Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2014, Síða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2014, Síða 48
Helgarblað 14.–17. mars 201432 Fólk Viðtal Þ orsteinn tekur á móti mér á heimili sínu við Háteigsveg­ inn þar sem hann hefur búið í hartnær tuttugu ár. Hann tekur af mér yfirhöfnina og hengir upp inni í skáp í forstofunni áður en hann býður til stofu þar sem við setjumst hvort í sinn hæginda­ stólinn úr brúnu leðri, líkt og Chester­ field­sófinn. Búið er að leggja á borð og tína til súkkulaðikex og kaffi, en Þorsteinn biðst afsökunar á að hafa ekki nennt að hella upp á og notast við neskaffi í staðinn. Klukkan er rétt rúmlega ellefu þennan þriðjudags­ morgun og hann var að koma af fundi í MP­banka og er klæddur líkt og stjórnarformanni sæmir, í dökkbláar buxur, teinótta skyrtu, með bindi og í ljósum leðurskóm. Fyrir ofan sófann hangir stórt og mikið verk frá endurreisnartímanum á Ítalíu. Verkið var arfur úr fjölskyldu Ingibjargar líkt og listilega útskorinn skenkur í stofunni. Sjálfur situr Þor­ steinn undir verki eftir Erró. Listin er í hávegum höfð á heimili Þorsteins, fyrir utan öll listaverkin og listmunina sem prýða heimilið er listaverkabók­ um staflað upp undir stofuborðinu. Sjálfur dundaði hann sér við að teikna eitt árið í Verslunarskólanum en hafði hvorki hæfileika né áhuga á að halda því áfram. Heimili hans hér á Háteigsveginum er að mörgu leyti ólíkt æskuheimil­ inu á Selfossi. „Á mínu æskuheimili var ekki til bíll, það var ekki til sími, það var ekki til ísskápur. Þegar ég var tíu ára fluttum við svo í blokkarí­ búð í Reykjavík og þá eignuðumst við smám saman hluti eins og ísskáp og síma.“ Þorsteinn á einn bróður en sex ár eru á milli þeirra. Sambandið hefur þó alltaf verið gott og vináttan sterk. „Fyrst og fremst átti ég gott heim­ ili, umhyggjusama foreldra og góðan bróður. Að því leyti er ég alinn upp við einstaklega góðar aðstæður þótt efn­ in hafi ekki verið mikil. Það gat ekki verið betra, en ég held að það sé afar mikilvægt að eiga góða að.“ Feimnin alltaf fylgt honum Sjálfur segist hann hafa verið ósköp venjulegt barn sem las og lék sér eins og krakkar gerðu á þeim tíma. Einu sinni stal hann rabarbara úr garði nágrannans, „en ég var ekki mik­ ið fyrir óknytti,“ segir hann brosandi. Fyrirferðarmikill var hann ekki, þvert á móti, feimnin hefur alltaf fylgt honum. „Ég var afskaplega feiminn og þegar ég kom í Verslunarskóla Íslands var ég mjög lengi að áræða það að taka til máls á málfundum, en vinir mín­ ir ýttu mér út í það. Eftir að ég byrjaði gat ég ekki stoppað. Mér fannst ég eiga ágætlega heima í ræðustól og hefur alltaf liðið vel í ræðustól síðan. En það var mikið átak að byrja,“ segir hann og viðurkennir fúslega að feimnin fylgi honum enn: „Ég hef aldrei losnað við þessa feimni. Þó að blaðamennska og pólitísk störf hafi kallað á að ég ýtti svoleiðis hlutum til hliðar þá blund­ ar þessi feimni alltaf í mér. Ég þarf að takast á við það daglega.“ Eitt var þó óvenjulegt við barnið sem Þorsteinn var – óþrjótandi áhugi hans á pólitík. Áhuginn kviknaði í kringum tólf ára aldurinn og hann kann enga skýringu á því. Pólitík var ekki mikið rædd á heimilinu auk þess sem foreldrar hans höfðu aðra sýn á málin heldur en hann. „Mínar skoð­ anir mynduðust mjög sjálfstætt og á mínum eigin forsendum en ekki af því að þeim var haldið að mér. For­ eldrar mínir voru ekki alls kostar sam­ mála í pólitík og kannski þess vegna sem pólitíkin var ekki mikið rædd á mínu heimili.