Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Blaðsíða 10
Vikublað 6.–8. maí 201410 Fréttir Þau Sögðu ítrekað óSatt n Ráðherra hylmdi yfir með þeim sem framdi brotið n Ráðherra og aðstoðarmenn töluðu gegn betri vitund n Dómsskjöl staðfesta fréttaflutning DV og hrekja málsvörn ráðherra H anna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra að­ hafðist ekkert þegar henni mátti ljóst vera að átt hefði sér stað refsiverð hátt­ semi á vinnustað hennar í lok nóv­ ember síðastliðinn. Þá greindu hún og aðstoðarmenn hennar, þau Þórey Vilhjálmsdóttir og Gísli Freyr Valdórsson, margsinnis rangt frá málavöxtum og fullyrtu gegn betri vitund að minnisblaðinu um hælis­ leitandann Tony Omos hefði ekki verið lekið úr innanríkisráðuneytinu. Úrskurður héraðsdóms vegna kröfu lögreglu um að fréttastjóra Mbl.is yrði gert að svara tilteknum spurningum varpar nýju ljósi á leka­ málið. Þar kemur fram að þann 19. nóvember, skömmu eftir að vinnu í ráðuneytinu lauk, barst ráðherra, aðstoðarmönnum og ráðuneytis­ stjóra, tölvupóstur með minnis­ blaði innanríkisráðuneytisins um Tony Omos sem hafði að geyma við­ kvæmar trúnaðarupplýsingar um hann, barnsmóður hans og íslenska konu. Daginn eftir vitnuðu fjölmiðl­ ar í skjalið, en lögreglan telur að að­ eins átta starfsmenn ráðuneytisins hafi vitað af tilvist þess daginn sem því var lekið. Alþingi blekkt Lögreglu var ekki tilkynnt um trún­ aðarbrotið, en tveimur dögum eftir að fréttirnar birtust fullyrti ráðu­ neytið hins vegar í tilkynningu á vefnum að ekkert benti til þess að gögnin sem um ræddi hefðu verið afhent fjölmiðlum af embættis­ mönnum innanríkisráðuneytisins. Næstu vikur og mánuði stað­ hæfði Hanna Birna margsinnis, meðal annars í fyrirspurnatíma á Al­ þingi, að engin sambærileg gögn við þau sem fjallað hefði verið um í fjöl­ miðlum væri að finna í ráðuneytinu. Svipuð ummæli voru höfð eftir að­ stoðarmönnum Hönnu Birnu. Úrskurður héraðsdóms staðfestir að Hanna Birna Kristjánsdóttir laug tvívegis að þingheimi. Þá staðfestir úrskurðurinn einnig að ekki stendur steinn yfir steini í tilkynningum sem birtar voru á vef innanríkisráðuneyt­ isins í tengslum við lekamálið. Símanotkun rannsökuð Lögregla rannsakar nú lekamálið að kröfu ríkissaksóknara og hefur yfir heyrt Hönnu Birnu auk þess sem dómsskjöl benda til þess að símanotkun hennar hafi verið rannsökuð. Lagt er kapp á að upp­ lýsa hver lak skjalinu, en þó er ekki útilokað að athafnaleysi ráðherra og aðstoðarmanna eitt og sér varði við lög. Málið er fordæmalaust í ís­ lenskri stjórnmálasögu. Hanna Birna gegnir stöðu innanríkisráð­ herra í umboði Sjálfstæðisflokksins og hafa þingmenn flokksins, meðal annars formaður hans, komið ráð­ herranum til varnar. Samkvæmt úrskurði héraðsdóms telur lögreglan að minnisblað innan ríkisráðuneytisins um Tony Omos hafi verið afhent fjölmiðlum í því skyni að sverta mannorð hans vegna mótmæla sem haldin voru þann 20. nóvember. Í desember var Tony Omos vísað úr landi, þrátt fyr­ ir að unnusta hans, Evelyn Glory Joseph, ætti von á barni. Rangfærslur á vef ráðuneytis Á vef innanríkisráðuneytisins má finna tvær tilkynningar sem virðast hafa verið birtar í þeim tilgangi að afvegaleiða umræðuna um lekamál­ ið. Þar er