Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Qupperneq 20
Vikublað 6.–8. maí 20144 Skrýtnustu lög Eurovision Sumir reyna að vera furðulegir en aðrir eru hreinlega furðulegir. Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, betur þekkt sem Eurovision, hefur fært Evrópubúum ansi mörg furðuleg uppátæki og verða nokkur þeirra rifjuð upp hér. 1976 Peter, Marc, Sue Djambo Djambo n Þessi svissneska sveit hefur fjórum sinnum tekið þátt í Eurovison en ratar ekki á list- ann fyrir einkennilegt lag, sem endaði meira að segja í fjórða sæti, heldur trúðinn sem myndi sóma sér vel í verstu martröðum þeirra sem eru með óútskýranlega hræðslu við trúða. Ekki einu sinni Freddy Kruger hefði náð að fæla jafn marga frá skjánum og þessi óhugnanlegi trúður. 2008 Pirates of the Sea Wolves of the Sea n Það hefur margsinnis verið sagt að Eurovision-keppnin sé oftast nær fimm árum á eftir allri tísku. Pirates of the Caribbean kom út árið 2003 og naut gífurlegra vinsælda. Fimm árum síðar sáu Lettar það á umheim- inum að sjóræningjar væru inni og því væri eflaust hægt að hala inn fjölda stig á þeirri bólu. Lagið hafnaði í 12. sæti, fékk 83 stig. Sá hlær best sem síðast hlær sagði einhver, einhvern tímann. 2002 Michalis Rakintzis S.A.G.A.P.O. n Veistu lykilorðið? Grikkinn Michalis Rakintzis veit það og sagði það oft og mörgum sinnum í Eurovision-keppninni árið 2002. S.A.G.A.P.O. er lykilorðið að hans sögn en það er afskræm- ing á gríska frasanum S'agapo sem myndi útleggjast á íslensku sem Ég elska þig. Grafkyrr í svörtu óeirðaleðri söng hann þetta opineygur á sviði og fáir skildu neitt í neinu. Lagið endaði í 17. sæti með 27 stig. 1987 Lazy Bums Shir Habatlanim n Algjörlega langskemmtilegasta lagið og atriðið á þessum lista. Lagið olli þó svo miklu uppnámi í Ísrael að þáverandi menningar- málaráðherra landsins, Yitzhak Navon, hótaði að segja af sér ef lag- ið yrði framlag Ísraela. Hann gerði það ekki og þessi dúett sló í gegn með frábærri framkomu sem var jafn furðuleg og þeirra sem notast við sólgleraugu innandyra. Lagið fékk 73 stig og hafnaði í 8. sæti. 1980 Telex Eurov-vision n Þessi belgíska rafsveit vakti verðskuld- aða athygli á sínum tíma og ekki síst vegna söngvarans sem leit út eins og hann ætlaði að selja Evrópubúum tryggingar en ekki syngja fyrir þá hugljúft Eurovision-popp. Texti lagsins fjallaði um keppnina sjálfa og hvað hún væri nú mikil klisja. Áhorfendur í sal voru slegnir yfir þessari framkomu. Sveitin endaði í 17. sæti með fjórtán stig en furðuleg uppákoma átti sér stað þegar Grikkir gáfu laginu þrjú stig. Kynnirinn átti bágt með að trúa því og taldi það vera misskilning og gaf Hollandi stigin þrjú. Það var að sjálfsögðu leiðrétt. Pétur Christiansen sjóntækjafræðingur Við bjóðum gamla og nýja viðskiptavini velkomna í gleraugnaverslun okkar í Garðabæ Finndu okkur á facebook Opið alla virka daga frá 9 til 18 Gengið inn í torgið Gleraugna Pétur Garðatorgi 7 210 Garðabær Sími 571 2122 www.gleraugnapetur.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.