Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Qupperneq 30
Vikublað 30. september–2. október 201430 Sport
langri leið knattspyrnumanns til
atvinnumennsku. Hann nefnir menn
eins og Ívar Ingimarsson og Heiðar
Helguson sem dæmi um atvinnu-
menn sem hafi náð langt þrátt fyrir
að koma frá litlum bæjarfélögum þar
sem aðstaða hafi kannski ekki verið
góð. Umhverfið skipti vissulega máli
en hugarfar og elja ungra leikmanna
skipti meira máli. „Ef þú ert efnilegur
leikmaður í góðu umhverfi, hefur að-
gang að góðri aðstöðu og hefur færa
þjálfara, þá aukast líkurnar á því að
verða nógu góður til að komast í at-
vinnumennsku.“
Hann segir mikla áherslu lagða
á það að hjá Breiðabliki að „æfinga-
kúltúrinn“ sé góður. Allt kapp sé lagt
á að allar æfingar séu góðar, að tíma
sé ekki sóað. Sama gildi um leiki. „Við
kappkostum að gera hlutina vel og
hér hefur verið markaður ákveðinn
leikstíll og stefna. Menn eru oftast
að sigla í sömu átt. Með því kem-
ur ákveðinn stöðugleiki. Ég veit til
dæmis að FH vinnur þetta eins. Það
er sterkur æfingakúltúr hjá þessum
félögum.“ Daði bendir líka á að stærð
Breiðabliks geri það að verkum að á
öllum stigum yngri flokka hafi krakk-
arnir fyrirmyndir, sem þeir geta litið
upp til, bæði leikmanna í unglinga-
landsliðum og í aðalliði Breiðabliks.
Það sé afar mikilvægt.
Ágangur erlendra útsendara eykst
Framganga Íslendinga á erlendri
grund hefur vakið mikla athygli að
undanförnu. Ekki hefur árangur lands-
liðsins dregið úr áhuganum. Spurð-
ur hvort íslenskum atvinnumönnum
fari enn fjölgandi, segir Daði að hlut-
fallið hafi haldist svipað núna í nokk-
ur ár. Það sem hafi breyst sé ágangur
erlendra útsendara, umboðsmanna.
Þeir séu sífellt að sækja í yngri leik-
menn. Hann segir þróunina varhuga-
verða því það sé ekki alltaf best fyrir
leikmennina að fara snemma út. Í það
minnsta ekki hvert sem er. Hann segir
að leikmenn eins og Alfreð Finnboga-
son, Sverrir Ingi Ingason og Jóhann
Berg Guðmundsson hafi allir tekið
nokkur tímabil í meistaraflokki. Það
hafi þroskað þá sem leikmenn enda
sé Pepsi-deildin góður skóli fyrir unga
leikmenn. Hann bendir á að margir
leikmenn, sem fari ungir og efnilegir
til erlendra unglingaliða, komi heim
án þess að verða atvinnumenn. „Það
er mikill munur á því að verða ung-
lingaatvinnumaður og svo fullorðinn
atvinnumaður.“
Daði segir að þegar erlendir um-
boðsmenn mæti á æfingar og leiki,
og sýni ungum strákum áhuga, geti
það komið óheppilegu róti á æfinga-
hópana. „Hættan er sú að leikmenn
missi fókus á að vinna í núinu. Þeir
fara kannski að hugsa um það sem
gæti orðið og missa sjónar á því að
bæta sig í dag.“ Hann segir að leitað
sé í leikmenn niður í 14 ára aldur.
Daði segir Breiðablik leggja
áherslu á að eiga jákvæð og góð sam-
skipti við útsendara erlendra stór-
liða. „Við viljum að þessi samskipti
séu í lagi og fari fram með virðingu.“
En eru þau í lagi? „Svo lengi sem
menn fara ekki beint í leikmanninn
án þess að ræða við okkur.“ Hann seg-
ir frammistöðu Íslendinga á erlendri
grund á undanförnum árum hafi vak-
ið verðskuldaða athygli sem birtist í
því að útsendurum fjölgi ár frá ári.
KSÍ hefur gert vel
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, ræddi
um uppgang íslenskrar knattspyrnu
við DV í fyrrahaust, þegar lands-
liðið var í eldlínunni. Hann sagði að
það væri í raun ótrúlegt afrek hve
marga atvinnumenn Ísland ætti í
knattspyrnu. „Við höfum átt atvinnu-
menn í mörg, mörg ár, en akkúrat
á þessum tímapunkti eigum við
gríðarlega marga stráka sem fóru
ungir að árum út, eru búnir að koma
sér vel fyrir hjá sínum liðum og eru
að spila. Það er afar mikilvægt,“ sagði
hann.
