Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2014, Page 36
Vikublað 6.–8. maí 201428 Fólk „Frekar mikil grey“ Þær Bylgja og Anna eru konurnar að baki Tinnu og Tótu Þ ær eru frekar mikil grey og halda að þær séu með þetta allt á hreinu. Þær lifa í ein­ hverjum öðrum heimi en við hin, eru aðeins týndar, líta stórt á sig en meina vel,“ segir leikkon­ an Bylgja Babýlons sem, ásamt Önnu Hafþórsdóttur, stendur að baki þeim Tinnu og Tótu. Þættirnir hafa verið sýndir á sjónvarpsstöðinni Bravó og hafa vakið mikla athygli en þær Tinna og Tóta voru skapaðar fyrir þremur árum. Í þáttunum gefa þær stöllur misgóð líkamsræktarráð og hvernig best sé að haga sér í ýmsum kringum­ stæðum. Urðu til fyrir keppni Þær Bylgja og Anna eru báðar mennt­ aðar leikkonur frá Kvikmyndaskóla Íslands. Báðar eru þær frá Akureyri en kynntust ekki fyrr en leiðir þeirra lágu saman í náminu. Síðan þær útskrifuð­ ust hafa þær fengið nokkur hlutverk, Anna leikur í myndinni Vonarstræti sem frumsýnd verður á næstunni og Bylgja hefur meðal annars leikið í Málinu með Sölva auk annarra minni hlutverka. Þær hafa þó líka verið dug­ legar að koma sér sjálfum á fram­ færi, meðal annars með þeim Tótu og Tinnu og öðrum stuttum sketsum sem þær hafa gert. Hugmyndin að þeim Tótu og Tinnu kviknaði út frá fitness­ keppendum en þær urðu til fyrir keppni sem þær Anna og Bylgja ætluðu sér að sigra í. „Við bjugg­ um til fyrsta sketsinn fyrir sket­ sakeppni þar sem verðlaunin voru ferð á Hróarskeldu og okk­ ur langaði mikið að vinna. Við hins vegar unnum ekki en fólki fannst þetta fyndið þannig að við gerðum nokkra í viðbót og settum á Youtube,“ segir Bylgja. Fitnessfólk skilur þær „Þegar við byrjuðum á þessu þá var þessi módelfitnesssprengja í samfé­ laginu. Það er svona viss steríótýpa af þessari módelfitnesstýpu. Okkur fannst sú steríótýpa fyndin og þær Tinna og Tóta eru í raun rosalega ýktar útgáfur af þeim en þær eru samt ekki byggðar á neinni ákveðinni manneskju.“ Bylgja segir þær eiga vini sem eru í fitness og höfðu smá áhyggjur af því að þeir myndu móðg­ ast. „En þeim finnst þetta mjög fyndið og skilja húmorinn. Við erum ánægð­ ar með það.“ Mikill undirbúningur Það krefst töluverðs undirbún­ ings fyrir þær að skapa persónurn­ ar. Meðal annars brúnkusprautun. „Við förum í „spray­tan“ fyrir tökur og það lekur svo af. Við eigum nokkra erfiða daga eftir tökur en síðan lekur þetta af,“ segir Bylgja hlæjandi. Þær undirbúa sig líka á annan hátt, með­ al annars með því að kynna sér nýj­ ungar í fitnessheiminum. „Við fylgju­ mst með fitnessfréttum og tökum oft alvöru ráð og gerum þau absúrd. Ýkj­ um þau og breytum.“ Ekki lengur klúður Eftir að þættirnir komust á Bravó hafa þeir vakið meiri athygli en áður. „Við heyrðum að þeir væru að leita að þáttum þannig að við sendum á þá link. Þeim fannst þetta skemmtilegt og ákváðu að henda í nokkra þætti með okkur,“ segir Bylgja og segir það skemmtilega tilbreytingu að fá að­ stoð við að taka upp. „Við vorum alltaf bara einar með vélina og vorum að lenda í alls konar aðstæðum. Við stilltum bara vélinni upp og fórum svo inn í rammann. Síðan vor­ um við að lenda í því að vél­ in rann kannski eitthvað til og svo þegar við byrjuðum að klippa þá vorum við kannski ekkert inni í rammanum. Það var alls konar svona klúður en ekki lengur því nú er þetta svo „pró“,“ segir hún. Sumir hafa velt því fyrir sér hvort þær