prinsessuna Pangeu og mosavaxna bíla sem líkjast broddgöltum. Andri Snær hefur áður gefið út bækurnar Drauma­ landið, Bláa hnöttinn og Lovestar. U m helgina frumsýnir Bíó Paradís myndina Við erum bestar eftir leikstjórann Lukas Moodysson, sem var sérstakur gestur á RIFF í ár. Myndin segir frá þremur stelpum í Stokkhólmi árið 1982 sem ákveða að stofna pönkhljómsveit. Fólk hef­ ur litla trú á þessu uppátæki, ekki aðeins sé pönkið dautt heldur sé það að vera í hljómsveit fyrst og fremst fyrir stráka. Hin frábæra mynd Ragnars Braga­ sonar, Málmhaus, sem sýnd er í Há­ skólabíói og víðar, segir einnig frá stelpu sem spilar rokktónlist og ná­ grannar hennar í íslenskum smá­ bæ átta sig lítið á. Málmhaus gerist einnig á 9. áratugnum, og er kannski ekki að undra, því það var einmitt á þeim tíma sem að stelpubönd fóru fyrst að ryðja sér til rúms í rokkinu. Í lagi að vera ljótur Konur höfðu snemma tekið þátt í popptónlist, bæði stúlknahljómsveit­ ir eins og Ronettes og Supremes eða söngkonur eins og Aretha Franklin og síðar Janis Joplin og Mama Cass, sem báðar létust reyndar um aldur fram. Þó fannst mörgum sem þær væru enn fastar í hefðbundnum hlut­ verkum, sem kyntákn eða einhvers konar jarðmæður. Alveg frá því Patti Smith birtist framan á umslagi fyrstu plötu sinnar með bindi og ögrandi augnaráð var ljóst að pönkið hafði önnur viðhorf. Patti var fyrsta flokks ljóðskáld, en hún lét þó strákunum eftir að spila á hljóðfærin. Brátt birtust hljómsveitir eins og The Slits þar sem konur voru í öllum hlutverkum, eða voru mjög áberandi eins og Siuoxie Siuox, Lydia Lunch, Joan Jett og Chrissie Hynde. Sjálfur æðstiprestur pönks­ ins, Johnny Rotten, leit á pönkið sem málsvara allra jaðarhópa og sagði: „Fólk sem hafði enga sjálfsvirðingu fór að líta á sig sem fallegt … með því að vera ekki fallegt. Konur hættu að líta á sig sem annars flokks þegna. Pönkið gerði það ljóst.“ Ísland var lengi aftarlega á merinni. Til dæmis varð lagið Think með Arethu Franklin, sem fjallaði um konu sem krafðist virðingar, hér að Slappaðu af þar sem konu er sagt að hætta þessu nöldri. Íslenskar konur urðu seinar til að svara fyrir sig, en það gerðist loks með pönk­ inu. Slegist við Bubba með berum hnefum Konur höfðu þó áður tekið þátt. Eitt þekktasta lag hippatímabilsins á Ís­ landi er vafalaust Án þín, sungið af Shady Owens. Lagið er fallegt en varla innlegg í jafnréttisbaráttu, það segir frá konu sem getur ekki hugsað sér lífið án manns síns. Hægt er að bera þetta saman við eitt þekktasta lag Röggu Gísla rúmum áratug síðar, þar sem hún gagnrýnir upphafningu hefðbundinnar karlmennsku: „Hvað er svona merkilegt við það að vera karlmaður? Hvað er svona merki­ legt við það að bor’ í vegg?“ Ragga stofnaði hljómsveitina Grýlurnar með þrem konum sem varla kunnu að spila á hljóðfærin í fyrstu en sótt­ ist námið hratt. Hljómsveitin Q4U var skipuð meðlimum af báðum kynjum. Hún var á yfirborðinu ópólitísk og sótti ekki í kvenréttindabarátt­ una með eins meðvituðum hætti og Grýlurnar, en klæðaburðurinn og ögrandi framkoma voru á sinn hátt byltingarkennd. Söngkonan Ellý lýsti samkeppninni á milli hljómsveit­ anna í viðtali við DV og ljóst er að hér var ekki um hefðbundin kvennahlut­ verk að ræða: „Ef einhver reyndi að tala við mann þá barði maður hann bara. Ég lenti til dæmis í slagsmálum við Röggu Gísla, sem ég hafði aldrei hitt áður og við fórum inn á klósett og afgreiddum okkar mál. Við slóg­ umst, og sættumst svo. Ragga Gísla var síðan lamin fyrir utan af einhverj­ um ókunnugum aðila. Bubbi hélt að ég hefði gert það og elti mig uppi í Fischersundi. Hann ætlaði að berja mig, en hætti við á síðustu stundu og kýldi í gegnum vegginn.