Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Side 12
12 Fréttir Vikublað 30. september–2. október 2014 Rannsakendur verði rannsakaðir Atlaga ráðherra lögreglumála að embætti ríkissaksóknara og lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu E itt af því sem fram kom í þriðja bréfi umboðsmanns Alþingis til Hönnu Birnu var að hún hefði hótað Stefáni Eiríkssyni því að rannsókn lögreglu og ríkis­ saksóknara á lekamálinu yrði rann­ sökuð sérstaklega að henni lokinni. Umboðsmaður hefur þetta eftir Stefáni sjálfum: „… og líka það, og ég kom því á framfæri við ríkissak­ sóknara, að hún hefði sagt í þessu samtali við mig að þegar þessu máli yrði lokið þá væri það alveg ljóst í hennar huga að það þyrfti að rann­ saka rannsókn lögreglu og ríkissak­ sóknara.“ Hanna Birna var æðsti maður lögreglumála meðan á af­ skiptum hennar af rannsókninni stóð, en líkt og fram hefur komið beindist hún að ráðuneyti hennar, henni sjálfri og aðstoðarmönnum, sem voru með réttarstöðu grunaðs manns. Í samtali sínu við umboðs­ mann sagði Stefán ráðherra einnig hafa „ýtt á eftir“ lögreglunni, sett á hana tímapressu, hellt yfir sig „dá­ góðri gusu af gagnrýni“, kvartað undan umfangi rannsóknarinnar, deilt á einstakar rannsóknarathafn­ ir lögreglu, gagnrýnt lögregluna fyrir að taka og rannsaka tölvu aðstoðar­ manns hennar og beðið um að yfir­ heyrslum yrði flýtt. Viðbrögð ráðherra við birtingu þessara upplýsinga voru meðal annars þau að saka lögregluna um lögbrot. Í sérstakri tilkynningu sem send var á fjölmiðla fullyrti Hanna Birna að lögregla hefði sérstaklega tilkynnt henni að ekki yrði gætt með­ alhófs í rannsókninni á innanríkis ráðuneytinu. „Á seinni stigum var mér hins vegar til­ kynnt að í þessari rannsókn myndi ekkert meðal­ hóf gilda, aðstaða lögreglu í málinu væri erfið og op­ inber umræða um það væri einfald­ lega þannig að rann­ sakendur yrðu að sýna fram á að þeir hefðu „gengið alla leið“ eins og það var orð­ að.“ Meðal­ hófsreglan er grund­ vallarregla í íslenskri stjórnskipan og útfærð bæði í stjórn­ sýslulögum og lögreglu­ lögum. Get­ ur brot á henni varð­ að refsi­ ábyrgð. Oft vaknar vafi um hvort meðalhófs sé gætt í tilteknu máli, en afar sjald­ gæft er að lögreglan lýsi því beinlín­ is yfir að í einstakri rannsókn muni „ekkert meðalhóf gilda“. Hanna Birna sakaði þannig lög­ regluna um valdníðslu sem hún taldi lögreglumenn hafa viðhaft af ásettu ráði. Hanna Birna hefur ítrekað reynt að gera aðkomu rannsakenda að lekamálinu tortryggilega, meðal annars með því að gagnrýna þann tíma sem það tók að rannsaka mál­ ið. „Það er í rauninni orðið svolítið sérkennilegt að hún sé orðinn svona mikill gagnrýnandi á lögreglu­ og dómsmálakerfið í landinu,“ sagði Stefanía Óskars­ dóttir, lektor í stjórn­ málafræði við Háskóla Ís­ lands, í þættin­ um Reykja­ vík síð­ degis á Bylgjunni þann 26. ágúst, og vís­ aði þar til fyrr­ greindrar gagn­ rýni Hönnu Birnu á ríkissaksóknara og lögreglu. „Mér finnst þetta orðið dálítið alvarlegt þegar innanríkisráðherra er farin að ganga svo langt að hún segist ekki treysta lögreglunni, ríkissaksóknara og umboðsmanni,“ sagði hún svo í samtali við Morgunblaðið og hélt áfram: „Hvað með almenning í landinu, eigum við að treysta þessu liði?