Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Page 9
Vikublað 30. september–2. október 2014 Fréttir 9 Almenningur fjármAgnAr tækjAkost lAndspítAlAns Allir leggjast á eitt við söfnun Mikilvæg tæki keypt fyrir söfnunarfé Öll tæki barnaspítalans keypt fyrir gjafafé Tækjabúnaður eins og á fullkomnustu barnaspítölum í heimi Í sland hefur hingað til verið eina land Norðurlandanna þar sem háskólasjúkrahús er ekki búið aðgerðarþjarka. En nú er að verða breyting þar á, þar sem slíkt tæki verður tekið í notkun á Landspítalanum á næsta ári. Margir lögðust á eitt við söfnun fyrir aðgerðarþjarkanum, en um er að ræða tæki sem kostar hund- ruð milljóna króna, fyrir utan upp- setningu og rekstur. Kaup á þjark- anum hafa verið í umræðunni í mörg ár en ekki hefur verið til fjár- magn til að kaupa hann fyrr en nú. Það voru sérfræðingar á Landspítalanum sem áttu frum- kvæði að söfnuninni og tókst að safna fyrir helmingi af kaupverði tækisins. Landspítalinn legg- ur síðan til restina af fjármagn- inu. Ekki hefði verið hægt að fara í kaup á tækinu svo fljótt nema vegna þessa mikla fjár sem safn- aðist. Hugsað til framtíðar Þjarkinn nýtist meðal annars við aðgerðir vegna krabbameins í blöðruhálskirtli og í grindarholi. Með honum er skurðlæknum gert kleift að framkvæma aðgerðir með mun minna inngripi og minni hætta er á fylgikvillum en í hefð- bundnum opnum aðgerðum. Þá er sjúklingurinn fljótari að jafna sig. Þeir læknar sem eru að koma úr námi í dag hafa lært á öll nýjustu tækin sem til eru og hafa því þekk- ingu til að vinna með þau. Erfitt hefur verið fyrir lækna að koma heim til Íslands úr námi þar sem tækjabúnað sem hæfir þeirra þekk- ingu hefur skort. Þeir sérfræðingar sem stóðu að söfnun aðgerðarþjarkans eru raun ekki þeir sem koma til með að nota hann við sína vinnu, held- ur voru þeir að hugsa til framtíðar fyrir læknana sem eru að koma úr námi. Að hægt væri að bjóða þeim upp á þann tækjabúnað sem þeir kunna að vinna með. Loksins nýr beinþéttnimælir Annað dæmi um ákveðið tæki sem Landspítalann hefur vantað er beinþéttnimælir, sem Mjólkur- samsalan safnar nú fyrir með sölu á sérmerktum mjólkurfernum. Slíkur mælir flokkast ekki und- ir lífsnauðsynlegt tæki, en hann er engu að síður nauðsynlegur til að þjónusta sjúklinga með bein- þynningu. Mælirinn sem til er á spítalanum núna er löngu úr- eltur og beinþéttnimælir hefur verið á lista yfir tæki sem vantar í fjölda ára. Vegna forgangsröðun- ar hefðu kaup á honum ekki kom- ið til á næstunni nema vegna átaks Mjólkursamsölunnar. Mælirinn fellur þá af listanum yfir tæki sem vantar og losnar þannig um fjár- magn til að kaupa annað tæki neð- ar á listanum, þegar þar að kemur. sitji oft á hakanum, eins og til dæm- is góð rúm. „Þetta er eitthvað sem er gríðarlega mikilvægt fyrir spítala að hafa í lagi, en fólk vill oft frekar gefa meira spennandi tæki sem eru lífsnauðsynleg.