Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2014, Síða 66

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2014, Síða 66
50 Menning Sjónvarp Helgarblað 14.–17. mars 2014 Dýrðarljómi æskunnar Í minningunni var barnaefnið sem mín kynslóð horfði á miklu betra en það sem börnum nú­ tímans er boðið upp á. Skot og mark er ógleymanlegt sjón­ varpsefni og arnarskotið er eitt það stórfenglegasta sem sést hefur í sjónvarpi. Sögur úr Andabæ, Brakúla greifi og Baldur búálfur eru dæmi um teiknimyndir sem ég horfi til baka á og sé í dýrðarljóma. Áður en ég varð pabbi var ég á því að nútíma sjónvarpsefni væri al­ veg ömurlegt. Stubbarnir litu út fyrir að vera algjör vitleysa, Dóra landkönnuður fannst mér fáránleg hugmynd og það virtist ekki leng­ ur vera í tísku að dýr gætu talað, en allir aðrir mögulegir hlutir gátu það. Ég velti því stundum fyrir mér hvað yrði um börnin sem horfðu á þessa vitleysu. Teiknimyndir voru líka eitt­ hvað sem bara var í boði á laugar­ dagsmorgnum og á kvöldin á virk­ um dögum, rétt fyrir fréttir. Enn þann dag í dag er þetta svona, þó svo reyndar að hægt sé að fá stöðv­ ar sem sýna barnaefni allan sólar­ hringinn eða þá að hægt er að leigja barnaefni í gegnum VOD­ þjónustu. Þetta hefur nú algjör­ lega breyst, og það er varla svo að kveikt sé á sjónvarpinu til að horfa á barnaefni á mínu heimili. Dóttir mín kann að setja disk í DVD­spil­ arann og hefur margsinnis horft á diskana sem hún á með Stubbun­ um, Latabæ og Dóru landkönnuði. Reyndar kannski of mikið, því nú segir hún „delicious,“ þegar henni finnst eitthvað gott, rétt eins og Dóra og Klossi segja. Dóttir mín er af allt annarri kyn­ slóð. Hún horfir í síauknum mæli á teiknimyndir í spjaldtölvu heimil­ isins, jafnvel fer hún inn á YouTube og finnur sér efni. Myndbandsveit­ an mælti með teiknimyndunum „Peppa pig,“ og hún smellti á það, mjög forvitinn. Nú heyri ég hlátur­ gusurnar frá henni þegar hún fylgist með grísnum leika sínar listir og hugsa með mér. Ég er aft­ ur dottinn í teiknimyndirnar, því ég horfi gjarnan á þetta með henni og er jafnvel farinn að kunna texta utan að. Það væri því kannski best að viðurkenna fyrir sjálfum mér, að gamla efnið er ekkert betra. Rótin að þessum gullnu minningum er löngun í gamla tíma, þegar ég var lítill. Það er bara svo fáránlega gaman að vera barn. n Sjónvarpsdagskrá RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport B andaríska leikkonan Olivia Wilde hefur landað hlutverki í væntanlegum sjónvarpsþáttum sem framleiddir verða af sjón­ varpsstöðinni HBO. Þættirnir hafa enn ekki hlotið nafn en þeir gerast í New York rétt eftir 1970 og verður þema þeirra „rokk og ról“. Framleiðendur þáttanna eru heldur ekki af verri end­ anum, en Mick Jagger, Martin Scorsese og Terence Winter hafa allir staðfest aðild sína að þáttunum. Fyrsti þátturinn gerist, sem fyrr seg­ ir, í New York á áttunda áratug síðustu aldar, þegar pönk og diskó voru að koma fram og tónlistarheimurinn ein­ kenndist af villtu kynlífi og eiturlyfja­ neyslu. Sagan er sögð frá sjónarhorni Richie Finestra, framkvæmdastjóra út­ gáfufyrirtækis, sem reynir að blása lífi í fyrirtækið með því að finna það næsta sem mun slá í gegn í tónlist og tekst að lokum að byggja upp útgáfurisann American Century Records. Auk Wilde hefur aðeins einn ann­ ar leikari verið staðfestur, en það er Bobby Cannavale sem mun fara