Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Page 24
24 Neytendur Vikublað 30. september–2. október 2014 Svona rýrnar nautahakkið Sem þú kaupir n Ódýrasta hakkið rýrnaði um 39 prósent við steikingu í könnun DV n Algengast að um É g væri búinn að tapa mat fyr- ir einn, ef ég væri að elda úr kílói fyrir fjóra,“ segir matreiðslumeist- arinn Úlfar Eysteinsson á Þremur frökk- um um niður- stöður úttektar DV á rýrnun sex tegunda af nauta- hakki við steikingu. Niðurstöðurnar eru athyglisverðar en þær sýna að neytendur geta átt von á því að tapa á bil- inu 25–39 prósentum af upp- gefinni þyngd hakksins við eldun á pönnu. Allar tegundirnar sem prófaðar voru reyndust rýrna meira en ásættanlegt getur talist samkvæmt viðmiðum matreiðslu- meistara en voru nokkurn veginn á pari við það sem sérfræðingur hjá Matís segir að hægt sé að reikna með. Mest rýrnun varð á ódýrasta hakkinu í úrtaki DV en það hakk var það eina sem unnið var úr inn- fluttu kjöti. Sex tegundir prófaðar DV gerði á dögunum sambæri- lega könnun á kjúklingabringum við mismunandi eldunaraðferð- ir og vakti sú úttekt mikla athygli. Í þetta skiptið lék okkur forvitni á að vita hversu mikil rýrnun verður á öðru vinsælu hráefni í matargerð á íslenskum heimilum, nautahakk- inu. Farið var í verslanirnar Bónus, Krónuna, Nóatún og Nettó og keyptar þær tegundir nautahakks sem þar eru í boði. Vert er að taka fram að könnun þessi er ekki tæm- andi en gefur neytendum ágæt- is hugmynd um hverju megi eiga von á við eldun nautahakks. Ekki tekin afstaða til bragðs eða gæða í könnuninni. DV óskaði eftir aðstoð Úlfars á Þremur frökkum við próf- ið og varð hann við því með glöðu geði. Sonur hans, Stefán Úlfarsson matreiðslumeistari, sá um steik- inguna á kjötinu. Prófið fór fram í eldhúsi Þriggja frakka þriðjudaginn 23. september. Var allt kjötið eldað við sömu aðstæður, á nýrri pönnu, á gashellu við hæsta styrk og fóru allar mælingar fram með sama hætti á sömu tölvuvoginni. Blaða- maður og ljósmyndari DV fylgdust svo með matreiðslunni og stýrði blaðamaður skráningu og mælingu undir vökulu auga Úlfars. Allt hakkið var tekið úr pakkn- ingunni og vigtað fyrir eldun og þyngdin borin saman við uppgefna þyngd á pakkanum. Í flestum til- fellum var sáralítill munur á upp- gefinni þyngd en það var helst for- pakkaða hakkið úr kjötborði Nettó á Fiskislóð sem skar sig þar úr og virðist sem það hafi verið vigtað í bakkanum, ólíkt hinum tegundun- um. Bakkinn reyndist 10 grömm við vigtun en munurinn á uppgefinni þyngd á bakkanum og raunþyngd við mælingu reyndist 12 grömm. Mismunurinn var því næsta ásætt- anlegur, um 2 grömm. Í öðrum til- fellum reyndist um 1–4 gramma munur á uppgefinni þyngd á pakka og mælingum DV. Því næst var hakkið steikt á pönnu, ókryddað með engri olíu samkvæmt kúnstarinnar reglum af Stefáni. Að steikingu lokinni var hakkið vigtað á ný og niðurstöðurn- ar skráðar af blaðamanni. DV spurði Úlfar og Stefán fyrir- fram að því hvað þeir teldu að eðli- leg eða ásættanleg rýrnun á nauta- hakki við steikingu væri. Voru þeir sammála um að eðlileg rýrnun í prósentum væri á bilinu 15–18 pró- sent. Skemmst er frá því að segja að engin tegundanna komst nálægt því að vera innan þeirra marka. DV leitaði einnig álits