“ Fjórtán ára skráði hann sig í flokk­ inn, áður en hann hafði aldur til og fór að taka virkan þátt í störfum Heimdallar. „Í yngri bekkjum Versl­ unarskólans labbaði ég stundum niður á þing eftir skóla til að hlusta á umræður. Þetta var eitthvað sem var lifandi í mér. Eftir því sem leið á tók ég virkari þátt í félagsstörfum og eins þegar ég kom í háskólann.“ Þar varð hann formaður Vöku strax á fyrsta ári, formaður Orator, félags lögfræðinema auk þess sem hann sat í stúdentaráði og var fulltrúi stúdenta í háskólaráði. Sár svik Eftir öll þessi ár í flokknum getur hann ekki leynt vonbrigðum sínum með það hvernig forysta flokksins hef­ ur haldið á Evrópumálunum síðustu vikur. „Það eru ekki margir sem geta sett sig í spor formanns Sjálfstæðis­ flokksins. Ég skil mætavel hversu erfitt það er að horfa til margra sjónarmiða. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið stór flokkur þar sem margar ólíkar raddir sameinast um grunngildi flokksins, tekist er á um annað. Þess vegna hef­ ur það skipt máli hvernig ákvarðanir eru teknar innan flokksins. Það getur skipt sköpum þegar sætta á stríð­ andi fylkingar. Það hvernig ákvarð­ anir eru teknar getur skipt meira máli en endanleg niðurstaða. Sjálfstæðis­ flokkurinn hefur verið klofinn vegna afstöðu manna til Evrópusambands­ ins. Fyrir formann Sjálfstæðisflokks­ ins var það því ákjósanleg staða að bera áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið undir þjóðina og fá þannig endanlega lausn í málið. Að undanförnu hefur dregið verulega úr andstöðunni við að­ ild að Evrópusambandinu og nú er svo komið að mikill meirihluti þjóðarinnar vill klára þessar aðildar­ viðræður. Fyrir kosningar lofuðu báðir ríkisstjórnarflokkarnir þjóðar­ atkvæðagreiðslu um framhaldið þótt Sjálfstæðisflokkurinn hafi kveðið fastar að orði. Þetta var ekki aðeins loforð formanns, heldur var þetta lof­ orð flokksins, gefið út í auglýsinga­ bæklingum, sem allir ráðherrar tóku undir. Menn kusu flokkinn út á þetta. Vegna þessara loforða snerust kosn­ ingarnar ekki um afstöðu manna til áframhalds aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Ég gat ekki setið þegjandi þegar hafa átti þessi loforð að engu. Það er ekki hægt að afgreiða svona mál án þess að um það skapist umræða. Það er ekki hægt að hverfa frá lýðræðisleg­ um gildum flokksins án þess að mæta andstöðu. Það er ekki hægt að hunsa þjóðarvilja án þess að skapa gjá á milli þings og þjóðar. Það væri sárt að sjá Sjálfstæðisflokkinn þurfa að gjalda fyrir það.“ Hætt við klofningi Andstaða Þorsteins við þingsálykt­ unartillögu ríkisstjórnarinnar um slit á aðildarviðræðum við Evrópusam­ bandið hefur vakið athygli, ekki síst vegna stöðu hans innan flokksins. En hann er ekki einn. Samkvæmt ný­ legri könnun vilja 82 prósent þjóðar­ innr klára aðildarviðræðurnar, um 50.000 undirskriftir hafa safnast gegn þingsályktunartillögunni og fjölmenn mótmæli hafa farið fram fyrir utan Alþingishúsið. Þá hafa báðir flokk­ ar misst fylgi. Samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup fór fylgi Sjálfstæðisflokksins niður í 19 prósent atkvæða og Fram­ sóknarflokksins í 13 prósent í vikunni eftir að þingsályktunartillagan var lögð fram. Sem þýðir að ríkisstjórnin var komin í verri stöðu en ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur var í þegar Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf­ stæðisflokksins, krafðist afsagnar vegna fylgishruns. „Ríkisstjórnir koma hvorki né fara með skoðanakönnun­ um,“ segir Þorsteinn. „Skoðana­ kannanir eru hins vegar ágætis mæli­ tæki til að sjá hvernig vindarnir blása. Það er ljóst að þessi ríkisstjórn stend­ ur frammi fyrir miklu vanda. Fram að þessu hefur Sjálfstæðis­ flokkurinn haldið sjó á kjörtímabil­ inu á meðan Framsóknarflokkurinn hefur misst fylgi. Nú hafa báðir flokk­ arnir misst fylgi. Sem þýðir að þeir vanmátu þetta mál. Eftir þrjú ár verður gengið aftur til kosninga. Þá kemur í ljós hvernig kjósendur verja atkvæði sínu. Þeir geta vissulega refsað flokkum sem hafa svikið loforð sín. En það getur líka orðið flókið því valið verður að öllu óbreyttu á milli núverandi stórn­ ar eða að endurreisa þá gömlu sem kjósendur höfnuðu í fyrra.