Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2014, Qupperneq 22
Helgarblað 14.–17. mars 201422 Neytendur
Lánsveðsvaxta-
bætur koma
eftir helgi
Ákvörðunar ríkisskattstjóra um
sérstakar lánsveðsvaxtabætur
er að vænta í síðasta lagi mánu-
daginn 17. mars en sækja þurfti
um þær til ríkisskattstjóra fyrir 15.
september síðastliðinn.
„Það voru 1.022 manns
sem sóttu um bæturnar og
langstærstur hluti þess hóps á rétt
á þeim,“ segir Skúli Eggert Þórðar-
son ríkisskattstjóri. Hann segir
enn verið að ganga frá útreikning-
um og öðru.
Í reglum um útreikninga á
lánsveðsvaxtabótum segir: „Láns-
veðsvaxtabætur skulu nema 2% af
mismun á eftirstöðvum allra fast-
eignaveðlána 31. desember 2010
og 110% af fasteignamati þeirrar
fasteignar sem lánið var tekið til
kaupa eða byggingar á miðað við
sömu dagsetningu. […]
Lánsveðsvaxtabætur mega
ekki vera hærri en 160 þús. kr. hjá
einstaklingi og 280 þús. kr. hjá
hjónum og sambúðarfólki sam-
kvæmt hjúskaparstöðu 31. desem-
ber 2010.“
Stærri pítsur
ódýrari
Pítsa er vinsælasti skyndibitinn og
góð bæði köld og heit. Þó pítsur
séu verðlagðar eftir stærð borgar
sig oft að kaupa stærri pítsur, sér-
staklega fyrir þá sem eru dug-
legir við að borða afganga. Það
eru margir sem átta sig ekki á því
að 12 tomma pítsa er meira en
tvisvar sinnum stærri en 8 tomm-
ur en kostar yfirleitt lítið meira.
Reiknireglan fyrir flatarmál hrings
er einföld; radíus í öðru veldi
sinnum pí (π; 3,14159) en með
henni má einnig finna út að ein 16
tomma pítsa er jafn stór og fjórar
8 tomma pítsur. Þess vegna borgar
sig alltaf að bera saman stærð og
verð, að því gefnu að fólk kunni
sér hóf í átinu.
Svona sparar þú
salernispappír
Salernispappír er sjaldnast stærsti
útgjaldaliður heimila en mörgum
ofbýður samt hversu mikið fer af
honum. Til að spara má til dæmis
að snúa pappírnum þannig að
lausa blaðið liggi upp að veggnum
en ekki fram, þannig er erfiðara að
taka of mikið. Einnig má kreista
rúlluna áður en hún er sett á
standinn þannig að papparúllan í
miðjunni beyglist. Þannig er kom-
ið í veg fyrir að hægt sé að kippa
fast í endann og láta rúlluna vinda
ofan af sér. Sérstaklega gott ráð þar
sem börn eru á heimilum.
Forsáning kryddjurta
– núna er tíminn
n Hægt að sá fræjum í hvaða ílát sem er n Þú getur sparað þúsundir króna
Þ
ótt forsáning flestra matjurta
byrji ekki fyrr en í apríl
má fara að huga að því að
sá kryddjurtum nú í mars
og margir sá kryddjurtum
tvisvar til þrisvar sinnum frá vori og
fram á haust og ná þannig að borða
heimaræktaðar kryddjurtir stóran
hluta árs. Ferskar kryddjurtir kosta
skildinginn og haldast auk þess ekki
lengi ferskar, komnar upp úr mold-
inni.
Rósakál og púrra
Varðandi grænmeti þarf að sá blað-
lauk og rósakáli núna þar sem rækt-
unartími þeirra er mjög langur og
rósakálið þroskast jafnvel ekki fyrr en
í september. Púrran tekur líka langan
tíma en þar þarf að passa að hreykja
mold að stönglunum þegar þeir fara
að koma upp til að koma í veg fyrir að
stönglarnir grænki eins og efsti hluti
blaðanna. Þessum jurtum er því best
að forsá núna en færa þær út í garð
þegar farið er að vora í maí eða júní.
Krydd
Núna er tilvalið að byrja að sá krydd-
jurtum. Vinsælustu jurtirnar eru
basilíka, kóríander, steinselja og timj-
an. Allar jurtirnar nema basil geta far-
ið út í garð þegar vorar. Mynta er fjöl-
ær þannig að ef henni er komið fyrir
í garðinum að vori má gera ráð fyrir
henni ár eftir ár, en gott er að hafa
hana í afmörkuðu beði því annars á
hún til að dreifa sér um allt. Graslauk-
ur er líka vinsæl matjurt sem er fjöl-
ær og tilvalið að koma honum fyrir á
góðum stað í garðinum.
