Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Qupperneq 16
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason • Ritstjóri: Reynir Traustason • Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir Ritstjórnarfulltrúi: Ingi Freyr Vilhjálmsson • Umsjónarmaður innblaðs: Viktoría Hermannsdóttir • Umsjónarmaður helgarblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir • Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson • Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéttASkot 512 70 70FR jál S t, ó Háð DAg b l Að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AðAlnÚmeR RitStjóRn áSkRiFtARSími AUglýSingAR Sandkorn 16 Umræða Vikublað 6.–8. maí 2014 Hugsaðu þér hvað ég hefði verið góður borgarstjóri Skattar hafa verið lækkaðir á þá best settu Ábyrgðin er skýr. Hún er Hönnu Birnu Trausti rúinn ráðherra Guðni Ágústsson ræddi borgarpólitíkina í Sunnudagsmorgni. – RÚV Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, í ræðu sinni á 1. maí. – DVÞórður Snær Júlíusson skrifar um lekamálið. – Kjarninn H ann Birna Kristjánsdóttir situr enn sem innanríkisráðherra þrátt fyrir að vísbendingar hrannist upp um að hún eða aðstoðarmenn hennar hafi staðið að þeirri óhæfu að leka gögnum um hælisleitendur. Ráðherrann sætir lög­ reglurannsókn og hefur þegar verið yfirheyrður vegna grunsemdanna um að hafa ásamt aðstoðarmönnum sín­ um, Gísla Frey Valdórssyni og Þóreyju Vilhjálmsdóttur, haft samráð við Fréttablaðið og Morgunblaðið um að sverta fólkið sem átti að vísa úr landi. Ráðherrann hefur lýst því yfir við þing og þjóð að upplýsingarnar hafi ekki komið úr ráðuneytinu. Nú hef­ ur lögreglan upplýst að minnisblaðið umrædda var samið að beiðni skrif­ stofustjóra ráðuneytisins. Þá hefur hringurinn þrengst þannig að ljóst er að lekinn kom úr ráðuneytinu en ekki frá Rauða krossinum eða öðrum þeim sem dylgjað hafði verið um að kynnu að eiga hlut að máli. Það er hafið yfir skynsamlegan vafa að lekinn kem­ ur úr innsta hring og er fullkomlega á ábyrgð ráðherrans sjálfs. Fólk get­ ur velt því fyrir sér hvort mögulegt sé að aðstoðarmennirnir hafi farið á bak við ráðherrann og lekið minnisblað­ inu. Slíkt verður að teljast ólíklegt. Á milli aðstoðarmanna og ráðherra er venjulega fullur trúnaður og ólík­ legt að Gísli Freyr eða Þórey hafi far­ ið á bak við yfirmann sinn með þeim hætti. Hönnu Birnu ætti því að vera mikið í mun að upplýsa um slíkan trúnaðarbrest. Sama gildir um Ragn­ hildi Hjaltadóttur ráðuneytisstjóra og hennar fólk sem liggur undir grun. Ráðherrann ætti að kappkosta að upplýsa hvaða embættismaður sýnir af sér slíka siðblindu að beita afli rík­ isins til að hnoðast á landlausu fólki, blásnauðum hælisleitendum. En ráð­ herrann er ekki upptekinn af þessari hlið mála heldur þumbast við og situr trausti rúinn á ráðherrastóli sínum. Efnislega hefur Hanna Birna fátt annað sagt um málið en að ráðu­ neytisfólk sé saklaust. Annað er kom­ ið á daginn, hinn seki er við fótskör ráðherrans eða hann sjálfur. Eftir að Hæstiréttur kvað upp úrskurð sinn um að fréttastjóra Morgunblaðsins bæri ekki að upplýsa hver lak gögn­ unum hafði ráðherrann það eitt að segja að níu ára barn hennar hafi mælt til hennar þau huggandi orð að þetta væri bara