“ Rætt er um hættuna á klofningi innan Sjálfstæðisflokksins vegna málsins. Þorsteinn segist ekki standa á bak við nýjan flokk. „Á sínum tíma tók ég ákvörðun um að hætta í stjórn­ málum og stend við þá ákvörðun. Ég ætla mér ekki aftur inn á þann vett­ vang. En það er ómögulegt að segja til um hvað verður. Flokkakerfið er að breytast og fylg­ ið er að færast til. Vandinn er ekki að­ eins á hægri vængnum. Samfylkingin bauð fram í tveimur flokkum í síðustu alþingiskosningum og þar hefur Björt framtíð látið meira til sín taka. Vinstri græn hafa verið að glíma við óeiningu innan flokksins og mikinn vanda. Það er ekki hægt að sjá fyrir hvernig þetta endar. Yfirleitt taka svona breytingar tíu til fimmtán ár.“ Enn möguleiki á sátt Ljóst er að þingsályktunartillagan er borin fram að kröfu mestu harðlínu­ manna í málinu. Þannig sagði Þor­ gerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrr­ verandi varaformaður flokksins, að „harðlífið“ væri að taka yfir og svart­ stakkarnir ættu ekki að eiga meira í flokknum en aðrir félagsmenn. Hvatti hún Bjarna til þess að hlusta á hjart­ að og fylgja sannfæringu sinni. Hafa þessi hvatningarorð hennar vakið upp spurningar um hvort Bjarni sé nógu sterkur leiðtogi til að fylgja eig­ in sannfæringu. „Mér hefir fundist Bjarni vera vaxandi formaður,“ segir Þorsteinn. „Í sjónvarpsviðtalinu sem sneri stöðu hans fyrir kosningar sýndi hann einstaka hæfileika sem stjórn­ málamaður. Þetta var einn stærsti pólitíski sigur seinni tíma. Að sama skapi hefur mér fundist hann sýna festu og ábyrgð sem fjármálaráðherra fram til þessa. Þess vegna voru von­ brigðin meiri og dýpri en ella.“ Hann gefur lítið fyrir rök um póli­ tískan ómöguleika. Af því að afstaða ríkisstjórnarflokkanna hefur ekki breyst frá kosningum. Og eins vegna þess að ríkisstjórn sem er ekki fær um framfylgja vilja þjóðarinnar er ekki fær um að sinna hlutverki sínu. „Ríkis stjórn hefur það í hendi sér hvernig gengið er til þjóðaratkvæða­ greiðslu. Hún getur ákveðið að halda ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem þjóðarvilja er framfylgt í kjöl­ farið. Eða hún getur haldið fráfarandi þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem af­ staða ríkisstjórnarinnar er eindregin og hún fer frá völdum ef niðurstað­ an er á skjön við hana og leyfir öðrum að framfylgja þjóðarviljanum. Hún hefur það í hendi sér hvort hún leggur sjálfa sig undir eða ekki. Það þvingar enginn menn til að segja af sér. Að sama skapi getur ríkisstjórnin tímasett slíkar kosningar eftir hentug­ leika. Hún gæti slegið því á frest fram undir lok kjörtímabilsins. Ég hugsa að flestir myndu sýna því skilning, þó að það væri vissulega verri kostur því þá er verið að sóa dýrmætum tíma. Það myndi hins vegar gera ríkisstjórn­ inni kleift að leggja þetta mál til hlið­ ar um stund og sinna öðrum verk­ um. Um leið væri kjósendum falið að taka afstöðu til framhaldsins í næstu alþingis kosningum. Enn er tækifæri til að ná sátt í mál­ inu. Það verður ekki of seint fyrr en þingsályktunartillagan hefur verið afgreidd. Í versta falli væri hægt að bera þingsályktunartillöguna undir þjóðina þannig að hún tæki ekki gildi nema þjóðin væri samþykk því. En þrátt fyrir þessa mikla andstöðu við málið hefur ríkisstjórnin ekki sýnt vilja til málamiðlana.