hjá Óla Þór Hilm- arssyni, sérfræðingi hjá Matís, sem talar um að 20–30% rýrnun geti verið eðlileg, eins og lesa má nánar um í aukaefni þessarar greinar. Sauð á pönnunni Minnst rýrnun varð á áðurnefndu nautahakki úr kjötborði Nettó eða rúm 25%. Í Nettó var einnig keypt annars konar hakk sem framleitt er af Norðlenska og aðeins merkt Nautakjöt – ungnautahakk. Það kom næstbest út með rýrnun upp á 27%. Athygli vekur að ódýrustu tegundirnar, sem báðar koma frá sama framleiðanda, Ferskum kjöt- vörum, og voru keyptar í Bón- us, komu verst út úr prófinu. Þetta eru Íslandsnaut ungnautahakk og Nautaveisla nautahakk. Það fyrrnefnda rýrnaði um rétt rúm 30% en það síðarnefnda um heil 38,7%. Nautaveisla, sem er ódýrasta tegundin á tæpar 1.300 krónur kíló- ið, er með hærra fituhlutfall en allar hinar tegundirnar (12–16%) á móti 8–12% hjá hinum en er einnig eina tegundin sem inniheldur kjöt sem ekki er upprunnið á Íslandi. Stef- án hafði á orði þegar hann var að steikja Nautaveislu-hakkið að það „synti hreinlega í vökva“ og að það syði frekar en steiktist. Vegna þess að áber- andi mestur vökvi og fita var á pönnunni eftir steikingu á Nautaveislu-hakkinu þá ákvað blaðamaður að hella aukavökvan- um af og vigta hann sérstaklega. Reyndust vera 18 grömm af fitu eftir á pönnunni. Þetta vandamál var ekki til staðar við steikingu á hin- um tegundunum. Feitara kjöt ætti að rýrna minna eins og fram kemur í máli Óla Þórs hjá Matís. Ungnautahakkið úr Krónunni rýrnaði um slétt 30% og var því svipað og Íslandsnaut. Þegar litið er til kílóverðs sér- staklega þá er ungnautahakkið frá Nóatúni dýrast. Kostar 1.898 krónur og rýrnaði um tæp 30%. Næstdýrast er ungnautahakkið frá Norðlenska í Nettó, á 1.812 krónur kílóið. Nauta- veislan var sem fyrr segir ódýrust á 1.298 krónur kílóið en þar næst kemur Íslandsnaut á 1.595 krónur. Til samanburðar og gamans þá tók DV einnig með í mælinguna 500 grömm af nautahakki sem feng- ið var af skrokki, beint frá bónda. Mörg heimili gera oft góð kaup með því að kaupa sér hluta úr skrokki og fylgir því jafnan gnægð af hakki í bland við steikur og lundir. Þetta kjöt er síð- an geymt í frysti og nýtist fólki allan veturinn og rúmlega það. Það var eilítið frost enn í því hakki við eldun en það var magurt. Það rýrnaði engu að síður um 31,2% og fór úr 500 grömmum í 344 grömm. Undrandi á þessari miklu rýrnun Þegar allt var yfirstaðið og Stefán hafði steikt hakk fyrir okkur í rúman klukkutíma voru þeir feðgar gáttað- ir á niðurstöðunum. „Það kemur mjög á óvart hvað þetta er mikið,“ sagði Úlfar og benti á að fólk þyrfti greinilega að gera ráð fyrir umtalsverðri rýrnun á hakkinu ef það væri að elda fyrir fjölskylduna eða stærri hópa og nóg ætti að vera til fyrir alla. DV kann Þremur frökkum bestu þakkir fyrir aðstoðina. Þess ber að geta að ekkert af hakkinu sem DV keypti fór til spillis því matreiðslu- menn veitingastaðarins nýttu það að prófinu loknu til að útbúa dýr- indis bolognese sem blaðamað- ur tók með sér upp á skrifstofu þar sem starfsmenn DV nutu góðs af. n Hollráð fyrir hakkið Forðastu algeng mistök og fullkomnaðu steikinguna Þó margir myndu ætla það þá er ekki sama hvernig maður steikir hakk á pönnu. Stefán Úlfarsson segir algengustu mis- tökin