Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2014, Blaðsíða 4
Helgarblað 3.–6. janúar 20144 Fréttir
Sækja trén
Starfsmenn hjá Seltjarnarnes-
bæ munu hirða jólatré sem lögð
verða út fyrir lóðamörk dagana
6. og 7. janúar, íbúum að kostn-
aðarlausu. Forsvarsmenn bæj-
arins vilja benda þeim sem vilja
nýta sér þessa þjónustu á að koma
jólatrjánum fyrir á áberandi stað
við lóðarmörk og ganga þannig frá
þeim að sem minnstar líkur séu á
að þau fjúki.
Litlu mátti
muna í bruna
Það munaði litlu að stórbruni yrði
á Selfossi á fimmtudagsmorgun
þegar eldur læsti sig í gamla
kennslustofu. Húsnæðið, sem
er færanleg kennslustofa, stóð á
lóð byggingarfyrirtækis í iðnað-
arhverfi. Eldsupptök voru í stof-
unni, en nálægt henni stóð svo
vörubíll. Ef eldur hefði borist í bíl-
inn hefði geta farið mun verr, enda
hefði þá myndast talsverð sprengi-
hætta. Með snarræði tókst að færa
bílinn áður en verr fór. Vel gekk að
ráða niðurlögum eldsins, en allt
tiltækt slökkvilið var kallað út.
„Hvernig var farið að
þessu er bara lélegt“
n Stálskip segir upp fjörutíu sjómönnum n Útgerðin líklega seld
Ö
llum fjörutíu sjómönnum á
togaranum Þór HF-4 var sagt
upp 17. desember síðast-
liðinn. Frystitogarinn er eina
skip útgerðarinnar Stálskipa
sem hefur gert út frá Hafnar firði.
Líklegast þykir að uppsagnirnar sé
liður í söluferli útgerðarinnar en vit-
að er til þess að önnur útgerðarfyrir-
tæki hafi skoðað kaup á Stálskipum.
Sjómenn útgerðarinnar eru mjög
ósáttir við hvernig staðið var að
uppsögnunum.
„ Það hefur enginn
neitt álit á þessu fólki“
„Hvernig var farið að þessu er bara
lélegt,“ segir einn sjómaður á Þór
sem var sagt upp störfum. Hann
vildi ekki koma fram undir nafni þar
sem hann þyrfti nú að leita sér að
nýrri vinnu. „Það var ekkert búið að
láta þá sem voru í fríi í þessum túr
vita af því að það væri verið að hætta
þannig að þeir gætu leitað sér að
nýrri vinnu. Skipstjórinn fékk að vita
þetta deginum áður en við komum í
land. Mjög illa að þessu staðið. Það
hefur enginn neitt álit á þessu fólki
um borð,“ segir sjómaðurinn.
Segir að logið
hafi verið að sjómönnum
Einn sjómannanna gagnrýnir eina
helst að þeim hafi ekki verið gefin
meiri fyrirvari eða gefin vísbending
um að þeim yrði sagt upp. „Einu
sögurnar sem við fengum um borð
voru bara kjaftasögur, það eru þær
sögur sem við lifðum á. Það var alltaf
talað um það að það yrði haldið
áfram en það var bara lygi. Menn
hefðu getað leitað að nýrri vinnu en
það var alltaf sagt að það yrði haldið
áfram,“ segir hann. Sjómaðurinn
segir að það hafi verið beinlínis log-
ið að sjómönnum skipsins. Hann
segir að haft hafi verið samband við
einn þeirra og honum sagt að leita
sér ekki að nýrri vinnu. „Hann var
beðinn um að leita sér ekki að nýrri
vinnu því það ætti að halda áfram,“
segir sjómaðurinn.
Spurningarmerki
við lögmæti uppsagnanna
Sjómaður á Þór velti fyrir sér hvort
uppsagnirnar hafi verið með öllu
löglegar. „Okkur var sagt upp í haust
og höfðum við þrjá mánuði í upp-
sagnarfrest. Við skrifuðum bara
undir einn túr í einu. Þau geta gert
það sem þau vilja þar sem við erum
bara ráðnir í einn túr í einu. Þetta
virðist bara vera löglegt að ráða
menn bara einn túr í einu,“ segir
hann. Í samningum er þó kveðið á
um það að ef farið er í fleiri en þrjá
túra þá sé viðkomandi fastráðinn.
Flestir þeirra sem voru reknir nú
höfðu farið í fleiri en þrjá túra frá því
þeim var sagt upp á sínum tíma.
