Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Qupperneq 6
Vikublað 6.–8. maí 20146 Fréttir Sambíóin skömmuð Lokuðu Facebook-síðu sinni vegna gagnrýni reiðra viðskiptavina S ambíóið í Álfabakka hefur lokað Facebook-síðu sinni og er hún nú óaðgengileg net- notendum. DV.is greindi frá því um helgina að uppsögn tveggja ungra kvenna í Sambíóunum hefði vakið hörð viðbrögð í samfé- laginu og að fólk notaði Facebook til að koma mótmælum sínum á fram- færi við kvikmyndahúsið. DV greindi frá því að þær Sess- elja Þrastardóttir og Brynja Sif hefðu fengið uppsagnarbréf frá Sambíóum vegna þátttöku þeirra í umræðum í hópnum Kynlegar athugasemdir á Facebook um kynjamisrétti á vinnu- staðnum. Báðar höfðu unnið í árar- aðir hjá Sambíóunum og var Sesselja verkstjóri í Álfabakka. Þær voru ósátt- ar við ákvörðun yfirmanna sinna um að úthluta konum og körlum sérstök- um verkefnum, en yfir mennirnir báru því meðal annars við að „konur seldu meira“ í sjoppum kvikmyndahússins. Á Facebook-síðu Sambíóanna er hægt að gefa stjörnur og einkunn og hafa fjölmargir viðskiptavinir nýtt sér þann mögulega til þess að lýsa yfir van- þóknun sinni. Margir gáfu kvikmynda- húsinu eina stjörnu og rökstuddu með vísun til uppsagnar Sesselju og Brynju. Sögðust margir ætla að sniðganga kvikmyndahúsið. „Af hverju mega stúlkur ekki starfa sem dyraverðir hjá ykkur? Af hverju mega piltar ekki af- greiða einir í sjoppunni? Af hverju eru aðeins 6 af 40 starfsmönnum hjá ykkur karlkyns? Af hverju missa tvær stúlkur vinnuna eftir að hafa sagt frá því kynja- misrétti sem virðist við lýði hjá ykkur?“ sagði einn ósáttur viðskiptavinur, Sig- urrós Jóna Oddsdóttir, í rökstuðningi með einni stjörnu. Sem kunnugt er sagði Alfreð Ás- berg Árnason, framkvæmdastjóri Sambíóanna, í samtali við DV að Sess- elja og Brynja hefðu fengið uppsögn vegna skipulagsbreytinga, en neitaði að tjá sig frekar um málið þegar eftir því var leitað. n astasigrun@dv.is Á uppsagnarfresti Sesselja og Brynja vinna nú þriggja mánaða uppsagnarfrest sinn. Mynd Sigtryggur Ari Ólafur Arnar- son gjaldþrota Meiðyrðamál endaði í gjaldþroti Ólafur Arnarson, hagfræðingur og ritstjóri Tímaríms, hefur verið úr- skurðaður gjaldþrota. Skuldirnar eru til komnar vegna fyrirtækja- rekstrar fyrir hrun sem gekk illa. „Ég lenti í vandræðum vegna fyrirtækjarekstrar skömmu fyrir hrun. Eftir hrunið hefur mér því miður ekki tekist að komast út úr þessu og því er þessi staða komin upp núna,“ segir Ólafur í samtali við DV. Bú hans var innkallað var þann 22. apríl síðastliðinn, en sá sem fór fram á gjaldþrotaskiptin fékk kröfu í bú hans eftir dómsmál. Ólafur segir að Friðrik J. Arn- grímsson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri LÍÚ, hafi farið fram á gjaldþrotaskiptin en Friðrik átti 300 þúsunda króna kröfu eftir meiðyrðamál sem hann höfðaði á hendur honum árið 2012. Ólafur var dæmdur til þess að greiða Friðriki 300 þúsund krónur í miskabætur fyrir ummæli sín, en þau voru um áróðursvefinn AMX og LÍÚ. „Það er spurning hvort þetta er einhver velgjörð Friðriks í minn garð,“ segir Ólafur. „Án þess að fara í gjaldþrot þá eru þessar kröf- ur lifandi um aldur og ævi ef þeim er haldið þannig.“ Kaupa allt að tólf sorpbílum Reykjavíkurborg hefur gert samn- ing um kaup á allt að tólf metan- knúnum sorphirðubílum. Fyrstu fjórir bílarnir verða afhentir í október og frekari pantanir munu ráðast af endurnýjunarþörf flot- ans. Bílarnir verða með tvískipt- um sorpkassa svo hægt verður að sækja tvo flokka af úrgangi sam- tímis. Sá fjórði verður með krana sem þýðir að hægt verður að hífa upp niðurgrafna gáma þar sem aðkoma er erfið og þröng. Ráðgert er að koma fyrir niðurgröfnum sorpgámum á nýjum bygginga- svæðum svo sem í Vestur bugt og á Valssvæðinu. Eignir metnar á 270 milljónir Vel stæð ferðaþjónusta Hreiðars Más rennir hýru auga til Svartagils í Borgarfirði F erðaþjónustufyrirtæki í eigu Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Kaup- þings, á eignir sem nema tæplega 270 milljónum króna. Þetta kemur fram í ársreikn- ingi félagsins Gistivers ehf., fyrir árið 2012. Stykkishólmur er heimabær Hreiðars Más. Félagið