Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Side 8
Vikublað 6.–8. maí 20148 Fréttir
D
ótturfélag Arion banka
hyggst hækka leiguverð hús-
næðis sem Nýlistasafnið
(Nýló) hefur verið með á
leigu frá árinu 2009 um 150
prósent. Nýló hefur verið að greiða
400 þúsund krónur á mánuði fyrir
húsnæðið sem er við Skúlagötu 28 í
Reykjavík. Eigendur segja að mark-
miðið sé að ná leigunni upp í milljón
á mánuði.
Mikillar óánægju gætir með
þessa ákvörðun á meðal aðstand-
enda safnsins en ljóst er að það getur
ekki staðið undir svo hárri leigu. For-
maður stjórnar Nýló segir þetta mik-
il vonbrigði fyrir aðstandendur safns-
ins. Sýning Hreins Friðfinnssonar,
æ ofaní æ, stendur nú yfir í Nýló.
Hún verður opin þar til Listahátíð í
Reykjavík lýkur þann 5. júní. Ljóst er
að þetta verður jafnframt síðasta ver-
kefnið í núverandi húsnæði.
Endurtekin saga
„Við erum að leita að nýju húsnæði
fyrir starfsemina en núgildandi
leigusamningur rennur út í byrj-
un júní,“ segir Þorgerður Ólafsdótt-
ir, formaður stjórnar Nýló. Búið er
að pakka hinni verðmætu safneign
Nýló, plasta hana og setja á pallettur,
en hún inniheldur verk eftir Dieter
Roth, Sigurð Guðmundsson, Kristján
Guðmundsson, Rósku, Hrein Frið-
finnsson, Rúrí og fleiri listamenn.
Það er þó alls óljóst hvar menningar-
verðmætunum verður komið fyrir
en safnið hefur verið í viðræðum við
Reykjavíkurborg.
Þorgerður segir þetta kunnuglega
stöðu fyrir aðstandendur Nýló en
þau misstu húsnæði sitt við Lauga-
veg á svipaðan hátt árið 2009. „Það
er alvitað að það er góð fjárfesting
að leigja listamönnum rými og leyfa
þeim að sjá um uppbygginguna á
svæðinu. Á fimm árum hefur Nýló
tekist að tvöfalda eða þrefalda fer-
metraverðið fyrir eigendur húsnæð-
isins.“ Samt sem áður hafi þessi staða
komið stjórninni á óvart enda hafi
alltaf verið gengið út frá því að Nýló
yrði í húsnæðinu til lengri tíma.
„Eins og hústökufólk“
Sérstaða Nýló er sú að safnið er alfar-
ið rekið af listamönnum og eru full-
trúarnir alls 350 talsins. Eins og gef-
ur að skilja eru margir þeirra mjög
óánægðir með gang mála. Þorgerður
gagnrýnir framgöngu eigendanna og
segir þá ekki hafa viljað funda með
stjórn Nýló um lausn málsins. „Þeir
hafa ekki viljað hitta stjórnina, ekki
viljað setjast niður með okkur til þess
að reyna að leysa þetta á almenni-
legan hátt.“
Hún segir eigendurna hunsa þá
staðreynd að Nýló eigi lagalegt er-
indi inn á borð hjá þeim og bendir
á að Nýló hafi lagt milljónir króna í
viðhald á húsnæðinu á síðustu árum.
„Það átti að gera nýjan samning með
tilliti til þeirra viðgerða og viðhalds
sem við höfum lagt í. En þegar það
kom í ljós að þeir hefðu eingöngu í
hyggju að hækka leiguna það mik-
ið að við réðum ekki lengur við hana,
settum við lögfræðinga okkar í málið.
Við leituðum leiða til að finna lausn á
þessu misræmi í ábyrgð á húsnæðinu
og lögðum til að eftirstandandi leiga,
alls fjórir mánuðir, myndu falla niður
til þess að eitthvað kæmi til móts við
okkar kostnað. Aftur á móti láta þeir
bara eins og við séum hústökufólk
sem neitar að borga leigu.“
Fjáröflun framundan
Þorgerður bendir á að Nýló hafi
fengið sérstakan stofnstyrk frá ríkinu
upp á 1,9 milljónir króna. „Að glata
því fé með þessu húsnæði er auðvit-
að mjög ömurlegt.“ Hún segir ljóst
að Nýló þurfi að finna sér húsnæði
til framtíðar.
Framundan er viðamikil fjáröflun
þar sem listamenn sem tengjast Nýló
munu gefa verk, en söfnunin mun
standa yfir í vor og sumar. „Nú ætla
listamennirnir bara að taka sig saman
og sjá til þess safnið þeirra hverfi
ekki,“ segir Þorgerður. Hugmyndin
er sú að peningarnir nýtist sem inni-
stæða í nýju húsnæði fyrir safnið.
Þrátt fyrir þetta lítur hún á björtu
hliðarnar en hún er á því að Nýló
muni spjara sig ágætlega um ókomna
tíð: „Nýló á eftir að gera góða hluti al-
veg sama hvar það verður, en réttast
væri að hafa það á stað þar sem sér-
hagsmuna leigusala gætir ekki.“ n
Listamönnum
Nýló var úthýst
Dótturfélag Arion banka hækkar leiguna um 150 prósent
„Aftur á móti
láta þeir bara
eins og við séum eitthvert
hústökufólk sem neitar
að borga leigu.