sem fólk geri sé að sturta hakkinu á pönnu og byrja strax að stappa það og losa í sundur. Þetta verður til þess að þú leysir safann strax úr kjötinu og endar með að sjóða hakkið á pönnunni fremur en að steikja það. Best sé að setja hakkið á pönnuna og láta það brúnast vel á annarri hliðinni. Ekki brenna það, en brúna það vel eins og góða steik. Því næst tekur þú spaðann og snýrð hakkinu við, í eins heilu lagi og hægt er, og gerir það sama við hina hliðina. Þegar þú hefur brúnað báðar hliðar vel þá fyrst máttu fara að losa um það og dreifa því yfir pönnuna. Með þessari aðferð heldur þú safanum betur í kjötinu og nærð full- kominni steikingu. Það sem þú vissir ekki um rýrnun 20–30% rýrnun á nautahakki getur talist eðlileg segir sérfræðingur „Það er ekki hægt að segja nákvæm- lega með einhverri vissu hver rýrnun á að vera. Við segjum bara einfaldlega á milli 20–30%. Það má segja að það sé eðlileg steikingarrýrnun,“ segir Óli Þór Hilmarsson, sérfræðingur hjá Matís, sem DV leitaði til eftir upplýsingum um hvað gæti talist ásættanleg eða eðlileg rýrnun á nautahakki. Hann segir heil vísindi á bak við mælingar sem þessar og margir þættir sem geti spilað inn í. Meðal annars sé fituprósenta kjötsins mjög mikilvæg, þar sem magurt kjöt rýrni meira. Í kjöti sé u.þ.b. 73% vatn og þegar kjöt er steikt þá sé það vatnið sem gufi upp. Ferskasta kjötið, með mestu vatns- innihaldi – úr ófrosnu kjöti – rýrni því mest. Því feitara sem hakkið er, því minna er af kjötinu, sem þýðir einfaldlega að rýrnunin verður minni. Óli Þór benti DV á viðmiðunartöflu á síðu Ernæringsfokus, þar sem uppgefin eru viðmið um rýrnun á kjöti út frá dönskum rannsóknum. Þar er talað um að hakk sem er með 15% fitu geti rýrnað um 24% en hakk með 5% fitu geti rýrnað um 32%. Eins og sjá má á innihaldslýsingu hakksins í könnun DV þá er gefið upp að meirihluti þess innihaldi á bilinu 8–12% fitu. Út frá þessum dönsku tölum mætti því gera ráð fyrir 25–30% rýrnun á hakkinu. En það út af fyrir sig er líklega ekki eitthvað sem hinn almenni neytandi úti í búð er meðvitaður um. Aðrir þættir sem geta haft áhrif að sögn Óla Þórs er hvort hakkið hafi verið unnið úr frosnu eða fersku kjöti og þá að hve miklu leyti kjötið hafi verið farið að þiðna áður en það var hakkað. Þó könnun DV sé ekki tæmandi og aðeins til þess gerð að veita neytendum hugmynd um við hverju megi búast þá seg- ir Óli að samanburðarfræði séu alltaf snúin vísindalega séð. Hann bendir á að hinn almenni neytandi geti keypt tiltekið hakk og fengið einhverja rýrnun og síðan keypt aftur hakk frá sama framleiðanda seinna og fengið aðra niðurstöðu. „En auðvitað er það þannig að neyt- andi sem kaupir einn bakka hann horfir bara í þann bakka, hann tekur ekki meðaltal.“ DV bar undir Óla Þór þá rýrnunar- prósentu sem matreiðslumeistararnir í könnun DV voru sammála um að væri eðlileg, 15–18%, og hvort hún væri þá of lág. „Það getur verið hárrétt hjá þeim, ef þeir fá inn efni af tiltekinni fituprósentu þá eru þeir með þessa rýrnun. Það er ekki hægt að segja nákvæmlega, með einhverri vissu hver rýrnun á að vera. Við segjum bara einfaldlega á milli 20–30%. Það má segja að það sé eðlileg steikingarrýrnun.“ Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.