Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2014, Page 62

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2014, Page 62
Helgarblað 14.–17. mars 201446 Menning Menningarverðlaun DV K ristín Gunnlaugsdóttir hlaut menningarverðlaun DV fyrir sýninguna Sköpunarverk í Listasafni Íslands. Sýningin þótti listrænt ögrandi, nálgunin kvennapólitísk og viðfangsefnið er tilvistin sjálf. Sýningin þótti sú mark- vissasta á árinu. Kristín segir viðurkenninguna sem felist í verðlaununum hafa komið sér algerlega á óvart. „Mér er þetta mikils virði vegna þess að þetta er stuðningur við umfjöllun- arefnið. Það er tekin afstaða með umfjöllunarefni mínu. Ég er búin að fá gríðarleg viðbrögð og langar að nýta tækifærið og þakka DV fyr- ir úthaldið. Að sýna menningu þá virðingu sem henni ber í 35 ár, í gegnum kreppu og annað slíkt. Mér fannst dómnefndirnar einnig vinna vel, það kom mjög vel fram í um- fjöllun um þá sem voru tilnefndir og gæði tilnefninga. Svona hátíð verður fastur liður í menningarumræðu og það skiptir miklu máli. Það er einnig ómetanlegt að það skuli vera fjölmiðill sem heldur hátíðinni úti vegna þess að fjölmiðlar sýna menn- ingu mismikla athygli og vandvirkni í umfjöllun sinni.“ Á sýningunni Sköpunarverk er myndefni hvers einasta verks sköp kvenna. Kristínu finnst ákveðinn húmor fólginn í því að setja fram af- stöðu sína svo sterkt. „Í sýningunni felst ákveðin afstaða sem ekki veitir af í samfélaginu. Mér fannst svolítill húmor í því að segja þetta ekki einu sinni. Heldur aftur og aftur í hverju einasta verki, í hverjum einasta sal. Hér heima á Íslandi finnst mér kvennabarátta hafa náð langt en ég held við megum velta því fyrir okkur hvort við höfum sofnað á verðinum því hér er við lýði mikil æsku- og út- litsdýrkun og konur vantreysta sjálf- um sér og eigin gildum. Kynslóðin á undan stóð sig á margan hátt betur. Það er þó von, því okkar samtíma einkenn- ir ákveðin bersögli. Áherslur eru einlægari, það er eitthvað sem fólk dregst að og mér finnst aðlaðandi og aðdáunarvert. Þetta er allt saman á réttri leið en sýning mín er mitt framlag til þess að sporna við því sem hefur farið úrskeiðis í umræðu gagnvart konum. Það er svo margt til dæmis í umræðu um ofbeldi gagn- vart konum. Það gerist ekkert nema með því að taka sterka afstöðu.“ En sýning Kristínar er ekki ein- göngu kvennapólitísk. Hún ein- kennist líka af gleði og vísun í lífið sjálft. Kjarna þess. „Þetta er ekki bara kvennapólitísk sýning, þetta er líka gleðin yfir því benda á lífið og yfir því að vera kona. Stóra rauða teppið fjallar um lífið, það að segja satt. Stundum er sannleikurinn eins og sköp kvenna. Eitthvað sem fólk á erfitt með að horfast í augu við en varðar lífið sjálft.“ Kristín vinnur að næstu sýningu sem hún vinnur í Nesstofu, í gamla Landlæknishúsinu, og það verður spennandi að fylgjast með fram- vindunni í haust. „Í þeirri sýningu er ég að skoða sögu okkar og bakgrunn hvað varðar líkamann og heilbrigði. Ég fer svolítið inn á skömmina og sjálfsmyndina, fátæktina og úrræða- leysið sem einkenndi heilbrigð- iskerfið í þá daga.“ kristjana@dv.is Þ að er frábær viðurkenning og mjög skemmtilegt,“ segir fata- hönnuðurinn Guðmundur Jör- undsson um Menningarverð- laun DV, sem fatamerki hans, JÖR, hlaut í flokki hönnunar. „Það er ekki mikið um verðlaun eða viðurkenn- ingar í hönnun, svo þetta var mjög ánægjulegt. Það var margt frábært fólk sem vann til verðlauna og var til- nefnt yfirhöfuð sem sýnir hversu öfl- ug skapandi sena er á Íslandi.“ Guðmundur stofnaði JÖR fyrir rúmu ári og hafa viðtökurnar ver- ið einróma góðar. Þessa dagana er unnið hörðum höndum að því að klára komandi haustlínu sem verður sýnd á Reykjavik Fashion Festival í lok mánaðarins. „Að því loknu tekur við Copenhagen Fas- hion Summit, sem fer fram 24. apríl í Kaupmannahöfn. Þar sýnum við á samsýningu,“ segir Guðmundur. En hvernig er tilfinningin að sjá fólk á götum borgarinnar klætt í hönnun frá honum? „Það er bara gaman; hef reyndar aldrei pælt mikið í því. Ég man að mér fannst þetta mjög óþægilegt þegar fyrsta Kormáks og Skjaldar-línan mín fór í sölu. Þá hélt ég að allt myndi passa illa og fötin myndu hrynja í sundur. Það gerðist ekki og ég komst fljótt yfir þetta.