Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Síða 2
Vikublað 6.–8. maí 20142 Fréttir Kolaportið áfram í tíu ár Borgarráð samþykkti á fundi sín- um á fimmtudag samning við fjármálaráðuneytið og Fasteignir ríkisins um húsnæði Kolaports- ins. Þar með er framtíð starfsem- innar tryggð til að minnsta kosti næstu 10 ára. Í samningnum felst líka að horfið er frá því að breyta þaki Tollhússins í bílastæði og kljúfa húsið með rampa. Þess í stað leggur borgin fram fjármuni til að gera norðurhlið hússins fal- legri og aðgengilegri. Á sama fundi voru tveir nýir leigusamningar um húsnæði frumkvöðlasetra samþykktir í borgarráði á fimmtudag, annar um gömlu Gasstöðina, þar sem aðstaða strætisvagnastjóra var áður, og hins vegar gamla bíla- verkstæði Sveins Egilssonar. Á bilinu 40–60 frumkvöðlar geta fengið vinnuaðstöðu í þessum rýmum en tónlistarklasi (Úttón, Iceland Airwaves, Tónverkamið- stöðin og ýmsir umboðsmenn) er þegar búinn að koma sér fyrir á jarðhæð hússins. sjálfsvígi foreldra leynt fyrir börnum n Þöggunin djúpstæð í vestrænni menningu n Sorgarferlið erfiðara en ella n 2.500 nýir syrgjendur á ári Á hverju ári eru 35–40 sjálfs- víg framin á Íslandi. Það þýð- ir að árlega mæta um 2.500 nýir syrgjendur í jarðarfarir vegna sjálfsvíga. Í þeim hópi eru allavega 150 einstaklingar sem eru að missa náinn ástvin, foreldrar, systkini, makar eða börn. Á þetta bendir Salbjörg Bjarnadóttir, verk- efnastjóri hjá Landlæknisembættinu sem hefur umsjón með geðheilbrigð- is- og sjálfsvígsforvörnum. Hún segir að sjálfsvíg séu samfélagslegur vandi sem mikilvægt sé að ræða. „Þöggun er alltaf óheilbrigð. Við eigum að þora að tala um hlutina á ábyrgan hátt, svo lengi sem við erum ekki að hetjuvæða sjálfsvíg. Þegar Kurt Cobain fyrirfór sér tóku fjölmiðlar og fjölskyldan hans sig saman um að tala um harmleikinn sem það var, hvernig honum hafði liðið og hvernig neyslan hafði farið með hann og samband hans. Það var í fyrsta skipti sem fréttaflutningur af sjálfsvígi var með þessum hætti. Áður fyrr kom það fyrir að sjálfsvígsbylgjur færu stað þegar einhver frægur fyrir- fór sér. Allir urðu svo hræddir og þess vegna varð þessi þöggun. Reyndar getum við líka farið enn lengra aftur, til þess tíma er kirkj- an þaggaði þetta niður með því að segja að sjálfsvíg væri synd. Fólk vildi ekki að ættingjar þess hefðu dáið í sjálfsvígi því þá mátti ekki jarða þá í kirkjugarði. Nokkrar aldir eru síð- an sjálfsvíg voru bönnuð og fólk sem fyrirfór sér átti að brenna í víti það sem eftir væri. Það má því segja að þöggunin sé djúpstæð í vestrænni menningu en nú á 21. öldinni þurf- um við að fara að horfast í augu við að sjálfsvíg gerast.“ Ekki sagt frá sjálfsvígi foreldra Hún segir að enn í dag séu dæmi þess að börn hafi ekki fengið réttar upplýs- ingar um dánarorsök foreldra sinna, því sjálfsvíg þyki of erfið og viðkvæm til þess. „Börn upplifa mikla höfnun ef pabbi þeirra eða mamma sviptir sig lífi. Þau eiga lengi erfitt upp dráttar eftir það. Þess vegna höfum við séð að fullorðið fólk fer í kringum þetta í von um að hlífa börnunum og segir að pabbi þeirra eða mamma hafi orðið bráðkvödd. Síðan gerist það, kannski ári eða tveimur árum seinna, að börnin heyra hvernig pabbi þeirra eða mamma dó. Þá eru þau búin að vera í sorg og verða reið. Það getur verið mjög erfitt. Þau geta jafnvel lent í því að vera að rífast við vin sem segir allt í einu: pabbi þinn drap sig. Við höfum séð það gerast og vitum til þess að á síð- ustu árum hefur fólk verið að nota hvítar lygar í kringum sjálfsvíg því þau eru svo óþægileg. Betra er að segja varlega frá því að foreldri hafi svipt sig lífi því því leið svo illa að það gat ekki lifað leng- ur. Það fer auðvitað eftir aldri barns- ins hvernig það gert og mikilvægt að vanda til verka.