Líklegast að
útgerðin verði seld
Eins og fyrr segir hefur öllum sjó-
mönnum á frystitogaranum Þór
HF-4 verið sagt upp og vekur það
upp spurningar um framtíð út-
gerðarinnar. Frystitogarinn er eina
skip útgerðarinnar sem hefur verið
með þeim allra arðbærustu á Ís-
landi. Síðastliðinn október greindi
DV frá því að útgerðin hefði verið til
sölu og að nokkrir aðilar hefðu íhug-
að kaup á fyrirtækinu. Ágúst Sig-
urðsson, annar eiganda Stálskipa,
sagði í október að útgerðin væri
ekki til sölu. „Við erum ekkert að
fara að hætta,“ sagði Ágúst þá. Ætla
má að lítið verið gert út án áhafn-
ar og því óvíst hvað taki við á nýju
ári fyrir fyrir tækið. Sjómaður á Þór
HF-4 segir í samtali við DV að líkleg-
ast sé að útgerðin verði seld. „Hvort
það sé ekki bara verið að leggja skip-
inu og bíða eftir frekari aflaheimild-
um þannig að hægt sé að græða sem
mest á því að selja þetta,“ segir sjó-
maðurinn sem baðst undan því að
koma fram undir nafni. Eigendur
útgerðarinnar vildu ekki tjá sig um
málið þegar eftir því var leitað. n
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is „Það hefur
enginn neitt
álit á þessu fólki
um borð – sjómaður á Þór HF-4
Stálfrúin Guðrún Lárusdóttir hefur átt og rekið Stálskip ásamt eiginmanni sínum, Ágústi Sigurðssyni, í fjörutíu ár. Hún sagði í desember
það vera dellu að útgerðin yrði seld. Mynd ViðSkiptabLaðið„Hvort það sé ekki
bara verið að
leggja skipinu og bíða
eftir frekari aflaheimild-
um þannig að hægt sé að
græða sem mest á því að
selja þetta,
Viltu verða
útvarpsstjóri?
Þeir sem hafa hug á að sækja um
útvarpsstjórastöðuna geta andað
rólega þar sem umsóknarfrestur
til að sækja um hana hefur verið
framlengdur frá 6. janúar til 12.
janúar. Þetta
mun vera
gert að tillögu
Capacent sem
hefur um-
sjón með um-
sóknarferlinu.
Nöfn umsækj-
enda verða birt
eftir 12. janú-
ar, en þangað
til er engar upplýsingar að fá um
fjölda umsókna. Búist er við því
að ferlinu verði lokið í janúarlok
og að þá liggi ákvörðun stjórn-
ar RÚV fyrir varðandi það hver
næsti útvarpsstjóri er.
páll Magnússon
„Fólki með vinnu“ fjölgar
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir húsnæðisskorts gæta
Í
búðalánasjóður hefur nýlega
verið gagnrýndur harðlega bæði
af bæjarstjóra á Akranesi sem
og bæjaryfirvöldum á Selfossi.
Gagnrýnin snýst um að fjöldi íbúða
í eigu Íbúðalánasjóðs standa auð-
ar meðan húsnæðisskortur er til-
finnanlegur í bæjarfélögunum. Árni
Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanes-
bæ, er ekki eins gagnrýnin á Íbúða-
lánasjóð í samtali við DV en segir
þó íbúðarhúsnæði vera af skornum
skammti. „Í okkar bæjarfélagi hefur
verið fjölgun íbúa frá hruni, svo
augljóst er að fólk finnur sér enn
húsnæði. Margt af þessu fólki er að
færa sig nær störfum við flugvöllinn
því við sjáum tekjustofna bæjar-
ins fremur styrkjast en veikjast við
þessa fjölgun. Þetta er sem sagt fólk
með vinnu,“ segir Árni. Hann telur
þó að ætla mætti að þessi fjölgun
hefði orðið meiri og endurreisnin
hraðari ef tilbúið húsnæði fengist
leigt eða selt. Hann segir skorts gæta
sérstaklega í eldri bæjar kjörnum.
„Frá miðju ári 2012 hefur Íbúða-
lánasjóður auglýst um hundrað og
fjörutíu íbúðir. Þá eru ekki tald-
ar með þær tæplega tvö hund-
ruð íbúðir sem Íbúðalánasjóður
hefur leigt gerðarþolum eða íbú-
um við uppboð. Þetta eru þó varla
allar leiguhæfar eignir Íbúðalána-
sjóðs en kann þó að láta nærri. Um
hundrað og fimmtíu eignir sjóðs-
ins á Suðurnesjum eru á söluskrá
og mér sagt að um hundrað eignum
verði bætt við á allra næstu vikum,“
segir Árni. n
hjalmar@dv.is
Í framboði Árni Sigfússon, bæjarstjóri
í Reykjanesbæ, tilkynnti á Facebook á
fimmtudaginn að hann myndi bjóða sig
fram til bæjarstjórnarkosninga í ár. Hann
hefur nú verði bæjarstjóri í þrjú kjörtímabil.