Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Qupperneq 23
Vikublað 6.–8. maí 2014 7
Svona fóðrar þú gestina þína
n Þetta er snarlið fyrir Eurovision-partíið
Æ
tlar þú að halda Euro
visonpartí í kvöld
eða um helgina og
veist ekkert hvað
þú átt að bjóða gestunum
þínum upp á. Ekki örvænta
– svörin eru öll hér.
Hægt er að nálgast þetta
verkefni á ýmsan máta en ef
laust er skemmtilegast að hafa
veigarnar alþjóðlegar, í takt við
keppnina. Þá væri til dæmis þjóðráð
að vera með veitingar sem tengjast
löndunum hverju sinni.
Þegar íslensku Pollapönkararnir
stíga á sviðið á þriðjudags
kvöld er auðvitað leikur
einn að bjóða gestunum
þínum upp á íslenskar
pylsur með öllu tilheyr
andi. Þjóðlegra, ein
faldara og betra verð
ur það varla.
Þegar Ítalía er að
keppa væri þá hægt að
setja fram parmaskinku
sneiðar með parmesan
osti, basilblöðum og
jafnvel smá balsamik
sírópi. Niðurskorin melóna
smellpassar með þessu. Því er svo
hægt að raða fallega á bakka, setja
sneiðarnar í röð með basilblöðum,
rífa parmesanostinn og setja í skál
og hafa balsamiksíróp til hliðar.
Þegar Danir stíga á svið væri vel
til fundið að hafa smurðar rúg
brauðssneiðar með lifrar
kæfu fallega niðurskornar
fyrir gestina.
Þegar Þjóðverjar keppa
væri svo tilvalið að steikja
Bratwurstpylsur með
sinnepi og kartöflusalati og
bjór.
Síðast en ekki síst er auðvitað
einfaldast að biðja gestina að koma
með rétt sem tengist því landi sem
þeir halda með. Þar með sleppur þú
alfarið við undirbúninginn og þarft
bara að veita húsaskjól – sjónvarpið
sér svo um skemmtiatriðin. n
astasigrun@dv.is
Dagskrá
forkeppninnar
Hér má sjá í hvaða röð löndin
koma fram í báðum forkeppn
unum, sem fram fara í kvöld,
þriðjudag, og næstkomandi
fimmtudagskvöld. Útsending
hefst klukkan 19.00 bæði
kvöldin. Spenntir áhorfend
ur þurfa ekki að bíða lengi eftir
að sjá Pollapönkarana stíga á
svið, en þeir eru fimmta atriðið á
þriðjudagskvöldi.
Fyrra kvöldið
Armenía
Lettland
Eistland
Svíþjóð
Ísland
Albanía
Rússland
Aserbaídsjan
Úkraína
Belgía
Moldavía
San Marínó
Portúgal
Holland
Svartfjallaland
Ungverjaland
Seinna kvöldið
Malta
Ísrael
Noregur
Georgía
Pólland
Austurríki
Litháen
Finnland
Írland
Hvíta-Rússland
Makedónía
Sviss
Grikkland
Slóvenía
Rúmenía
Caput | Þóra Einarsdóttir | Geoffrey Douglas Madge
Pringipessa Orchestra | Karl Ágúst Úlfsson kynnir
Þér er boðið á
tónleika!
Evrópusambandið fjármagnar
starfsemi Evrópustofu.
Í tilefni af Evrópudeginum 2014 stendur Evrópustofa fyrir
GRÍSKRI TÓNAGLEÐI
í Eldborgarsal Hörpu, föstudaginn 9. maí kl. 20:00
Caput flytur verk eftir Nikos
Skalkottas og grísk þjóðlög í
útsetningu Maurice Ravel. Hinn
heimsþekkti ástralski píanóleikari,
Geoffrey Douglas Madge kemur
fram með Caput ásamt hinni
ástsælu sópransöngkonu
Þóru Einarsdóttur.
Eftir hlé stígur gríska hljómsveitin
Pringipessa Orchestra á svið og
leikur lög eftir þjóðlagaskáldið
Vasílis Tsitsánis sem almennt er
talinn eiga mestan þátt í þróun
grískrar tónlistarhefðar sem
kallast rebétiko.
Aðgangur á tónleikana er ókeypis
og hægt er að tryggja sér miða hjá miðasölu Hörpu.
Rebétiko í Reykjavík
Skalkottas & Ravel
Nánari upplýsingar á evropustofa.is
SENDINEFND
ESB Á ÍSLANDI