“ Öðruvísi sorgarferli Sorgarferlið er alltaf erfitt. „Það er líka erfitt fyrir foreldra að kveðja börnin sín. Spurningar sækja að, hefði ég getað gert eitthvað? Hefði ég átt að hlusta betur? Og svo framvegis. Nán- ustu aðstandendur þurfa gjarna frek- ari aðstoð því hætt er við því að þeir fari sjálfir inn í þunglyndi og spyrji sig, af hverju á ég að lifa fyrst hann er farinn? Hef ég þá einhvern tilgang? Það er mjög algengt. Þannig að það þarf að vinna mjög mikið með syrgjendur eftir sjálfsvíg. Það eru svo ótalmargar spurningar sem kvikna. Fólki líður svo illa og það myndast svo mikið tóm á eftir vegna þess að sumir eru hræddir við að spyrja um þann látna. Ef þú miss- ir einhvern úr krabbameini þá máttu endalaust tala um hann en það hef- ur verið mikið tabú að tala um þann sem lést í sjálfsvígi. Þetta sorgarferli er annað en eftir sjúkdóm eða slys. Þetta er ekkert sem fer frá þér. Það er setning á íslensku sem segir að tíminn lækni öll sár en það er ekki þannig. Þetta er eitthvað sem þú lær- ir að lifa með og tala um, en þetta býr alltaf með þér.“ Hún bendir á að þegar á reyni þurfi vinir og vandamenn að hafa frum- kvæði að því að veita aðstandendum aðstoð. „Fyrst eftir áfallið er svo mik- ið umleikis, svo kom jarðarförin og síðan kom tómið. Tómið var rosalega langt því fólk sagði þér að hafa sam- band þegar þú treystir þér til eða vild- ir að það gerði eitthvað. Raunin er sú að aðstandendur eru í svo miklu sjokki og svo dofnir að þeir hafa ekki krafta til þess. Það er ekki hægt að láta þá sem eru í harmi sínum hafa frum- kvæðið, því þeir geta það ekki. Sumir segja að þeir viti vel hverjir séu vinir sínir eftir svona því hinir hurfu.“ Einelti drepur Mikilvægt er að skilja að hvert sjálfsvíg er harmleikur og að hvert sjálfsvíg er sérstakt. „Það er enginn glaður og hamingjusamur þegar hann sviptir sig lífi. Það er alltaf eitt- hvað á bak við það, en stundum er það falið fyrir nánustu aðstandend- um, kannski í einhvers konar tilraun til að hlífa þeim. Sálarheillin er alltaf í ójafnvægi þegar þessi ákvörðun er tekin og einstaklingurinn kominn í öngstræti, í samskiptum, í vinnuum- hverfinu, í skólanum. Það er eitthvað búið að vera í gangi. Eins getur harm- ur í kringum skilnaði eða önnur áföll valdið því að fólki finnst það ekki ráða fram úr vandanum.“ Það er helst að yngsti hópurinn lúti öðrum lögmálum því þar eru einstak- lingarnir hvatvísari og gera sér ekki endilega grein fyrir endanleikanum. „Yngsti hópurinn er sá hópur sem erfiðast er að fullyrða að hafi verið að glíma við þunglyndi eða langvar- andi vanlíðan því á þessum aldri er fólk svo hvatvíst. Það langar kannski í frí frá þessari vanlíðan og ákveður að svipta sig lífi. Við erum alltaf hrædd um þennan hóp,“ segir hún, en sem betur fer eru sjálfsvíg innan hans fátíð hér á landi. Þess eru þó dæmi að börn hafi svipt sig lífi. „Eitt og eitt barn hef- ur verið í vandræðum og svipt sig lífi. Þá höfum við sagt að einelti drepi. Ein- elti í sinni alvarlegustu mynd getur orðið til þess að þolendur sjá enga leið færa í lífinu vegna allrar þeirrar niður- lægingar sem þeir hafa orðið fyrir. Við vitum um nokkra einstaklinga á aldrinum 18–22 ára sem hafa verið búnir að berjast mikið við einelti og ákveðið að svipta sig lífi af því að þeir sáu ekki fyrir að þeir ættu neina fram- tíð. Einelti er grafalvarlegt mál sem þarf að vinna enn betur með, sérstak- lega innan þessa yngsta hóps.