Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Side 25
Umræða 17Vikublað 6.–8. maí 2014 „Þetta er miklu ódýrari kostur Davíð er ennþá að kosta okkur svo mikið Vil ekki vera þátttakandi í því að kirkja sé notuð sem stríðsvettvangur Árni Johnsen vill göng milli lands og Eyja. – Fréttablaðið Ólafur Arnarson skrifar bók um Davíð Oddsson. – DVJónína Ben var rekin úr Krossinum. – DV Myndin Barnamenningarhátíð Þessir hressu fjórðubekkingar voru í stórum hópi krakka sem mættu í Hörpu í tilefni Barnamenningarhátíðar í Reykjavík sem lauk um liðna helgi. Mynd Sigtryggur Ari Þrjóturinn umsjón: Henry Þór Baldursson Slæmt ástand í málefnum eldri borgara S taðan í kjaramálum eldri borgara er slæm. Það er ekki unnt að lifa mannsæm- andi lífi af þeim lága lífeyri, sem eldri borgarar fá frá al- mannatryggingum. Þeir eldri borg- arar, sem hafa þokkalegan lífeyris- sjóð eru lítið betur settir en þeir sem aldrei hafa greitt í lífeyrissjóð: Það er rifið af þeim nálega jafnmikið hjá Tryggingastofnun eins og þeir fá úr lífeyrissjóði. Þessar miklu skerðingar eru blettur á almannatryggingunum. Þær skapa einnig óvild hjá lífeyris- þegum í garð lífeyrissjóðanna enda þótt ákvörðun um þessar skerðingar hafi verið tekin hjá Alþingi og stjórn- völdum en ekki hjá lífeyrissjóðunum. Enginn alþingismaður hreyfir því á Alþingi, að það þurfi að leiðrétta þess- ar skerðingar. Ef allt væri með felldu ætti Alþingi að rísa upp og ákveða, að þessar miklu skerðingar væru stöðv- aðar þegar í stað og lífeyrismál eldri borgara og öryrkja leiðrétt. Ástandið varðandi hjúkrunarheimili engu betra Ástandið varðandi hjúkrunarheim- ili fyrir aldraða er engu betra en staðan í kjaramálum. Á krepputím- anum var mikið skorið niður í heil- brigðismálum. Sá niðurskurður bitn- aði einnig á hjúkrunarheimilum og hjúkrunardeildum sjúkrahúsa úti á landi. Það var fækkað hjúkrunarrým- um víða á landsbyggðinni. Þá hefur sú stefna að hafa eingöngu einbýli í hjúkrunarheimilum einnig fækk- að fjölda hjúkrunarrýma, þar eð víða hefur tvíbýlisstofum verið breytt í einbýlis stofur. Ríkisstjórn Samfylk- ingar og VG setti í gang byggingu nýrra hjúkrunarheimila. Sú ákvörðun hefur undanfarið verið að skila sér í nýjum hjúkrunarheimilum, einkum úti á landi og í nágrenni Reykjavíkur. Ástandið í þessum málum er einna verst í Reykjavík. 360 ný hjúkrunarrými samkvæmt leiguleið Árni Páll Árnason, þáverandi fé- lags- og tryggingamálaráðherra, fékk heimild ríkisstjórnar Samfylkingar og VG til að vinna að hugmyndum um nýjar leiðir til að fjármagna upp- byggingu hjúkrunarrýma. Stefnt var að uppbyggingu um 360 hjúkrunar- rýma á árunum 2010–2012 og áætl- aður kostnaður verkefnisins um níu milljarðar króna. Hugmyndirnar byggðust á því að Íbúðalánasjóði yrði heimilað að lána sveitarfélögum fé til uppbyggingar hjúkrunarrýma, sem gæti numið allt að 100% af fram- kvæmdakostnaði. Forsenda lán- veitinga var, að samningur hefði verið gerður milli ríkis og sveitarfélags um leigugreiðslur til 40 ára. Ástandið enn slæmt í reykjavík Þessi leið krafðist breytinga á lögum um húsnæðismál, til að veita Íbúða- lánasjóði heimild til lánveitinga vegna uppbyggingar hjúkrunarrýma. Þá var ákveðið að breyta tímabund- ið lögum um Framkvæmdasjóð aldraðra, sem