Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2014, Qupperneq 37
Fólk 37Vikublað 30. september–2. október 2014 Íslenska kvikmyndin Afinn var frumsýnd í Egilshöll síðastliðinn fimmtudag og voru frumsýningargest- ir hæstánægðir í lok sýningar. Myndin er byggð á samnefndu leikriti eftir Bjarna Hauk Þórsson, en sýningin naut mikilla vinsælda á sínum tíma. Það er ekki við öðru að búast en að kvikmyndin muni njóta viðlíka vinsælda. Það er Sigurður Sigurjóns- son sem fer með hlutverk sjálfs afans í myndinni og þykir hann gera það vel. Sátt Sigurður Sigurjónsson og Sigrún Edda Björnsdóttir fara með aðalhlutverk myndarinnar. Þau stilltu sér upp með höfundinum Bjarna Hauki Þórssyni. Tveir góðir Bjarni Haukur Þórsson og Steinþór Hróar Steinþórsson. Steinþór, betur þekktur sem Steindi Jr., fer með stórt hlutverk í myndinni. Systkini Örn Árnason, sem skemmti sér konunglega á Afanum, ásamt systur sinni. Spjallað Jóhann G. Jóhannsson og Sverrir Þór Sverrisson spjölluðu saman yfir poppi áður en sýningin hófst. Hress Útvarpsmaðurinn Ívar Guðmundsson var hress á frumsýn- ingunni ásamt dóttur sinni.Flott saman Björn Emilsson og Ragna Fossberg voru stórglæsileg í Egilshöll. Kvikmyndin Afinn frumsýnd í Egilshöll Í skýjunum í Hörpu E ldborgarsalurinn í Hörpu var þéttset- inn á föstudagskvöldið þegar strák- arnir í Hjálmum héldu upp á afmæli hljómsveitarinnar með frábærum tónleikum. Hljómsveitin Hjálmar var stofnuð árið 2004 í Keflavík en á tónleikunum fóru þeir í gegnum 10 ára tónlistarsögu sveitarinn- ar auk þess sem þeir komu áhorfendum á óvart með leynigesti sem kom alla leið frá Noregi. Það var enginn annar en Erlend Øye, sem tók meðal annars lagið sitt Garota við mikinn fögnuð viðstaddra. Uppselt var á tónleikana og ekki að sjá á gestum annað en að þeir hafi skemmt sér konunglega. Fjöl- margir gestir sungu með lögum Hjálma og dilluðu sér við vinsælustu lög sveitarinnar. Strákarnir í brassteymi Samúels Jóns Samúelssonar voru einnig magnaðir á tón- leikunum og settu svip sinn á lögin með ógleymanlegum hætti. Sannkölluð tón- listarveisla og má með sanni segja að gest- ir Hörpu hafi verið í skýjunum með Skýja- borgina, 10 ára afmælistónleika Hjálma. n Uppselt var á afmælistónleika Hjálma í Hörpu  Flugvél, geimskip og Hjálmur Kiddi í Hjálmum ásamt dj. flugvél og geimskip en þau tóku lagið saman á afmælistónleikunum.  Kom frá Noregi! Erlend Øye gerir sig kláran fyrir sviðið en hann var leynig- estur kvöldsins. Erlend hefur verið í stúdíói með strák- unum í Hjálmum að undanförnu og von er á diski frá þeim á næstu vikum. Siggi í Hjálmum Sló á létta strengi milli laga. myNdir BB  Glögð í bragði Júlíus Guðmundsson, sonur rokkgoð- sagnarinnar Rúnars Júlíus- sonar, kíkti á afmælistónleika Hjálma ásamt eiginkonu sinni Guðnýju Krist- jánsdóttur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.