Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2014, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2014, Blaðsíða 21
Helgarblað 14.–17. mars 2014 Skrýtið 21 n 2.900 þorp standa tóm n Sum fást gefins gegn ákveðnum skilyrðum Þetta vissir þú ekki um Rússland n Sautján ótrúlegar staðreyndir um land Pútíns n Seldu Alaska árið 1868 Helmingur auðgaðs úrans Rússar eiga 695 tonn af auðguðu úrani, meira en nokkurt annað ríki. Raunar eiga þeir helm- ing alls auðgaðs úrans í heiminum. Bandaríkjamenn eru næstir og eiga 604 tonn. Heimild: International Panel on Fissile Materials Mynd ReuteRs Miklar olíulindir Í Rússlandi eru gríðarmiklar olíuauðlindir. Áætlað er að þar sé olía sem fylla myndi 87 milljarða olíutunna. Rússar nota 3,2 milljónir tunna á dag svo auðlindirnar sem eru notaðar eru taldar duga í 75 ár í viðbót – haldist notkunin óbreytt. Heimild: British Petroleum Þúsund milljarða vegspotti Vegurinn á milli Adler og Krasnaya Polyana, sem byggður var í aðdraganda Ólympíuleikanna, var dýrasta mannvirkið sem reist var fyrir leikana. Vegurinn, 48 kílómetrar að lengd, kostaði 966 milljarða króna. Ódýrara hefði verið að þekja svæðið sem vegurinn tók með gæsalifur (kílóið á tæplega 9.900 krónur). Ekki spyrja hvers vegna. Heimild: Esquire Mynd ReuteRs Á stærð við Plútó Yfirborðsflatarmál Rússlands er ámóta og yfirborðsflatarmál plánetunnar Plútó. Rúss- land er 17 milljónir ferkílómetrar á stærð. Heimild: Universe Today Rússum fækkar Rússar voru 141,9 milljónir árið 2010. Gert er ráð fyrir að þeim muni fækka niður í 126,6 milljónir fyrir árið 2050. Þeim hefur fækkað um 6,6 milljónir síðan 1983 – eða um fleiri en sem nemur öllum íbúum Danmerkur. Heim- ild: Bloomberg Businessweek Mynd ReuteRs 13,2 milljarðar sundlauga Jarðgas sem fyrirfinnst í rússneskri jörðu myndi að rúmmáli fylla 13,2 milljarða af ólympíusundlaugum. Aðeins Íran á meira gas. Heimild: British Petroleum Mynd ReuteRs Flykkjast í lestir Níu milljónir Rússa nota neðanjarðarlestina í Moskvu dag hvern. Það er meira en í London og New York samanlagt. Park Pobedy-stöðin er heilum 85 metrum undir yfirborði jarðar. Fjölmennasta stöðin er hins vegar Vykhino. Heimild: Reuters Þamba te Rússar eru miklir tedrykkjumenn. Árlega drekkur hver Rússi að jafnaði te úr einu og hálfu kílói. Það er þrefalt meira en Banda- ríkjamenn gera, svo dæmi sé tekið. Heimild: Euromonitor Mynd ReuteRs Ógnarstórt vatn Baikal-vatnið í Rússlandi er gríðarstórt og djúpt. Vatnið geymir hvorki meira né minna en fimmtung alls ferskvatns jarðarinnar. Heimild: Chicago Tribune. Mynd ReuteRs Blaðamenn drepnir Fimmtíu og sex blaðamenn hafa verið drepnir í Rússlandi frá árinu 1992 þar sem fyrir liggur hvað bjó að baki. Grunur leikur á um að 24 til viðbótar hafi verið myrtir. Rússland er fimmta hættulegasta land í heimi fyrir blaðamenn. Mynd ReuteRs Seldu Alaska Rússland seldi Bandaríkjamönnum Alaska fyrir rúmlega 800 milljónir króna 1868. Landið er 2.428 ferkílómetrar að stærð. Bandaríkjamenn borguðu 329 þúsund krónur fyrir hvern ferkílómetra. Auðmenn Rússlands 20 ríkustu Rússarnir eiga svo mikla peninga að samanlagðar eignir þeirra nema hærri upphæð en verg þjóðar- framleiðsla Pakistan. Rússarnir 20 eiga 25 þúsund milljarða. Heimild: Bloomberg Hættulegt stöðuvatn Geislun við strendur vatnsins Karachay er slík að ólíklegt er að óvarin manneskja myndi lifa það af að standa þar. Techa-áin, sem sér nálægum þorpum fyrir vatni var svo menguð að þar glímdu 65 prósent íbúa þjást af veikindum af völdum geislavirkni. Læknar töluðu um „special disease“ fram til ársins 1990, því ekki mátti nefna að um geislun á vatnasvæðinu væri að ræða. Heimild: Grist Drekka stíft Rússar drekka að jafnaði 6,3 einingar af áfengi vikulega, samanborið við 3,3 einingar hjá Bandaríkjamönnum. Suður- Kóreumenn eru manna blautastir. Þeir drekka 13,7 einingar af áfengi vikulega. Sjálfsvíg algeng 9,7 Rússar á hverja 100 þúsund fyrirfara sér árlega. Hlutfallið er 4,7 í Bandaríkjunum. Í fyrra frömdu 13.826 Rússar sjálfsvíg. Heimild: UNODC Níu tímabelti Rússland nær svo langt frá austri til vesturs (og reyndar öfugt) að þar eru níu tímabelti. Þau voru reyndar 11 þar til árið 2010, þegar þeim var fækkað. Það var meðal annars gert til að einfalda tímaáætlanir í samgöngum. Heimild: The Economist Lagnir á lagnir ofan Leiðslukerfið í Rússlandi er svo umfangsmikið að það gæti náð sex sinnum hringinn í kringum hnöttinn. Í þeim er flutt eldsneyti, gas og vatn. Leiðslurnar eru 259.913 kílómetrar að lengd. Ummál jarðarinnar er um 40 þúsund kílómetr- ar. Heimild: The World Fact Book Mynd ReuteRs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.