heimilaði að greiða rekstrar kostnað vegna þessara rýma á árunum2011 og 2012 þannig að aukinn rekstrarkostnaður félli ekki á ríkissjóð. Þau hjúkrunarrými, sem komið var á fót með þessu fyrirkomu- lagi, eru í níu sveitarfélögum. Flest þeirra eru í sveitarfélögum í nágrenni Reykjavíkur, þ.e. á Seltjarnarnesi, í Mosfellsbæ, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ og Reykjanesbæ, en einnig á Akureyri, Fljótsdalshéraði og í Borg- arbyggð. Um 200 rými leysa fjölbýlis- rými af hólmi, þannig að af áætluðum heildarfjölda eru um 160 ný hjúkr- unarrými. Þrátt fyrir þessa uppbyggingu hjúkrunarrýma er ástandið í þess- um málum enn mjög slæmt í Reykja- vík og langur biðlisti þar eftir rými á hjúkrunarheimilum. Það vantar 100 hjúkrunarrými í Reykjavík og bið- tíminn þar er fjórir mánuðir. Ljóst er, að það verður enn að gera nýtt átak í uppbyggingu hjúkrunarheimila. n Björgvin guðmundsson form. kjaranefndar Félags eldri borgara Aðsent „Ljóst er, að það verður enn að gera nýtt átak í uppbyggingu hjúkrunarheimila. 1 Fórnarlamb Hjartar hætt á Stöð 2 Starfsmaður 365 miðla sem Hjörtur Hjartarson, fréttamaður Stöðvar 2, réðst að í starfs- mannateiti er hættur störfum hjá 365. Maður- inn þurfti að leita sér aðhlynningar í kjölfar atviks- ins, en hann fékk áverkavottorð frá lækni samkvæmt heimildum DV. Hjörtur mun hins vegar snúa aftur til starfa hjá fyrirtækinu. 43.968 hafa lesið 2 Hjónin reyndu sjálfsvíg sama dag „Ég sé engan tilgang með lífinu, nema bara fyrir börnin mín,“ segir María Þórdís Guðmundsdóttir, ekkja Stein- gríms Kristins Sigurðssonar, Steina bakara, sem fyrirfór sér með skotvopni í sumarhúsi fjölskyldunnar í september 2012. Sjálf hefur hún fjórum sinnum reynt að svipta sig lífi og segir að sjálfsvíg eigi ekki að vera feimnismál. 42.855 hafa lesið 3 „Hefði viljað hafa pabba lengur hjá okkur " Guðmundur Óli Bergmann Steingríms- son er sonur þeirra Maríu Þórdísar Guð- mundsdóttur og Steingríms Kristins Sigurðarsonar. Steingrímur framdi sjálfsvíg í september árið 2012 og skildi eftir eiginkonu og sex börn. Guðmundur Óli er elstur systkinanna, 28 ára, en sá yngsti var aðeins fjögurra ára þegar faðir þeirra dó. Guðmundur Óli hefur ekki þegið neina sálfræðihjálp en segir að það hjálpi honum að ræða opinskátt hvað gerðist. Hann virðir ákvörðun föður síns og segist ekki þurfa skýringu á því sem gerðist. 39.937 hafa lesið 4 Fannst látinn við hótel á Suðurlandi Sextugur maður fannst látinn í heitum potti við hótel á Suðurlandi þar seinustu helgi. Að sögn Sveins Krist- jáns Rúnarssonar, yfirlögreglustjóra á Hvolsvelli, ekki er talið að dauða mannsins hafi borið að með saknæmum hætti. 37.393 hafa lesið 5 Jónína Ben: Búið að reka mig úr Krossinum „Já, það er rétt. Ég fékk bréf í gær,“ segir Jónína Benediktsdóttir sem segir að hún hafi nú verið rekin úr Krossinum með formlegu bréfi sem henni barst frá Sigurbjörgu Gunnarsdóttur fyrir hönd stjórn stjórnar trúfélagsins. Ástæðuna fyrir brottrekstrinum segir Jónína vera skrif hennar til forstöðukonunnar og annarra safnaðarmeðlima sem Jónína kveðst hafa verið að reyna að „koma vitinu fyrir“ í illdeilunum um Krossinn. 36.939 hafa lesið Mest lesið á DV.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.