með hlutverk Finestra. Wilde mun svo leika eiginkonu hans, Devon, sem er fyrr­ verandi leikkona og fyrirsæta sem hafði lifað sannkölluðu bóhemalífi þar til allt fór í rúst í fyrirtæki eiginmanns­ ins. Wilde mun því aftur snúa í sjón­ varpið, en hún hefur einbeitt sér að kvikmyndum undanfarin ár eftir að hún gerði garðinn frægan í læknaþátt­ unum House. n Þættir um tónlistarsenu áttunda áratugarins væntanlegir Wilde snýr aftur á sjónvarpsskjáinn Sunnudagur 16. mars Stöð 2 Sport 2 Bíóstöðin Gullstöðin Stöð 3 ÍNN 05.25 Vetrarólympíumót fatlaðra (Stórsvig kvenna, fyrri ferð) B 07.00 Morgunstundin okkar 07.01 Smælki (21:26) 07.04 Háværa ljónið Urri (9:52) 07.14 Tillý og vinir (20:52) 07.25 Múmínálfarnir 07.35 Hopp og hí Sessamí 08.00 Ævintýri Berta og Árna 08.05 Sara og önd (24:40 08.15 Kioka 08.22 Kúlugúbbarnir (15:20) 08.45 Hrúturinn Hreinn (4:20) 08.52 Chaplin (36:52) 09.00 Vetrarólympíumót fatlaðra (Stórsvig kvenna, síðari ferð) B 10.35 Disneystundin (10:52) 10.36 Herkúles (10:21) 11.00 Sunnudagsmorgunn 12.10 Grínistinn (2:4) (Laddi eins og hann leggur sig) 888 e 13.00 Bikarúrslit kvenna í blaki B 14.40 Þrekmótaröðin 2013 15.00 Bikarúrslit karla í blaki B 16.40 Leiðin á HM í Brasilíu e 17.10 Táknmálsfréttir 17.21 Stella og Steinn (4:10) 17.33 Friðþjófur forvitni (4:9) 17.56 Skrípin (2:52) 18.00 Stundin okkar 888 18.25 Innlit til arkitekta í útlöndum – Ulrik Plesner 19.00 Fréttir 19.20 Veðurfréttir 19.25 Íþróttir 19.40 Landinn 888 20.10 Brautryðjendur (6:8) (Dóra G. Jónsdóttir) 888 20.40 Stundin (1:6) 8,3 (The Hour II) Stundin er spennandi bresk verð- launaþáttaröð sem gerist á sjónvarpstöð BBC árið 1956. Á dögum kalda stríðsins var bilið milli þess að segja sannleikann og svíkja föður- landið stutt. Aðalhlutverk: Romola Garai, Ben Whishaw og Dominic West. 21.35 Afturgöngurnar (5:8) (Les Revenants) Dul- magnaðir spennuþættir sem hlutu alþjóðlegu Emmy-verðlaunin sem besti leikni myndaflokk- urinn í nóvember á síðasta ári. Einstaklingar sem hafa verið taldir látnir til nokkurs tíma, fara að dúkka upp í litlu fjallaþorpi eins og ekk- ert hafi í skorist. Leikarar: Anne Consigny, Frédéric Pierrot og Clotilde Hesme. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi barna. 22.30 Hljómsveitin kemur í bæ- inn 7,6 (Bikur Ha-Tizmoret) Margverðlaunuð ísraelsk gamanmynd um egypska lögregluhljómsveit. Sveitin er fengin til að spila við opn- um menningarviðburðar, en villist á ferðalaginu og þá fyrst hefjast vandræðin. Aðalhlutverk: Sasson Gabai, Ronit Elkabetz og Saleh Bakri. 23.55 Sunnudagsmorgunn e 01.05 Útvarpsfréttir í dag- skrárlok 08:55 Malaga - Real Madrid 10:35 Meistaradeild Evrópu (Barcelona - Man. City) 12:15 Meistarad. - meistaram. 12:50 Formula 1 2014 (Ástralía) 15:20 La Liga Report 15:50 Barcelona - Osasuna B 17:50 Hestaíþr. á Norðurland 18:20 NBA (Dr. J - The Doctor) 19:30 NBA Miami - Houston B 22:30 Golfing World 2014 23:20 Barcelona - Osasuna 08:20 Stoke - West Ham 10:00 Hull - Man. City 11:40 Everton - Cardiff 13:20 Man. Utd. - Liverpool B 15:50 Tottenham - Arsenal B 18:00 Aston Villa - Chelsea 19:40 Man. Utd. - Liverpool 21:20 Tottenham - Arsenal 23:00 Fulham - Newcastle 00:40 Southampton - Norwich 10:45 The Three Musketeers 12:35 Fur: An Imaginary Portrait of Diane Arbus 14:35 The Queen 16:20 The Three Musketeers 18:10 Fur: An Imaginary Portrait of Diane Arbus 20:15 The Queen 