Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Side 17
S
temmingin er frábær og
það eru allir vel stemmdir,“
segir Valgeir Magnússon,
umboðsmaður Pollapönks
sem tekur þátt fyrir hönd
Íslands í Eurovision í ár með laginu
Enga fordóma eða No Prejudice í
enskri þýðingu. Pollapönk skipa
þeir Haraldur Freyr Gíslason, Heið-
ar Örn Kristjánsson, Guðni Finn-
son og Arnar Þór Gíslason. Ásamt
þeim verða á sviðinu þeir Óttar
Proppé og Snæbjörn Ragnarsson
sem syngja bakraddir.
Fólk tengir við boðskapinn
Pollapönk stígur á svið á sviðinu í
B&W-höllinni í Kaupmannahöfn
í kvöld, þriðjudag, í fyrri undan-
úrslitakeppninni og keppir um að
komast að í úrslitakeppninni sem
fram fer á laugardagskvöld.
Þegar DV náði tali af Valgeiri,
eða Valla sport eins og hann er
gjarnan kallaður, í gær, mánudag,
var hópurinn í stífri dagskrá, blaða-
mannafundum og æfingum.
Valli segir mikla stemmingu
ríkja innan hópsins sem er sam-
heldinn. „Keppnin leggst vel í
okkur og þetta er alveg ótrúlega
gaman. Við erum hér til að flytja
ákveðinn boðskap og það er að tak-
ast að koma honum til skila. Fólk er
að tengja við það sem við erum að
segja og það er það sem við erum
að reyna að ná fram,“ segir Valli
fyrir hönd hópsins.
Vongóðir um að komast áfram
Veðbankar hafa ekki spáð laginu
góðu gengi. Aðspurður hvort þeir
séu sigurvissir segir Valli: „Við hugs-
um nú ekki mikið um keppnina sem
slíka og gerum okkur ekki vonir um
að Ísland lendi í neinum vandræð-
um með keppnishald út af okkur.
Við viljum þó gjarnan geta komist
á sviðið aftur á laugardaginn. Þá
náum við til fleira fólks.“
Hann viðurkennir að það sé
nokkuð stress innan hópsins. „Að
sjálfsögðu er spenna. Þetta er stórt
dæmi.“
Hann vill ekkert gefa upp um
það hvort að Pollapönk komi til
með að spila út einhverjum leyni-
trixum á sviðinu. „Það er alltaf eitt-
hvað, við sjáum hvað setur,“ segir
hann leyndardómsfullur.
Hafa vakið athygli
Pollapönk hefur vakið athygli úti,
meðal annars fyrir að mæta í kjól-
um á opnunarhátíð Eurovision.
„Boðskapur lagsins hefur vak-
ið athygli enda er hann mjög góð-
ur og við höfum líka notað hvert
tækifæri til þess að koma honum
á framfæri enda er hann nauðsyn-
legur.“
Eitthvað að lokum? „Enga for-
dóma, dreifið boðskapnum.“ n
viktoria@dv.is
„Þetta er alveg
ótrúlega gaman“
„Við gerum okkur ekki
vonir um að Ísland lendi
í neinum vandræðum með
keppnishald út af okkur
n Vonast til að komast áfram en eru ekki of sigurvissir n Bera út boðskapinn
4. apríl 2014
U m s j ó n : V i k t o r í a H e r m a n n s d ó t t i r / v i k t o r i a @ d v . i s
6. maí 2014