Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Síða 26
Vikublað 30. september–2. október 201426 Lífsstíll
Íþróttafólk
með eyddari
tennur
Hreyfing gerir líkamanum gott,
allavega flestum líkamshlutum,
því samkvæmt nýrri þýskri rann-
sókn eru íþróttamenn með
eyddari tennur en aðrir.
Dr. Cornelia Frese við há-
skólasjúkrahúsið í Heidelberg í
Þýskalandi segir niðurstöðuna
koma á óvart. Engin tengsl séu á
milli neyslu á íþróttadrykkjum og
skemmda. Hins vegar hafi komið
í ljós að munnvatnsframleiðsla
minnkar við erfiðar æfingar –
munnurinn verður þurrari og
munnvatnið basískara.
Niðurstöður rannsóknarinn-
ar birtust í The Scandinavian
Journal of Medicine and Science
in Sports.
Efni í túrmerik gæti læknað Alzheimers
Jákvæðar niðurstöður úr rannsóknum á rottum
S
kýrsla sem birtist í tímaritinu
Stem Cell Research and Ther-
apy segir að krydd sem yfir-
leitt finnst í karríi geti mögu-
lega hjálpað heilanum að lækna sig
sjálfan. Skýrslan, sem er þýsk, gefur
til kynna að efnið „aromatic-turmer-
one“ sem finnst í túrmerik gæti ýtt
undir vöxt taugastofnfruma. Talið er
að þessi vinna, sem gerð var á rott-
um, gæti opnað nýjar leiðir í lyfja-
framleiðslu fyrir fólk sem fengið hef-
ur heilablóðfall eða Alzheimers. Enn
þarf þó að framkvæma fleiri próf til
að sjá hvort þetta eigi við um fólk
líka.
Efninu var sprautað í rotturnar
og heili þeirra var svo skannaður.
Ákveðnir hlutar heilans, sem sjá
um vöxt taugastofnfruma, sýndust
virkari eftir að þær voru sprautaðar
og er talið að þetta geti aukið vöxt
heilafruma.
Í öðrum hluta rannsóknarinnar
voru taugastofnfrumur úr nagdýrum
baðaðar í misháum upplausnum
af efninu. En frumurnar hafa þann
eiginleika að geta breyst í hvaða
heilafrumu sem er og telja vísinda-
menn að þær hafi hlutverki að gegna
eftir skaða eða sjúkdóm í heila.
„Aromatic-turmerone“ hefur lítið
verið rannsakað en það er annað
tveggja stærstu efna túrmerik sem
gætu haft áhrif á mannslíkamann.
Rannsóknir á hinu stóra efni krydds-
ins „curcumin“ hefur sýnt að það
geti mögulega minnkað bólgur í lík-
amanum og minnkað líkur á krabba-
meini. n helgadis@dv.is
Túrmerik
Efni í kryddinu
gæti hjálpað
við að finna
lækningu við
Alzheimers.
Auðvelt að efla
sjálfstraust
Stundum koma dagar þar sem
sjálfstraustið er ekki upp á marga
fiska. Þegar það gerist er gott að
muna þrjár einfaldar leiðir til að
efla það. Skoðaðu ferilskrá þína
og rifjaðu upp hvað þú hefur af-
rekað. Það minnir þig á hvað þú
ert í raun og veru hæfileikarík/ur.
Stattu bein/n í baki. Líkamsstað-
an og hvernig þú berð þig getur
haft áhrif á það hvernig þér líður
andlega. Rannsóknir hafa sýnt að
við getum haft áhrif á það hvern-
ig við hugsum og högum okkur
með því að breyta því hvern-
ig við hreyfum okkur og berum.
Talaðu við sjálfa/n þig. Það kann
að hljóma undarlega, en að tala
upphátt við sjálfan sig getur í
raun gert þig gáfaðri. Það hjálpar
þér að muna hluti og halda ein-
beitingu.
Léttist án
megrunar
Sálfræðingurinn Brian Wans-
ink við Cornell-háskólann í New
York hefur gefið út bókina Slim
By Design: Mindless Eating
Solutions for Everyday Life þar
sem hann kemur með auðveldar
aðferðir til að léttast án megrunar.
Wansink mælir með minni
matardiskum og því að morgun-
korninu sé skipt út fyrir skál af
ávöxtum en samkvæmt rannsókn
voru konur sem neyttu morgun-
korns í stað ávaxta allt að 10 kíló-
um þyngri, að meðaltali, en hinar.
Önnur ráð Wansinks eru að
tyggja tyggjó í matvörubúð til
að kaupa minna af óhollustu og
sleppa því að borða við skrif-
borðið.