22:00 Friends With Benefits 23:50 X-Men: First Class 02:00 The Messenger 03:50 Friends With Benefits 15:20 H8R (8:9) 16:00 Þriðjudagskv. m/ Frikka D. 16:30 Amazing Race (3:12) 17:15 Offspring (13:13) 17:55 Men of a Certain Age 18:40 The New Normal (17:22) 19:00 Bob's Burgers 19:25 American Dad 19:45 The Cleveland Show 20:10 Unsupervised (9:13) 20:30 Brickleberry (9:10) 20:55 Dads (18:18) 21:15 The League (3:13) 21:40 Deception (2:11) 22:25 The Glades (11:13) 23:05 The Vampire Diaries 23:50 Bob's Burgers 00:10 American Dad 00:35 The Cleveland Show 00:55 Unsupervised (9:13) 01:20 Brickleberry (9:10) 01:40 Dads (18:18) 02:00 The League (3:13) 02:20 Deception (2:11) 03:05 Tónlistarmyndbönd 18:55 Seinfeld (20:24) 19:20 Modern Family 19:45 Two and a Half Men (11:24) 20:10 Viltu vinna milljón? (21:30) 21:00 Game of Thrones (4:10) 21:55 Krøniken (19:22) 22:55 Ørnen (19:24) 23:50 Ally McBeal (20:23) 00:35 Viltu vinna milljón? 14:00 Frumkvöðlar 14:30 Eldhús Meistaranna 15:00 Vafrað um Vesturland 15:30 Stormað um Hafnarfjörð 16:00 Hrafnaþing 17:00 Stjórnarráðið 17:30 Skuggaráðuneytið 18:00 Björn Bjarnason 18:30 Tölvur,tækni og kennsla. 19:00 Fasteignaflóran 19:30 Á ferð og flugi 20:00 Hrafnaþing 21:00 Auðlindakistan 21:30 Suðurnesjamagasín 22:00 Hrafnaþing 23:00 Tíska.is 23:30 Eldað með Holta 07:00 Barnatími Stöðvar 2 07:01 Waybuloo 07:21 Strumparnir 07:45 Ævintýraferðin 08:00 Algjör Sveppi 09:35 Ben 10 10:00 Tom and Jerry 10:05 Victorious 10:30 Nágrannar 10:50 Nágrannar 11:10 Nágrannar 11:30 Nágrannar 11:50 Nágrannar 12:15 60 mínútur (23:52) 13:00 Mikael Torfason - mín skoðun 13:50 Spaugstofan 14:15 Spurningabomban 15:05 Heimsókn 15:30 Modern Family (2:24) 16:05 Um land allt 16:40 Léttir sprettir 17:10 Geggjaðar græjur 17:30 Ísland Got Talent 18:23 Veður 18:30 Fréttir Stöðvar 2 18:55 Sportpakkinn (29:50) Íþróttamenn Stöðvar 2 Sport fara yfir það helsta úr heimi íþróttanna í liðinni viku, taka viðtöl við sérfræðingana og sýna brot frá því helsta sem fór fram. 19:10 Sjálfstætt fólk (26:30) 19:45 Ísland Got Talent Glæsilegur íslenskur sjónvarpsþáttur þar sem leitað er að hæfileikaríkustu einstaklingum landsins. 20:35 Mr. Selfridge Önnur þátta- röðin auðmanninn Harry Selfridge, stofnanda stór- verslunarinnar Selfridges og hún gerist á róstursöm- um tímum í Bretlandi þegar fyrri heimsstyrjöldin setti lífið í Evrópu á annan endann. 21:25 The Following 8,7 (8:15) Önnur þáttaröðin af þessum spennandi þáttum en síðasta þáttaröð endaði í mikilli óvissu um afdrif fjöldamorðingjans Carroll einnig hvað varðar sögu- hetjuna Ryan Hardy. Eitt er víst að nýtt illmenni verður kynnt til leiks í þessari þáttaröð en það er ekki þar með sagt að Joe Carroll hafi sungið sitt síðasta. Nýr sértrúarsöfnuður er að myndast og leiðtogi hóps- ins er jafnvel hættulegri en Carroll. 22:10 Banshee (10:10) Önnur þáttaröðin um hörku- tólið Lucas Hood sem er lögreglustjóri í smábænum Banshee. 23:05 60 mínútur (24:52) 23:50 Mikael Torfason - mín skoðun 00:35 Daily Show: Global Edition 01:00 Nashville (10:22) 01:45 True Detective (8:8) 02:40 The Americans (1:13) 03:25 American Horror Story: Asylum (9:13) 04:10 Mad Men (11:13) 05:00 Mr. Selfridge 05:45 Fréttir e 06:00 Pepsi MAX tónlist 12:10 Dr. Phil 12:50 Dr. Phil 13:30 Dr. Phil 14:10 Once Upon a Time (10:22) 14:55 7th Heaven (10:22) 15:35 Family Guy (20:21) 16:00 90210 (10:22) 16:40 Made in Jersey (7:8) 17:25 Parenthood (10:15) 18:10 The Good Wife (5:22) Þessir margverðlaunuðu þættir njóta mikilla vinsælda meðal áhorfenda SkjásEins. 