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
Dótturfélag Arion Húsnæðið er í eigu
dótturfélags Arion banka en bankinn hefur
verið iðinn við að auglýsa sig sem vin menn-
ingarinnar. MynD RóBERt REynisson
Mikil vonbrigði Þorgerður Ólafs-
dóttir, formaður stjórnar Nýló, segir
mikil vonbrigði að ekki hafi verið
hægt að komast að samkomulagi.
Kirkjan ætti að „skammast sín“
Er ekki harkalegt að stefna mönnum fyrir dóm? spyr Kári sem kirkjan stefndi
E
r það talið að fara vægt í sak-
irnar að stefna mönnum fyrir
dóm þegar þeir hafa boðið
sættir?“ spyr Kári H. Jónsson
sem Þjóðkirkjan hefur stefnt
vegna dúntökuhlunninda í hólma á
jörð Kára sem kirkjan telur sig hafa
ítak í frá fornu fari.
DV fjallaði um mál Kára í síðustu
viku og brást Biskupsstofa við með
því að senda DV athugasemd vegna
ummæla Kára í greininni. Meðal
annars vegna þess að Kári hafði það
á orði að kirkjan hefði gengið hart
fram að hans mati.
„Það er ekki rétt að kirkjan gangi
hart fram í þessu máli. Þvert á móti
hefur hún farið vægilega í sakir og
eingöngu leyft sér að leita úrlausnar
dómstóla,“ sagði í athugasemd lög-
fræðings Biskupsstofu.
Kári stendur hins vegar við um-
mæli sín og bendir á að hann hafi
mörgum sinnum boðið kirkjunni
sættir, bæði munnlega og í tölvu-
pósti til Guðmundar Þórs Guð-
mundssonar, lögfræðings á fast-
eignasviði hjá Biskupsstofu.
„Það er varla hægt að gera ráð
fyrir að meðalmaður hafi efni á að
ráða lögfræðing sér til varnar á 32
þúsund krónur með vaski á tímann.
Sá ágæti lögfræðingur er ekki bú-
inn að snúa sér við, né sækja dóm-
þing til Borgarness fyrr en kostnaður
er kominn upp í hálfa milljón króna.
En Biskupsstofa notar kirkjusjóð og
almenningsfé til að greiða fyrir sína
lögmenn,“ segir Kári.
Hann gagnrýnir líka að kirkj-
an telji sér það til málsbóta að hún
eigi enn ítök um allt land. „Fyrir það
ætti hún að skammast sín og láta
það liggja í þagnargildi ef hún hefði
snefil af sómatilfinningu.“ n
mikael@dv.is
Hart eða ekki hart? Þjóðkirkjan segist
ekki hafa gengið hart fram með því að
stefna landeigandanum Kára H. Jónssyni
vegna dúntökuhlunninda líkt og DV hefur
áður greint frá. MynD sigtRygguR ARi
Ók á sex
bíla og valt
Jeppa ekið á kyrrstæða bíla
Ökumaður jeppabifreiðar missti
stjórn á bíl sínum á bílaplani á
Tangarhöfða um ellefu leytið
á mánudag.
Ók hann á
sex kyrrstæða
bíla og valt
að endingu.
Nokkur
viðbúnaður var
á svæðinu og
sendi slökkvi-
liðið menn,
dælubíl og tvo
sjúkrabíla á vettvang, auk þess
sem lögregla mætti.
Einn bíllinn skemmdist
nokkuð en hinir eru minna
skemmdir. Ökumaðurinn var
fluttur á slysadeild til skoðunar
en hann virtist ekki vera slas-
aður, samkvæmt upplýsingum
frá slökkviliðinu á höfuðborgar-
svæðinu. Ekkert liggur nánar
fyrir um tildrög þessa.
MynD BJöRn BlönDAl
MynD KRistJán Pálsson
MynD BJöRn BlönDAl
MynD KRistJán Pálsson
nokkuð tjón Eins og sjá má hefur eitt-
hvað gengið á. Mikil mildi er að enginn
slasaðist alvarlega.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
ALB10DAS 10,8V Li-Ion
Bor/skrúfvél 1,4Ah 30Nm
14.890
ALM18DB 18V Li-Ion
borvél 2,8Ah 38Nm
39.990
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Asaki VERKFÆRI
AR636 18V Skrúfvél
Ni-Cd 2,0Ah 158Nm
18.890
ALM14DF 14,4V Li-Ion
herðsluskrúfvél
2,8Ah 135Nm
36.890
ALM18DB 18V Li-Ion
borvél 2,8Ah 38Nm
39.990
ALM18DD 18V
höggborvél Li-Ion 2,8Ah
38Nm 2 hraðar
41.890
***** 5 stjörnu verkfæri
14.165
27.665 29.925
29.925
25% kynningarafsláttur í maí
Asaki verkfæri
fyrir iðnaðarmanninn
31.420
11.165
ATH: Tvær rafhlöður, taska
og hraðvirkt hleðslutæki
fylgir hverri hleðsluvél!
AM18DWE 18V NI-CD
borvél Ah 38N.m.
18.990AM14DW 14,4V NI-Cdborvél 1,5 Ah 36N.m
16.990 14.242
12.742