Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2014, Blaðsíða 72

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2014, Blaðsíða 72
Helgarblað 14.–17. mars 2014 21. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 Sigmundur tjaldar ekki til einnar nætur! Líst ekki á Bitcoin n Alþingismaðurinn og við- skiptafræðingurinn Frosti Sig- urjónsson varar við notkun á rafmyntinni Bitcoin á bloggi sínu. Honum virðist vera mik- ið í nöp við rafmyntina og hefur hann meðal annars sagt krón- una glíma við mikil vandamál en „fátt er svo vont að það geti ekki versnað til muna“ og á þá við notkun Bitcoin. Nú ásakar hann Seðlabanka Íslands um að sofa á verðinum vegna þess að bankinn hefur ekki varað Ís- lendinga við notkun rafmynt- arinnar. Segir hann að tölvu- þrjótum hafi tekist að stela innstæðum og að glæpamenn sæki í „sýndargjaldmiðla“. Tjaldaði ekki með Jóhönnu n Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra Íslands, varð þrjá- tíu og níu ára á miðvikudaginn. Hann þakkaði innilega fyrir all- ar afmæliskveðjur á Facebook- síðu sinni og sagðist ætla að njóta seinasta ársins fyrir fertugt. Hann notaði tækifærið til að snúa sögu- sögnum, um að hann hafi fundað með Davíð Oddssyni, á haus. „Af gefnu tilefni er hins vegar rétt að taka fram að sögusagnir um að ég hafi dvalið næturlangt í tjaldúti- legu á Þingvöllum með Jóhönnu Sigurðardóttur og drukkið með henni uppáhalds koníakið hans Össurar eiga ekki við rök að styðjast,“ skrif- aði Sigmund- ur Davíð. Spurningin um aðild að Evrópusambandinu er stærri og mikilvægari en svo að einstakir stjórnmálaflokkar eða ríkisstjórnir eigi að ráða svarinu. Alþingi ber að sýna þjóðinni þá virðingu að leggja framhald aðildarviðræðna Íslands og Evrópusambandsins í dóm allra Íslendinga. Þess vegna er hafin undirskriftasöfnun á vefnum Þjóð.is þar sem skorað er á Alþingi að leita þjóðarviljans. Alþingismenn starfa í umboði okkar. Látum þá vita hvað við viljum og skrifum undir. www.þjóð.is SAMST ÖÐUFUN DUR 3 Fjölmen num á A usturvö ll kl. 15 -16 laugard aginn 1 5. mars Ætlar að ná titlinum heim Hafþór Júlíus Björnsson keppir um titilinn Sterkasti maður heims É g er mjög sigurstranglegur, það segja þeir margir úti. Þurf- um við ekki að ná titlinum aft- ur heim?“ spyr kraftajötunninn Hafþór Júlíus Björnsson í samtali við DV. Hann keppir um titilinn Sterk- asti maður heims næstkomandi helgi. Keppnin er haldin í Los Angel- es og stendur yfir í alls tíu daga. Haf- þór Júlíus segist vera gríðarlega vel stemmdur fyrir keppninni en hann hefur verið í þriðja sæti síðastliðin tvö ár. Hann hefur alls keppt fjórum sinnum í keppninni. Hafþór Júlíus er aðeins tuttugu og fimm ára og hefur undangengin ár verið yngsti þátttak- andinn. „Sá sem vann í fyrra er þrjá- tíu og þriggja ára og sá sem hefur verið vinna þetta á undan honum er þrjátíu og átta ára. Þessir menn eru töluvert eldri,“ segir Hafþór Júlíus. Hann er nýkominn heim frá Ástralíu þar sem hann keppti á móti sem heitir FitX Expo. Þar atti hann kappi við ellefu aflrauna- menn og rúllaði þeim upp og vann. Hafþór Júlíus segir líkur sínar á sigri í Sterkasti maður heims vera sér- lega góðar í ár þar sem þær grein- ar sem keppt er í í úrslitum henti honum vel. „Þetta er allt svolítið óljóst, en það er búið að segja okk- ur svona hér um það bil í hverju verður keppt. Ég myndi segja að fimm af sex greinum sem verða þarna séu mjög góðar fyrir mig. Þetta eru sennilega bestu greinar fyrir mig síðan ég byrjaði að keppa. Þetta eru greinar sem ég hef verið að vinna síðastliðin ár,“ segir Haf- þór Júlíus. n hjalmar@dv.is Sigurstranglegur Hafþór Júlíus Björns- son tekur þátt í keppninni Sterkasti maður heims í fjórða skipti. MynD www.StronGMancl.coM „Vanvirkt“ barn n Alþingismaðurinn Brynj- ar níelsson sagði frá æsku sinni í viðtali við RadioStam, netvarp sem beinir athygli að stömurum. „Þetta var átaka- lítil æska. Ég var yngstur minna systkina, þú getur rétt ímynd- að þér við hvað mikið ofbeldi ég bjó í æsku. Þetta gekk þó snurðulaust fyrir sig. Síð- an gekk þetta fyrir eins og hjá flestum; menntaskóli, háskóli, gifti mig og fór svo að vinna,“ sagði Brynjar. Hann neitaði því að hafa ver- ið prakkari sem barn og sagði sig hafa verið „það sem kallað er vanvirkur.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.