“ Vildi ekki lifa vegna sektar Talið er að um helmingur þeirra sem fyrirfara sér geri það undir áhrifum áfengis. „Áfengi losar um hömlur þannig að þú gerir kannski eitthvað sem þú myndir ekki gera allsgáður. Þannig að þegar fólk er í mikilli vanlíð- an mælumst við til þess að það láti áfengi vera. Undir áhrifum er erfiðara að halda yfirsýn og þá getur maður far- ið að sjá allt svart fram undan. Nú er ég búin að vinna í 34 ár með fólki sem glímir við alvarlegan vanda, og vann lengi á geðdeild. Ég hef hitt fólk sem hefur gert alvarlegar sjálfs- vígstilraunir og unnið að forvörnum og með eftirlifendum. Ég hef heyrt oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að á fylleríi hafi fólk talað um að fremja sjálfsvíg, svo var það allt í einu orðinn veruleiki og vinirnir sitja uppi með sektarkennd og samviskubit. Þess vegna höfum við lagt áherslu á að unglingar sitji ekki einir með þá vitneskju þegar vinir þeirra fara að tala um dauðann. Að þeir leiti til for- eldra, kennara, námsráðgjafa eða skólahjúkrunarfræðings. Af því að ég man til dæmis eftir vinahóp þriggja stráka þar sem einn sagði að hon- um þætti hann ekki eiga skilið að lifa þar sem hann sagði engum frá sjálfs- vígspælingum vinar síns heldur hló og sagði þú þorir þessu aldrei. Sömu nótt fyrirfór vinur hans sér og næsta dag vildi hann ekki lifa. En sá sem sviptir sig lífi ber einn ábyrgð á því.“ Getur gerst í hverri fjölskyldu Eins og Salbjörg bendir á er hvert til- felli sérstakt. Fólk sem fyrirfer sér hér á landi er á öllum aldri, allt frá fimm- tán ára og upp í 81 árs. Fram til ársins Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ingibjorg@dv.is „Ef þú missir ein- hvern úr krabba- meini þá máttu enda- laust tala um hann en það hefur verið mikið tabú að tala um þann sem lést í sjálfsvígi. Mikilvægt að opna umræðuna Salbjörg segir að á 21. öldinni sé kominn tími til að horfast í augu við að sjálfsvíg eiga sér stað og ræða það. MynD SIGtryGGur ArI Milljónir til ÖSE Gunnar Bragi Sveinsson utan- ríkisráðherra hefur ákveðið að auka stuðning við eftirlitsverk- efni ÖSE í Úkraínu. Hann hefur ákveðið að til komi sex milljóna króna viðbótarframlag við þá að- stoð sem þegar hafi verið veitt. Að auki muni ráðuneytið senda annan starfsmann til starfa við verkefnið. Þetta kemur fram í til- kynningu frá ráðuneytinu. Gunn- ar Bragi, sem er staddur í Vín í Austurríki, fundaði á mánudag með Lamberto Zannier, fram- kvæmdastjóra ÖSE. Segir að Zannier hafi þakkað Íslendingum fyrir sýnilegt hlutverk í eftirlits- sveit stofnunarinnar í Úkraínu. Símaskráin komin út Ný símaskrá kom út í gær, mánu- dag, en að þessu sinni er hún gef- in út í samstarfi við Rauða kross- inn á Íslandi. Félagið heldur upp á 90 ára afmæli á þessu ári og hef- ur hrundið af stað skyndihjálpar- átaki, svo kunnátta og færni al- mennings í skyndihjálp aukist. Í símaskránni er skyndihjálpar- kafli frá Rauða krossinum, auk þess sem ýmsar upplýsingar um félagið og skyndihjálp er að finna í skránni. Símaskráin er fáanleg í verslunum Símans, Vodafone og Tals, verslunum Krónunnar og við bensínstöðvar Olís og Skeljungs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.