fullyrt þann 22. nóvember, tveimur dögum eftir að upplýsingar úr minnisblaðinu birtust í fjölmiðl­ um, að ekkert benti til þess að gögn hafi verið afhent af embættismönn­ um ráðuneytisins. Eftir að DV hafði fjallað um kærur á hendur ráðherra og starfsmönnum ráðuneytisins í janúar sendi Jóhann­ es Tómasson, upplýsingafulltrúi inn­ anríkisráðuneytisins, tölvupóst á DV þar sem hann ítrekaði fyrri svör ráðuneytisins vegna málsins. Sagði Jóhannes að athugun ráðuneytisins hefði staðfest að trúnaðargögn hefðu einungis farið til þeirra aðila sem samkvæmt lögum ættu rétt á þeim. Í tölvupóstinum stóð enn fremur: „Að auki hefur athugun ráðuneytis­ ins leitt í ljós að meintar trúnaðar­ upplýsingar sem birst hafa ítrekað í DV eru ekki sömu gögn og ráðu­ neytið hefur undir höndum vegna málsins, sem undirstrikar enn frekar þá niðurstöðu að umræddar trún­ aðarupplýsingar séu ekki fengnar úr innanríkisráðuneytinu.“ „Gætt fyllsta trúnaðar“ Tveimur dögum síðar eða þann 12. janúar, birtist eftirfarandi tilkynn­ ing á vef innanríkisráðuneytisins: „Athugun ráðuneytisins og rekstrar­ félags stjórnarráðsins staðfesti að trúnaðargögn vegna umrædds máls hafa einungis farið til þeirra að­ ila sem samkvæmt lögum eiga rétt á þeim. Ráðuneytið hefur því enga ástæða til að ætla annað en að öll­ um málsmeðferðarreglum hafi verið fylgt við meðferð þessa einstaka máls og starfsmenn ráðuneytisins og undirstofnana þess gætt fyllsta trún­ aðar.“ Dómsskjölin sem nú eru komin fram staðfesta að síendurteknar Innanhússathugun sett á svið Niðurstaðan byggði á sandi Hanna Birna, aðstoðarmenn hennar og upplýsingafulltrúi ráðuneytisins hafa ítrekað vísað til athugunar rekstrarfélags stjórnarráðsins og fullyrt að sú athugun staðfesti að engin trúnaðargögn hafi farið út úr ráðuneytinu og á óviðkomandi aðila. Engar frekari upplýsingar fengust þó frá ráðuneytinu eða rekstrarfélaginu sjálfu varðandi þessa athugun. Þá er ekki ljóst í hverju hún á að hafa falist. DV leitaði ítrekað svara hjá Guðmundi H. Kjærnested, framkvæmdastjóra rekstrarfélags stjórnarráðsins, og bað hann meðal annars um að staðfesta það hvort rannsóknin hefði farið fram. Hann sá sér ekki fært að staðfesta eitt né neitt og vísaði til þess að málið væri til skoðunar hjá ríkissaksóknara. Sé litið til dómsskjalanna er ljóst að niðurstaða rekstrarfélagsins var röng. Óskiljanlegt er hvernig rekstrarfélagið komst að fyrrnefndri niðurstöðu, því eins og fram hefur komið var skjalið útbúið í innan- ríkisráðuneytinu og sent á ráðuneytisstjóra, ráðherra og aðstoðarmenn ráðherra eftir að vinnudegi lauk þann 19. nóvember. Athugun rekstrarfélagsins ber því öll merki þess að hafa verið sett á svið í þeim tilgangi að ljá fullyrðingum ráðherrans trúverðugleika. Ekki steinn yfir steini Dómsskjöl staðfesta að málsvörn innanríkisráðherra í lekamálinu byggir á ósannindum. Ljóst er að aðeins örfáir aðilar höfðu aðgang að minnisblaðinu um hælisleitendurna á þeim tíma sem því var lekið, auk þess sem minnisblaðið barst úr innanríkisráðuneytinu öfugt við það sem Hanna Birna hefur haldið fram á Alþingi. Mynd SiGtRyGGuR ARi Jón Bjarki Magnússon Jóhann Páll Jóhannsson jonbjarki@dv.is/johannp@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.