pólitík. Þetta lýsir blindu Hönnu Birnu á kjarna máls­ ins. Það snýst ekki um að verið sé að koma höggi á ráðherra eða með­ reiðarsveina. Málið snýst um það að ráðuneyti dómsmála haldi trúnað við þegna landsins og gesti. Ef innanríkis­ ráðuneytið kemst upp með að leka upplýsingum um hælisleitendur er framhaldið augljóst. Næst verða póli­ tískir óvinir valdamanna fyrir barðinu á þeim. Enginn getur verið öruggur um að viðkvæmum persónuupplýs­ ingum um hann verði ekki dreift í gegnum fréttaveitur Fréttablaðsins eða Morgunblaðsins til að byggja upp stöðu kerfisins gegn þegnunum. Hanna Birna ber fulla og óskor­ aða ábyrgð á lekanum úr innanrík­ isráðuneytinu þar til hinn seki hefur verið dreginn fram úr fylgsni sínu. Með réttu ætti hún að vera farin af ráðherrastóli í stað þess að sitja sem æðsti yfirmaður lögreglunnar og mæta í yfirheyrslu hjá undirsát­ um sínum. Lekamálið er mælistika á siðferði í íslenskum stjórnmál­ um og getu þjóðarinnar til að bægja hinum spilltu frá valdastöðum. En veruleikinn blasir við eftir margra mánaða umræðu. Enginn hefur axlað ábyrgð. n Reynir Traustason rt@dv.is Leiðari Hættuleg leynigögn Upplýsingar eru á sveimi um peninga Íslendinga í skattaskjól­ um erlendis. Bryndís Kristjáns- dóttir skattrannsóknarstjóri hefur upplýst að embætti hennar hafa borist tilboð um að kaupa um­ ræddar upplýsingar. Skatturinn er aftur á móti smeykur um að ekki sé pólitískur vilji til að fara þá leið sem kunni enda að vera vafasöm. Bjarni Benediktsson fjár­ málaráðherra sagði við Moggann að málið hefði ekki komið inn á hans borð og þarna gæti verið vafasamt fordæmi. Þessi afstaða er léttir fyrir þá sem stærstir eru í feluleiknum. Illugi gegn kvóta Illugi Gunnarsson menntamála­ ráðherra var á árum áður einn helsti andstæðingur kvótakerf­ isins. Á frægum mótmælafundi í Alþýðuhúsinu á Ísafirði á níunda áratugnum var hann fundarstjóri og lagði áherslu á það að kerfið myndi rústa vestfirskar byggð­ ir. Það var á þessum fundi sem tengdafaðir hans, Einar Oddur Kristjánsson, þáverandi fram­ kvæmdastjóri, spáði því að örlög Vestfirðinga yrðu að óbreyttu þau að verða komið fyrir í blokk í Reykjavík. Nú blasir það við. Reiknað er með að Illugi láti til sín taka og leiðrétti ranglætið. Halldór braggast Spennan vegna borgarstjórnar­ kosninganna í Reykjavík hefur vaxið örlítið. Björt framtíð virðist ekki halda flugi Besta flokksins og dregur smám saman af þeim. Halldór Halldórs- son, leiðtogi Sjálf­ stæðisflokksins, hefur verið að færast í aukana þótt fylgi flokks­ ins sé óravegu frá blómaskeiðinu þegar hann hafði hreinan meirihluta í borgarstjórn. Sam­ starf sjálfstæðismanna við aðra er einnig ólíklegt þar sem Framsókn er hvorki fugl né fiskur. Svo virðist sem Dagur B. Eggertsson sé nær ósigrandi og að fátt komi í veg fyrir að hann verði borgarstjóri. Fari svo er hann jafnframt leið­ togaefni Samfylkingar. Skotheld sæla Bújarðir njóta mikilli vinsælda á meðal auðmanna sem sækja kyrrð og ró í faðm íslenskra sveita. Á meðal þeirra sem á sín­ um tíma komu sér vel fyrir í skjól­ góðum hvammi var Sigurður Einarsson, fyrr­ verandi stjórnar­ formaður Kaupþings, sem keypti Veiðilæk í Borgarfirði og byggði þar sumarhöll með skotheldu gleri í svefnherbergisálmu. Nú