á og rekur tvö gistiheim- ili í Stykkishólmi, Hótel Egilsen og Bænir og brauð. Helstu eignir félagsins eru hús- eignirnar sem gistiheimilin tvö eru rekin í. Félagið tapaði rúmlega 25 milljónum króna í fyrra. Hreiðar Már er skráður stjórnarmaður í félaginu en það er í eigu eignarhaldsfélagsins Valens ehf. sem er í eigu eiginkonu hans, Önnu Lísu Sigurjónsdóttur. Móðir Hreiðars, Gréta Sigurðar- dóttir, hefur séð um rekstur gisti- heimilanna í Stykkishólmi. Hundrað milljóna veð Rúmlega 100 milljóna króna veð- bönd hvíla á Hótel Egilsen, sem er í reisulegu, gömlu húsi við Aðalgötu 2 í Stykkishólmi. Annars vegar er um að ræða 54 milljóna króna lán frá MP banka sem var flutt af fasteign sem Hreiðar Már á í Fossvoginum í Reykjavík og hins vegar veðbönd frá fjárfestingarsjóði sem rekinn er af Stefni, sjóðsstýringarfyrirtæki Arion banka. Sjóðurinn heitir Stefnir, Icelandic Travel Service. Ferðaþjón- ustufyrirtæki Hreiðars Más virðist því vera fjármagnað að hluta til af sjóði í vörslu Arion banka. Í ársreikningi Gistivers koma bæði þessi lán fyrir, lán MP banka annað sem hefðbundið lán en hitt sem skuldabréf með breytirétt en í því felst væntanlega að sjóðurinn getur breytt láninu í eignarhlut í hús- inu eða félaginu Gistiveri að ákveðn- um forsendum gefnum. Haslar sér völl Hreiðar Már hefur á síðustu árum verið að hasla sér völl í ferðaþjónustu á Íslandi en auk áðurnefndra gisti- heimila kom hann að kaupunum á Hótel Hengli á Nesjavöllum en það hótel heitir í dag ION Luxury Adventure Hotel. Gistiver á 50 pró- sent í félaginu sem á það hótel. Þá greindi DV frá því í lok síðasta árs að Hreiðar Már hefði áhuga á að reisa 300 manna hótel á Skógum á Suðurlandi. Stofnað hefur verið félag utan um hótelbygginguna sem heit- ir Skógar fasteignafélag ehf. en það félag er stofnað af ferðaþjónustufyr- irtækinu Reykjavík Backpackers ehf. og eignarhaldsfélaginu Nitri ehf. Að- standendur Reykjavík Backpackers eru meðal annarra Hilmar Hafsteins- son, fyrrverandi starfsmaður Kaup- þings, og Davíð Másson. Þeir Hilmar og Davíð eru einnig eigendur félags- ins Stara ehf. sem meðal annars hef- ur leigt Þverá og Kjarrá í Borgarfirði. Hreiðar Már, líkt og margir aðrir þekktir athafnamenn, virðist því sjá tækifæri í þeirri ört vaxandi atvinnu- grein sem ferðaþjónusta er á Íslandi. Hann hefur auk þessa eignast hlut í ferðaþjónustufyrirtæki. Fjármagnið til eignauppkaupa hér á landi hefur Hreiðar Már með- al annars flutt inn í gegnum fjár- festingarleið Seðlabanka Íslands en í lok árs í fyrra fór Gistiver ehf. í skuldabréfaútboð fyrir samtals 500 milljónir króna. Með því að nýta sér fjárfestingarleiðina til að flytja inn erlendan gjaldeyri fæst 25 prósenta afsláttur á íslenskum krónum í gegn- um Seðlabanka Íslands. rennir hýru augu til Svartagils DV hefur auk þess heimildir fyrir því að Hreiðar Már renni hýru augu til jarðarinnar Svartagils í Borgar- byggð en jörðin er sem stendur í eigu jarðafélags Lífsvals. Landsbank- inn tók Lífsval yfir í ársbyrjun 2012 og hefur reynt að selja eignir þess. Með jörðinni fylgja veiðiréttindi í Norðurá. Fasteignamat jarðarinnar er tæplega 50 milljónir króna. Á nærliggjandi jörð í Borgarfirði á Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, þekkt sumarhús sem lengst af var inni í eignarhaldsfélagi sem heitir Veiði- lækur ehf. Félagið var að hluta til fjármagnað af tryggingafélaginu VÍS. Á húsinu, sem Sigurður afsalaði sér til félagsins Rhea ehf. árið 2011, hvíla veðbönd frá Sparisjóði Reykjavík- ur og nágrennis og VÍS fyrir samtals tæplega 280 milljónir króna. Umsvif Hreiðars Más Sigurðs- sonar á Íslandi eru því umtalsverð í dag, og er það sem hér er nefnt örugglega bara hluti af þeim, þó svo að þau séu á öðrum sviðum en á ár- unum fyrir hrunið 2008. n ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is „Umsvif Hreiðars Más Sigurðssonar á Íslandi eru því umtalsverð í dag Vill jörð í Borgarfirði Hreiðar Már rennir hýru auga til jarðarinnar Svartagils í Borgarfirði. Hann hefur keypt upp umtalsvert eigna á Íslandi eftir hrunið, aðallega á sviði ferðaþjónustu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.