“ Nýlega gaf Minn- ingagjafasjóður Landspítalans þó 50 milljónir til kaupa á rúmum, og segir Jón Hilmar kaupin hafa verið mjög tímabær. Hann segir að allt gjafafé og gjafir séu mjög mikilvægar, en hins vegar séu gjafir almennings ekki alltaf í takt við þarfir spítalans í heild. Þær séu oft frekar sniðnar að þörfum einstakra eininga sem gefandinn tengist með einhverjum hætti. Til dæmis vegna veikinda aðstandanda. „Forgangsröðun gjafa almennings er því eðlilega ekki endilega sú sama og spítalans. Enda væri fáránlegt að ætlast til þess,“ segir Jón Hilmar. Þá nefnir hann að þegar spítalan- um bjóðist gjafafé upp á til dæmis helmingsandvirði ákveðinna tækja þá sé oft erfitt að hafna því, þrátt fyr- ir að tækið sé ekki efst á forgangs- listanum. „Þá vakna kannski upp spurningar um það hvort fólk geti keypt sig ofar á listann með þessum hætti. Þetta geta verið erfið mál, en við reynum yfirleitt að leysa þau á farsælan hátt.“ Óþarfa kostnaður við að koma tækjum fyrir Slæm staða á húsnæði Landspít- alans hefur líka sitt að segja þegar kemur að kostnaði við tækjakaup, en oft þarf að breyta húsnæðinu til að koma tækjunum fyrir, með til- heyrandi kostnaði. Jón Hilmar segir að vandamál- ið með mörg nýjustu og fullkomn- ustu lækningatækin sé hvað þau eru gjarnan umfangsmikil og í sumum tilfellum þung. Þau krefj- ast því oft ákveðinnar lofthæð- ar og burðarþols sem byggingar Landspítalans bjóði ekki upp á. Hann segir að hingað til hafi tækni- og verkfræðingum þó einhvern veginn tekist að láta hlutina ganga upp. „Þetta er auðvitað ekki eins og þetta ætti að vera og oft er mjög þröngt um okkur. Þetta hefur bjarg- ast hingað til en oft hefur það verið mjög tæpt. Þá fellur alltaf til kostn- aður við þessar breytingar sem ætti ekki að þurfa.“ Landspítalanum er skipt fjár- hagslega upp í þrjá liði, en þangað til nýlega hefur staðan á þeim öll- um verið mjög slæm. „Tækjakaupa- liðurinn er í ásættanlegu standi í dag, ef þetta heldur áfram sem horfir. Rekstrarféð er ekki í lagi og ef fjárlögin halda þá erum við að horfa upp á niðurskurð. Svo er hús- næðið óásættanlegt, eins og tækja- kaupamálin voru fyrir tveimur til þremur árum. Við höfum ekki einu sinni peninga til að laga leka,“ segir Jón Hilmar að lokum. n Andvirði gjafa til spítalans Ár 2010 2011 2012 2013 Milljónir króna 252 196 461 341 Landspítalinn setur fyrirvara á þessar töl- ur, enda erfitt að verðmeta allar gjafir sem spítalanum berast. Inni í þessum tölum er allt frá lífsnauðsynlegum lækningatækj- um, sem spítalinn hefur fengið að gjöf, til sófa, málningarvinnu og smærri tækja. K venfélagið Hringurinn er það félag sem hefur í gegn- um árin lagt hvað mest fé í tækjakaup fyrir spítal- ann, en öll tækin á Barnaspítala Hringsins eru keypt fyrir gjafafé frá kvenfélaginu. Ríkið hefur ekki lagt fé til tækjakaupa fyrir barna- spítalann í tugi ára. Barnaspít- alinn er tækjum búinn eins og fullkomnasti barnaspítali í heimi og Hringurinn og aðrir velunnar- ar gæta þess vel að ekkert skorti. Nú síðast í janúar, á 110 ára af- mæli Hringsins, gáfu Hringskon- ur barnaspítalanum 110 milljón- ir króna. Eina milljón fyrir hvert ár. En barnaspítalinn fær reglu- lega gjafir af þeirri stærðargráðu frá kvenfélaginu. Þegar núverandi húsnæði barnaspítalans var byggt, styrktu þær húsbygginguna um 150 milljónir króna og til viðbótar gáfu þær 50 milljónir til tækja- kaupa. „Þangað til síðustu tvö til þrjú ár var þetta bara súrrealískt. Stundum var gjafafé meira en það sem ríkið lagði fram og það þekkist bara ekki í vestrænum heimi. n Fékk lengi aðeins um 10 prósent af eðlilegum útgjöldum til tækjakaupa n Öll tæki á Barnaspítalans eru keypt fyrir gjafafé

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.