Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Qupperneq 19
Vikublað 30. september–2. október 2014 Skrýtið 19 Játaði á sig morð vegna 1.800 ára gamals höfuðs n Myrti konu sína árið 1960 n Játaði þegar 1.800 ára gamalt höfuð fannst í mýri T veir verkamenn sem störf- uðu í mómýri í Lindow á Englandi tóku eftir furðu- legum hlut í mónum einn góðan veðurdag í maí 1983. Þeir rétt náðu að bjarga hlutnum áður en mórinn sem þeir unnu með fór í mulningsvélina sem brytjaði efnið niður. Hluturinn skrýtni var í laginu eins og fótbolti og mennirn- ir göntuðust með hann, héldu kannski að hann væri risaeðluegg. Þeim brá hins vegar þegar gripurinn var skoðaður betur. Hann reyndist mannshöfuð með einu varðveittu auga og töluverðu hári. Eins og lög gera ráð fyrir var hringt á lögregluna. Réttarlæknar töldu að um höfuð af evrópskri konu væri að ræða, 30–50 ára að aldri. Lögreglan var nokkuð viss um að höfuðið til- heyrði Maliku Reyn-Bardt, konu sem hvarf sporlaust árið 1960. Rannsókn á hvarfi hennar var enn í gangi. Peter Reyn-Bardt, eigin maður konunnar, hafði legið undir grun um að hafa myrt hana. Þegar lögreglumenn sýndu hon- um höfuðið játaði hann loksins að hafa myrt konu sína. Heimili þeirra hjóna var við jaðar mómýrarinnar og Peter sagðist hafa fleygt líki konu sinnar í móinn. Tæplega 2.000 ára haus Stuttu síðar var höfuðið sent í C-14 aldursgreiningu og þá kom annað og meira í ljós. Höfuðið reyndist vera af konu sem uppi var um 210 eftir Krist eða fyrir um 1.800 árum. Þetta breytti ekki stöðu Peters Reyn-Brandt, sem var sakfelldur fyrir morðið vegna játningar sinnar. Höfuðið er nú varðveitt hjá British Museum. Lík Moniku Reyn-Brandt hefur aldrei fundist. Eiginmaður hennar var dæmdur í lífstíðarfangelsi. Mýrarmenn þekktir Mjög vel varðveittar líkamsleifar manna sem létust fyrir árþúsund- um hafa fundist í mómýrum víðar í Norður-Evrópu, sér í lagi Þýska- landi og Danmörku. Tollund-mað- urinn er einn frægasti safngrip- ur Dana. Hann fannst árið 1950 í Tollund, í grennd við Silkeborg á Jótlandi. Hann er talinn hafa ver- ið uppi fyrir meira en 2.000 árum, í kringum þriðju öld fyrir Krist. Súrefnisleysi og sýran í mónum hafði varðveitt líkið á ótrúlega góð- an hátt. Andlitsdrættir sjást til að mynda mjög vel. Röntgenmynd- ir sýndu enn fremur að flest líffæri mannsins voru mjög heilleg. Talið er að mönnum hafi ver- ið fleygt í mýrarnar eftir trúarlegar fórnir eða refsingar. Flestir mýrar- mannanna sem fundist hafa voru ungir og hraustir þegar þeir létust. Annar líkami í Lindow Lindow-konan, eins og höfuðið er nefnt nú, er þó ekki frægasti íbúi Lindow-mýrarinnar. Í ágúst 1984, rúmu ári eftir að höfuð konunnar fannst, var verkamaður að taka mó á svipuðum stað í mýrinni. Færiband flutti móhrúgurnar áfram en á enda línunnar var mulningsvélin. Starf þessa verka- manns var meðal annars að sjá um að engir aðskotahlutir lentu á færi- bandinu. Og nú sýndist honum að trjádrumbur væri þar fastur. Hann tók þennan drumb upp og fleygði honum út í skurð. Þegar hluturinn lenti á jörðinni féll mold af honum og fótleggur af manni lá skyndilega í skurðinum, það glampaði á hann í góða veðrinu. Mjög vel varðveittur maður Lögregla og fornleifafræðingar voru kallaðir á vettvang, og voru ef- laust hættir að kippa sér of mikið upp við líkamspartana sem virtust liggja í bunkum í mónum í Lindow. En enginn bjóst við því sem nú kom í ljós. Gríðarlega vel varðveittar líkamsleifar manns fundust á sama stað og fóturinn hafði verið grafinn upp. Mýrarmaður þessi, sem var mun heillegri en konan sem fannst árið áður, var fluttur á British Museum, þar sem teymi fornleifa- fræðinga og ýmissa vísindamenn rannsakaði hann hátt og lágt. Hár, húð og mörg innyfli manns- ins voru í góðu ásigkomulagi. Aldursgreining leiddi í ljós að hann lést einhvern tímann á árunum 2 f. Kr. til 119 eftir Krist. Hann var 25 ára gamall, 168 sentimetrar á hæð og um 60 kíló að þyngd. Talið er að hann hafi ekki unnið mjög líkamlega erfið störf um æv- ina. Hendurnar eru sléttar og neglurnar vel snyrtar. Skeggið hafði verið klippt. Ekkert bendir til þess að hann hafi verið veikur þegar hann lést. Vísindamenn vita að hann snæddi brauð í síðustu mál- tíðinni. Hræðilegur dauðdagi Maðurinn var myrtur á skelfilegan hátt. Hann var sleginn tvívegis í höfuðið með öflugu vopni, hugs- anlega frumstæðu eggvopni. Hann var með snæri bundið um hálsinn. Eftir að hann lést var hann skorinn á háls og svo fleygt niður í djúpan pytt í mýrinni. Þessi vandasama aftökuaðferð bendir til þess að um maðurinn hafi verið drepinn vegna trúarhefð- ar drúída, fræðimanna og presta keltneskra þjóða til forna. Hinn látni var hugsanlega drúídi sjálfur og var fórnað guðunum. n Helgi Hrafn Guðmundsson helgihrafn@dv.is Fornmaður Vísindamenn telja að Lindow- maðurinn hafi litið svona út. Leyndardómar í mýrinni Mörg þúsund ára gamlir menn eru grafnir í Lindow- mýrinni á Englandi. Mýrarmaður Lindow- maðurinn var myrtur á hrottafenginn hátt á fyrstu öld eftir Krist.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.