Tinna og Tóta séu til í alvörunni. „Já, það er alveg furðu­ legt hvað er margt fólk sem heldur að við séum ekki djók. Sem við erum ánægðar með því það þýðir að við erum að gera eitthvað vel. Þær eru svo ýktar týpur og við höfum gaman af því þegar fólk heldur að þær séu alvöru,“ segir hún. Í þáttunum gefa þær Tóta og Tinna ýmis misgóð ráð er snúa að lík­ amsrækt og bættum lífsháttum. En hvað verður um Tinnu og Tótu. Verð­ ur framhald á þáttunum? „Núna er búið að sýna alla þættina sem voru teknir upp en það er ýmislegt í píp­ unum. Síðan er auðvitað draumur­ inn að þær fari og taki þátt í fitnes­ skeppni.“ n Viktoría Hermannsdóttir viktoria@dv.is Hressar Þær Tinna og Tóta kenna fólki ýmislegt misgott. M y n d s ig tr y g g U r A r i R úmlega 300 manns mættu í 60 ára afmæli Stefáns Þengils­ sonar athafnamanns sem haldið var á Höfn í Eyjafirði um helgina. Stefán er einstaklega vinmargur og þekktur fyrir baráttu sína gegn valdstjórninni og hefur ýmsa hildi háð á því sviði. Stefán starfar sem verktaki og annast meðal annars snjómokstur á leiðinni úr Eyjafirði til Austfjarða. Þá er hann þekktur vélsleðamað­ ur og foringi og keppnismaður á því sviði. Hann hefur áratugum saman tekið þátt í vélsleðasporti á Íslandi og í Bandaríkjunum og ekur um á sannkölluðu tryllitæki. Veislan var haldin á verkstæði Stefáns og var mikið um dýrðir. Í af­ mælinu kom fram tilbrigði við þá geysivinsælu Hljómsveit Ingimars Eydal auk þess sem harmoníkuleik­ arar komu fram gestum til mikillar gleði. Auk þess að ryðja snjó og þeyt­ ast um á vélsleða er Stefán liðtæk­ ur listmálari. Síðustu ár hefur hann fengist við þá listgrein og liggja eftir hann mörg verk. Mikil gleði einkenndi veisluna sem þótti hin veglegasta. n Listmálari á vélsleða Veislan á Höfn Afmælisbarnið er hér fyrir miðju. Afmælisbarninu á vinstri hönd er Vilhelm Ágústsson, Villi Kennedy. Til hægri er Gunnar Brynjólfsson, athafnamaður í Amsterdam. stefán Þengisson hélt stórveislu Mætti með börnunum Lítið hefur farið fyrir Páli Magnús­ syni, fyrrverandi útvarpsstjóra, síðan hann yfirgaf Efstaleiti. Hann sást þó með börnunum sínum, Eddu Sif og Páli Magnúsi, á leik ÍBV og Fram á sunnudag sem fram fór á Laugardalsvelli. Enda er Páll Eyjamaður og mikill stuðn­ ingsmaður ÍBV og börnin greini­ lega líka. Þau Páll, Edda og Páll voru líka kirfilega merkt sínu liði því öll skörtuðu þau ÍBV­treyju á leiknum. Í heimsókn hjá Davíð Oddssyni Söngvarinn Jón Jónsson var í mánudagsdrottningarviðtali í útvarpsþættinum Virkum morgnum. Þar sagði hann með­ al annars frá því að þegar hann var ritstjóri Monitor þá hefði honum verið boðið heim til rit­ stjóra blaðsins, Davíðs Odds­ sonar, ásamt öðrum stjórnend­ um blaðsins. „Þetta var geggjað,“ sagði Jón um heimsóknina í við­ talinu. Hann sagði Davíð hafa boðið sér og öðrum inn í bílskúr þar sem hann hefði sýnt þeim ýmsa merka gripi frá ferli sínum og þeir haft gaman af. Bikiníbombur sameinast Það er alltaf nóg um að vera hjá Ásdísi Rán. Hún leitar nú að bikiníbombum sem tóku þátt í Hawaian Tropic­keppnun­ um sem hún hélt um nokkurra ára skeið. Ásdís sá um keppn­ ina á Íslandi í nokkur ár en líka í Svíþjóð og Noregi. Keppnin lagðist svo af hérlendis en Ásdís ætlar að hóa saman fyrrverandi sigurvegurum og keppend­ um í hitting, eins og stundum er sagt. Hún sagði frá þessu á Facebook­síðu sinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.