Rúnar sagði KSÍ hafa gert vel
undanfarin ár í að mennta þjálfara
og setja félögum stífari reglur um
hverjir megi þjálfa yngstu börnin.
Liðin reyndu að hafa sem hæfasta
þjálfara yfir yngstu kynslóðinni. Þá
hafi knattspyrnuhallir risið sem geri
að verkum að nú er hægt æfa hér
á landi allan ársins hring við kjör-
aðstæður.
„Það hefur gjörbreytt öllu að fá
þessi hús. Þegar ég og fleiri vorum að
alast upp þá stóð maður bara á möl-
inni og hljóp og hljóp. Þá var ekkert
hægt að stoppa æfingar því menn
kólnuðu bara niður. Í þessum góðu
skilyrðum í dag getur þú sem þjálfari
útskýrt, kennt og leiðbeint.“
Einbeita sér að deginum í dag
Hvernig verður atvinnumaður í
knattspyrnu til? Daði segist ekki vilja
hengja það á einhvern einn hlut,
þegar einhver nær árangri. En er
hægt að sjá það á unga aldri? „Það
er hægt að sjá tendensana snemma.
Það sem einkennir þessa stráka
sem ná lengst er að þeir eru alltaf í
núinu. Þeir mæta á hverja einustu
æfingu og í hvern einasta leik til að
gera sitt besta. Þessir strákar eru ekk-
ert endilega alltaf stærstu stjörnurn-
ar í sínum árgöngum.“ Hann segir að
þeir strákar sem farið hafi í atvinnu-
mennsku frá Breiðabliki eigi það all-
ir sammerkt að vera þægilegir í um-
gengni og þá sé gott að þjálfa. „Þeir
leggja sig fram í öllu og einbeita sér
alltaf að deginum í dag.“ n
Breiðablik 7 3 900 0,78%
FH 7 1 490 1,43%
Valur 5 236 2,12%
KR 5 358 1,40%
HK 4 2 593 0,67%
Fylkir 3 1 323 0,93%
Selfoss 3 278 1,08%
Fjölnir 3 503 0,60%
Víkingur 2 250 0,80%
ÍA 2 280 0,71%
ÍBV 2 1 199 1,01%
Völsungur 2 1 85 2,35%
Stjarnan 2 366 0,55%
Þór Ak 2 1 246 0,81%
ÍR 2 277 0,72%
Fram 1 3 396 –
Tindastóll 1 101 –
Njarðvík 1 82 –
Leiknir R. 1 106 –
Höttur 1 122 –
Hrunamenn 1 30 –
BÍ 1 37 –
Danmörk 1 – –
Noregur 1 – –
Félag Uppaldir Aðrir Iðkendur 2014 Hlutfall
Svona skiptast þeir
Dálkurinn „hlutfall“ er settur inn til gamans. Þar er fjölda atvinnumanna deilt með fjölda iðk-
enda (drengir 15 ára og yngri árið 2014). Athugið að iðkendatölur geta hafa breyst mjög mikið
frá því núverandi atvinnumenn voru ungir auk þess sem hlutfallið endurspeglar ekki fjölda
þeirra leikmanna sem hafa á einhverjum tímapunkti verið atvinnumenn.
„ Í þessum góðu
skilyrðum í dag
getur þú sem þjálfari út-
skýrt, kennt og leiðbeint
– Rúnar Kristinsson, þjálfari KR
0
1
2
3
4
5
6
7
Br
eið
ab
lik FH
Va
lu
r
KR HK
Fy
lki
r
Se
lfo
ss
Fjö
ln
ir
Ví
kin
gu
r ÍA ÍB
V
Vö
lsu
ng
ur
St
jar
na
n
Þó
r A
k ÍR
Fr
am
Ti
nd
as
tó
ll
Nj
ar
ðv
ík
Le
ikn
ir R
.
Hö
ttu
r
Hr
un
am
en
n BÍ
Da
nm
ör
k
No
re
gu
r
Uppruni leikmanna
Þjálfari KR Rúnar segir að það sé í raun
ótrúlegt hversu marga atvinnumenn í
knattspyrnu Ísland eigi.
Leikmaður telst vera frá því félagi sem hann lék
flest ár með áður en hann náði 18 ára aldri.
Eftirtektarverður árangur
Uppgangur íslenskrar knattspyrnu hefur
vakið athygli langt út fyrir landstein-
anna á undanförnum árum.