“ Áhrif forsetans mikil Þorsteinn er á þeirri skoðun að hags­ munum íslensku þjóðarinnar væri best borgið innan Evrópusambands­ ins fáum við góðan samning, annars ekki. „Aðild að Evrópusambandinu væri eðlileg þróun í utanríkismálum Íslands og í takt við stefnuna síð­ ustu sextíu ár. Það væri meiri stefnu­ breyting að slíta aðildarviðræðunum heldur en að ganga í Evrópusam­ bandið. Þar eru þær þjóðir sem við eigum samleið með, ekki bara út frá efnahagslegum forsendum heldur einnig pólitískum og menningarleg­ um forsendum. Fyrir utan það að þetta eru þær þjóðir sem standa vörð um mannréttindi og lýðræði í heim­ inum. Ég verð að viðurkenna að mér brá þegar ég las stjórnarsáttmálann þar sem hvergi er minnst á Evrópusam­ bandið heldur lögð áhersla á að Ís­ lendingar finni sér nýja vini í utanrík­ ismálum. Ég skil ekki á hvaða braut við erum ef við ætlum að fylgja pólitík forsetans og halla okkur að Rússlandi og Kína. Einhverra hluta vegna hef­ ur forsetinn fengið að hafa óeðlilega mikil áhrif á utanríkisstefnu ríkis­ stjórnarinnar. Það er ekki eins og það á að vera. Það er bæði gömul saga og ný að menn veljast til setu í ríkisstjórn án þess að valda því hlutverki. Við stöndum frammi fyrir vanda í efnahagslífinu. Sem stendur er að­ ild að Evrópusambandinu umgjörð sem getur hjálpað okkur að ná tökum á þeim erfiðu úrlausnarefnum. Það er galið að ætla að loka á þennan eina möguleika sem er uppi á borðum. Fyrir mér er þetta eins og að taka lyf. Engin lyf eru án aukaverkana. Það þarf að skoða heildarmyndina, hvort ávinningurinn er með meiri en gall­ arnir. Líklega verður erfitt að ná niður­ stöðu í sjávarútvegsmálum og efna­ hagsmálum en við náum aldrei ár­ angri ef við gefumst upp fyrirfram. Þegar þessu ferli er lokið verður fyrst hægt að taka afstöðu til samnings og skoða hvort þetta er heillavænlegt skref fyrir þjóðina eða ekki.“ Þurfti að sanna sig Sjálfur sagði Þorsteinn skilið við póli­ tíkina árið 1999. Þá hafði hann verið á þingi í sextán ár, en hann var rétt nýkjörinn á þing þegar það kom á daginn að þáverandi formaður Sjálf­ stæðisflokksins, Geir Hallgrímsson, hefði í hyggju að hætta og væri að leita að eftirmanni. Hann hafði nokkra menn í huga, þar á meðal Þorstein. „Mér fannst það framandi tilhugsun að leiða flokkinn. Ég var of ungur til að hafa leitt hugann að slíku. Ég hafði ekki einu sinni tekið sæti á Alþingi þegar hann kom að máli við mig. Það var kosið að vori og þing kom ekki saman fyrr en að hausti, í október. Seinna í sama mánuði var landsfundur Sjálfstæðisflokksins haldinn þar sem ég varð formaður flokksins eftir nokkurra daga setu á Alþingi.“ Þorsteinn var langyngsti maður „Við áttum mörg góð ár saman“ Þorsteinn Pálsson gekk í Sjálfstæðisflokk- inn aðeins fjórtán ára gamall. Ungur náði hann völd- um og frama innan flokksins. Hann var yngsti maður flokksins á þingi þegar hann tók við formennskunni. Það var í takt við annað, ungur tókst hann á við hvert stórverkefnið á fætur öðru. Af erfiðri reynslu lærði hann líka snemma að annað skipti meira máli í lífinu en að komast til áhrifa. Eiginkonunni, Ingi- björgu Rafnar, kynntist hann í háskóla og gengu þau í hjónaband skömmu síðar. Þorsteinn stendur núna frammi fyrir því að tilveran eins og hann þekkti hana áður hefur gjörbreyst á skömmum tíma, lífsföru- nautur hans er fallinn frá og flokkurinn sem hann hefur fylgt alla tíð hefur svikið gefin loforð. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ingibjorg@dv.is „Ég gat ekki setið þegjandi þegar hafa átti þessi loforð að engu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.