Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2014, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2014, Blaðsíða 2
Helgarblað 14.–17. mars 20142 Fréttir Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni og Celsus, Ægisíðu 121 Algjört orku- og næringarskot „ Með því að taka Lifestream Spirulina og AstaZan eykst krafturinn yr daginn í vinnunni og ængar seinni part dags eru ekkert mál. Vöðvarnir eru jótari að ná sér eftir ængar. Það að taka auka Spirulina sem er lífrænt ölvítamín, fyrir leik er algjört orku- og næringarskot. Spirulina er líka frábær vörn gegn kve og ensum.“ Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir leikskólakennari og landsliðskona í íshokkí. lífræn bætiefni fyrir alla - heilsa til framtíðar TREYSTI Á LIFESTREAM BÆTIEFNIN! Apótek, heilsubúðir, Krónan, Hagkaup, Viðir og Fríhöfnin. Illugi svarar ekki Mörgum spurningum er ósvarað varðandi ráðningu Hrafnhildar Ástu til LÍN I llugi Gunnarsson menntamála­ ráðherra hefur ekki haft sam­ band við blaðamann DV þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hans til að ná tali af ráðherranum í vikunni. Allt frá því á mánudaginn hefur DV reynt að ná sambandi við Illuga til að spyrja hann út í ráðninguna á Hrafnhildi Ástu Þorvaldsdóttur í starf framkvæmdastjóra LÍN en hann hefur ekki svarað beiðnum um að hringja til baka. Samskiptin hafa átt sér stað í gegnum aðstoðar­ mann hans, Sigríði Hallgríms­ dóttur. Ráðningin á Hrafnhildi Ástu komst í nýtt samhengi eftir starfs­ lok Stefáns Thors, ráðuneytis­ stjóra í umhverfisráðuneytinu, fyrir skömmu. Stefán Thors var sá sem veitti Hrafnhildi Ástu áminninguna sem Sigurður Ingi Jóhannsson ógilti svo skömmu áður en Illugi Gunnarsson réð hana sem fram­ kvæmdastjóra LÍN í lok október síðastliðinn þrátt fyrir að hún hafi ekki verið metin hæfust af stjórn LÍN. Líkt og DV greindi frá í vikunni hyggst sá umsækjandi sem metinn var hæfastur, Kristín Egilsdóttir, leita réttar síns út af málinu með höfðun dómsmáls. Ein helsta spurningin sem Illugi þarf að svara er hvenær hann fékk tilkynningu um að búið væri að afturkalla áminninguna og af hverju dróst að ráða í starfið í nærri mánuð. Ráðherrann hefur hins vegar ekki enn haft samband við DV. n ingi@dv.is Dómarinn vann að máli systur sinnar Ólafur Börkur Þorvaldsson er bróðir Hrafnhildar Ástu í umhverfisráðuneytinu Ó lafur Börkur Þorvaldsson hæstaréttardómari kom að því fyrir hönd systur sinnar, Hrafnhildar Ástu Þorvalds­ dóttur, að miðla málum í kjöl­ far áminningar sem hún fékk í starfi sínu í umhverfisráðuneytinu. Þetta herma heimildir DV en blaðið hefur fjallað um ráðningu Hrafnhildar Ástu í starf framkvæmdastjóra Lánasjóðs íslenskra námsmanna síðustu daga. Aðkoma Ólafs Barkar var í gegnum umhverfisráðherra, Sigurð Inga Jó­ hannsson. Vefmiðilinn Kjarninn greindi frá aðkomu Ólafs Barkar að málinu á fimmtudaginn en sagði ekki í hverju hún hefði falist nákvæmlega. Áminningin var veitt í fyrra eftir að rannsókn hafði farið fram vegna kvartana sem beindust gegn henni frá starfsmanni ráðuneytisins. Afturkalla þurfti áminninguna til að Hrafnhildur Ásta gæti fengið starfið og var það gert og réð Illugi Gunnarsson mennta­ málaráðherra hana þrátt fyrir að hún hefði ekki verið metin hæfust af stjórn LÍN heldur önnur kona, Kristín Egils­ dóttir. Talin hafa brotið gegn áminningu Hrafnhildur Ásta fékk áminninguna á fyrri hluta árs í fyrra eftir að fram hafði farið rannsókn í ráðuneytinu á sam­ starfsörðugleikum Hrafnhildar Ástu. Stefán Thors ráðuneytisstjóri veitti Hrafnhildi áminninguna. Eftir að hún fékk áminninguna kom upp tilfelli þar sem talið var að hún hefði brotið gegn henni og kom upp sá möguleiki að henni yrði vikið úr starfi. Af því varð þó ekki. Ólafur Börkur fundaði með Sigurði Inga Jóhannssyni vegna þessa máls í ráðuneytinu og hefur sést til hans þar. Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrver­ andi hæstaréttardómari, kom einnig að því fyrir hönd Hrafnhildar Ástu að reyna að fá áminninguna fellda nið­ ur. Talsverður þrýstingur var settur á Stefán Thors, fyrrverandi ráðuneytis­ stjóra, um að afturkalla áminninguna og fundaði hann meðal annars með Hrafnhildi Ástu og Jóni Steinari vegna málsins. Stefán gerði það þó ekki en Sigurður Ingi gerði það á endanum. Meðal þess sem Ólafur Börkur mun hafa komið að fyrir Hrafnhildi Ástu er umræða um hugsanlega bóta­ kröfu hennar gegn íslenska ríkinu vegna áminningarinnar. Líkt og DV greindi frá á þriðjudaginn þá sagði Hrafnhildur frá því í bréfi til ráðgjafa­ fyrirtækisins sem sá um ráðninguna í