“ ingolfur@dv.is Hönnun: Sannleikurinn er eins og sköp kvenna Myndlist Á Stóra sviði Þjóðleik- hússins hefur leiksýn- ingin Englar alheims- ins slegið rækilega í gegn í vetur og fengið leikhúsgesti bæði til þess að skella upp úr og beygja af. Með aðalhlutverk fer leikarinn Atli Rafn Sigurðarson, þar sem hann bregður sér í hlut- verk hins geðsjúka Páls, og er óhætt að segja að Atli Rafn hafi náð meistaralegum tökum á afar krefjandi hlutverki. Hann held- ur bæði meðleikurum sínum og áhorfendum við efnið svo undr- um sætir. Fyrir leik sinn hlaut Atli Rafn Menningarverðlaun DV sem Rafnhildur, dóttir hans, veitti viðtöku fyrir hönd föður sem þurfti að sinna nýfæddum syni. Atli Rafn er vanur því að undirbúa sig vel undir hlutverk sín. Hann kafar í heimildir og leitar víða fanga. Honum finnst erfitt að lýsa undirbúningsvinnu sinni fyrir hlutverk Páls. „Ég hef lýst því áður af van- mætti. Við erum ekki bara með skáldsögu Einars Más, við erum ekki bara með ævi Pálma bróður hans sem efnivið. Heldur liggur heill heimur til grundvallar. Sem er heimur geðveikinnar og að- standenda geðsjúkra. Það er af nógu að taka þar. Ég reyndi að kynna mér skáldsöguna eins vel og ég gat. Og allt sem að ég gat fundið og hafði verið skrif- að og fjallað um skáldsöguna. Svo var mikill fjársjóður í ljóð- um og málverkum Pálma. Þar er að finna ótrúlega sérkenni- lega snilld, groddalegan húmor og auðvitað geðveiki. Fyrir mig sem leikara var einna mesta nær- ingin í því. Það var einhvern veg- inn á ákveðnum tímapunkti sem við áttuðum okkur á því að Páll var farinn að lifa eigin lífi í sýn- ingunni, það er ekki síst Pálma að þakka.“ Samstarfið við leikstjórann, Þorleif Arnarson, segir Atli Rafn hafa verið stórkostlegt og honum finnst verðlaunin eiga við allan hópinn í heild sinni. „Þetta er ekki bara ég. Mér finnst Englar alheimsins vera frábært dæmi um samvinnu í leikhúsi. Þar sem margir koma að verk- inu. Ekki bara leikstjóri, heldur líka leikarar og allir starfsmenn hússins. Það var mikið hjarta í sýningunni.“ kristjana@dv.is Heill heimur til grundvallar Leiklist Hélt að fötin myndu hrynja í sundur Hönnun V alið kom mér á óvart,“ viðurkennir Marteinn Sigurgeirsson sem vann Menningarverðlaun DV í flokki kvikmynda fyrir ævistarf sitt. Marteinn hefur verið umsjónarmaður og aðaldriffjöður Myndvers grunnskólanna síðustu þrjá áratugina. „Það eru alltaf stórir póstar sem eru tilnefndir. Það er mikil gróska og breidd í kvikmyndagerð í dag.“ Marteinn segist hafa verið ánægður með tilnefninguna og að fá að tilheyra hópi jafn snjallra kvikmyndagerðarmanna og raun ber vitni. Hann bjóst þó ekki við því að vinna verðlaunin. „Við sem erum að vinna með börnum í skapandi skólastarfi höfum verið að vekja athygli,“ bendir Marteinn á, sem hann útskýrir með þeim hætti að sífellt sé verið að sýna grunnskólanemum meiri áhuga. Myndverið heimsækja fjöl- margir nemendur á miðstigi í grunnskóla þar sem þeim gefst tækifæri á að taka upp eigið efni. Þegar blaðamaður slær á þráðinn til Marteins hefur hann nýlokið að taka upp bókmenntaþátt með ungmennum. „Þetta er mjög gef- andi og þau eru fljót að læra,“ segir Marteinn. Öll börnin fá að taka þátt og prófa mismunandi hlutverk í myndverinu. Margir af okkar þekktustu kvikmyndagerðarmönnum hafa stigið sín fyrstu skref í mynd- verinu hjá Marteini. „Nýjustu leikstjórarnir, Marteinn Þórsson, Reynir Lyngdal og Rúnar Rúnars- son, voru hjá mér á sínum tíma,“ nefnir Marteinn sem dæmi. ingolfur@dv.is Gefandi vinna Kvikmyndir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.