Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Blaðsíða 14
Vikublað 6.–8. maí 201414 Fréttir Viðskipti Ráða 30 nýja starfmenn TW Software, hugbúnaðarfyrir­ tæki í eigu Nýherja, áætlar að bæta við 30 starfsmönnum á árinu, en nú starfa þar um 100 manns. Erlendar tekjur fyrirtækisins jukust um 90% á milli ára og eru nú 42% heildartekna fyrirtækisins. Áætlað er að erlendar tekjur muni áfram aukast og að þær verði um 1,7 milljarðar króna á árinu 2014. Stærstu verkefni fyrirtækisins eru á heilbrigðissviði, samtenging sjúkraskráa á Íslandi og heilsu­ vefurinn Vera. Afkoma fyrirtæk­ isins var betri á öllum einingum en áætlanir gerðu ráð fyrir, en sér­ staklega var mikil sala á hugbún­ aðinum Tempo. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Einkaaðilar hirði arðinn af Náttúruminjasafni n Hugmyndir um einkavæðingu á rekstri Náttúruminjasafns Íslands F járfestasjóður á vegum Lands­ bréfa vill taka að sér fjár­ mögnun á sýningum Nátt­ úruminjasafns Íslands í Perlunni og taka við arðin­ um sem fellur til af starfseminni. Þetta kom fram í glærukynningu á fundi borgarráðs Reykjavíkurborgar á föstudagsmorgun og DV hefur undir höndum. Málið var einung­ is kynnt en ekkert var ákveðið um framhaldið. Hilmar Malmquist, for­ stöðumaður Náttúruminjasafns­ ins, kynnti hugmyndina en hún hafði áður verið kynnt í mennta­ og menningarmálaráðuneytinu þann 11. apríl. Náttúruminjasafn Íslands er safn í eigu íslenska ríkisins og er starf­ semi þess bundin í lög. Það er eitt af höfuðsöfnum landsins. Athygli vekur að á síðasta kjörtímabili hafði mennta­ og menningarmálaráðu­ neytið teiknað upp sams konar hugmyndir um safn en án aðkomu einkaaðila. Safnið átti að reka með aðgangseyri og var talið hugsanlegt að það gæti staðið undir sér. Fjárfesta í ferðaþjónustu Sjóður Landsbréfa sem um ræðir heitir Icelandic Tourism Fund I slhf. Formaður fjárfestingarráðs sjóðsins er Grímur Sæmundsen, fram­ kvæmdastjóri og einn af eigendum Bláa lónsins. Ætla má að forsvars­ menn sjóðsins sjái einnig möguleika á því að safnið standi undir sér. Í heimasíðu Landsbréfa segir að forsvarsmenn sjóðsins átti sig á þeim tækifærum sem fel­ ast í fjárfestingum í ferðaþjónustu og hafi því stofnað hann. „Lands­ bréf höfðu því frumkvæði að stofn­ un fjárfestingarfélagsins Landsbréf Icelandic Tourism Fund I slhf. (ITF I) sem fjárfesta mun í uppbyggingu í íslenskri ferðaþjónustu. Lögð verð­ ur áhersla á ný heilsársverkefni sem fjölga afþreyingarmöguleikum fyr­ ir ferðamenn og stuðla að betri nýt­ ingu á innviðum ferðaþjónustunnar yfir vetrartímann.“ Samstarfsverkefni ríkis, borgar og fjárfesta Í glærukynningunni er rakið að hugmyndin sé að verkefnið verði samstarfsverkefni á milli fjár­ festasjóðsins, Reykjavíkurborgar, Náttúru minjasafnsins og íslenska ríkisins. Reykjavíkurborg er eigandi Perlunnar eftir að hafa keypt hús­ ið af Orkuveitu Reykjavíkur í fyrra. Hugmyndin er að Reykjavíkurborg leigi Náttúruminjasafninu Perluna til afnota og að nýtt rekstrarfé­ lag, Perlan hf., greiði fyrir leiguna og uppsetningu á sýningunni sem Náttúruminjasafnið sjái um. Í kynningunni segir að „áhuga­ vert“ sé að setja á fót sýningu með einkafjármögnun en fjármagn­ ið í verk efninu á allt að koma frá sjóði Landsbréfa. Opinberir aðilar sjá því ekki um fjármögnunina og bera því heldur ekki tapið af hug­ myndinni, gangi illa. Allur arður af sýningunni á hins vegar að renna til sjóðs Landsbréfa. Kostnaður tæpur hálfur milljarður Samkvæmt glærukynningunni er kostnaður vegna sýningarinnar áætlaður tæplega hálfur milljarður króna, rúmlega 480 milljónir. Meðal annars er gert ráð fyrir að sýnd verði beinagrind af steypireyði en áætlaður kostnaður við það er 50 milljónir króna. Steypireyðurin er hluti af sædýraþema sem á að vera í safninu sem kosta á 157 milljónir króna. Talið er að steypireyðurin geti verið öflugur sýningargripur: „Beinagrind steypireyðar er ekki frumforsenda en hefur afar sterkt aðdráttarafl á safnið.