Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Síða 31
Vikublað 6.–8. maí 2014 Lífsstíll 23
Af með tjöruna -
á með
Aktu inn í
sumarið á
hreinum bíl!
Við erum á átta stöðum á höfuðborgarsvæðinu
www.lodur.is - Sími 544 4540
Möndlur
Þú veist nú þegar
hvað möndlur
eru ríkar af hollri
fitu en möndlur
fyrirbyggja einnig
hjartasjúkdóma. Þær
hjálpa til í baráttunni við vigtina og eru
ótrúlega góðar fyrir hjartað. Í rannsókn frá
2008 kom í ljós að konur á aldrinum 41–54
ára sem borðuðu hráar möndlur sem
20% af fæðu sinni í fjórar vikur lækkuðu
kólesterólmagnið talsvert.
Hörfræ
Hörfræ eru rík af
ómega-3 fitusýrum
sem og polyphenols
sem talið er að virki
fyrirbyggjandi á krabba-
mein. Í rannsókn árið 2007 kom í ljós að
miðaldra konur sem borða fæðu ríka af
efninu eru í 17 % minni áhættu á að fá
brjóstakrabbamein.
Garðkál,
brokkólí og
blómkál
Fæða sem er rík af trefj-
um og andoxunarefnum en
einnig góður DIM-efnasambandsgjafi sem
myndast í líkamanum við meltingu. DIM er
talið verja okkur fyrir krabbameinum sem
tengjast estrógeni eins og brjóstakrabba,
leghálskrabba og móðurlífskrabba.
Bláber (og
önnur ber)
Rannsóknir sýna að
konur eru líklegri
til að fá Alzhei-
mers en karlmenn.
Samkvæmt nýlegum
rannsóknum eru konur eldri en 65 ára
tvisvar sinnum líklegri til að þróa með sér
sjúkdóminn. Bláber eru rík af andoxunar-
efnum sem verja okkur gegn Alzheimers.
Samkvæmt rannsókn frá 2010 verja
fjólubláir ávextir og grænt te okkur gegn
Alzheimers, MS og Parkinson.
Greipaldin
Ávöxturinn
hefur áhrif á heilsu
hjartans. Hann
er talinn lækka
kólesteról, minnka
hungurtilfinningu og
hjálpa til í baráttunni
við aukakílóin. Í rannsókn frá 2006 kom
fram að eitt rautt greipaldin á dag lækkar
kólesterólmagnið töluvert. Niðurstöður
annarrar rannsóknar frá sama ári gefa til
kynna að neysla á fersku greipaldini fyrir
mat hefur áhrif á aukakílóin og dregur úr
líkum á því að fólk þrói með sér sykursýki.
Túrmerik
Þetta kröftuga krydd
er gott fyrir okkur af
mörgum ástæðum
en hér er aðalatriðið
hversu gott það er
fyrir liðina. Konur eru
líklegri en karlar til að þjást af liðagigt en
í rannsókn frá árinu 2006 kom í ljós að
túrmerik er gott í baráttunni við gigtina.
Kryddið bætir einnig ónæmiskerfið og
hjálpar þér að berjast við sýkingar.
Rauðar
baunir
Baunirnar eru ríkar
af trefjum sem
bæta meltinguna
og hjálpa til
í baráttunni við
hjartasjúkdóma en hjálpa einnig til við að
halda jafnvægi á blóðsykrinum. Hættan
á sykursýki eykst með aldrinum svo það
er mikilvægt að viðhalda jafnri brennslu
og forðast sykurskort. Í rannsókn frá 2012
kom fram að sjúklingar með sykursýki
sem neyttu rauðra bauna áttu síður á
hættu á að þróa með sér hjartasjúkdóma
og voru með lægri blóðþrýsting.
Jákvæð breyting Margrét er ákveðin í að
tala orðið breytingaskeið upp.
„Breytingaskeið á ekki
að vera feimnismál“
n Þöggun einkennir breytingaskeið kvenna n Nýstofnað Áhugamannafélag um breytingaskeið kvenna heldur ráðstefnu
1 Hugsaðu um það sem þú hefur áhuga á. Gefðu áhugamálunum
vægi í lífi þínu. Það hvetur þig áfram og
gerir umhverfi þitt meira spennandi.
2 Mundu að þú ert viskubrunnur. Haltu áfram að segja næstu kynslóð á eftir
þér hvernig innihaldsríkt líf er. Reynsla þín
er ekki einungis merkileg fyrir þig heldur
líka fyrir aðra.
3 Lærðu eitthvað nýtt. Menntun og andleg áskorun eykur lífslíkur og
minnkar líkur á sjúkdómum eins og Alzhei-
mers og heilabilun.
4 Vitsmunaleg áskorun gerir það sama fyrir heila þinn og hreyfing
fyrir líkamann. Vertu forvitin og með opin
huga.
5 Þú ert aldrei of gömul til að reyna eitthvað nýtt. Þú ert aldrei of gömul
til að láta drauma þína rætast. Ekki streit-
ast á móti breytingum. Haltu áfram að
skapa tækifæri fyrir þig í framtíðinni.
6 Settu þarfir einhvers annars en þín í forgang. Það mun gera einhvern
annan hamingjusaman og að lokum gefa
þér hamingjusamt og innihaldsríkt líf. Eins
og Mark Twain sagði: sá sem er hamingju-
samur gerir aðra hamingjusama.
7 Áhugamál getur orðið að tilgangi í lífinu og gefið því djúpa merkingu.