„Við eigum lítið af
séríslensku bakkelsi“
B
rauðmeti hefur átt á bratt-
ann að sækja síðustu miss-
eri. Hvítt hveiti og sykur
þykja í besta falli óþarfi og
í versta falli hættulegt fólki,
þrátt fyrir að um miðja síðustu öld
hafi fólk beinlínis verið hvatt til þess
að borða sykur. En það er nú samt
svo að mörgum þykja kaffiboð ansi
fátækleg ef ekki er sætabrauð og
bakkelsi á boðstólum.
Sigurður Már Guðjónsson, bak-
ara- og konditormeistari Bernhöfts-
bakarís, segist hafa tekið eftir nei-
kvæðri umræðu um brauð upp á
síðkastið en vill þó ekki kannast við
að brauðið eigi umræðuna skilda.
Brauðið ekki sökudólgur
„Laufey Steingrímsdóttir næringar-
fræðingur hélt okkur bökurunum
fyrirlestur fyrir nokkru og þar sagði
hún að þjóðin hafi aldrei verið feitari
en á sama tíma aldrei borðað minna
af brauði. Ég segi því að það er ekki
brauðið sem er að fita fólk, það verð-
ur að finna einhvern annan söku-
dólg.“
Það ætti þó ekki að koma neinum
á óvart að vínarbrauð og snúðar eru
það sem er langvinsælast af sæta-
brauði í bakaríum í dag. „Á sumrin
eru croissant þó aðeins vinsælli en
það er aðallega hjá ferðamönnum.
Það er sennilega vegna þess að þeir
þekkja það betur en það sem við
bjóðum upp á. En svo eru það auð-
vitað árstíðabundna bakkelsið sem
kemur sterkt inn á veturna,“ segir
Sigurður Már Guðjónsson.
Ein elsta iðngreinin
Bakaraiðn er ein elsta iðngrein Ís-
lendinga en fyrsta bakarí lands-
ins, Bernhöftsbakarí, var byggt fyrir
hundrað og áttatíu árum og átti það
afmæli um daginn. Tilkomu fyrsta
bakarísins er mögulega hægt að
þakka Friðriki VI konungi því hann
hét að veita verðlaun hverjum þeim
sem byggði hús hér á landi. Danskur
kaupmaður að nafni Peter Christian
Knudtzon tók sig til og byggði húsa-
þyrpingu í Þingholtunum og ákvað
að setja bakaraofn í eitt húsið. Það
var þó ekki vegna sérstakrar ástríðu á
bakkelsi, heldur vegna þess að hann
var viðskiptamaður og sá að það
vantaði bakarí. Peter flutti inn þýsk-
an bakarameistara, Tönnies Daniel
Bernhöft, og var þá stofnsett fyrsta
bakarí Íslands. Bernhöftsbakarí var
eina bakarí landsins í þrjátíu og fjög-
ur ár eða þar til fyrsta bakarí Akur-
eyrar var stofnað árið 1868.
Íslendingar byrjuðu seint að baka
Til að byrja með var aðeins bakað
brauð í Bernhöftsbakaríi en hægt
var að fá sætabrauð eftir pöntun-
um. Það var ekki fyrr en milli
1850 og 1870 sem bakstur sæta-
brauðs hófst af einhverju viti hér á
landi. „Meginþorri okkar baksturs-
menningu kemur að utan en það
er ekkert til þess að skammast sín
fyrir,“ segir Sigurður. „Við eigum
lítið af séríslensku bakkelsi því við
byrjuðum seint að baka og fluttum
inn alla okkar fagmenn, kleinur eru
til dæmis jólabakkelsi í Þýskalandi.
En íslenski snúðurinn er nokkuð
sérstakur ef bara fyrir þær sakir
að hann er mun stærri en snúð-
ar annarra landa og með glassúr.
Danir, Svíar og Þjóðverjar baka líka
snúð en en öðruvísi en okkar. Þess
utan eru flatkökur og soðbrauð sér-
íslensk fyrirbæri,“ segir Sigurður að
lokum. n
n Ekki brauði að kenna að Íslendingar hafa fitnað n Croissant vinsælt á sumrin
Helga Dís Björgúlfsdóttir
helgadis@dv.is
„Ég segi því að það
er ekki brauðið
sem er að fita fólk, það
verður að finna einhvern
annan sökudólg.
Vínarbrauð Til að byrja með varð að panta sérstaklega vínarbrauð í bakaríum.
Sigurður Már
Guðjónsson
Vínarbrauð
og snúðar
langvinsælastir,
croissant kemur
hins vegar sterkt
inn á sumrin.