19:00 Friday Night Lights (9:13) 19:40 Judging Amy (7:23) 20:25 Top Gear - NÝTT (1:6) 21:15 Law & Order (6:22) Spennandi þættir um störf lögreglu og saksóknara í New York borg. Þekktur ævisagnaritari finnst látinn en nýlega hafði hann gefið út nákvæmar lýsingar á fortíð sinni sem karlhóra. 22:00 The Walking Dead 7,8 (11:16) Þættir sem hafa slegið öll fyrri áhorfsmet áskriftarstöðva í Banda- ríkjunum. Rick Grimes og félagar þurfa að glíma við uppvakninga utanfrá og svikara innanfrá í þessum hrollvekjandi þáttum sem eru alls ekki fyrir viðkvæma. 22:45 The Biggest Loser - Ísland (8:11) Stærsta framleiðsla sem SkjárEinn hefur ráðist í frá upphafi. Tólf einstaklingar sem glíma við yfirþyngd ætla nú að snúa við blaðinu og breyta um lífstíl sem felst í hollu mataræði og mikilli hreyfingu. Umsjón hefur Inga Lind Karlsdóttir 23:35 Elementary (10:24) Sher- lock Holmes og Dr. Watson leysa flókin sakamál í New York borg nútímans. Síðustu þáttaröð lauk með því að unnusta Sherlocks, Irine Adler var engin önnur en Moriarty prófessor. Sherlock Holmes kemur til bjargar þegar vitfirrtur maður leikur lausum hala á lögreglustöðinni. 00:25 Scandal (9:22) Við höldum áfram að fylgjast með Oliviu og félögum í Scandal. Fyrsta þáttaröðin sló í gegn meðal áskrifenda en hægt var að nálgast hana í heilu lagi í SkjáFrelsi. Olivia heldur áfram að redda ólíklegasta fólki úr ótrú- legum aðstæðum í skugga spillingarstjórnmálanna í Washington. 01:10 The Bridge (11:13) 01:50 The Walking Dead 02:35 The Tonight Show 03:20 Beauty and the Beast 04:00 Pepsi MAX tónlist SkjárGolf 06:00 Ginx 15:25 NAC Breda - AFC Ajax 17:35 NAC Breda - AFC Ajax 19:35 Ginx Olivia Wilde Mun snúa aftur á sjón- varpsskjáinn eftir að hafa einbeitt sér að kvikmyndum undanfarin ár. Rooney Mara verður Tígrislilja Ný mynd um Pétur Pan væntanleg B andaríska leikkonan Rooney Mara, sem er hvað þekktust fyrir leik sinn í bandarísku útgáfunni af Millennium­ þríleiknum, hefur fengið hlut­ verk indíánastelpunnar Tígrislilju í væntanlegri mynd um Pétur Pan. Myndin ber einfaldlega heitið Pan og verður leikstýrt af Joe Wright, en hann er hvað þekktastur fyrir myndir á borð við Atonement, Pride and Prejudice og Anna Karenina. Auk Mara hafa Hugh Jackman og Garett Hedlund verið skráðir til leiks; Jackman sem Svartskeggur og Hedlund sem Krókur kafteinn. Myndin verður að sögn framleið­ enda í skuggalegri kantinum, þrátt fyrir að byggja á einu vinsælasta barnaævintýri allra tíma. Hand­ ritið var skrifað af Jason Fuchs, sem skrifaði handritið að teikni­ myndinni Ice Age: Continental Drift, og munu tökur hefjast í sum­ ar, en áætlaður frumsýningardagur er 17. júlí 2015. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem gerð er kvikmynd eftir ævintýrinu um Pétur, Vöndu og félaga þeirra í Hvergilandi. Fyrir utan hina sí­ gildu teiknimynd frá Disney má til dæmis nefna myndirnar Hook, sem leikstýrt var af Steven Spiel­ berg, og hina leiknu Peter Pan frá árinu 2003. n horn@dv.is Rooney Mara Mara mun fara með hlutverk Tígrislilju í hinni væntanlegu mynd. Rögnvaldur Már Helgason rognvaldur@dv.is Helgarpistill Dóra og Klossi Standast Baldri búálfi snúninginn og vel það.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.