framkvæmdastjórastarf LÍN að ráð­ herra hefði tjáð henni að hún gæti átt bótaskyldu á hendur íslenska rík­ inu út af áminningunni. „Á fundin­ um tók ráðherra fram að hann búist við bótakröfu frá mér vegna þessar­ ar málsmeðferðar,“ sagði Hrafnhildur Ásta í bréfinu. Skýrar reglur gilda Skýrar reglur gilda um störf hæstarétt­ ardómara utan vinnu sinnar í réttin­ um og þurfa þeir að sækja um sérstakt leyfi til að fá að taka að sér önnur störf. DV beindi fyrirspurn til skrifstofu Hæstaréttar Íslands, án þess að nefna Ólaf Börk Þorvaldsson sérstaklega á nafn, um hversu algengt það væri að dómarar við réttinn ynnu önnur störf utan réttarins. Svarið er á þá leið að slíkt sé ekki algengt. Aðallega mun vera um það að ræða að þeir taki að sér störf sem prófdómarar, haldi jafn­ vel fyrirlestra auk þess sem einn dóm­ ari sé dósent í lögum við háskóla. Samkvæmt lögum um dómstóla mega dómarar ekki taka að sér önnur störf nema með leyfi sérstakrar nefnd­ ar sem gefur leyfi eða synjar umsókn­ um frá þeim eftir atvikum. Orðrétt segir í lögunum: „Dómara er óheim­ ilt að taka að sér starf eða eiga hlut í félagi eða atvinnufyrirtæki ef slíkt fær ekki samrýmst stöðu hans eða leiðir af sér hættu á að hann geti ekki sinnt embættisstarfi sínu sem skyldi. Nefnd um dómarastörf setur almennar reglur um hvers konar aukastörf geti samrýmst embættisstörfum dómara. Dómari skal tilkynna nefndinni um aukastarf áður en hann tekur við því. Sé ekki getið um heimild til að gegna starfinu í almennum reglum nefndar­ innar skal dómari þó fyrir fram leita leyfis hennar til þess.“ Samkvæmt þeim upplýsingum sem DV hefur aflað sér er líklegt að störf dómara fyrir ættingja eða vini heyri undir þessa tilteknu grein í lög­ um. DV hafði samband við Hæstarétt og skildi eftir skilaboð til Ólafs Bark­ ar og bað hann að hafa samband við blaðið. Þegar DV fór í prentun hafði hann ekki enn sett sig í samband. n „Á fundinum tók ráðherra fram að hann búist við bótakröfu frá mér. Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Fundaði í ráðuneytinu Ólafur Börkur hefur fundað í umhverfisráðuneytinu vegna málsins. Ráðin til LÍN Illugi Gunnarsson skipaði Hrafnhildi Ástu í starf framkvæmdastjóra LÍN í október í fyrra. Þrýstingur Nokkur þrýstingur var á ráðuneyti Sigurðar Inga vegna áminningarinnar og hafa þeir Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson meðal annars komið að málinu fyrir hönd Hrafnhildar Ástu. „Þú verður rotaður“ Héraðsdómur Reykjavíkur hef­ ur dæmt konu í 30 daga skilorðs­ bundið fangelsi fyrir hótanir í garð einstaklings sem bjó fyrir ofan hana í húsi á höfuðborgar­ svæðinu. Var konan meðal annars ákærð fyrir að hóta að drepa viðkomandi. Einnig fyrir að segja: „Þú verður rotaður ein­ hvern daginn af mínu fólki“. Fólkið hafði átt í deilum um nokkurt skeið og hafði sá sem hótanirnar beindust gegn fengið nálgunarbann á konuna. Konan játaði að hafa látið umrædd um­ mæli falla, en ekki beint þeim gegn manninum. Svarar ekki Illugi Gunnarsson mennta- málaráðherra hefur ekki gefið færi á viðtali vegna ráðningar Hrafnhildar Ástu Þorvalds- dóttur til LÍN. MyNd SIgTRygguR ARI Vill skýrari svör frá Sigmundi Brynhildur Pétursdóttir, þingmað­ ur Bjartrar framtíðar, vill fá frek­ ari og skýrari svör frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráð­ herra vegna umdeildra styrkja sem hann veitti nýverið. Hún hefur lagt fram nýja fyrirspurn á þingi eftir að hafa áður fengið svar frá Sigmundi Davíð vegna styrkjanna. „Ráðherra svaraði þeirri fyrirspurn ekki fyllilega í öll­ um atriðum. Á það sérstak­ lega við um 3. og 4. tölul. þar sem spurt var um verklagsreglur ráðuneytisins, hvort styrkir hefðu í öllum tilfellum byggst á skriflegum umsóknum og hvernig ráðuneytið tryggði að jafn­ ræðis væri gætt,“ segir Brynhildur í greinargerð með fyrirspurninni. Hún vill vita hvort skriflegar verk­ lagsreglur hafi verið í gildi í ráðu­ neytinu þegar styrkjum til menn­ ingarminja var úthlutað. Þá vill hún líka vita hvort að styrkirnir hafi verið auglýstir og þá hvar auk þess hvernig jafnræðisreglur voru virtar. Í fyrra svari Sigmundar kom í ljós að meirihluti styrkjanna hafi farið í hans eigið kjördæmi. Brynhildur vill líka skýrari svör um hvaða gögn og umsóknir forsætisráð­ herra studdist við. „Byggðust styrk­ veitingar í einhverjum tilfellum á gömlum umsóknum? Var styrkur í einhverjum tilfellum veittur á grundvelli gagna sem ráðuneytið óskaði eftir að eigin frumkvæði þar sem umsókn lá ekki fyrir?“ spyr hún. Brynhildur Pétursd.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.