“ Þá á kvik­ myndasýning um íslenska fossa og norðurljósin að kosta 90 milljónir króna. Í glærukynningunni kemur fram að Reykjavíkurborg þurfi um 140 milljónir króna til að standa straum af kostnaði við Perluna en hugsan­ legt er að leigan sem rekstrarfélag safnsins þarf að greiða verði tekju­ tengd til að byrja með. „Borgin er þó opin fyrir því að tekjutengja leig­ una á meðan verkefnið er að byggj­ ast upp.“ Þannig mun Reykjavíkurborg hugsanlega koma til móts við fjár­ festa Landsbréfa sem standa á bak við verk efnið. n Formaðurinn Grímur Sæmundsen í Bláa lóninu er formaður fjárfestingarráðs sjóðs Landsbréfa. Kynnt borgarráði Hugmyndir um fjármögnunina voru kynntar á fundi borgarráðs á föstudaginn. „Beinagrind steypireyðar er ekki frumforsenda en hefur afar sterkt að- dráttarafl á safnið Steypireyður í Perluna Einn liður í hugmyndinni er sýning á beinagrind steypireyð- ar í Perlunni. Einkaaðilar vilja fjármagna sýningu Nátt- úrminjasafns Íslands. Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Ólöf Nordal verður formaður Ólöf Nordal, fyrrverandi varafor­ maður og alþingismaður Sjálf­ stæðisflokksins, verður formaður nefndar um heildarskoðun laga um Seðlabanka Íslands. Bjarni Benediktsson, fjármála­ og efnahagsráðherra, hefur skipað nefndina en auk Ólafar verða í nefndinni hagfræðingurinn dr. Friðrik Már Baldursson og Þráinn Eggertsson sem einnig er hag­ fræðingur. Nefndin mun skoða þróun á starfsemi annarra seðla­ banka og löggjöf á sviði pen­ ingamála og efnhagsstjórnunar. Markmiðið er að treysta trú­ verðugleika og traust á íslensk­ um efnahagsmálum, en einnig sjálfstæði bankans, að því er seg­ ir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Nefndin á að skila frumvarpi til nýrra laga ekki síðar en 31. des­ ember á þessu ári, en getur gert tillögu til ráðherra um breytingar á einstaka ákvæðum áður. Bjarni ber vitni í Aurum-máli Á að varpa ljósi á meinta „skuggastjórnun“ Jóns Ásgeirs H æstiréttur hefur fallist á kröfu sérstaks saksóknara um að níu vitni gefi skýrslu fyrir dómi er aðalmeðferð í Aurum­ málinu heldur áfram síðar í þessu mánuði. Tvö vitnin eru er­ lendir einstaklingar búsettir í Dúbaí og fá að gefa skýrslu í gegnum síma, en hinir sex eru fyrrverandi stjórn­ endur Glitnis. DV hefur áður greint frá ákærum í Aurum­málinu, en þeir Lár­ us Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, Jón Ásgeir Jóhannesson, sem átti stóran hlut í bankanum, Magn­ ús Arnar Arngrímsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs bankans, og Bjarni Jóhannesson, fyrrverandi viðskiptastjóri bank­ ans, eru ákærðir fyrir umboðssvik. Kært er vegna milljarðaviðskipta með skartgripaverslunina Aurum, en ákæruvaldið telur að viðskiptin hafi verið framkvæmd svo Jón Ásgeir gæti hagnast persónulega. Glitnir veitti sex milljarða króna lán í tengsl­ um við viðskiptin. Á meðal vitnanna sem leidd verða fyrir dóm er Bjarni Ármannsson, sem var forstjóri bankans á undan Lárusi Welding, og stjórnarmennirnir fyrr­ verandi Einar Sveinsson, Skarphéð­ inn B. Steinarsson, Þorsteinn M. Jónsson, Katrín Pétursdóttir, Hauk­ ur Guðjónsson og Pétur Guðmunds­ son. Þá munu þeir Nikhil Sengputa og Tawhid Abdullah bera vitni sím­ leiðis, en þeir eru búsettir í Dúbaí. Stjórnarmennirnir og Bjarni eiga að vitna um meinta „skuggastjórnun“ Jóns Ásgeir á Glitni. Jón hefur sjálfur tekið fyrir að hafa stjórnað bankanum og hefur haldið því fram að hann hafi jafn­ vel fengið verri þjónustu en aðrir. Nokkrar breytingar urður á útlána­ stefnu bankans eftir að Lárus tók við. Ákæruvaldið hefur meðal annars reynt að sýna fram á það við aðal­ meðferð málsins að hann hafi ver­ ið látinn taka við af Bjarna þar sem hann var móttækilegri fyrir tillögum Jóns Ásgeirs. n rognvaldur@dv.is Lárus og Bjarni Lárus Welding tók við af Bjarna Ármannssyni sem forstjóri Glitnis. Hætta að nota umdeilda olíu Undirskriftarsöfnun á netinu hef­ ur orðið til þess að Coca­Cola hefur ákveðið að hætta að nota ákveðna tegund grænmetisolíu (e. Brominated vegetable oil) í Powerade­íþróttadrykkinn. Olían er talin geta haft slæm áhrif á líkamann. Olían er sú sama og framleiðendur Gatorade tóku úr drykkjum sínum í fyrra. Um 200 þúsund manns skrifuðu und­ ir áskorunina á fyrirtækið, sem hefur staðfest að þrýstingur frá neytendum hafi orðið til þessa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.