flýgur fyrir að félagi hans, Hreiðar Már Sigurðsson, sé að koma sér fyrir á meðal Borgfirðinga. Banki borgarbúa F ram hefur komið að íslensku bankarnir hagnast um tugi milljarða á ári. Það getur því gefið vel í aðra hönd að eiga banka, en þar sem flestir slíkir eru í einkaeigu rennur hagn­ aðurinn til fárra. Það er hvorki réttlátt né sann­ gjarnt að halda því fram að einka­ aðilar séu réttkjörnir að gróðanum. Eins og sagan sýnir er það þannig að verði banki fyrir miklum áföllum borga skattgreiðendur tapið. Fylkisbanki Norður-Dakóta Í Norður­Dakóta í Bandaríkjunum á fylkið sinn eigin banka. Þar með hagnast almenningur um leið og bankinn þeirra græðir. Bankinn má eingöngu fjárfesta í raunverulegum verðmætum og framleiðslu og þar sem hann fjárfestir ekki í vitleysu hafði bankahrunið 2007 lítil áhrif á hann. Bankinn í Norður­Dakóta var stofnaður 1919 og er enn að dæla fjármunum inn í fylkiskassann. Oft­ ar en ekki getur fylkið lækkað skatta og gjöld þegar bankinn hagnast vel, íbúarnir njóta arðsins. Fylkið þarf ekki að eiga varasjóði fyrir mögru árin með ærnum tilkostnaði því það getur alltaf fengið lán hjá bank­ anum sínum. Grunnhugsun fylkisbankans er félagsleg og þess vegna styður bankinn við einkabanka og önn­ ur einkafyrirtæki í fylkinu þannig að þau blómstra. Þar sem öll lán til fylkisins eru í raun vaxtalaus þá minnkar fjármagnskostnaður við allar framkvæmdir verulega. Borgarbankinn Dögun í Reykjavík vill stofna banka í eigu Reykjavíkurborgar sem rek­ inn verði til hagsbóta fyrir borgar­ búa. Við sjáum í raun ekkert sem mælir gegn þessu, því hvers vegna ætti borgin ekki að reka banka og nýta ágóðann af starfseminni til að greiða fyrir útgjöld borgarinnar? Borgarbanki væri mjög æski­ legur til að skapa samkeppni á nú­ verandi bankamarkaði. Hann yrði raunverulegur valkostur fyrir al­ menning og gæti orðið fyrirmynd að öðrum samfélagslega reknum bönkum víðar á landinu. Borgarbanki og aðrir samfélags­ legir bankar gætu jafnframt virk­ að sem hemill á stjórnlausa þenslu einkarekins bankakerfis sem endar í bankahruni eins og við þekkjum allt of vel. Ef við hefðum haft borgar­ banka sem rekinn hefði verið eins og bankinn í Norður­Dakóta hefði bankinn okkar staðið óhaggaður og sinnt sínum skyldum, en ekki orðið stór baggi á skattgreiðendum. Þess vegna er öll umræða um slíkan banka mjög mikilvæg. Íbúum til hagsbóta Bankinn i Norður­Dakóta hefur starfað í næstum hundrað ár og verið uppspretta mikilla tekna fyrir fylkið. Það segir okkur að það er vel gerlegt og æskilegt að stofna sams konar banka í Reykjavík. Bankakerfið er jafn samfélags­ lega nauðsynlegt og orkan eða heita vatnið og það á ekki að vera gullnáma nokkurra einstaklinga. Í raun er þetta eingöngu spurning um vilja. Hvort við viljum að gróði af bankastarfsemi renni til fárra út­ valinna eða til borgarbúa. Dögun vill að minnsta kosti breyta til og nýta bankastarfsemi íbúum til hagsbóta. n Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi í Reykjavík Kjallari MyND SIGTRyGGuR ARI JóHANNSSON „Borgarbanki væri mjög æskilegur til að skapa samkeppni á núverandi bankamarkaði. „Leka- málið er mælistika á sið- ferði í íslenskum stjórnmálum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.