“ Ýmsir málsmetandi aðilar hafa gagnrýnt afskipti ráðherra af rann­ sókninni. Þar á meðal Björg Thorarensen, lagaprófessor við Háskóla Íslands, sem hefur sagt að innanríkis­ ráðherra og lögreglustjóri eigi aldrei að ræðast við með­ an embættis­ færslur á skrifstofu ráðherra séu til rannsóknar. n Fjárveitingar Samkeppniseftirlitsins á fjögurra ára tímabili með samanburði við 2008 Fjárveitingar alls Að frádregnum tímabundnum verkefnum 2008: 277,0 m.kr. 277 m.kr. 2012: 325,8 m.kr. 275,8 m.kr. 2013: 353,4 m.kr. 303,4 m.kr. 2014: 395.6 m.kr. 315,6 m.kr. 2015: 385,6 m.kr. 353,6 m.kr. Samkeppni öflugt tæki til endurreisnar n Fjöldi ólokinna verkefna hjá Samkeppniseftirlitinu en minna fé til ráðstöfunar P áll Gunnar Pálsson, for­ stjóri Samkeppniseftirlits­ ins, segir í samtali við DV að frá hruni hafi staðið á Samkeppniseftirlitinu mikil hagræðingarkrafa, með svip­ uðum hætti og gagnvart öðrum opin berum rekstri. „Í þeirri um­ ræðu höfum við reynt að halda til haga þeirri staðreynd að virk samkeppni er ein öflugasta að­ ferð sem völ er á til þess að hraða endurreisn atvinnu­ og efnahags­ lífs í kjölfar efnahagskreppu og til þess að auka framleiðni efna­ hagslífsins almennt. Við höfum meðal annars bent á niðurstöður samráðsvettvangs stjórnvalda og atvinnulífs um aukna hagsæld, en ráðgjafarfyrirtækið McKinsey var fengið til að leiða þá vinnu.“ Sektir hærri en rekstrarframlög Páll Gunnar segir að með hliðsjón af þessu hafi Samkeppniseftirlitið fært rök fyrir miklum samfélags­ legum ávinningi af því að hafa öfl­ ugt eftirlit á grundvelli samkeppn­ islaga. „Jafnframt höfum við bent á að samanlagðar sektir af rekstri samkeppnismála renna í ríkissjóð og eru miklu hærri en sem nem­ ur fjárveitingum til samkeppn­ iseftirlits, þegar horft er á lengra tímabil aftur í tímann.“ Eftir hrunið haustið 2008 fjölg­ aði málum verulega sem komu til kasta Samkeppniseftirlits­ ins. Vegna versnandi aðstæðna á samkeppnismörkuðum var mikil eftirspurn eftir því að eftirlitið tæki mál til rannsóknar og gripi inn í samkeppnishamlandi aðstæður. Gunnar Páll segir að af þessum sökum hafi Samkeppniseftirlitið fært rök fyrir verulega auknum fjárheimildum, en ekki haft erindi sem erfiði nema að mjög takmörk­ uðu leyti. 10 prósenta niðurskurður Samkeppniseftirlitinu hefur verið gert að hagræða í rekstri jafnt og þétt nær öll árin frá hruni. Á móti hefur eftirlitið þó fengið viðbótar­ fjárveitingar til þess að vinna ný verkefni. Um er að ræða aukin rannsóknarverkefni, verkefni vegna hruns, aukið eftirlit á grund­ velli fjölmiðlalaga og auknar leið­ beiningar til fyrirtækja. „Þessar fjárveitingar hafa að hluta til ver­ ið tímabundnar. Tímabundnu fjárveitingarnar renna sitt skeið á þessu ári og fela því í sér talsverð­ an niðurskurð á næsta ári. Ef horft er til fjárveitinga til reglulegra eða hefðbundinna verkefna eftirlits­ ins, hafa fjárveitingarnar á þessu tímabili (2008–2015) lækkað um rúm 10 prósent að raungildi.“ n „… virk samkeppni er ein öflugasta aðferð sem völ er á til þess að hraða endurreisn atvinnu- og efnahagslífs í kjölfar efnahagskreppu og til þess að auka fram- leiðni efnahagslífsins al- mennt. Í þágu endurreisnar Páll Gunnar Pálsson: „Jafnframt höfum við bent á að samanlagðar sektir af rekstri samkeppnismála renna í ríkissjóð og eru miklu hærri en sem nemur fjárveitingum til samkeppniseftirlits, þegar horft er á lengra tímabil aftur í tímann.“ Mynd Logo SAMkeppniSeFtirLit

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.