Þegar þú lifir lífi sem er fullt af ástríðu
býrðu til lífið sem þú velur að lifa.
8 Vertu hugrökk og gefðu þér tíma til að hjálpa öðrum. Verðlaunin fyrir að
taka slíka áhættu geta mögulega breytt
mjög miklu. Ekki aðeins í lífi þínu heldur
fólksins umhverfis þig.
9 Eyddu tíma í að finna tilganginn í lífi þínu. Hann gefur þér ástæðu til að
fara fram úr á hverjum morgni.
10 Beindu athyglinni að því sem skiptir þig máli. Þú kemst að því að stór-
kostlegir hlutir gerast í lífi þínu vegna þín.
Tíu ráð Ruthers til að finna tilgang
í lífinu eftir breytingaskeið
að gera nýja og skemmtilega hluti.“
Margir tengja breytingaskeið
við tíðahvörf en samkvæmt Mar-
gréti hefst breytingaskeið áður en
konur hætta á blæðingum. „Þess
vegna segjast konur aldrei vera á
breytingaskeiðinu. Einkennin geta
verið skjaldkirtilsvandamál, svefn-
truflanir, einbeitingarskortur og
kvíði, en hugrekki hjá konum fer
niður í takt við estrógenið. Margar
konur fara á breytingaskeið í kjöl-
fars áfalls enda hangir líkamleg og
andleg heilsa alltaf saman og sjálf
tengi ég mitt breytingaskeið við
það áfall sem ég varð fyrir þegar
móðir mín lést.“
Sveittar og geðvondar konur
Margrét viðurkennir að hafa
sjálf haft þá hugmynd að konur á
breytingaskeiði væru geðvond-
ar, sveittar konur sem misst hefðu
tökin á líkama sínum. Hún var því
hissa þegar hún gerði sér grein
fyrir að hún væri sjálf búin að ná
þessum tímamótum enda sjálf í
toppformi. „Í dag er mín upplifun
af breytingaskeiði kvenna kon-
ur sem hafa fullt vald á sínu lífi og
ákveða að taka málin í sínar eigin
hendur. Sjálf stofnaði ég fyrirtæki
á þessum tíma. Ég hafði mikið fyrir
því að vera ekki hrædd og ákvað
að láta slag standa og uppsker svo
sannarlega í takt við það.“
Hún segist ekki geta útskýrt af
hverju breytingaskeiðið sé svona
mikið tabú. „Ég átta mig ekki alveg
á því. Þetta er svona eins og að til-
kynna í fínu boði að maður sé á túr.
Það eru ótrúlega fáar konur sem
ræða þetta sín á milli.
Sjálfri fannst mér ekkert mál
að fara í gegnum þetta. Bara
spennandi og mikil upplifun. Ég
tók þá ákvörðun að taka út kaffi og
áfengi, hreyfa mig enn meira úti og
hugleiða og stunda jóga. Þú getur
nefnilega valið að taka lyf við öllu
eða breyta lífsstílnum.
Breytingaskeið þarf ekki að
vera feimnismál. Það eru 49 ára
konurnar sem eyða mestum
peningum og ættu því að fá meira
pláss í umræðunni. Þetta eru til
dæmis frábærir starfskraftar sem
eru aldrei í burtu út af veikum
börnum. Það er bara svo ótrúlega
margt jákvætt við þetta tímabil.“
Betri ekki bitrari
Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er
Jill Shaw Ruthers, höfundur bók-
arinnar The Second Half of Your
Life, en allir ráðstefnugestir munu
fá eintak af bókinni. „Þetta er kona
sem vann í fjármálaheiminum en
stofnaði samtökin The Second Half
of Your Life. Hún fjallar um and-
lega, líkamlega og félagslega heilsu
kvenna, eins og mikilvægi hreyf-
ingar því það eru ekki lyfin heldur
lífið sem við lifum sem hefur best
áhrif á heilsu okkar.“
Aðrir fyrirlesarar eru Herdís
Sveinsdóttir sem talar um blæð-
ingar, sem Margrét segir einnig
tengdar þessari þöggun, Ragn-
heiður Inga Bjarnadóttir kvensjúk-
dómalæknir, Kolbrún Björnsdótt-
ir grasalæknir, sem er að skrifa bók
um þetta tímabil, og Árelía Eydís
Guðmundsdóttir, sem ætlar að
fjalla um það hvernig konur geta
valið að verða betri í stað þess að
verða bitrari.
„Kristín Linda Jónsdóttir sál-
fræðingur mun svo fjalla um
breytingaskeið í lífi kvenna en
breytingaskeið er ekki bara svita-
kóf og geðvonska. Þótt þú getir ekki
lengur eignast barn getur þú endur-
fætt sjálfa þig. Á þessum tímapunkti
skapast gífurlega mikið tækifæri til
að gera eitthvað nýtt og spennandi.
Margt af því sem við ætlum að tala
um á einnig við karlmenn en við
ætlum okkur að halda okkur við
konurnar í þetta skiptið.“ n
Sjö tegundir ofurfæðu fyrir miðaldra konur
Svitakóf og úrillska
Margrét viðurkennir að
hafa haft þær humyndir
um breytingaskeið
kvenna að þær konur
væru sveittar og úrillar.
Nú segist hún vita betur.
„ Í dag er mín upp-
lifun af breytinga-
skeiði kvenna konur sem
hafa fullt vald á sínu lífi
og ákveða að taka málin
í sínar eigin hendur.