Góð ílát
Það fyrsta sem huga þarf að við forsán-
ingu eru ílát. Þau geta verið úr hverju
sem er, margir nota einnota plastglös
en hægt er að fá sérstaka sáðpotta sem
brotna niður í garðinum. Sumir nota
rúllur innan úr klósettpappír og eld-
húsrúllum í þessum tilgangi en það
er líklega betra fyrir plöntur sem eru
styttri tíma innandyra.
Þótt það séu engin takmörk fyrir
því hvaða ílát fólk notar og því tilvalið
að nýta gömul bollapör eða jafn-
vel niðursuðudósir er hætta á því að
drekkja plöntunum við vökvun ef
engin göt eru á botninum á pottinum.
Sáning
Best er að nota sáðmold því hefð-
bundin pottamold er of sterk fyrir
ungu ræturnar sem koma út úr fræj-
unum. Það er minni næring í sáð-
moldinni og því hentar hún betur.
Moldina þarf svo að bleyta áður en
fræin eru sett á yfirborð jarðvegsins.
Ef fræin eru mjög stór má setja jarð-
veg yfir þau en ekki þykkara lag en
fræið sjálft er.
Gott er að leggja plast yfir fræin á
meðan þau eru að spíra til að tryggja
jafnara rakastig á þeim. Um leið og
þau spíra er plastið svo tekið af og
þeim komið fyrir á góðum björt-
um stað á meðan plönturnar eru að
þroskast.
Birta og hiti
Það skiptir máli að hafa birtu og hita-
stig nokkuð jafnt. Ef hitinn er hár þarf
líka að vera góð birta. Þegar líða tek-
ur á ræktunina er betra að hafa örlítið
kaldara á plöntunum en hitinn þarf
að vera þokkalegur í byrjun, allavega
fyrstu vikuna.
Notkun áburðar
Eins og áður segir eru rætur ungra
plantna mjög viðkvæmar og þess
vegna þurfa þær gróðursnauðari
mold. Þess vegna er ekki mælt með
því að nota áburð fyrr en plantan
er komin með tvö til þrjú varanleg
blöð. Þegar fræ spírar koma fyrst tvö
kímblöð en það er ekki fyrr en næstu
blöð eru komin sem gefa má væga
blöndu af áburði. n
Heimaræktað
Kryddjurtum má sá núna,
sem og seinsprottnum
matjurtum eins og
rósakáli og blaðlauk.
Auður Alfífa Ketilsdóttir
fifa@dv.is
Kryddjurtir
Sniðugt að frysta
Margar sniðugar leiðir eru til þess að
geyma kryddjurtir ef ekki næst að nota
þær allar í eldamennsku. Til dæmis
er tilvalið að saxa þær niður og setja í
klakabox en hella matarolíu yfir þær
áður en þær eru frystar. Þannig varð-
veitast bragðgæðin mun betur en ef
þær væru frystar án olíunnar.
Pestó
Uppskrift
Basilíka vex oft mjög vel en hún er
einmitt uppistaðan í einu vinsælasta
meðlæti Ítalíu, hvort sem er ofan á
brauð eða með pasta. Ótal uppskriftir
eru til af pestó, hér er ein einföld:
3–4 lúkur fersk basilíka
2–3 hvítlauksgeirar
100 g furuhnetur
150 g parmesanostur
3 dl ólífuolía
salt og pipar
Endurnýting
Sáðpottur
Hægt er að nota næstum því hvaða ílát
sem er undir forsáninguna. Með því að
nota rúllurnar innan úr klósettpappír
í stað þess að kaupa sérstaka bakka
sparast peningar auk þess sem auðvelt
er að planta öllum pottinum út í garð
þegar vorar. Með því að klippa á fjórum
stöðum upp í rúlluna að neðan má
brjóta saman botn.
Ódýrt að rækta
Fyrir fólk sem notar mikið af fersku kryddi getur borgað sig
að sá fyrir því heima eins og meðfylgjandi verðsamanburður sýnir:
Tegund Hagkaup Garðheimar
Basilíka 579 kr. 50 g 225 kr. 700 fræ
Kóríander 579 kr. 50 g 235 kr. 150 fræ
Steinselja 299 kr. 30 g 235 kr. 1.000 fræ
Timjan 279 kr. 50 g 235 kr. 1.000 fræ