“ Konur tóku ekki aðeins upp slagsmálatækni karl­ manna, heldur einnig gredduna sem einkennt hafði rokkið. Þannig söng Lísa Pálsdóttir í Kamarorghestum um að „fá sér á snípinn“. Pönkstelpur með stutt hár Á 10. áratugnum kom síðan upp næsta bylgja kvennahljómsveita, sem kölluðu sig Riot Grrrls og hét sú helsta Bikini Kill. Nú var ekki lengur nóg að konur spiluðu tónlist, heldur fóru þær að skipta sér af öllum hlið­ um tónlistarbransans, svo sem að stofna tónlistarblöð. Þó konur séu enn í minnihluta í rokktónlist hérlendis hafa þær orðið meira áberandi en áður var og ein þeirra, Björk, lagði heiminn að fót­ um sér. Þessa helgina á Airwaves há­ tíðin sér stað, þar sem rjóminn af ís­ lenskum tónlistarmönnum mun koma fram í bland við erlenda. Þrjá­ tíu árum eftir að pönkið á Íslandi náði hápunkti sínum spilar nú fólk af báð­ um kynjum allar gerðir tónlistar, frá reggíhljómsveitinni Amaba Dama, metalistunum í Angist, hinni draum­ kenndu popphljómsveit Aragrúa og strengjasveitinni Aminu, auk ótal fleiri sem telja bæði stelpur og stráka. Jafnframt má sjá sjóaðar sólósöng­ konur eins og Eivöru og Emilíönu og LayLow dúetterar við Helga í Benny Crespo‘s Gang. Poppfræðingurinn Dr. Gunni lýsti því þannig í rokksögu sinni fyrir rúm­ um áratug: „Bráðnauðsynlegt braut­ ryðjandastarf Grýlanna skilaði þó nokkrum árangri … Á Íslandi eru þó kvennabönd ennþá jafnsjaldséð og svartir svanir.“ Eitthvað hefur ræst úr síðan það var ritað, en mun seint vera nóg. n Rokkstelpur rúla! n Íslensk kvennabönd ennþá jafnsjaldséð og svartir svanir Lítil tiltrú „Fólk hefur litla trú á þessu uppátæki, ekki aðeins sé pönkið dautt heldur sé það að vera í hljómsveit fyrst og fremst fyrir stráka.“ Mynd MeMfiS fiLM/P-A JörgenSen Kvikmyndir Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com grýlurnar „Hvað er svona merkilegt við það að vera karlmaður? Hvað er svona merkilegt við það að bor’ í vegg?“ Ragga stofnaði hljómsveitina Grýlurnar með þrem konum sem varla kunnu að spila á hljóð­ færin í fyrstu en sóttist námið hratt. Patti Smith Alveg frá því Patti Smith birtist framan á umslagi fyrstu plötu sinnar með bindi og ögrandi augnaráð var ljóst að pönkið hafði önnur viðhorf. „Ef einhver reyndi að tala við mann þá barði maður hann bara Minning Þorvalds Þorsteinssonar heiðruð Þann 10. nóvember mun Arnar Jónsson frumsýna einleikinn Sveinsstykki eftir Þorvald Þorsteins­ son á stóra sviði Þjóðleikhússins. Verkið er sett upp á þeim tímamót­ um sem Arnar kveður Þjóðleikhús­ ið eftir langan og farsælan feril við húsið en Arnar varð nýlega sjötugur. Með sýningunni vill Þjóðleikhús­ ið einnig heiðra minningu Þorvalds Þorsteinssonar sem lést á árinu, langt fyrir aldur fram. Sveinsstykki fjallar um reglu­ manninn, íslenskumanninn og lager starfsmanninn Svein Kristins­ son sem á bæði stórafmæli og starfsafmæli og fagnar þessum tímamótum með því að bjóða til veislu. Hann er að halda upp á það að hafa alla sína ævi aldrei gert ann­ að en það sem rétt getur talist. En fyrst allt lítur svona vel út, hvernig stendur þá á því að líf þessa blíða, greinda og framsýna manns er rjúk­ andi rúst? Leikstjóri verksins er Þórhildur Þorleifsdóttir sem tekst hér á við þá áskorun að leikstýra eiginmanni sínum á kveðjusýningu hans í Þjóðleikhúsinu. Miðborgarvaka á Airwaves Kátir og gestrisnir miðborgar­ kaupmenn fagna á fimmta þús­ und erlendum Airwaves­gestum með viðeigandi hætti föstudags­ kvöldið 1. nóvember. Þá verður efnt til sérstakrar Miðborgarvöku þar sem fjölbreytilegir viðburðir og tilboð verða á boðstólum og verður útfærsla þessa jafn fjöl­ breytileg og rekstraraaðilarnir eru margir. Tónlistaruppákomur verða nánast á hverju horni alla helgina, þar á meðal off­venue viðburðir og sérstakir barnvænir Airwaves­viðburðir. Sumar verslanir bjóða upp á veitingar, aðrar upp á tónlist og sértilboð eru á vörum allt frá 10% að 50%

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.